Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 16. mai 19V5. Óbreytt álagning á allar vörur til 17. maí Opið til 10 föstudagskvöld Vorumarkaðurin nhf. 1 ÁRMÚLA 1A Símar: Matvörudeild 86-111 Húsgagnadeild 86-112 Heimilistækiadeild 86-112 Vefnaðarvörudeild 86-113 Skrifstofan 86-114 Bifvélavirki óskast Bílaleiga Loftleiða h/fóskar eftir að ráða bifvélavirkja til viðgerða og réttinga bif- reiða. Eingöngu um sumarstarf að ræða. Upplýsingar gefnar hjá Bilaleigu Loft- leiða h/f. Flugleiðir h/f Bókhaldsvélar til sölu Viljum selja þrjár bókhaldsvélar. — Lyst- hafendur hafi samband við okkur i sima 92-2100. Bókhaldsstofa Árna R. Árnasonar Skólavegi 4 — Keflavik Bændur óskum eftir að koma tveim 5 ára telpum á gott sveitaheimili i 2-3 vikur i sumar. Helst á S-Vesturlandi. Upplýsingar i sima 15663 og 84578. KJÖTSKROKKAR 1 , nauta % svin folöid M lömb -4-55/ks -588/kg 2?0/kg 29?/kg ÚTB, POKKUN, MERKING innifdiö í verði. TILBÚIÐI FRYSTIRINN í FRAMLEIÐSLUAUKNING í IÐNAÐI ÓVERULEG FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGINN NIÐURSTÖÐUK rannsóknar á afkomu iðnaðarins benda til, að einhver framleiðslumagnsaukn- ing hefur orðið á árinu 1974 miðað við 1973, eða um 4-5% samkvæmt þeim upplýsingum, er bárust um hiutfallslega breytingu fram- leiðslumagnsins. Samsvarandi. hlutfallstala árið áður var 7-9%, og virðist þvl vera um mun hæg- ari aukningu að ræða. Aukningin var mest I prjónavöruiðnaði, plastiðnaði og smlðum og við- gerðum rafmagnstækja, hins vegar varð minnkun, t.d. I sæl- gætisgerð og kemiskum undir- stöðuiðnaði. Nokkur framleiðsluaukning varð á 4. ársfjórðungi 1974 miðað við 3. ársfjórðung, og var þar um svipaða aukningu að ræða og árið áður. Ekki var gert ráð fyrir, að um neina verulega framleiðslu- aukningu yrði að ræða I iðnaðin- um á 1. ársfjórðungi 1975, en gert ráð fyrir að framleiðslumagnið yrði mjög svipað og á síðasta árs- fjórðungi 1974. Fyrirliggjandi pantanir og verkefni voru töluvert minni i árslok 1974en ilok 3. ársfjórðungs 1974, og taldi um þriðjungur fyrir- tækjanna, er þátt tóku i könnun- inni, að fyrirliggjandi pantanir væru minni. Lltilsháttar minnkun varð á starfsmannafjölda á 4. ársfjórð- ungi 1974 miðað við 3. ársf jórðung 1974. Hins vegar er gert ráð fyrir enn frekari fækkun starfsfólks á 1. ársfjórðungi 1975. Þessarar niðurstöðu hefur ekki gætt um árabil. Nýting afkastagetu var svo til sii sama I árslok 1974 og i lok 3. ársfjórðungs. Arið áður hafði nýt- ing afkastagetu hinsvegar batnað talsvert. Innheimta söluandvirðis versn- aði nokkuð á 4. ársfjóðrungi mið- íslenzki þjóð- búningurinn vinsæll — K.l. gefur út tvo bæklinga ÞAR SEM Islenzki þjóðbfiningur- inn virðist njóta vaxandi vinsælda á meðal æskufólks, hefur K.í. ráðizt I að gefa út lýsingu og leið- beiningar um saum á upphlut telpna. Fylgir einnig snið af upp- hlutsbol I tveimur stærðum. Ýtarlegar vinnulýsingar af upphlut 20. aldar má finna i ritinu íslenzkir þjóðbúningar I, sem gefinn var út i fyrra á þjóðhátið- arárinu af Heimilisiðnaðarfélagi Islands, Kvenfélagasambandi ts- lands og Þjóðdansafélagi Reykja- vikur. Segja má að bæklingurinn „Upphlutur telpna” sé nokkurs konar framhald af ritinu Þjóð- búningur I. Sama er að segja um hinn bæklinginn, Upphlutur nitjándu aldar, sem út er kominn. í þeim bæklingi er lýsing á búningnum, og m.a. snið af upphlutsbol og húfu, uppskrift af “prjónaðri djúpri skotthúfu og tillaga um upphlutsskyrtu. Elsa E. Guðjónsson safnvörður hefur tekið saman báða bækling- ana. að við 3. ársfjórðung. Sambæri- leg, en miklu hægari þróun hefur átt sér stað undanfarin ár. Er sem áður, að þetta er mest áber- andi hjá fyrirtækjum, er skipta aðallega við útgerðarfyrirtæki og önnur fyrirtæki tengd sjávarút- vegi. En sífellt bætast nýjar greinar verksmiðjuiðnaðarins BH-Reykjavik — A vegum Verzl- unarráðs tslands verður efnt til viðskiptaþings I næstu viku, þess fyrstasem Verzlunarráðið gengst fyrir.cn samvinnuaðilar þess um þingið eru Bllgreinasambandið, Félag Isl. stórkaupmanna, Kaup- mannasamtök Islands, Landsam- band islenzkra verzlunarmanna og Verzlunarmannafélag Reykja- víkur. Viðfangsefni þingsins er að ræða um hlutverk verzlunar og verðmyndunar I frjálsu markaðs- hagkerfi. 1 viðtali við Timann sagði Hjalti Geir Kristjánsson, stjórnarmað- ur i Verzlunarráðinu, að á sl. ári hefði lögum Verzlunarráðsins við, s.s. matvæla- og drykkjar- vöruiðnaður, fataiðnaður og inn- réttingasmiði. Minna var um fyrirhugaðar fjárfestingar i iðnaði um siðustu áramót miðað við áramótin þar á undan, en þá hugði helmingur fyrirtækjanna á fjárfestingu árið 1974. veriö breytt, þannig að þvi bæri að halda viðskiptaþing annað hvert ár, það ár, sem aðalfundur er ekki haldinn. Viðskiptaþingið stendur I tvo daga. Það hefst þriöjudaginn 20. mai kl. 13.30 i Kristalsal Hótel Loftleiða, og starfar þar, en lýkur með mót- töku að Þverá á miðvikudags- kvöld. Ætlunin er, að með þessu við- skiptaþingi verði leitað svara við þeirri spurningu, hvort hagkerfið og verðmyndunarkerfið hafi ver- ið með þeim hætti, sem æskileg- ast væri, og ef ekki, þá helzt að komast að niðurstöðu um, á hvern hátt megi færa það til betri vegar. Borgarleikhúsið: Stofnskráin samþykkt í borgarstjórn BH-Reykjavik — Leikarar og starfsmenn Leikfélags Reykja- vikur fjölmenntu á áheyrenda- paliana i borgarstjórn I gær, en mjög er óvanalegt að sjá þar gesti. Starfsmenn L.R. höföu þó ærið tilefni til að heimsækja borg- arstjórn, þvi þar var fjallað um stofnskrá borgarleikhússins. Þegar úrslit atkvæðagheiðslunn- ar voru kunn, dundi við dynjandi lófatak, þvi stofnskráin var sam- þykkt með fjórtán samhljóða at- kvæðum. Borgarleikhúsið mun rlsa af grunni i nýja miðbænum I Kringlumýrinni og mun leikhús- ráð verða skipað þremur mönn- um úr stjórn L.R., leikhússtjóra og einum fulltrúa borgarstjórnar. Albert Guðmundsson, borgar- fulltrúi ihaldsins krafðist meiri stjórnar borgarinnar yfir þessari „borgarstofnun” og sat þvi hjá við atkvæðagreiðsluna, þar eð skoðanir hans fengu engan hljóm- grunn. Teikningar að borgarleikhúsinu munu senn fara til bygginga- nefndar og þvi ætti ekki að liða langur tími, þar til bygginga- framkvæmdir hefjast. Viðskiptaþing fjallar um verð- myndunarkerfið 60 hross ú kappreiðum Fáks A annan I Hvltasunnu heldur Ilestamannafélagið Fákur hinar árlegu kappreiðar, sem kenndar hafa verið við Hvítasunnuna, I 53. sinn. Kappreiðarnar verða haldn- ar á kappreiðavellinum að Vfði- völlum við Selás og hefjast klukk- an 14. Auk kappreiða verða sýnd- ir gæðingar félagsmanna, sem dæmdir hafa verið, bæði alhliða ganghestar og klárhestar með tölti. Samtals verða sýndir 28 gæðingar og dómum, sem felldir verða á vellinum á Iaugardag frá klukkan 14. lýst. Kappreiðahross eru óvenjulega mörg eða um 60. Keppt verður i 250 metra skeiði og mæta þar til leiks ýmsir af snjöllustu skeið- hestum landsins.svo sem Hvinur, sem vann vorkappreiðarnar og Máni, frá Alsnesi. Þá verður 250 metra unghrossahlaup og 350 metra stökk. 1 þvi hlaupi má nefna Sunnu Guðrúnar Guð- mundsdóttur, sem vann á vor- kappreiðunum, Loku, en knapi á henni er Sigurbjörn Bárðarson, Geysi og marga fleiri. 1 800 metra stökki keppa 12 hestar, þeirra á meðal Breki, Trausta Guðmundssonar, sem vann vorkappreiðarnar, Þjálfi og Stormur, margfaldur sigur- vegari. Loks er svo 1500 metra brokk, en i þvi keppa 6 hestar. Búast má við mikilli keppni, þar sem auk margreyndra og sigursælla hlaupahesta, mætir nú til leiks fjöldi óþekktra hrossa, sem áreiðanlega eiga eftir að gefa þeim reyndari harða keppni. Veðbanki verður starfræktur að venju og má nefna, að á vorkapp- reiðunum gaf veðbankinn allt upp I rúmlega 8-faldan vinning.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.