Tíminn - 11.05.1975, Blaðsíða 31

Tíminn - 11.05.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur IX. mai 1975. TÍMINN 31 Hljómplötudomar Nú-tímans • ö ■ v .. . ★ ★ ★ ★ ★ EKKERT LAG geysist jafn- hratt upp erlenda vinsæida- lista og lagið „Lovin’ You” með söngkonunni Minnie Riperton. Perfeckt Angel er fyrsta sólópiata hennar og ég ætla mér ekki það að hæla plötunni, — látum Stevie Wonder um þá hlið málsins. Hann segir: „Þegar Minnie syngur titrar allt og skelfur innra með mér. Söngur henn- ar snertir mig eins og enginn annar hefur gert né getur gert. Það er erfitt að trúa þvi hversu hátt og fallega hún get- ur sungið. En þar sem ég þekki hana, trúi ég þvi. Stund- um ligg ég og reyni að ímynda mér hversu falleg sái hennar hljóti að vera. Þakka þér fyrir tónlist þlna, Minnie.... Astar- gjöf, sem allur heimurinn ætti að sjá. Ekki ætla ég mér að bæta hér um. Stevie Wonder veit sennilega fullvel hvað hann segir. Hann leikur með Minnie á plötunni og hún syngur tvö lög eftir hann. Útsetning laga er eftir hann (Wonderlove) og I heild ber platan þess merki, að vinnu- brögð Stevie Wonder hafa ver- ið I hávegum höfð, auk þess sem tónlistin sver sig I ætt við hans eigin. __g.S. ★ ★ ★ -s- HLJ ÓMSVEITIN BLUE ÖYSTER CULT er Htt þekkt hér á landi og má rekja ástæð- urnar fyrir þvi til þess, aö hljómsveitin hefur skipað sér I þann flokk bandariskra ,,heavy”-rokk hljómsveita, sem aldrei hafa komizt upp úr meðalmennskunni, og þar af leiöandi aldrei vakið verulega athygli. Plata þessi eða réttara sagt plötur (tvöfalt albúm) eru teknar upp á allmörgum hljómlcikum Blue öysters Cult og hefur hljóðritunin að minu viti tekizt meö ágætum. Lögin á plötunum eru I svokölluöum hard-rokk stn, og þar sem hér er um „live”- plötur að ræða fléttast inn I lögin tilheyrandi löng og mis- góð gltarsóló, sem einhver þriggja gltarleikara hljóm- sveitarinnar framkvæmir I það og það skiptið. Allur annar hljóöfæraleikur er eins góöur og hægt er að bú- ast við af „live”-plötu. Hard- rokkið þeirra félaga má flokka undir frekar tormelta tónlist, en fyrir þá, sein gaman liafa af hávaðasömu rokki og löng- um gltarsólóum, er platan hin ákjósanlegasta. Ég tel þó, að útkoman heföi orðið betri, ef þvi bezta á plötunum tveimur heföi verið safnað saman á eina skifu. — SþS ★ ★ ★ ★ + /~V'vx MICHAE t. ,*t MUKPHEV KLUE' SKY NIGHT THUNOKK MICHAEL MUSPHEY er enn eitt dæmi um tónlistarmann, sem við íslendingar höfum al- gjörlega látið fara framhjá I okkur. Nýjasta plata hans er sú fjórða I röðinni og nefnist Blue Sky Night Thunder. Platan er aö mlnu mati bezta plata hans sökum þess hve heilsteypt hún er. Sem fyrr liggja rætur tónlistarinn- ar I country-tónlistinni, þó svo ekki sé hægt að kalla tónlist Murphey’s country-tónlist Nær sanni væri að segja, að hún væri sambland af (Eagles) léttu country-rokki og þjóðlagatónlist (DanMc Lean). Murphy til aðstoðar eru ýmsir góðir kappar eins og þeir félagar Jeff Hanna og John McEuen úr The Nitty Gritty Dirt Band, — og Jack nokkur Murphey, sem leikur frábærlega vel og meö mikl- um tilþrifum á pianó, — og minnir leikur hans oft á Chuck Leawell úr Allman Brothers. Blue Sky Night Thunder er bráðskemmtileg og vönduð plata, sem allir, Eagles, Pokos Byrds og jafnvel Jack- son Browns aödáendur ættu að kunna að meta, — að ógleymdum öllum hinum country-rokk aðdáendunum. — GG ★ ★ ★ ÞAU eru ekki mörg árin liöin slðan þrfr blökkumenn vestur I Bandarikjunum stofnuðu trió sitt, sem þeir nefndu O’Jays, — en þótt skammur timi sé liö- inn þá hafa þeir með plötum sinum skapað sér eitt stærsta nafn I soul-tónlistinni og virð- ast áhrif þeirra og vinsældir sizt fara þverrandi. Tónlist O’Jays er þessi rythmiska og þungtaktaöa soul-tónlist, sem aðeins er á færi blökkumanna að leika, og á tónlistin allan sinn grunn I negratónlistinni, og sækir akkúrat ekkert á önnur mið. Strengjahljóðfæri eru mikið notuð, og eins er eitt einkenni þeirra mikil og góö radd- færsla. Margir hafa viljað halda þvl fram, að O’Jays séu arftakar hljómsveitarinnar Four Tops, sem varð glfurlega vinsæl á slnum tlma. Að minni hyggju er margt til I þeim orðum, þvl að þeim svipar óneitanlega til Four Tops. Þó er þvl ekki að neita, að Four Tops fluttu meira léttmeti (án þess að gagnrýni felist I oröinu) en O'Jays. Hér er plata, sem erfitt er að segja til um hvort er betri eða verri en fyrri plötur O’Jays. Alltént ætti hún að falla I góö- an jarðveg þeirra, sem þekkja til þeirra og meta ósvikna soultónlist. — G.S. EJE]G]E1E]E|E]E]E1E1E]@E]E]E]E]G]E]E]E]E]E]B]EJE]B]E]E]E]E]E] STURTUVAGNAR og vorvinnutæki Eigum sturtuvagna 4 1/2 tonna á 1000x16-8 laga flot- börðum kr. 288 þúsund. Henta vel fyrir alhliða flutninga- og votheys — sem baggahirðingar. HAUGSUGUR — COLMAN/B&SA aftur fyrirliggjandi með mjög öflugum búnaði — Verð kr. 543 þúsund með barka Kaupfélögln UM ALLTIAND Sambánd islenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD Ármula 3 Reykjavik simi 38900 0E]E]E]E]E]E]E!E]E]E]G]G]E]EJE]E]E|B]E|E]E]E]E]E]E]E]B]E]S]g|

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.