Tíminn - 03.05.1975, Side 12
12
TÍMINN
Laugardagur 3. mai 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
12
fyrir f lakkið/ en f ramkoma þín er með öllu óþolandi. Ég
verð að fara. Ég er orðinn seinn.
Skröltið i loftræstingunni var nú orðið meira en suðið.
Rambo vissi ekki hvort hann skalf af kulda eða reiði. —
Dobzyn, sagði hann og leit í augu hans, er hánn gekk
fram hjá honum: — Ég bíð þess að þú spyrjir mig hvort
ég er sekur um að veita mótspyrnu við handtöku.
Níundikafli.
Dyrnar beggja vegna gangsins voru nú lokaðar. Hann
gekk fram hjá vinnupalli málaranna við enda gangsins
og stefndi að skrifstofu Teasle.
— Nei, í þetta skipti ferðu þessa leið, sagði Teasle.
Hann benti á síðustu dyrnar á hægri hönd. Á dyrunum
var svolítill gluggi. í honum voru járnrimlar. Hann ætl-
aði að opna dyrnar með lykli. Það var ekki f yrr en hann
snerti við hurðinni, að hann sá að dyrnar voru þegar opn-
ar í smá rifu. Hann hristi höfuðið hneykslaður yfir því.
Hann ýtti upp hurðinni og benti Rambo að ganga að
stigaopi. Stigariðið var úr járni og steinsteypt þrepin
lágu niður. Flúorljós voru i loftinu. Um leið og Rambo
var kominn inn, f ylgdi Teasle fast á eftir og iokaði hurð-
inni. Þeir gengu niður þrepið. Fótatak þeirra bregmál-
aði.
Rambo heyrði vatnsrennslið áður en þeir komu niður í
kjallarann. Steinsteypt gólfið var blautt og flúorljósin
spegluðust á því. í enda kjallarans var mjósleginn lög-
reglumaður að sprauta eitt klefagólfið. Vatnið rann út
milli rimlanna og í niðurfall. Þegar hann kom auga á
Teasle og Rambo skrúfaði hann þétt fyrir vatnsrennslið.
Rödd Teasle bergmálaði: — Galt. Hvers vegna eru dyrn-
ar uppi ólæstar enn einu sinni?
— Gleymdi ég....? Það eru engir fangar eftir. Sá síð-
asti var að ranka við sér. Ég leyf ði honum að f ara.
— Það skiptir ekki máli hvort við höfum fanga eða
ekki. Ef þú venur þig á að læsa ekki þegar við erum
fangalausir, gætirðu einnig gleymt að læsa þó einhver
væri hérna. Ég vil að dyrnar séu alltaf læstar. Mér er um
geð að segja það, en það er erf itt að fá nýtt starf. En ef
þú lærir ekki að sýna varkárni gæti svo farið, að ég yrði
að ráða nýjan mann.
Rambo var álíka kalt og þegar hann skalf í skrifstof u
Dobzyn. Ljósin í loftinu voru of nærri höfði hans. Þrátt
fyrir það virtist dimmt þarna inni. Járn og steinsteypa.
Hann hefði aldrei átt að hleypa Teasle svo langt, að fara
með sig þarna niður. Á leiðinni frá dómshúsinu hefði
hann getað hrist hann af sér og flúið. Jafnvel flótti var
betri en þrjátíu og f imm daga prísund hérna niðri. -- Við
hverjum fjandanum bjóst þú? spurði hann sjálfan sig.
Þú bauðst hættunni heim, ekki satt? Þú vildir ekki láta í
minni pokann. Sannarlega ekki. Né heldur núna. Þó ég
verði settur inn er ég ekki þar með búinn að vera. Ég skal
berjasttil þrautar. Þegar hann er reiðubúínn að sleppa'
mér út, verður hann manná fegnastur. Auðvitað gefstu
ekki upp. Hvílík fyndni. Líttu á sjálfan þig. Þú skelf ur nú
þegar eins og hrísla. Þú veizt nú þegar á hvað þessi stað-
ur minnir þig. Eftir tveggja daga vist í þessum krubbu-
lega klefa heldur þú ekki lengur eigin vatni.
— Þú verður að skilja, að ég get ekki verið þarna inni.
Hann gatekki stillt sig. — Það er bleytan. Ég þoli ekki að
vera innilokaður þar sem er blautt eða rakt. Hann var að
hugsa um gryf juna og harða lífsbaráttu sína. Bambus-
grindina yfir gryf junni og vatnið, sem seytlaði gegnum
forina, veggina, sem sífellt molnaði úr og aurlagið
sem hann varð að sofa á. í Guðs bænum segðu honum
það. Helvíti, grátbiddu hann, áttu við.
Þegar allt var orðið um seinan reyndi ungi maðurinn
f yrst að beita fortölum. Auðvitað. Teasle komst ekki yf ir
tilgangsleysi alls þessa. Fyrst hafði pilturinn gert allt
sem hann gat, til að enda innan f jögurra veggja.
— Þú mátt þakka f yrir að hér er blautt, sagði hann. —
Við hreinsum þó allt í niðurföllin. Hingað koma helgar-
rónar, sem hafa ælt upp um alla veggi þegar við sleppum
þeim á mánudögum.
Hann leit á klefana. Vegna vatnsins á gólfinu virtust
þeir hreinir og sindrandi. — Þó að þú sért kærulaus með
hurðina eru klefarnir vel hreinsaðir hjá þér, sagði
Teasle. — Auktu nú leti mína. Skrepptu upp og sæktu
rúmfatnað og klæðnað á þennan pilt. Hann sner! sér að
Rambo: —Ætli miðklefinn sé ekki ágætur? Komdu þér
inn og farðu úr stígvélunum, jakkanum og buxunum. Þú
mátt vera í sokkum, skyrtu og nærfötum. Þú verður að
taka af þér alla lausamuni, keðjur um hálsinn, arm-
bandsúr — Galt, á hvað ertu að glápa?
— Ekkert.
— Hvar er það sem ég sendi þig eftir?
— Ég var bara að horfa á. Ég skal sækja það. Hann
flýtti sér upp stigann.
— Ætlar þú ekki að áminna hann um að loka dyrun-
um? sagði Rambo.
— Það er óþarft.
Teasle heyrði skröltið þegar dyrnar voru opnaðar.
Hann beið. Svo heyrði hann Galt læsa á eftir sér. — Byrj-
aðu á stígvélunum, sagði hann.
Hann gat ekki vitaö aö hann ætti, skv.
sögunni að falla fyrir hendi hermanna '
Og þá ekki her
mennirnir sjálfir!1
Hauskúpumerkiö, merki
Dreka á glæpamenn,-
Hvaö meinti hann meö þvi?
Þegar Ahmed bað Walker um
vegabréfiö svaraöi hann...
Veit ekki, sjáöu
^ kjálkann /'
St, á honum. )
Laugardagur
3. mai
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 iþróttir. Umsjón: Jón
Asgeirsson..
14.15 Aö hlusta á tónlist,
XXVII. Atli Heimir Sveins-
son sér um þáttinn.
15.00 Vikan framundan.
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
16.00 Fréttir. Tilkynningar,
(16.15 Veðurfregnir). Is-
lenzkt mál. Asgeir Bl.
Magnússon cand. mag. flyt-
ur þáttinn.
16.40 TIu á toppnuin.Örn Pet-
ersen sér um dæturlaga-
þátt.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Sadako vill
lifa”.
18.00 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Frettaauki. Til-
" kynningar.
19.35 Frá Norðurlöndum.
20.00 Hljómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 „Höggið,” smásaga eftir
Björn Bjarman. Höfundur
les.
21.15 Pólsk samtímatónskáld
leika eigin tónsmiðar.
21.45 Ljóðalestur. Pétur Haf
stein Lárusson og Geirlaug-
ur Magnússon Iesa úr ljóð-
um sinum.
22:00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur
3. mai
16.30 íþróttir Knattspyrnu-
kennsla. Ennska knatt-
spyrnan. Aðrar iþróttir.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
18.30 Eldfærin Brúðuleikur,
byggður á samnefndu ævin-
týri eftir H.C. Andersen og
fluttur af islenska brúðu-
leikhúsinu. Stjórnarndi Jón
Guðmundsson. Áður á dag-
skrá 26. janúar 1969.
19.15 Þingvikan Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
19.45 Illé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Elsku pabbi Breskur
gamanmyndaflokkur.
Ráðskona óskast. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
20.55 Ugla sat á kvisti Get-
raunaleikur með skemmti-
atriðum. Umsjónarmaður
Jónas R. Jónsson.
21.40 Frá inorgni til miðdegis
Finnsk fræðslumynd um
dýralff i skógum Finnlands.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
22.05 Synir og elskhugar
(Sons and Lovers) Bresk
biómynd frá árinu 1960,
byggð á skáldsögu eftir
D.H. Lawrence.'Leikstjóri
Jack Cardiff. Aðalhlutverk
Trevor Howard, Dean
Stockwell ög Wendy Hiller.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Myndin gerist i' bresk-
um námabæ snemma á
þessari öld. Aðalpersónan,
Paul Morel, er listhneigður
ungur piltur. Faðir hans og
bróðir vinna i kolanámun-
um, en móðir hans rær að
þvi öllum árum, að hann
fari til Lundúna og leggi þar
stund á listnám. Faðirinn,
drykkfelldur og beisklyndur
erfiðismaður, leggst gegn
þessari hugmynd, og einnig
verða ástamálin til að géra
framtiðaráformin enn
flóknari.
23.45 Dagskrárlok.