Tíminn - 13.05.1975, Side 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 13. mai 1975.
Nýtt hressing-
arhæii fyrir
bændur
Rrkisstjórn sovétlýðveldisins
Hvita-Rússlands hefur sam-
þykkt áætlun um hressingar-
hæli, sem mörg samyrkjubú
munu byggja i sameiningu.
Hressingarhælið mun geta tekið
á mOti um það bil 100.000 gest-
um á ári.
Nú fær Jenny
að hafa mömmu
sína í friði
Bibi Andersson hefur haft mikið
að gera undanfarin ár, og hún
hefur mikið þurft að vera á ferð
og flugi. t augnablikinu leikur
hún heima i Sviþjóð undir stjórn
Ingmars Bergman i leikriti,
sem sýnt er hjá Dramaten.
Þetta er öllum til mikillar
ánægju. bæði sænskum leikhús-
gestum og einnig fjölskyldu
leikkonunnar, ekki sizt er dóttir
hennar, Jenny, sem er fjögurra
ára gömul, glöð yfir að hafa
nú mömmu sina meira hjá sér
en ella. Þegar Bibi er á ferða-
lögum, og getur ekki haft Jenny
hjá sér býr hún hjá föður sinum,
Kjell Grede, og nýju fjölskyld-
unni hans. Hér eru þær mæðg-
urnar saman á myndinni.
Brátt sía þeir gull úr baðvatninu
Það gefst ætið tilefni til þess að
skrifa um Sammy Davis Jr. i
blöðum, og i þetta skipti mætti
geta þess, að hann er rikasti
maður i Hollywood. Árstekjur
hans árið 1974 munu hafa verið i
kring um 3600 milljónir, já hátt i
fjórar milljarðar, hvort sem þið
trúið þvi eða ekki! Allt, sém
hann kemur við breytist i gull,
og nú er meira að segja svo
langt gengið, að fólk slæst um
baðvatnið hans, i von um að
finna i þvi gull. Detti einhverju
ykkar i hug að heimsækja hann
er rétt að þið farið þangað ekki
akandi, þvi það ku ekki vera
hægt að leggja bil i nágrenni
húss hans, svo marga bíla á
hann sjálfur standandi fyrir
utan húsið. Sammi hefur heima
hjá sér 25 sjónvörp, eða eitt i
hverju herbergi. Sem betur fer
þarf hann ekki að greiða afnota-
gjöld af hverju og einu eins og
hann þyrfti, ef hann byggi hér á
íslandi, — ekki svo, að hann
munaði um slikt, með allar
þessar tekjur. Þá má geta þess,
að hann á svo mikið af fötum, að
hann þarf mörg herbergi til þess
að geyma öll fötin. Heima hjá
sér hefur hann kvikmyndasal,
og þar á hann 1000 kvikmyndir,
sem hann getur sýnt hvenær
sem hann vill. Það kostar á
fjórðu milljón á viku að reka
heimili Sammys, en það er ekk-
ert i augum Sammys, sem bara
syngur og syngur og syngur inn
til sin peningana um leið. Það er
heldtir ekki dón alegt, að vera
boðinn i miðdag til Sammys, þvi
að hverjum gesti gefur hann
gullsigarettukveikjara, sem er
um 60 þúsund krónur að verð-
mæti. Endur fyrir löngu var
Sammy fátækur, og fann til
þess. Hann finnur ekki til fá
tæktarinnar lengur, en það er
annað, sem honum er ekki alveg
sama um, og það er fyrrverandi
eiginkona hans, hin sænska May
Britt. Hann var óendanlega
hamingjusamur, á meðan þau
voru gift, þrátt fyrir það, að
hjónabandið færi út um þúfur að
lokum. Hann er nú reyndar
hamingjusamur i hjónabandi
sinu með Altovise, nýju konunni
sinni. Sammy hefur yfirleitt
gengið hvað eina vel, sem hann
hefur lagt fyrir sig, nema ef
vera skyldi á stjórnmálasvið-
inu. Þar hefur hann verið heldur
óheppinn, rétt eins og leikarinn
Frank Sinatra. Sammy studdi
Nixon forseta, og það fór nú eins
og það fór. Nixon hafði lofað
Sammy að gera ýmsar
breytingar á banda-
risku þjóðfélagi, og
þess vegna lagði Sámmy
peninga i kosningasjóð Nixons,
Það eru liklega einu misheppn-
uðu viðskiptin, sem Sammy hef-
ur tekið þátt i, og þau einu, sem
ekki hafa margborgað sig fyrir
hann eftir á. Nixon er horfinn af
stjórnmálasviðinu, en Sammy
heldur áfram að lifa lifinu, rétt
eins og hann hefur alltaf gert, og
heldur stöðugt áfram að græða
peninga. Hér er mynd af hon-
um, og svo önnur af þeim hjón-
unum, Altovise og Sammy. ^
DENNI
DÆMALAUSI
Hefurðu nokkurn tima tekið eftir
því, livað röddin i henni Ginu er
þægileg, rétt eins og segulbands-
tónlist.