Tíminn - 13.05.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Þriöjudagur 13. mai 1975.
Bréfaskákþing hefst
um mánaðamót
—Þátttakendur rúmlega fimmtíu talsins
Gsal-Reykjavik — Bréfaskákþing
tslands, þaö fyrsta sem haldiö er,
mun sennilega hefjast um næstu
mánaöamót. Alls bárust um 50
þátttökutilkynningar, og hefur
þátttakendum veriö skipt niöur I
flokka og riöla eftir styrkleika
hvers og eins. Aö sögn Þórhalls B.
Ólafssonar, iæknis I Hverageröi,
sem er formaður bréfaskák-
nefndar, bárust mjög margar
þátttökutilky nningar utan af
landi, eins og eölilegt er, þvi að
Ibúar dreifbýlisins hafa ekki
mörg tækifæri til aö tefla á
skákmótum.
Teflt verður i fjórum flokkum,
A-, B-, C- og D-flokki, og er einn
riöill i hverjum flokki, nema D-
flokknum, þar eru tveir riðlar. í
A-flokknum verður keppt um
brefákákmeistara Islands, og eru
þar sterkustu skákmennirnir. 1
neðsta flokknum, D-flokki, eru
skákmenn, sem ekki er vitað,
hvers eru megnugir.
Að sögn Þórhalls er þessa dag-
ana verið að útbúa ýmiss konar
plögg, sem senda þarf hverjum
og einum þátttakanda, m.a. um
töfluröð og hvenær þeir eigi að
stýra hvitum eða svörtum mönn-
um.
Keppendur i riðlunum keppa
innbyrðis sin á milli, þannig að
hver keppandi mun tefla 10—12
skákir á árinu — og allar samtim-
is.
Talið er, að úrslit muni verða
fengin i riðlunum á svipuðum
tima að ári, þótt nær öruggt megi
teljast, að einhverjum skákum
verði þá enn ólokið. Verða þær
tefldar áfram eitthvað fram á
haustið, og hafi þá ekki fengizt
úrslit — verða þær settar i dóm og
skorið úr um, hvernig skákinni
hefur lyktað.
Um svipað leyti að ári mun sið-
an hefjast annað bréfaskákþing.
Táragas og skambyssur vopn
lögreglu gegn ofstopamanni
Gsal—Reykjavik — Þaö gerist
sem betur fer ekki oft, aö lög-
reglumenn þurfi aö vígbúast hér
á landi til aö hafa hemii á of-
stopamönnum, en sifkt átti sér
þó staö aöfaranótt s.l. laugar-
dags, er lögreglumenn i Kópa-
vogi fóru aö húsi einu þar i bæn-
um meö táragas og skamm-
byssur aö vopni.
I umræddu húsi, sem er
tvibýlishús, hafði piltur nokkur
hótaöibúum hússins, svo og lög-
reglu, öllu illu. Hafði hann
haglabyssu, riffil og hnifa á lofti
tii áréttingar hótunum sinum,
og virtist vera til alls liklegur.
Lögreglumenn vildu vera við
öllu búnir, og réðust þvi til at-
lögu við kauða með skamm-
byssur og táragas, ef á þeim
tækjum þyrfti að halda. Áður en
ráðizt var til inngöngu i húsið,
hafði öllum ibúum þess verið
bjargað út um glugga á húsinu.
Til vopna sinna þurfti lögregl-
an þó ekki að gri'pa, þar eö byss-
ur piltsins voru óhlaðnar, og
tókst lögreglumönnum þvi að
yfirbuga hann á skömmum
tima.
Pilturinn var mjög drukkinn
umrætt kvöld, og hófust lætin á
þvi, að honum sinnaðist eitthvað
við föður sinn og sparkaði m.a.
illþyrmilega í andlit hans.
Pilturinn hefur verið úr-
skurðaður i allt að fimmtán
daga gæzluvarðhald.
Önnur útgáfa á Eddu Þórbergs
VS—Reykjavik— Edda Þórbergs
Þóröarsonar er komin út öðru
sinni. Þessi fræga bók sá fyrst
dagsins ljós árið 1941, og nú hefur
Mál og menning gefið hana út aft-
ur. Gamla útgáfan var 254 bls., en
þessi nýja er 268 bls., og jafn-
framt er brotið dálitið stærra.
Hér eru lika þrir viðaukar. Hinn
fyrsti heitir Raulað við sjálfan
sig, annar er Marsinn til Kreml,
og þriðji viðauki hefur meðal
annars að færa Mislukkað atóm-
ljóö, ort til Kristins E. Andrésson-
ar, Vaddúddi, og Inspirasjón.
Aftast i bókinni eru nokkrar at-
hugasemdir um Eddu Þórbergs
og Inngangsorð að Hvitum hröfn-.
um, skrifuð siðasta vetrardag
1922.
Að öðru leyti er sama efni i báð-
um útgáfunum. Hinn kostulegi
Prologus fylgir þeim báðum, aö
ógleymdum Legsteininum, þar
sem meistari Þórbergur gerir
ráðstafanir varðandi útför sina og
burtför af þessum heimi. —
Prentun, band og annar frágang-
ur á þessari nýju útgáfu af Eddu,
eru vel af hendi leyst, og framan
á hllfðarkápu er teikning af Þór-
bergi.
Védls Thoroddsen, Jens Valdemarsson, Pétur Bjarnason og Ottó
Valdemarsson I hlutverkum sinum.
íslenzkur söng-
leikur d Bíldudal
BH—Reykjavik — Paradisarbær,
nýr söngleikur eftir Hafliða
Magnússon og Astvald Jónsson,
var sýndur á Bildudal slðustu
helgina I april, og þá fyrir al-
menning, en annars var söngleik-
urinn frumsýndur á árshátið
Leikfélagsins Baldurs 1.
desember sl. Herma fregnir frá
Bildudai, að leiknum hafi verið
forkunnar vel tekið og leikendum
óspart klappað iof I iófa.
Leikstjóri sýningarinnar er
Hafliöi Magnússon, en Ástvaldur
Jónsson lék undir söngvana.
Leikendur I sýningunni eru: Jens
Valdimarsson, Ottó Valdimars-
son, Halla Hjartardóttir, Védis
Thoroddsen, Pétur Bjarnason,
Jörundur Garðarsson, Jón Kr.
Ólafsson og Margrét Friðriks-
dóttir.
Söngleikurinn er gerður eftir
sögu Kolbeins Eiríkssonar, er
nefnist Paradfsarstræti. Hafliði
Magnússon hefur áður fengizt við
gerð söngleijcja, en eftir hann var
söngleikurinn Gisli Súrsson, sem
nemendur Menntaskólans og
Myndlistarskólans á ísafirði
sýndu i vetur.
Aðalfundur Verkamannafélagsins Hlífar:
Yfirvinnan var nauðsyn
arráð Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar að taka þegar upp i alvöru
viöræður við sjómenn og hafa for-
ystu um lausn togaradeilunnar.
Einnig skoraði aðalfundur Hlif-
ar á Alþingi að breyta orlofslög-
unum og taka upp á ný orlofs-
merki.
SJ—Reykjavlk — Aðalfundur
Verkamannafélagsins Hlífar I
Hafnarfirði, sem haldinn var 8.
mal, átaldi harðlega ákvörðun
meirihluta bæ jarstjórnar
Hafnarfjarðar að afnema hluta af
yfirvinnu þeirri, sem verkamenn
hjá Rafveitu og Hafnarfjarðarbæ
hafa haft, þar sem ljóst er, að hin
lágu laun verkamanna nægja
ekki fyrir brýnustu nauðþurftum.
Þá skoraði fundurinn á útgerð-
Fleiri samþykktir voru gerðar.
Formaður Hlifar er Hermann
Guðmundsson.
Fátt um dýrðir
byggðaminjaári
KJÖTS KROKKAR
t . nauta . 455/*,
% svin 588/kg
^2 foiöld 27%
lömb 297/ku
ÚTB., FOKKUN, MERKING
inríifaliö í verði.
TILBÚÐ í FRYSTIRINN J
LAUOALÆK 2. aiml 38080
SJ-Reykjavfk.— Árið 1975 er ekki heigað evrópskri byggingararf-
aðeins kvennaár, heldur er það og leifð fyrir tilstilli ráðherranefnd-
Bragi Guðmundsson
formaður B.í.
fj. Reykjavik Bragi Guðmunds-
son, ljósmyndari á Visi, var kjör-
inn formaður blaðamannafélags
Islands á aöalfundi félagsins á
laugardag. Á aðalfundinum var
lögum félagsins breytt og geta nú
einnig þeir, sem hafa blaða-
mennsku við timarit að aðalstarfi
orðiö félagar i B.I.
í stjórn félagsins, auk Braga,
voru kjörnir: Friða Björnsdóttir,
Timanum, Björn Vignir Sigur-
pálsson, Morgunblaðinu, Ólafur
Ragnarsson, sjónvarpinu og
Einar Karl Haraldsson, Þjóðvilj-
anum. 1 varastjórn: Sigrún
Stefánsdóttir, Islendingi, Kári
Jónasson, útvarpinu, og Helgi E.
Helgason, Alþýðublaðinu. I
launamálanefnd félagsins voru
kjömir: Haukur Helgason, Visi,
Fríða Björnsdóttir, Timanum,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Morgunblaðinu, Hjalti Krist-
geirsson, Þjóðviljanum og Bragi
Sigurðsson, Alþýðublaðinu.
A sfðastliðnu ári hafa aðrir
starfsmenn ritstjórna en blaða-
menn og ljósmyndarar verið
teknir inn I félagið, handritales-
arar, prófarkalesarar og útlits-
teiknarar.
Bragi Guðmundsson, liinn ný-
kjörni formaður Blaðamannafé-
lags tslands.
ar Evrópuráðsins. Markmiðið
með byggðaminjaárinu er að
vekja áhuga Evrópubúa á sam-
eiginlegri byggingararfleifö
þeirra, sýna fram á þær hættur,
er steðja að þessum menningar-
arfi, og tryggja að aðgerðir veröi
hafnar til verndar þeim.
Ýmsar hugmyndir komu fram
um aðgerðir hér á landi I tilefni
byggðaminjaársins, en úr fæstum
þeirra verður vegna þess að fjár-
veiting fékkst ekki.
Sú hugmynd kom fram i við-
ræðum Arkitektafélags tslands
og Menntamálaráðuneytis að
velja einhverja gamla byggingu
eða húsaþyrpingu, er hefði bygg-
ingarlistargildi og þarfnaðist við-
gerðar, t.d. á Austurlandi eða
Vestfjörðum, og efna til sam-
keppni um verndun, viðgerð og
viðhald þeirra mannvirkja. Auk
þess yrði efnt til ýmiss konar
fræðslustarfsemi. óljóst er hvort
úr þessu verður.
í tengslum við byggðaminjaár
Evrópu fór fram á Akureyri
könnun á félags- og menningarlifi
bæjarbúa i þvi skyni að athuga á-
hugamál ibúanna, til þess að
komast að raun um, hvort hin
hefðbundna menningarstefna
samsvari raunverulegum þörfum
ibúanna. Athugun sem þessi er
talin mjög athyglisverð i sam-
bandi við að endurlifga söguleg
borgarhverfi, en árangur sllkra
framkvæmda mun háður þvi, að
Framhald á 7. siðu.