Tíminn - 16.05.1975, Page 5
Föstudagur 16. mai 1975.
TÍMINN
5
LIÐINN VETUR OG AFSKRÆMI
HJALTASTAÐAFJANDANS
* .. ' """ '
Tíminn
er
peningar
-
NÚ ER loki5 löngum og ströngum
vetri hjá okkur Héraðsbúum og
Austfirðingum, og þykir vist
flestum mál að linni.
Þessi vetur hefur verið sér-
stæður á marga lund og á ýmsu
gengið.
Tið var fremur mild og úrfella-
söm fram undir desemberbyrjun.
Um mánaðamótin gekk til hæg-
viöri með norðan kulda, er varöi
fram um miðjan mánuð. Þá herti
norðanáttina með snjóhriðum og
byljum er eymdi af til áramóta.
Tuttugasta des. féllu snjóflóðin á
Neskaupstað og fjárhús á Sel-
stöðum i Seyðisfirði með þeim af-
leiðingum, sem kunn eru.
A nýársdag var allgott veður,
bjart og hlýtt, sem næst að væri
hláka.
Frá áramótum til 12. janúar
voru hér um slóðir meinhæg og
aðgerðarlaus vetrarveður, en þó
flesta daga nokkurt frost.
Tólfta til fjórtánda janúar geis-
aði hér á Héraði og viðar um
norðaustanvert landið blind-
þreifandi bylur með feikna ofan-
burði. Þegar veðri slotaði og upp
birti, gaf að lita Héraðið allt, frá
sjó og innstu dölum, hulið þykkri
hjarndyngju. Mestur var snjórinn
á belti þvert um mitt Héraö,
skaflar voru aðdáunarverðir
hvað lögun snerti, og höfðu þeir
numið ný stæöi norðan og norð-
austan i hæðum og hliðum ása og
fella. Sem sagt mestu skaflarnir
lágu þar sem helzt aldrei kemur
snjór að ráði, og réð þar um
veturstaðan. t veðraham þessum
bar mikinn snjó að húsum og á
þök þeirra. Þar réð um gerö, lög-
un svo og staðsetning, hvernig
þökin báru af sér og þoldu þung-
ann. Urðu þó nokkur brögð að þvi
að þök löskuðust og jafnvel
brustu. Olli þetta allt miklum
óþægindum og beinu tjóni og fjár-
skaða á tveim þrem bæjum.
Sem vænta mátti vakti veöur
þetta þó nokkurt umtal, bæði af-
leiðingar þess og afköst. Lögðu
margir þar orð i belg, og jafnvel
fjölmiðlar svo sem sjónvarp og
útvarp vildu láta sjá og heýra, og
nærri lá að hinir orðhögustu menn
kæmust i þrot með lýsingarorð,
sem hæfðu hugtökunum snjó og
snjómagni.
Veturinn 1966 var mikill snjór á
Héraði, lá hann öllu jafnar og
ekki i þvi likum dyngjum sem nú i
vetur.
Að kvöldi annars febrúar
bleytti i snjóinn. Höfðu þá verið
stillt og allgóð veður frá þvi 16.
jan., með öðrum orðum venjuleg
vetrartið. Frostleysi þetta hélzt
röskan sólarhring. Ekki var þó
um neina hláku að ræða, og
hvergi sá fyrir krapi eða svell-
myndun. Snjórinn aðeins seig og
þéttist.
Þegar frysti, var hjarnfæri
þannig að aka mátti öllum léttari
bilum þvers og langs um Fljóts-
dalshérað og eitthvað af Aust-
fjarðahálendinu. Það eina sem að
varast vann með þetta góða leiði,
hvað viö kom hættum, var þjóð-
vegakerfið og vegaslóðir, er
ruddar voru með snjómoksturs-
tækjum. Þessar snjógryfjur
leyndusteins og verstu gjákjaftar
og sprunguop á hinum frjálsu
leiðum Héraðsbúa á ferðum sin-
um vitt og breitt um Fljótsdals-
hérað i bilum og á vélsleðum.
t fáum orðum sagt. Þetta góða
leiði hélzt óbreytt fram i april,
eða sem næst i tvo og hálfan mán-
uð, og mun slíkt vera einsdæmi.
Að þetta gat gerzt, ber fyrst að
nefna langvarandi hægviðri án
úrkomu, og litt breytilegt hita-
stig.
Nú er nokkuð farið að leysa. Þó
má betur, ef duga skal, þvi mikill
gaddur liggur á láglendi héraðs-
ins um og fyrir utan Egilsstaöi
enn i dag, og þvi fjöldi túna i aug-
ljósri hættu, ef ekki bregður til
hins betra von bráðar.
Nú nýverið hafa þau undur
gerzt hér á Austurlandi, að
diktaðar hafa verið upp sögur um
ljósagang og dularfullar manna-
ferðir, svo notuð séu orð sjón-
varpsins, þegar það flutti okkur
fréttina, sem illu heilli náði senni-
lega á flest heimili landsins. Aður
hafði útvarpið látið fréttina frá
sér fara með þó nokkrum hávaða
og fyrirgangi. Það var gaman að
vera Austfirðingur kvöldin þau.
Óneitanlega er sú spurning
áleitin I huga manns, hver hinn
eiginlegi tilgangur með þessari
frétt og flutningi hennar i fjöl-
miðlum hafi verið. Og Timinn lét
jafnvel i veðri vaka, að opna yrði
simstöð á Loðmundarfirði. Til-
gangurinn er ekki fyllilega ljós,
nema hvað það virðist hafa getað
gegnt vissu hlutverki i tvennum
skilningi. Vist er það, að fréttin
greip um sig og ýmsir trúðu þvi,
að umgangur þessi væri holdi
klædd vera, — lika á hann að hafa
birzt hinum og þessum hér og þar
á Útmannasveit með broslegum
látbragðsklækjum fyrri drauga.
Enda mun Hjaltastaðafjandinn
hafa sýnt tilburði til fjölbreytni i
glettum sinum við fólk þar áður
fyrr.
Fyrir ekki ýkja mörgum árum
átti leið um þessar sömu slóðir á
Útmannasveit hillingadraugur,
er Snjómaður nefndist. Litið orð
fór af hæfni hans, hefur hann þvi
verið heldur fákunnandi vesal-
ingurinn. Þó sennilega kunnað að
lita undan.
Sé nú svo, að við ibúar hér i
Austfirðingafjórðungi séum
komnir i bland við hinar ýmsu
kynjaverur svo sem huldumenn,
svo minnzt sé á fyrirsögn Timans
12. april sl., er ekki að furða þótt
fjölmiðlar brýni raustina og hafi
hátt um hið blandaða mannlif á
Austurlandi. Getum við þvi senni-
lega vænzt þess i náinni framtið
að fá aukið rúm i máli og mynd-
um fjölmiðla, og er þaö vel. Við
Austfirðingar höfum haft útilegu-
menn sem aðrir, og siðast 1944, er
þeir héldu til við Selvog i Ósfjöll-
um norðan Njarðvikur. Það mál
var tekið föstum tökum i upphafi
og fékk skjótan enda, án þess að
blandast skrumi og gróusögum.
Þvi ber ekki að neita, að um-
gangurinn núna var áður tengdur
Geirfinnsmálinu, og er það alvar-
legra en i fljótu bragði virðist og i
skimpingum sé haft.
Ættingjar Geirfinns Einarsson-
ar vona að sjálfsögðu að það mál
upplýsist og verði lýðum ljóst,
með hvaða hætti hvarf hans bar
að, og meðferð alls er grunsemd
vekur og máli skiptir sé sem
nokkru varði.
Skrifað2. mai 1975
S.J.O.
Áskorun til gjaldenda
fasteignagjalda í
Reykjanesumdæmi
Áskorun um greiðslu fasteignagjalda til
fasteignaskattsgreiðenda i Reykjanesum-
dæmi frá Samtökum sveitarfélaga i
Reykjanesumdæmi.
Hér með er skorað á alla þá, sem eigi hafa
lokið greiðslu fyrri hluta fasteignagjalds
fyrir árið 1975 að ljúka greiðslu alls fast-
eignagjalds innan 30 daga frá birtingu
áskorunar þessarar.
En óskað verður nauðungaruppboðs hjá
þeim, sem enn hafa eigi lokið greiðslu
gjaldsins 15. júni n.k.
Samtök sveitarfélaga i Reykjanesum-
dæmi.
HÖFUM
I BREIÐHOLn
nýtt útibú að Völvufelli 21. íbúar
í Breiðholti III þurfa því ekki
lengur að sækja bankaviðskipti
sín í bæinn. Þeir geta sparað
sér tíma og fyrirhöfn með því
að beina viðskiptum sínum til
okkar.
Opið 9.30-12,13-16 og 17-18.30.
LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT.
Idnaóarbankínn
Völvufelli 21 Breiðholti III Sími 74633.