Tíminn - 04.05.1975, Page 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐVR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 - SÍMI (91)19460
*
Bílsturtur
Dælur
Drifsköft
Landvélarhf
YNGSTA LJÓÐSKÁLD Á ÍSLANDI
LJÓÐABÓK EFTIR
11 ÁRA DRENG
VS-Reykjavík.
KORNUNGUR ljóðasm iöur,
Björgvin Jónsson aö nafni hefur
sent frá sér sina fyrstu kvæöabók.
Hún heitir t nýjum heimi. Ljóöin
eru aö visu fá, aðeins 21, og mörg
þeirra eru ekki nema eitt erindi,
en hins ber lika aö gæta, aö aldur
höfundarins erlægrien tiðkanlegt
er um höfunda bóka. Hann er ný-
orðinn ellefu ára.
Það er ekki á hverjum degi, að
blaðamönnum gefst kostur á að
tala við svo ungt skáld, og þess
vegna leitaði Timinn til Björgvins
og bað hann að svara nokkrum
spurningum, hvað hann gerði
góðfúslega.
— Hvað heldur þú að þú hafir
verið gamall, Björgvin, þegar þú
gerðir fyrstu vlsuna?
— Ég var sjö ára.
— Kanntu hana?
— Já, já. Hún heitir Krossfest-
ing og er svona:
Á föstudaginn langa
var sorg að sjá,
Kristur upp á krossinum
og Maria kraup þar hjá.
Þessi visa er i bókinni minni, á
bls. 10.
— Langaði þig snemma til þess
að gera visur?
— Já, mjög snemma. Ég vissi,
að pabbi minn orti visur, og þá
langaði mig til að gera það lika.
Ég las lika mikið af visum og
kvæðum eftir aðra, og langaði til
að gera eins og þeir.
— Pabbi þinn hefur kannski
leiðbeint þér við visnagerðina?
— Já, hann kenndi mér, hvern-
ig ætti að fara að þvi að yrkja vis-
ur, en visurnar i bókinni minni
eru samt allar eftir mig sjálfan.
I DAG
er rætt viö Róbert Arnfinnsson,
leikara, um fristundir hans o. fi.
Sjá bls. 14 og 15
— Hvaða bækur hefur þér þótt
skemmtilegastar eftir að þú fórst
að lesa sjálfur?
— Ljóð Jónasar Hallgrimsson-
ar.
— Lest þú meira kvæði en ó-
bundið mál?
— Já, mér þykir miklu meira
gaman að lesa ljóð en sögur, en þó
hef ég lesið heilmikið af þeim
lika.
— Hefur þú lesiö Islendinga-
sögurnar?
— Já, flestar.
— Og hverjar þykja þér bezt-
ar?
— Njála og Grettis saga, ann-
ars eru margar þeirra óskaplega
skemmtilegar.
— En þá er þaö nú bókin þin.
Hlakkaðir þú ekki til, þegar þú
vissir, að þú gætir komið visunum
þinum út i bók?
— Jú, það var gaman.
— Varstu ekki neitt feiminn við
bókina, þegar þú sást hana?
— Jú, rétt fyrst, en svo fór það
af, og nú er mér orð'ð alveg
sama.
— Hefur þú ekki ort neitt fleira
en það sem er i bókinni?
— Það er litið. Ég á örfá ljóð ó-
birt, en ég held aö þessi séu bezt,
og auk þess er þetta svo góð tala,
21. Ég heföi viljað að ljóðin væru
annað hvort 27 eöa 21, en ég átti
ekki nóg i 27, svo ég lét þessi fara,
en skildi hin eftir.
— Langar þig ekki til að verða
skáld, þegar þú verður stór?
— Það væri óskaplega gaman,
en ég veitt ekkert, hvort það
verður. Það getur enginn vitað
fyrirfram, hvort hann er skáld
eða ekki.
Hér kveðjum við Björgvin
Jónsson og þökkum honum kær-
lega fyrir viðtaliö um leið og við
óskum honum góðs gengis á
þeirri braut, sem liklegt er að
hann muni ganga. Það er ekki úr
vegi að ljúka þessum linum meö
einu erindi úr bókinni hans, og
vist er, að sumir, sem eldri eru en
ellefu ára, gætu haft ástæöu til
þess að öfunda hann af þeirri
smið:
Sólin skin á Skorradal
skammt frá Hvalfirðinum.
Horfðu á friðan fjallasal
fagna góðum vinum.
DYRASTA BOK Á ÍSLANDI:
SAGA FRIMERKISINS
KEMUR ÚT í ÁR
Nokkrir búnir að greiða upphaflegt
kostnaðarverð 3100 kr.
OÓ-Reykjavik, Mikill dráttur
hefur oröið á útgáfu stórs og
vandaös ritverks um sögu Is-
lenzka frimerkisins, sem upphaf-
lega átti aö koma út á 100 ára af-
mæli útgáfu fyrsta frimerkis hér
á landi, 1973. En nú standa vonir
til að bókin geti komið út á þessu
ári, en allmiklu stærri og dýrari
en upphaflega var ákveðið.
A árinu 1973 var sendur út
pöntunarlisti fyrir þá, sem vildu
gerast áskrifendur að bókinni Is-
lenzk frimerki I hundrað ár. Var
listinn sendur út á fjórum tungu-
málum og I þeim lista stendur:
„Verð bókarinnar til þeirra, sem
óska eftir henni samkvæmt hjá-
lögðum pöntunarseðli, verður
3100 krónur. Sendingarkostnaður
er innifalinn I verðinu svo og
vönduð askja utan um bókina.
Það er Póstur og simi sem gef-
ur bókina út, en Frimerkjasalan
sendi pöntunarlistann út.
1 viðtali, sem birtist viö Hauk
Halldórsson teiknara I viðtali við
dagblað s.l. vetur, en hann sér um
ytri frágang verksins, segir hann,
að þetta veröi liklega eitt dýrasta
verk I bókarformi, sem prentað
hefur verið á tslandi, og m.a. er
litmynd af hverju einasta Is-
lenzku frimerki, sem gefið hefur
verið út á Islandi, en alls er þar
um aö ræða 600-700 einingar af
frimerkjum með öllum yfir-
stimplunum og sliku sérstæðu.
S.l. vetur var gefiö út annað
bókverk, sem þótti dýrt og
kostaði frá 15 þúsund krónum.
Ætla má þvi aö frlmerkjabókin
góða verði enn dýrari, og er nú
eftir að vita hvort þeir sem
greiddu 3100 krónur fyrir verkið,
er þeir pöntuðu það 1973, fái bók-
ina fyrir þaö verö, eða verði að
greiða mismuninn á þvi verði og
þvi, sem raunverulegt verð bók-
arinnar verður, er hún loks kem-
ur út.
Rafn Júliusson, póstfulltrúi,
sagði er Timinn bar þetta undir
hann, að brátt drægi að útkomu
bókarinnar, og vonandi gæti það
orðið á þessu ári. Rafn sagöi, að
fullmikillar bjartsýni hafi gætt
um útkomuna i upphafi og hafi
verkiö allt orðið mun viðameira
en ætlað var. En nú er bókin kom-
in I fyrstu próförk og þá fer að
draga aö útkomudegi.
Um pöntunarseðilinn og verð
lagningu samkvæmt honum,
sagði Rafn. Talsvert barst af
pöntunum, en ekki var frekar
ætlazt til að bókin yrði borguö við
pöntun. Var þetta meira gert til
að vita eitthvað um hvaða viðtök-
ur bókin mfcndi fá. Það var rétt
einn og einn af þeim, sem lögðu
inn pöntun, sem létu greiðslu
fylgja meö. Hafa þeir fengiö upp
hæöina endurgreidda um leið og
beöið var um það. Aðrir eru fastir
viöskiptavinir hjá okkur og hafa
kannski étið upp upphæðina i fri-
merkjum. t þessari auglýsingu
var ekki farið fram á að bókin
yrði bcrguð, þótt pöntuð væri, og
verðinu var slegið fram viö þeirra
tima aöstæður. Eitthvaö liggur af
peningum hjá okkur frá slikum
pöntunum. Tel ég að útgefenda
beri ekki skylda til að iáta bókina
á fyrrgreindu verði, þar sem ekki
var farið fram á greiöslu i aug-
lýsingunni. Við ætluðum bara að
gefa mönnum kost á aö fá bókina
beint frá okkur og að meiningin
var að hún yrði miklu dýrari i út-
sölu.
JAFNVÆGISSKYNIN
UNNU HVORT GEGN
ÖÐRU SVO AFLÍFA
VARÐ LAMBIÐ
Tvihöfða lambiö, sem fæddist að Hnjúki i Vatnsdal fyrir nokkr-
um dögum hefur nú verið aflifað. Dýralæknirinn kvað upp þann
úrskurð, að lambiö myndi aldrei geta stigið i fæturna, þar sem
það hefði tvö jafnvægisskyn, sitt i hvoru höfði, — og unnu þau
hvort á móti öðru. Eigandi lambsins Magnús Sigurðsson hefur
ákveðiðað láta stoppa það upp. Ljósm: Jóhannes Kristjánsson.