Tíminn - 11.05.1975, Blaðsíða 27
Sunnudagur 11. mai 1975.
TÍMINN
27
KRR setti „rautt Ijós" a KSÍ
Fyrsti stórleikur ársins
fer fram í Keflavík
„PRESSULEIKURINN" I knatt-
spyrnu, sem átti að fara fram á
Melavellinum á morgun, verður
leikinn i Keflavik I dag. Astæöan
fyrir þvi að leikurinn fer ekki
fram á Melavellinum er, að
Knattspyrnuráð Reykjavikur
kom i veg fyrir það að KSt fengi
Melavöllinn til afnota, fyrir
fyrsta stórleik ársins. En stjórn
KSÍ hafði farið fram á, að fá
Melavöllinn undir „pressuleik-
inn" —sem er fyrsti leikur lands-
liðsins I ár, sem er nú byrjað að
undirbiia sig fyrir átökin gegn
Frökkum á Laugardalsvellinum
25. mai.
Astæðan fyrir aðgerðum KRR
er stjórn ráðsins sagði, að
markaður i Reykjavlk væri
„mettaður" af knattspyrnu og
ómögulegt væri að bjdða Reyk-
vikingum upp á meiri knatt-
spyrnu nú um tima — eða fram að
landsleik 25. mai, en landsleikur-
inn er næsti leikur i Reykja-
vik. Astæðan fyrir aðgefðum
KRR gagnvart KSl eru aðrar —
það er vitað. A sl. Arsþingi KSÍ
voru samþykkt lög um tekju-
skiptingu á „pressuleikjum",
sem stjörn KRR hefur átt erfitt
Pressuliðið, sem er geysiiega sterkt á
pappírnum, mætir landsliðinu á Kefla-
víkurvellinum kl. 15.00 í dag
með að sætta sig við, en „pressu-
leikir" hafa hingað til farið fram I
Reykjavlk. Aögerðir KRR
er því óbeint til að sýna óánægju
með tekjuskiptinguna, sem er
þannig. — Stjórn KSÍ fær 70% af
tekjum „pressuleiks", en
Samtök Iþróttafréttamanna 30%.
Reykjavlkurfélögin komu með
tillögu á ársþingi KSl, sem var
felld. HUn var þannig: KSl fengi
60% af tekjum „pressuleiks", en
KRR og Samtök íþróttafrétta-
manna sin hvor 20%.
Með þessum aðgerðum gagn-
vart KSÍ, má segja, að Reykjavik
hafi afsalað sér þeim rétti, sem
hUn hefur hingað til haft — að
„pressuleikirnir" færu fram I
Reykjavik. Pressuleikurinn I dag
fer fram I Keflavik og má búast
við, að þeir fari framvegis fram
utan ramma Reykjavfkurfélag-
anna.
Leikurinn i dag, hefst kl, 15 á
Keflavikurvellinum og má búast
við spennandi og fjörugum ieik,
eins og alltaf þegar Urvalslið
Iþróttafréttamanna mætir lands-
liðinu. Þá má örugglega búast við
þvi, að margir leggi leið sina til
Keflavíkur og fjölmennt verði á
fyrsta stórleik ársins. NU er búið
að velja bæði liðin og verða þau
skipuð sem hér segir:
Pressuliðið, sem er geysilega
sterkt á pappfrnum, er skipað
þessum leikmönnum:
Markverðir
Þorsteinn Ólafsson, Keflavlk
Magnús Guðmundsson, KR
Aðrir leikmenn:
Agúst Guðmundsson, Fram
Eiríkur Þorsteinsson, Vlking
Pálmi Sveinbjörnsson, FH
Einar Gunnarsson, Keflavik
Haukur Ottesen, KR
Hermann Gunnarsson, Val
Arni Sveinsson, Akranesi
Jón Alfreðsson, Akranesi
Tómas Pálsson, Vestmey.
Rdnar Júliusson, Keflavlk
Kristinn Björnsson, Val
örn óskarsson, Vestmey.
Karl Þórðarson, Akranesi
Jöhann Torfason, KR
Ólafur Danivaldsson, FH
Landsliðið verður skipað þess-
um leikmönnum:
Arni Stefánsson, Fram
Sigurður Dagsson, Val
Aðrir leikmenn:
Björn Lárusson, Akranesi .
Jón Pétursson, Fram
Marteinn Geirsson, Fram
Jón Gunnlaugsson, Akranesi
Ottd Guðmundsson, KR
Gisli Torfason, Keflavik
Astráður Gunnarsson, Keflavik
Guðgeir Leifsson, Vikingi,
Grétar MagnUsson, Keflavík
Karl Hermannsson, Keflavik
Asgeir Eliasson, Viking 01.
Olafur JUliusson, Keflavik
Matthlas Hallgrimsson, Akranesi
Teitur Þórðarson, Akranesi
Atli Þ. Héðinsson, KR
ALAN TAYLOR
JAFNAÐI 16
ÁRA GAMALT
BIKARMET
— þegar hann skoraði 6 mörk í þremur
síðustu leikjum WH í bikarkeppninni
Bikarhetja West Ham, ALAN
TAYLOR, er fyrsti leikmaðurinn
116 ár — frá þvi 1956-'57, sem hef-
ur skorað 6 mörk I þremur siðustu
umferðunum I ensku bikarkeppn-
inni. Fyrir 16 árum vann Aston
. Villa-leikmaðurinn Peter McPar-
land þetta afrek — hann
skoraði þá 2 mörk gegn Burnley i
8-lioa úrslitunum, 2 mörk gegn
W.B.A. I 4-liða lírslitunum og sfð-
an bæði mörk Aston Villa. t þeim
Ieik vann Aston Villa sigur yfir
Manchester United I úrslitaleikn-
um, 2:1 fyrir Villa. Taylor skoraði
2 mörk gegn Arsenal i 8-liða úr-
slitunum, 2 mörk gegn Ipswich I
4-Iiða úrslitunum og siðan bæði
mörk West Ham gegn Fulham á
Wembley, eins og menn niuna.
Þá er John Lyall, fram-
kvæmdastjóri West Ham, sjötti
maðurinn, sem stjórnar líði til
.sigurs i. bikarkeppninni á fyrsta
fulla keppnistimabili, sem hann
hefur verið framkvæmdastjóri.
Hinir efu Stuart McMillan
(Derby), Vic Buckingham og
Alan Ashman (W.B.A.). Ashman
var með West Bromwich Albion
1968, þegar W.B.A. vann Everton
1:0 á Wembley. Duggie Living-
stone (Newcastle) og Bob Stoke,
sem stjórnaði Sunderland til
sigurs gegn Leeds 1973.
NÝ STJARNA
IZT UPP Á
ÍÞRÓTTA
HIMININN
• Hin 13 órö gamla Nadia Comaneci frá
Rúmeníu er talin vero enn betri en þær
Turicheva og Olga Korbut til samans
NADIA „litla" COMANECI....frá Itúmeniu sést hér sýna listir slnar.
Hún hafði algjöra yfirburði á Evrdpumeistaramdtinu I fimleikum I
kvenna, sem fór fram I Skfen f Noregi. Heimsmeistarinn Ludmillal
> Turicheva varð að láta sér nægja 4.-5. sæti. I
HEFUR SKOT- I
Ný stjarna hefur nú skotizt upp á
stjörnuhiminn Iþróttanna — það
er hin kornunga — 13 ára — fim-
leikastjarna frá Rúmenfu, Nadia
Comaneci. Þetta mikla undra-
barn fimleikanna, vann hug og
hjörtu áhorfenda á Evrópu-
meistaramóti kvenna i fimleik-
um, sem haldið var i Skien I
Noregi. Nadia litla, sem er aðeins
38 kiló á þyngd og 152 cm á hæð,
kom, sá og sigraði á Evrópu-
meistaramótinu. — Hún hlaut
fjögur gull af fimm'mögulegum.
iNorsku blöðin áttu ekki orð tii að
iýsa hrifningu áhorfenda og eitt
sagði, að það hefði átt sér stað
„Stjörnuskot i Skien".
>f-
Nadia „litla" Comanece sýndi
frábæra fimi, og eru flestir á þvi
máli, að hún sé betri en sovézku
fimleikastjörnurnar Ludmilla
Turischeva og Olga Korbut.
Turischeva, sem hefur verið
ókrýnd drottning fimleikanna,
hafði ekkert að gera i hendurnar
á Nadi — hún komst ekki með
tærnar þar sem Nadi „litla" hafði
hælana, svo miklir voru yfir-.
buröir stjörnunnar frá Rúmeniu!
Islenzkt
I frjáls
I íþróttafólk
| þreytir
I landskeppni
1 við 13 þ jóð
| ir í sumar
MIKIÐ verður um að vera hjá Is-
I lenzku frjálslþróttafdlki I sumar
en alls verður keppt við 13 þjóðir f
landskeppni, er þá talin með þátt-
I taka I Evrópubikarkeppni karla,
svo og landskeppni við Skota I
karla og kvennagreinum hér
heima, keppni við Finna, Svfa og
| Norðmenn i Karlottkeppninni og
loks landskeppni i tugþraut við
IBreta og Frakka og þátttaka I
Evrópubikarkeppni I tugþraut.
Þátttaka I Evrópubikarkeppni
kvenna og I fimmtarþraut kvenna
Ihefur veriö afþökkuð vegna fjár-
skorts og er það leitt á sjálfu
kvennaárinu.
Auk þátttöku i áðurnefndum
móttim er áformuð þátttaka f
INorðurlandamdti unglinga I fjöl-
Iþrautum I Finnlandi og Evrdpu-
Imeistaramdti unglinga i Aþenu,
'en fjöldi þátttakenda fer eftir af-
Irekum keppenda. Hugsanleg er
þátttaka i fleiri mótum I sumar.
Undir-
búningur
hafinn að
30 ára
afmæli
FRÍ1977
Það er orðið alvarlegt vanda-
mál fyrir frjáisiþrdttafdlk að fá
ekki þá aðstöðu á Laugardags-
völlinn, sem nær allar Evrópu-
þjóðir hafa nii orðið, það er gerfi-
efni á hlaupabrautirnar. Stjórn
FRÍ sendi borgarstjórn Rvikur
áskorun um þetta mál á 800.
stjórnarfundi sambandsins i vet-
ur. Stjórnin hefur mikinn áhuga á
að sækja um framkvæmd á einum
riðli Evrdpubikarkeppninnar 1977
itilefni 30 ára afmælisins, en sllkt
er tilgangslaust ef ekki verður
komiðslfkt efni á hlaupabrautirn-
ar. Umsdknir um framkvæmd
keppninnar verða að berast
snemma á næsta ári, þannig að
málið er þungt útlits. Við höfum
rætt við borgarstjdra, sem tdk
málaleitan okkar vel, en hvort
hægt verður að framkvæma þetta
fyrir 1977 er svo önnur saga.
Benda má á, að slikar brautir
spara gifurlegan vinnukraft og
Norðmenn hafa reiknað það út, að
brautirnar borgi sig á 2 til 3 árum.
I Þátttaka
íOLí
AAontreal
Undirbúningur iþrdttafdlks
fyrir OL í Montreal stendur nú
sem hæst. Hann hefur raunar
staðið yfir látlaust frá þvl Ieikun-
um IMunchen lauk. iþrdttafdlkið
hefur dvalið i æfingabiiðum og
stefnt er að þvl, að væntanlegir
þátttakendur dvelji i æfingabúð-
um i haust. Hin stdrauknu sam-
skipti við útlönd eru liður i þess-
um undirbúningi. Stjdrn FRí von-
ast til að 8 til 10 keppendur úr röð-
um frjálsiþrdttafdlks verði valdir
til olympiufarar, en frjálsar
Iþróttir eru og hafa ávallt verið sú
iþróttagrein, sem hæst ber á
Olympiuleikum.
A næstunni mun stjdrn FRÍ
ákveða sérstök lágmörk fyrir
væntanlega OL-keppendur.