Tíminn - 13.05.1975, Síða 6

Tíminn - 13.05.1975, Síða 6
6 TÍMINN Þriöjudagur 13. mai 1975. Kjarvalsstaðir tá hjólastóla að gjöf Elli-og hjiikrunarheimilið Grund hefur gefið Kjarvalsstööum tvo hjólastóla, sem eiga að vera til af- nota fyrir þá gesti staðarins, sem á þurfa að halda. Hinn 9. mai sl. afhenti GIsli Sigurbjörnsson forstjóri gjöfina að Kjarvalsstöðum fyrir hönd Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar I Reykjavík. Borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir tsl. Gunnarsson, þakkaði gjöfina og sagðist vona, að gjöfin gæti oröiö hvatning til þess aö stofnanir f eigu borgarinnar og annarra aöila i borginni, sem til almennings- nota eru ætlaðar, veröi betur úr garöi gerðar fyrir fatlaöa en veriö hefur. Viöstaddir afhendinguna voru hússtjórn og forstöðumaöur Kjarvalsstaöa, á myndinni frá vinstri Elisabet Gunnarsdóttir, Alfrcö Guðmundsson, Davlö Oddsson, Ólafur B. Thors, Gisli Sigurbjörnsson og Birgir tsl. Gunnarsson. Almennur fundur í AAosfellssveit: íþróttahús og úr- bætur í símamólum Færeyingahús í Reykjavík Oft er talaö um, að norrænt samstarf sé meira i orði en á borði, meira hugsjón en veruleiki, án þess að glata sinum ljóma. En hugsjónir eru til þess að verða veruleiki, Norrænu þjóðirnar standa flestum þjóðum framar að mennt og andlegum þroska, þar sem réttlæti, friður og gleði eru sett i öndvegi af heilum hug og nokkr- um fórnum. Samstarf og sam- hugur er ávöxtur sliks hugarfars. Og þar er ekki farið eftir höfða- tölu einni, heldur manngildi og dáðum. Engar norrænu þjóðanna eru skyldari en tslendingar og Fær- eyingar, — ekki einungis að upp- runa, heldur að sögu, umhverfi, mótun. „Synir hafsins” yrði sagt með fyllsta rétti um tvo einstakl- inga þessara eylanda i Norður- Atlantshafi. Engir ættu þvi að skilja hvor annan betur, unna hvor öðrum meira, hjálpa hvor öðrum fúslegar, láta fremur eitt yfir báða ganga en þessir tvibur- ar, vaxnir upp úr djúpinu. Og þeir eiga sameiginlegt markmið, raunar á margvislegan hátt, en eitt sem er bæði heilagt og hvers- dagslegt i senn: Það hefur verið nefnt Sjómannaheimili Færey- inga i Reykjavik. Og það hefur verið sýnilegt sem svolitið fallegt hús við strandgötu borgarinnar. En nú á það að verða stórt og fall- egt „heimili” þeim sem að heim- an eru á hafinu hér norður frá. Það er ekki vanzalaust, að Reykjavik, með allan sinn stór- borgarblæ, á ekkert sjómanna- heimili i venjulegri merkingu þess orðs, þótt nokkrir fórnfúsir einstaklingar sjái þörfina og reyni úr að bæta. Hér er þvi sam- eiginlegt verkefni Færeyinga og Reykvikinga, aðekki sé sagt allra Islendinga. Nauðsynleg menningarstofnun. Og þetta hús ætti einnig að verða táknræn menningarstofnun fyrir samstarf þessara bræðraþjóða — tvibur- anna i Atlantshafi, sem eru i senn svo smáir, — en samt svo stórir að hafa vaxið i sambýli við hafið, en ekki látið bugast af þvi. Norræna húsið i Reykjavik er nú þegar stofnun, sem allar nor- rænu þjóðirnar eru stoltar af. Eignumst nú annað hliðstætt á öðrum vettvangi, ennþá nær starfsgrundvelli og hversdegi þessara tveggja þjóða — hafinu — smærra i sniðum en stórt samt — þar sem bræðralagshugsjón kristins dóms yrði sólskin innan dyra. Enn skal nú á þessu ári átak hafið til eflingar þessari hugsjón Færeyinga og íslendinga: Bygg- ing Færeyingahúss i Reykjavik. Það ætti ekki að vera neinum Islendingi óviðkomandi. Samtaka bræður að settu marki. Reykjavik sumardaginn fyrsta 1975 Arelíus Níelsson. Silunganet verö kr. 2000,00 ný uppsett Laxanet Girnisnet Rauðmaganet Hagstætt .yerð. Upplýsingar á auglýsinga- deild blaösins simi 19523 Einnig I sima 30636 Fyrir skömmu efndi hrepps- nefnd Mosfellshrepps til fundar um hreppsreikningana. Mikil ánægja rikti meöal þeirra hreppsbúa, sem til fundarins komu. Þykir þetta lýöræöislegra, og um leiö opnari stjórnsýsla en veriö hefur, þar sem hreppsbúum er gefinn kostur á aö gera slnar athugasemdir viö rekstur hrepps- ins. t upphafi fundarins las sveitar- stjóri og skýröi ársreikninga fyrir áriö 1974. Jafnframt var lögö fram fjárhagsáætlun fyrir áriö 1975. Sveitarstjóri gat þess, aö nauösynlegt væri aö endurskoöa fjárhagsáætlunina, þar sem hún var unnin fyrir áramót 1974-’75, og þar af leiöandi ekki teknar meö þær breytingar, sem hljóta aö verða vegna efnahagsöröug- leika þjóðarinnar. Þó aö hagur hreppsfélagsins hafi veriö góður um áramót, þá er ljóst, aö hreppsfélagiö mun standa höllum fæti fjárhagslega Lítill bifreiða- innflutningur Frá áramótum til aprilloka á þessu ári komu nokkru fleiri út- lendingar til landsins en á sama tima I fyrra. Nú komu alls 12293 útlendingar en I fyrra komu 11640. Einnig komu fleiri Islendingar. Þeir voru nú 8959, en I fyrra 8609. Til sölu Heyvagnagrind, tvö- föld hjól á f jöðrum. Má vera aftan í-vagn. Dekk 825x20. Skrifleg tilboð til Jóns Guðlaugssonar, Brúar- hvammi, Biskupstung- um, Árnessýslu. vegna allra þeirra framkvæmda, sem fyrirsjáanlegar eru á þessu ári. Enn fremur gat sveitarstjóri þess, aö skiptar skoöanir væru um niöurrööun framkvæmda á árinu. Oddviti hreppsnefndar, Jón Guðmundsson, bóndi á Reykjum, flutti skýrslu um störf hrepps- nefndar. Gat hann þess, að störf hreppsins hefðu sjaldan verið umfangsmeiri en nú, og ýmis aðkallandi verkefni, svo sem bygging íþróttahúss, holræsa- gerö, kaldavatnsmál og fleira. Allfjörugar umræður urðu um einstaka liði fjárhagsáætlunar og sýndist sitt hverjum um reikning- ana sem voru þó samþykktir með samhljóða atkvæðum fundar- manna. 1 lok fundarins voru sam- þykktar ályktanir um slmamál og byggingu Iþróttahússins, ásamt tillögu frá Einari Kristjánssyni. Tillögurnar eru birtar hér, al- menningi til fróöleiks. 1. Almennur hreppsfundur, haldinn að Hlégarði laugardaginn 26. april 1975, skorar eindregið á ráðherra og þingmenn kjördæm- isins að beita sér fyrir því að heimild verði veitt til þess að hefja nú þegar framkvæmdir við Iþróttahúsbyggingu að Varmá. 2. Almennur hreppsfundur, haldinn að Hlégarði laugardaginn 26. april 1975, skorar á yfirstjórn simamála að ráða tafarlaust bót á þvl ófremdarástandi sem rikir i slmamálum sveitarinnar. Jafn- framt verði gjaldskrá Brúar- landssvæðisins samræmd öðrum gjaldskrám með svæöisnúmerið 91, þ.e. að sama gjaldskrá gildi þar og I Reykjavik, Kópavogi og Hafnarfirði. Enn fremur tillaga frá Einari Kristjánssyni: Almennur fundur ibúa Mos- fellshrepps haldinn I Hlégarði 26. april 1975, skorar á Odd Ólafsson alþingismann að hafa forgang til myndunar samstöðu þingmanna Reykjaneskjördæmis til lausnar á erfiðleikum i sambandi við byggingu fþróttahúss i Mosfells- sveit. ÞBK Kýr til sölu Þrettán kýr til sölu. — Upplýsingar á Vatnsenda i Villingaholtshreppi. Simi um Villingaholt. YFIRLYSING Heimi- Steinsson rektor Lýðháskólans i Skálholti: Vegna siendurtekinna blaðaskrifa um mig og skoöanir minar vil ég taka það fram, sem hér fer á eftir: I. Grein sú, sem valdið hefur ofangreindu upploki, birtist nýlega i Kirkjuritinu. Það telst háttvisi að svara grein- um i þvi blaði eða timariti, sem birtir þær. II. Umgetin ritsmið var saman tekin sem timarits- grein. Hún er alllöng og itar- leg. Vilji einhver svara þess konar grein með málefnaleg- um hætti, hlýtur höfundur svarsins að gefa sér nokkurt tóm til að semja rækilegar at- hugasemdir. Bezt ferog á þvi, að svarið sé miðað við timarit. Dagblöð eru alls ekki réttur vettvangur skoðanaskipta af þvl tagi, sem hér um ræðir. Aðrir fjölmiðlar áþekkir, svo sem hljóðvarp og sjónvarp, eru enn miður til þess fallnir. Umræður i dagblöðum, hljóö- varpi og sjónvarpi einkennast um of af hita stundarinnar. Með þessu er ekkert misjafnt um þessa fjölmiðla sagt. Hér er einungis dreginn fram sá eðlismunur, sem er á þeim og timariti. III. Grein min f Kirkjuriti er sett saman úr eftirtöldum þáttum: 1. „Sálarrannsóknir” gagn- rýndar, — liðlega þrjár og hálf siöa. — 2. Umræða um ýmis viðhorf til dauðans, — tæpar tvær slöur. — 3. Kristin upprisutrú, — tæpar tvær siður. 4. Predikun fagnaðarerindis- ins, — tvær siður. — í þess- um hluta er að finna liðlega hálfan dálk, sem fjallar um afstöðu kristins predikara til „sálarrannsókna”. Þetta brot hefur valdið hvað mestu uppnámi. — 5. Dæmisaga og niðurlag, — liðlega tvær siður. IV. Af þvi efni, sem hér var _______________________________ talið, hafa dagblöð fjallað lauslega um tætlur úr fyrsta þætti, svo og um dálkinn hálfa úr fjórða þætti. Aðrir hlutar ritsmiöar þessarar hafa ekki veriö ræddir i blöðum, mér vitanlega. V. Þráttnefnda grein birti ég gagngert I Kirkjuriti, af þvf að hún er beinlinis ætluð lesend- um, er vita jafnlangt nefi sinu I nútimaguðfræði (þ.á. m. i díalektiskri guðfræði, svo og i existensguðfræði Tillichs), heimspekisögu (Parmenides, Platon, Kierkegaard, Nietzsche, Existentialism- inn), almennri trúarbragða- sögu og trúarlifssálarfræði. Enn fremur er hér á næsta leiti fyrirbæri, sem guð- fræðingar þekkja undir heit- inu „via negativa” og á sér aldagamla sögu i kirkjunni. Þá er að geta hugtaksins „Docta ignorantia”, sem löngum er kennt við Nikulás Cusanus. Dæmisagan i 5. þætti veit ég vel, að teljast hlýtur djarfasti og um leið vandmeð- farnasti hluti greinarinnar. En von min er sú, að þeir kristnu bræður minir, er þekkja undirritaðan sem ósveigjanlegan unnanda litúr- giskra fræða og heilagrar messubæði fyrr og siðar, líti á þennan þátt sem (e.t.v. mis- heppnaða, en þó a.m.k. vel meinta) tilraun til að tjá boð- un kirkjunnar um þann Guö, er opinberar sig „sub con- traria specie”. Fleira væri eðlilegt að tina til af þvi efni, er um hug minn fór, þegar ég setti saman um- talaða grein. En á þessum vettvangi væri það óhyggilegt að lengja röðina um of. VI. Með þessu er ekki sagt, að tittnefnd grein geti talizt fræðileg ritgerð. En vilji menn skilja hana til hlitar — og gagnrýna hana — verða þeir að bera skynbragð á framan- greint efni og ýmislegt annað, þvi skylt. Meðal annars verða hörð orð min um áadýrkun og nekrómantfu einungis skilin — og gagnrýnd — i þvi sam- hengi öllu, sem nú var nefnt. VII. Fólk það, sem farið hef- ur hamförum f dagblöðum vegna greinar minnar, skipt- ist i tvo hópa. Annars vegar eru þeir, sem ekki höfðu fyrir þvi að lesa greinina, áður en þeir tvihentu pennann. Hins vegar eru skrifarar, sem að vísu virðast hafa stautað sig i gegnum greinina, en alls eng- ar forsendur höfðu til að botna f þvi, sem þar var að finna. VIII. Upphaflega var það von mín, að grein þessi yrði á slnum tima kapprædd i Kirkjuriti af mönnum, sem hafa til að bera þekkingu á þeim efnum, sem ég að ofan nefndi, og öðrum áþekkum. Ég held enn i þá von og hygg gott til þess háttar orðaskipta. Hins vegar get ég ekkert annaö gert en yppta öxlum, þegar gjörsamlega óupplýst fólk nú hleypur til og eys mig fáryrðum f dagblöðum. Mér hefur að visu oft þótt gaman að hressilegu orðaskaki. En þegar I hlut eiga menn, sem sakir þekkingarleysis eru alls- endis ófærir um að taka þátt f rökræðum um framangreind efni, brestur mig skaphita til að standa i stimabraki við þá. Ég hirði ekki einu sinni um að kveðja til nærtæk vitni að setu minni á svonefndum skyggni- lýsingarfundum, en um það efni fjargviðraðist einn arminginn i einhverju blaðinu nýverið. IX. Af framangreindum sökum lýsi ég þvf yfir f eitt skipti fyrir öll, að ég mun ekki oftar taka undir skrif dag- blaða um þetta mál. Þeir, sem vilja svara grein minni, geri það I Kirkjuriti. Að öðrum kosti mun ég ekki virða þá svars. í annan stað mun ég þvi aðeins taka gagnrýni alvar- lega, að það ekki fari milli mála, að höfundur gagnrýn- innar sé kunnugur þvi bak- sviði greinar minnar, er ég áð- ur drap á. Ég hef ekkert tóm til að leika skylmingar við þursa, sem berja með klubbu. Með þökk fyrir birtinguna, Skálholti, 9. mai 1975 Heimir Steinsson

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.