Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudagur 16. mai 1975. Risatennur við kennslu Mjög fá börn gera sér grein fyr- ir þvi, hversu nauösynlegt það er fyrir heilbrigði tanna þeirra, að þau bursti þaer oft og vel. Til þess að reyna að bæta úr þessu hafa tannlæknar i allmörgum borgum i Þýzkalandi ferðazt milli skóla með risatanngarða, eins og þann, sem sjá má á þessari mynd, til þess að sýna bömunum, hvernig þau geta komizt hjá tannskemmdum með þvi að bursta tennurnar eins og vera ber. Siðan er reynt að kafa dýpra i vandamálin, og tannlæknarnir reyna að kenna börnunum enn meira um heil- brigðar tennur, og allt, sem þeim við kemur. Börnin hafa alltaf mjög gaman af að sjá þessar risatennur, sem tann- læknarnir hafa með sér og stóru burstana, og það verður siðan til þess að þau gleyma ótta sinum I návist tannlæknisins. Skóla- tannlæknar i Þýzkalandi hafa nokkuðbreytt um starfsaðferðir undanfarin ár. Þeir hafa lagt meiri áherzlu á kennslu og fræðslu um tannhirðingu og eftirlit alls konar, heldur en á viögerðir, eins og áður var. t skýrslum, sem gefnar hafa ver- ið út i Bremen, þar sem þessum nýju aðferðum hefur verið beitt um nokkurt skeið, kemur i ljós, að töluvert hefur dregið úr tann- skemmdum frá þvi' sem var fyr- ir átta árum. ***** Nýir dansar: Snertingin og Tveir nýir dansar fara nú eins og eldur i sinu um Evrópu. Ef til , vill verða þeir ekki teknir upp i dansskólum, þvi að mörgum þykir þeir allt að þvi ósæmileg- ir, að þvf að sagt er — en æskan á meginlandi Evrópu skemmtir sér konunglega á diskótekunum við að dansa Snertinguna og þá vekur Hnykkurinn ekki minna fjör! Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, þá er Snertingin fólgin aðallega i þvi, aö dansa eftir hljóðfallinu svipað og i öðrum táninga döns- um, en aðalpúðrið er að pörin snerta hvort annað og á sam- svarandi stað til skiptis — og eftir hljóðfallinu auðvitað — t.d. eins og þarna á myndinni að herrann lætur hönd sina á öxl stúlkunnar og stýkur svo niður barminn, og hún gerir eins. Hvar er.dar þetta? segja þeir hneykslunargjörnu. Ja, um það er náttúrlega ekki gott að segja, hvernig dansinn endar! Svo er það Hnykkurinn hann minnir heilmikið á dans, sem dansaður var bæði hér á landi og annars staðar á striðsárun- um (1939-1945) og kallaður var „Bommsa-Daisy” og var einmitt dansaður með miklum mjaðmahnykk en þá voru pörin hnykkurinn! ^ hlið við hiið, en eftir myndinni er þessi dans svolitið öðruvisi. Svo fylgir fréttinni, að unga fólkið dansi ýmis tilbrigði og finni upp hver fyrir sig eitthvað nýtt, en aðalatriðin eru þó snertingin og hnykkurinn! ,,Otto Hahn" Eina flutningaskip V-Þjóðverja, sem knúið er kjarnorku, ,,Otto Hahn”, hefur nú farið sina 100. ferð. Á sjö árum hefur það farið álika vegalengd og fram og aftur milli jarðar og tungls. ***- AAeira gróður sett en höggvið í Sovézkum skógum Sfðustu fjögur ár hafa i Sovét- rikjunum verið gróðursettir ný- irskógar, sem að flatarmáli eru samtals 90.000 ferkilómetrar. Árlega eru gróðursettir að meðaltali 20% stærri skógar en felldir eru. ( • , i !ii /, 'ii MjÉg mætti lækninum. Hugsaðu- \ ii iiiit ,íl I llþér.ungi sæti maðurinn hérna við \ I 7/1 /" l / l'l 'íhliðina er með mislinga. ' 1W" 11 Þér hafið lfklega meitt yður eitt- hvað. Sjúkrahúsið er hérna hand- an við hornið. Hraðar, hraðar. 'fccHSf1 UUl n DENNI DÆMALAUSI Viltu sopa Jói? Hann veit að ég meina appelsfn. ry> <&)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.