Tíminn - 13.05.1975, Qupperneq 17
Þriöjudagur 13. mai 1975.
TÍMINN
17
kvæmdastjóri (Norwich) og hann
kom með sina eigin starfsmenn.
Þetta varð til þess að Knapp fór
með hugmyndir sinar og reynslu
alla leið til Islands. En þar vakti
hann strax stormandi lukku.
A sama tima og Norwich datt
niður i aðra deild, þá var maður-
inn sem félagið hafði engin not
fyrir, að leiða íslenzka áhuga-
mannalandsliðið i Evrópukeppni
landsliða. En þar gerðu þeir jafn-
tefli 1:1 i Magdenburg gegn frá-
bæru liði A-Þjóðverja. Aður en
Knapp kom til tslands, höfðu þeir
tapað illilega fyrir Danmörk
(14:2) og Hollandi (8:1). Koma
Knapps sýnir strax framfarir og
á sl. keppnistimabili töpuðu þeir
aðeins einum af 5 landsleikjum.
Og það var ósigur upp á eitt mark
gegn hinurh sterku Belgiumönn-
um. Arangurinn hjá Knapp sýnir
bezt getu hans, að fá það mesta út
úr litlum efnivið, og sigrast á
mörgum erfiðleikum.
Knapp segir sjálfur: — ,,Það
eru mörg vandræði, aö starta á
Islandi. Of fáir leikmenn til að
velja úr, veðrið og það, að félags-
skipti leikmanna tiðkast ekki.
Veðrið er aðalvandamálið. Það
verður að leika alla leiki á malar-
velli, þvi að grasvellir eru ekki
tilbúnir fyrr en um mitt keppnis-
timabil. Islenzkir leikmenn
ganga i félögin ungir og þeir
skipta sjaldan um félög. Þegar
þjálfarar þjálfa liðin verða þeir
að vinna úr þeim efniviði sem er
tiltækur. Þannig fá þeir dýrmæta
reynslu”.
Aðrir brezkir þjálfarar hafa
þurft að horfast i augu við þessi
vandamál uppi á Islandi, eins og
Knapp, og þeir hafa staðið sig
frábærlega. George Kirby, Pat
Quinn, Joe Hooley og Tony Sand-
ers hafa allir hjálpast að við að
reisa merki islenzkrar knatt-
spyrnu.
Bikarmeistarar Fram og
Valur, sem varð i öðru sæti i
deildinni, voru bæði þjálfuð af
enskum mönnum, sem juku álit
Islands i Evrópukeppninni. Fram
stóð sig frábærlega gegn Real
Madrid, sem átti i miklum vand-
ræðum með Fram. En Valur var
slegið út i Portadown, eftir 1:1
jafntefli á tslandi.
Knapp segir að hann hafi lært
mikið i listinni að stjórna liðum
sl. ár. — „Þetta hefur verið mikil
reynsla, ég þurfti að velja og
þjálfa landsliðið, sem lék gegn
mótherjum sem voru á heims-
mælikvarða. Mér fannst það, að
taka ákvörðun fyrir landsliðið
erfiðast, ég hafði engann sem ég
gat snúið mér til og4eitað ráða.
Þetta i sjálfu sér kenndi mér
mikið”, sagði Knapp.
— Hvað með framtiðina?
— Eftir að hafa verið atvinnu-
maður i 20 ár, leikandi og spilandi
og nú sem þjálfari, myndi ég vilja
taka að mér stjórn ensks liðs,
sagði Knapp.
Knapp fór aftur til tslands og
stjórnar Islendingum i siðari lotu
Evrópukeppni landsliða. En ef
rétta boðið kemur, þá mun hann
koma til Englands næsta keppnis-
timabil, i ágúst. Það hlitur að
vera pláss i ensku knattspyrnunni
fyrir mann með þessa getu og
hæfileika”.
Svona var þessi dæmalausa
grein i „Football Monthly”.
FH-ingar
sigruðu
Hauka
FH-ingar sigruðu Hauka (2:1) i
fyrriieik liðanna í Hafnarf jaröar-
meistaramótinu. Það var Viðar
Halldórsson, sem kom FH-ingum
á sporið, þegar hann skoraði stór-
glæsilegt mark af 16 m færi —
sannkallaður þrumufleygur frá
Viöari hafnaði I marki Hauka.
Ólafur Danivalsson bætti siðan
ööru marki FH við, áður en Loft-
ur Eyjóifsson minnkaöi muninn
(2:1) með marki úr vitaspyrnu.
Hörð
barátta
— í v-þýzku
„Bundslingunni"
BORUSSIA Mönchengladbach
heldur forustuunni I v-þýzku
„Bundersligunni”. „Gladbach”
vann góðan sigur gegn 1. FC Köln
á útivelli um helgina 2:1. Þá vann
Ilertha Berlin sigur yfir Tebnis
Borussia Berlin 2:1.
Staða efstu liðanna I V-Þýzka-
landi er nú þessi:
„Gladbach” 30 71:36 42
Hertha Berlin 30 53:36 40
Offenbach 30 67:51 38
Frankfurt 30 81:42 37
l.FCKöln 30 63:44 36
Bayern Munchen vann sigur
yfir Duisburg 2:1 og skoruöu þeir
Gerd Muller og Conny Thor-
steinsson mörk Bayern.
EINDHOVEN
MEISTARI
PSV Eindhoven tryggði sér Hol-
landsmeistaratitilinn á sunnu-
daginn, þegar liðiö vann sigur
(3:1) yfir FC Haag I siöustu um-
ferð deildarkeppninnar.
ÞORSTEINN ÓLAFSSON...sýndi
stórgóðan leik í marki pressuliðs-
ins. Hér sést hann góma knöttinn
örugglega. A myndinni sjást
einnig pressuliðsmennirnir Krist-
inn Björnsson (t.v.), Haukur
Ottesen, fyrirliði og Pálmi Sigur-
björnsson.
r
»Eq er
nokkuð
— sagðiJens
Sumarliðason
„ÉG er nokkúð ánægður
með leikinn"/ sagði Jens
Sumarliðason/ formaður
landsliðsnefndar eftir
„pressuleikinn". —
„Landsliðið náði góðum
köflum, og sömuleiðis
pressuliðið. Leikurinn
sýndi greinilega hvað
breiddin er mikil hjá okk-
ur, það er ánægjulegt".
— Við biðum nú eftir þvi, að
geta séð leikmennina aftur i bar-
áttunni um næstu helgi, en þá
verður leikin heil umferð i 1.
deildarkeppnina. Eftir það
munum við velja 16 manna
landsliðshóp, sem mun siðan æfa
fullum krafti fyrir landsleikinn
gegn Frökkum.
— Hvað með strákana, sem eru
erlendis?
— Við höfum haft samband við
Asgeir, Ólaf og Jóhannes. Þeir
koma heim um næstu helgi og þá
höfum við haft samband við Elm-
ar, sem er jákvæður.
George Kirby stjórnaði
pressuliðinu til sigurs
Ákveðnir leikmenn pressuliðsins lögðu landsliðið að velli (2:1) i Keflavík
PRESSULIÐIÐ, úrvalslið
iþróttafréttamanna vann sætan
sigur (2:1) yfir úrvalsliði lands-
liðsncfndar — landsliöinu I Kefla-
vik á sunnudaginn. Um 1000
áhorfendur sáu leikinn, sem var
fjörugur og vel leikinn á köflum
og sýndu bæði liðin góð tilþrif.
Pressuliðið undir stjórn George
Kirby, þjálfara Akurnesinga,
mætti ákveöið til leiks og leik-
menn liðsins voru ekki á þeim
buxunum að gefast upp. Þeir
skoruðu fyrsta markið á 14. min.
— Jóhann Torfason rak þá enda-
hnútinn á sóknarlotu, sem þeir
Karl Þórðarson og Kristinn
Björnsson byggöu upp. Aðeins
tveimur min. siðar jafnaði Jón
Gunnlaugsson fyrir landsliðið,
eftir að hann hafði fengiö send-
ingu frá Guðgeiri Leifssyni, sem
tók aukaspyrnu fyrir utan vita-
teig pressuliösins.
Kristinn Björnssón skoraði
siðan sigurmark pressuliðsins i
siðari hálfleik — þegar 15 min.
voru til leiksloka. Markið kom
eftir sendingu frá Árna Sveins-
syni, en Kristinn tók við sendingu
hans og afgreiddi knöttinn i mark
landsliðsins, með þrumuskoti.
Sigurður
handar-
brotinn
SIGURÐUR H ARALDSSON
markvörður úr Val varð fyrir þvi
óhappi á æfingu fyrir helgina, að
handarbrotna. Siguröur, sem
hefur veriö varamarkvörður
Vals-liðsins, mun þvi veröa frá
æfingum eitthvað fram eftir
keppnistimabilinu.
Landsliðsmennirnirfengu tvö góð
tækifæri til að jafna undir lokin,
en þeim brást bogalistin —
Astráður Gunnarsson skaut yfir i
góðu færi og Atli Héðinsson skall-
aði siðan yfir I dauðafæri.
George Kirbý stjórnaði liði
iþróttafréttaritara og leysti hann
það verk vel af hendi. Hann plan-
lagði leik liðsins og gaf hann leik-
FRAMLIÐIÐ hefur nú misst tvo
leikmenn til viöbótar við þá þrjá
— Ásgeir Eliasson, Guðgeir
Leifsson og Sigurberg Sigsteins-
son — sem hafa farið frá Fram.
Nú hefur hinn sprettharði og
mönnum liðsins mjög góð ráð
fyrir leikinn. Bæði gagnvart leik-
skipulagi pressuliðsins og svo tók
hann leikmenn landsliðsins fyrir
og skýrði fyrir leikmönnum sin-
um hvernig þeir ættu að hafa gæt-
ur á þeim. Hann spilaði eins og
fjárhættuspilari, og hann stóð upp
frá borðinu sem sigurvegari.
Einar Gunnarsson, Eirikur
ieikni útherji Atli Jósafatsson
yfirgefið herbúöir Framara og
einnig Snorri Hauksson, fyrrum
unglingalandsliðsmaöur. Alti
hefur gerzt þjálfari og leikmað-
ur hjá Héraössambandi V-ls-
Þorsteinsson, Karl Þórðarson og
Þorsteinn Ólafsson voru at-
kvæðamestu menn pressuliðsins,
en annars stóðu allir leikmenn
liðsins fyrir sinu. Keppnisskap
Einars er frábært og það voru
ekki ófáar sóknarlotur landsliðs-
ins, sem stöðvuðust á honum.
Eirikur átti stórgóðan leik, góður
stoppari og byggði upp sóknarlot-
ur. Karl átti einnig góðan leik,
þarna er á ferðinni lipur og leik-
inn leikmaður. Þá sýndi Þor-
steinn öryggi i markinu og þá ró,
sem landsliðsmarkverðir verða
að hafa.
Landsliðið saknaði Marteins
Geirssonar og Jóns Péturssonar i
þessum leik — og munaði um þá,
þótt ég efist um, aö landsliðið
hefði unnið með þá i liðinu. Leikur
liðsins var ekki nógu sannfær-
andi, sérstaklega varnarleikur-
inn og sóknarleikurinn. Miðju-
mennirnir sluppu bezt frá leikn-
um, sérstaklega Guðgeir Leifs-
son, sem átti góðan leik.
firðinga og Snorri hefur ákveðið
að taka sér fri frá knattspyrnu i
sumar. Framarar hafa þvi
misst 5 leikmenn, sem léku með
Framliðinu sl. keppnistimabil
og má segja að stórt skarð hafi
verið höggvið I Framliöið.
GUNNLAUGUR
____TIL AUSTRA________________
GUNNLAUGUR PALMASON hefur verið ráðinn þjálfari hjá 3. deild-
ar liðinu Austra á Eskifirði. Austri leikur I riðli með Höttum á Egils-
stöðum, Einhverjum á Vopnafirði og Vaismönnum á Reyðarfiröi.
Hinn Austfjarðar-riðillinn er mjög sterkur, en I honum leika Þrótt-
ur á Neskaupstað, Leiknir á Fáskrúösfirði, Huginn á Seyðisfirði,
Sindri á Höfn i IJornafiröi og SKH (Ungmennafélögin á Stöðvarfirði
og Breiðadal).
Framarar missa tvo
menn til viðbótar
5 leikmenn hafa nú farið frá Fram