Tíminn - 13.05.1975, Page 10

Tíminn - 13.05.1975, Page 10
10 TÍMINN Þriðjudagur 13. mai 1975. Ópiumborgin verður til. Hong Kong er eins og áður sagöi brezk nýlenda og varð upp- haflega til i ópiumstriðinu. Kin- versku keisararnir litu niður á Breta og voru óbilgjarnir i viöskiptum sinum við þá. Þetta endaöi, með þvi að Bretar „tóku” Hong Kong, eða Haung Kong, eins og hún hét þá, en áður höfðu viö- skiptin einkum veriö i gegnum Kanton, sem er hér skammt frá. Hong Kong er aðeins 400 fermilur, en notast illa, þvi klettaborgir og fjöll taka yfir mikinn hluta borg- arsvæðisins. Það var á ' miðri 18. öld, sem þessi brezka borg fór að verða umtalsverö hafnarborg fyrir brezka kaupmenn, sem verzluðu við Kina og ameriskir kaupmenn fóru einnig fljótlega aö notfæra sér höfnina hér i sama tilgangi. Kinverjar reyktu óplum um aldir, og þeir fengu þetta „reyk- tóbak” sitt upphaflega frá Vestur-KÍna. Þegar kaupmenn fóru að flytja ópium til Kina frá Indlandi likaði það mjög vel, betur en það kinverska. Þetta hafði slæm áhrif á viðskipta- jöfnuöinn við útlönd og silfur streymdi úr landinu. Árið 1839 setti keisarinn i Pek- ing sérstakan keisaralegan kommissar til þess að stöðva inn- flutning á ópium til Kina, inn- CARGOLUX skrúfuþot- an lenti i Hong Kong klukkan 7 að staðartima 12. marz og við ókum inn i bæ. Við komum frá Ku- ala Lumpur og Borneo, og hinn kinverski svipur kom okkur ekki að óvör- um. Það sem kannski kom okkur mest á óvart var flugvöllurinn, sem á engan sinn lika. Hér er landleysi mikið og hefur flugvöllurinn verið byggður i sjó fram, en norðurendi brautarinn- ar stendur inni i borg- inni. Ein af annarri koma þoturnar niður fjallshlfðina (bókstaflega) renna sér yfir húsþökin taka krappa beygju innan um háhýsin, og skondrast að siöustu yfir um- Gatan okkar. Gunnlaugur Sig- valdason mundar myndavéiina. ferðargötu, og gamlar konur beygja sig svo þotan komist yfir þær inn á brautina..Svoer lent og byrjað að bremsa strax, þvi brautin er aðeins 8000 fet, sem er allt of litið miðað við hitastigið, þvi að stórar vélar eru taldar þurfa um 12-14.000 fet við þessar aðstæður. Hong Kong Hong Kong er brezk nýlenda, en samt er hún kinversk borg. Hér búa um 4.000.000 manna að þvi er bezt verðurvitað. 99% borgarbúa eru kinverskir, en i borginni eru um 50.000 Bretar, 5000 Banda- rikjamenn, álika er hér af Japön- um og Portúgölum og siðan eitt- hvert slangur af öðrum þjóðern- um. Þaö fyrsta, sem við rákum aug- un i voru hin óskaplegu þrengsli. Húsin eru yfirleitt um 10 hæðir, en göturnar eru samt ekki breiðari en Klapparstfgurinn og þeir byggja ný og ný hús við þessar þröngu götur. Bflaumferðin er gifurleg og bifreiðarnar mjakast áfram gegnum mannfjöldann með þrálátu flauti. Loftiö er þungt og mengaö, og vatniö i bað- karinu er eins og það sé tekið beint úr henni Jökulsá á fjöllum og öskugrátt leirlag situr eftir þegar rennt hefur verið úr þvi. Hér fara aðeins hraustustu menn I baö. ' ----- \ AÐ BORÐA YNDI SITT í VERTS- HÚSUM Svefndrukknir vatnakarfar liðu ropandi um fiskabúrið -.. flutningurinn var nú bannaður og það varð kveikjan að þvi, sem nefnt hefur verið ópiumstriðið. En þrátt fyrir góðan ásetning tókst ekki að stöðva ópiumsöluna og Hong Kong varð miðstöð ópiumverzlunarinnar við Kina og óplumverzlun i stórum stil var stunduð hér allt fram yfir siðustu aldamót, þegar almenningsálitið I Bretlandi greip I taumana. Siðari heimsstyrjöldin og Hong Kong Gegnum margar aldir hefur Hong Kong staðizt allar styrjaldir og pólitiskar sviptingar. Daginn eftir árásina á Pearl Harbour (8. des. 1941) hernámu Japanir Hong Kong. 1 striðslok fengu Bretar nýlenduna aftur,ogþá bjuggu hér 1.5milljón manns. Þá fóru I hönd upplausartimar og flóttamenn frá Kina og innflytjendur frá ýmsum Aslulöndum streymdu i nýlend- una — oft um 100.000 manns á mán. og þegar Ibúafjöldinn var kominn yfir fjórar milljónir varð nauðsynlegt að gripa I taumana. Nokkuð er þó ávallt um að menn komi ólöglega inn i landið. Ekki þarf vegabréfsáritun til Hong Kong, en sem dæmi um öfluga landamæravörzlu má nefna það, að þegar við Gunnlaugur Sigvaldason fórum gegnum út- lendingaeftirlitiö þá fékk Gunn- laugur landvistarleyfi i 30 daga, en ég aðeins i sjö daga, af þvi að passarnir okkar voru ekki „eins” — hans var handskrifaður, en minn „aðeins” vélritaður. — Þið eruð frá sama landi og þá eiga vegabréfin að vera eins, sagði landamæravörðurinn og þar með búið. Iðnaður og ferðamanna- iðnaður Nú eru dagar ópiumverzlunar taldir. Hinar fjórar milljónir manna sem hér búa lifa á iðnaði, verzlun og ferðamönnum. Verðlag er lágt hér. Meðalláun verkafólks er 12.000. - 21.000 á mánuði, matur er ódýr og skattar eru lágir. Um opinbera þjónustu veit ég ekki, en þegar ég varð að kalla á lækni vegna matareitrun- ar, kostaði 3.600 krónur að fá hann til að koma, lyf kostuðu 1200 krónur. Hong Kong er alþjóðleg borg, og hingað koma skip frá þúsund þjóðum og mikil umferö er um Ctsýniö frá Grand Hotel var ekki sem kræsilegast til ailra átta. Hér sést yfir nágrennið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.