Tíminn - 16.05.1975, Síða 8

Tíminn - 16.05.1975, Síða 8
8 TÍMINN Föstudagur 16. mai 1975. Forstöðustarf við Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins er laust til umsóknar. Umsækjendur meö fóstrumennt- un gagna fyrir. Laun samkvæmt kjarasamningi viö Starfsmannafélag Reykjavikurborgar. Umsóknir meö upplýsingum um menntun og fyrri störf þurfa að berast stofnuninni fyrir 31. mai n.k. SSl Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar íjj i f Vonarstræti 4 sími 25500 *Smm-mmmmmmmmmmm^—mmmmm* Kennarar— Söngkennarar Fjóra kennara vantar við Barnaskólann á Akranesi, þar af einn forskólakennara (mætti vera fóstra). Auk þess vantar söngkennara i fullt starf við skólann. Umsóknarfrestur er til 10. júni. Upplýsingar gefur skólastjórinn, Njáll Guðmundsson simi 93-1452 og formaður fræðsluráðs, Þorvaldur Þorvaldsson simi 93-1408. Fræðsluráð Akraness. Tilkynning Að gefnu tilefni leyfum vér oss hér með að tilkynna, að reglur um gjaldeyrisveitingar til ferðalaga erlendis eru svo sem hér segir: 1) Hinn almenni ferðaskammtur er kr. 37.500,- (um 110,- pund) gegn framvisun farseðils. Börn innan 12 ára fá hálfan ferðaskammt. 2) Yfirfærslur til ferðaskrifstofa vegna IT- og hópferðafarþega til greiðslu á hótelkostnaði og skoðunarferðum eru 3.50 pund á dag fyrir hvern farþega að hámarki i 15 daga. 3) Yfirfærslur til ferðaskrifstofa til útveg- unar og kaupa á hópferðum frá erlend- um ferðaskrifstofum eru 52,50 pund fyrir hvern farþega eða jafnvirði i öðr- um erl. myntum (t.d. Dkr. 700,-, DM 300,-, $ 125,-), enda standi ferðin eigi lengur en 15 daga. 4) Ferðaskammtur til IT- og hópferðafar- þega, svo og farþega er fara með er- lendum ferðaskriístofum á vegum is- lenzkra ferðaskrifstofa sbr. 115 3) hér að framan, er kr. 21.000,- (nú 65,- pund) gegn framvisun IT- eða hópferðafar- seðla. Jafnframt ber ferðaskrifstofum að sækja um ferðagjaldeyri þennan fyrir farþega sina um leið og ferð er pöntuð samkvæmt lið 2) eða 3) hér að framan og tilgreina brottfarardag á umsókninni. 5) Sé um að ræða 2. ferð á sama árinu er heimilaður hálfur ferðaskammtur. Vér viljum jafnframt benda á, að sam- kvæmt gildandi gjaldeyrisreglum er ó- heimilt að stofna til hvers konar erlendra skulda án leyfis gjaldeyrisyfirvalda. Gjaldeyrisdeild bankanna. ■ Forsætisráðherra: Lagasetning til lausnar vinnudeilum er hreint neyðarúrræði í UMRÆÐUM um frumvarp um launajöfnunarbætur, I neöri deild i gær, sakaði Magnús Kjartansson rikis- stjómina um að flýta málum um of og hraða þeim svo gegn um þingið, að alþingismenn hefðu engan tima til að kynna sér þau og fjalla um þau á eðlilegan hátt. Þetta sagði hann að stjórnin gerði til þess að geta rekið þingmenn heim og farið að stjórna með bráða- birgöalögum. Kvað hann al- gjöra ringulreið rikja á þing- inu. Hann krafði forsætisráð- herra sagna um það, hvað rlkisstjórnin hygðist gera til að leysa kjaradeilur þær, sem nú standa yfir eða standa fyrir dyrum. Minnti þingmaðurinn á, að einkaaðilar hefðu getað sam- ið, og nefndi i þvi sambandi flugmenn, flugfreyjur, flug- umferðarstjóra, organista og verkfræðinga. Heimtaði Magnús skýr svör við þvi, hvort rikisstjórnin hygðist setja bráðabirgðalög um kjör verkamanna og sjómanna, og krafðist þess að aukaþing yrði kallað saman, ef svo yrði. Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra svaraði og sagði, að það væri ekkert nýtt að mál- um væri hraðað gegn um þing- ið siðustu dagana sem það sit- ur, og væri ekki við rikisstjórn- ina eina að sakast i þvi efni. Hann sagði, að rikisstjórnin væri ekki i striði við launþega, eins og Magnús léti i veðri vaka, en hún teldi ekki ástæðu til að hafa bein afskipti af kjarasamningum, meðan ein- hver von væri til að launþegar og atvinnurekendur gætu komizt að samkomulagi. Sagöi Geir, að það væri rétt, að ýmsir hópar iaunafólks hefðu hafið baráttu fyrir hækkuðu kaupi umfram það, sem heildarsamtök laun þega heföu gert. Bæri að harma það, að einstaka launa- hópar hefðu ekki skilning á þvi, að þótt lægstlaunuðustu fengju einhverjar kjarabætur, væri ekki sjálfgert, að þeir sem betur væru settir fengju kauphækkun lika. Forsætisráðherra kvaðst telja lagasetningu til lausnar kjaradeilum hreint neyðarúr- ræði, en sagði hins vegar, að rlkisstjórnin myndi ekki lýsa neinu yfir sem takmarkaði stjórnskipulegan rétt hennar til útgáfu bráðabirgðalaga, né gefa upp, hvort bráðabirgða- lög yrðu sett, eða um hvaða efni. Skólaslit á Hvanneyri: VAXANDI ÁHUGI Á NÁMI UTAN SKÓLA BG-Hvanneyri. — Bændaskólan- um á Hvanneyri var slitið hinn 13. þessa mánaöar, og lauk þar meö 86. starfsári hans. Reglulegir nemendur viö skólann voru 60 I vetur, þar af 36 I bændadeild. 34 nemendur brottskráðust að þessu sinni, en 13 nemendur, sem stund- uðu búfræöinámiö utan skóla, eiga prófum ólokiö. Gat skóla- stjórinn, Magnús B. Jónsson, þess i skólaslitaræöu sinni, aö vaxandi áhugi virtist á þvi aö stunda óreglulegt nám viö skólann, og aö brýn þörf væri á aö marka sliku námi ákveöinn farveg. Á búfræðiprófi hlaut hæsta einkunn Björn Halldórsson frá Engihlið I Vopnafirði, 8,4. Næstur að stigatölu, en með sömu aðal- einkunn, var Friðjón Ingi Jó- hannsson frá Finnsstöðum i Eiða- þinghá. Hlutu þessir nemendur verðlaun frá Búnaðarfélagi ís- lands og Bændaskólanum fyrir ágætan námsárangur. Þá voru veittar viðurkenningar fyrir góða umgengni á heimavistum. A ári hverju er afhentur farandgripur til þess nemanda, er efst stendur I glimukeppni skólans. Hlaut hann að þessu sinni Eirikur Ásmunds- son frá Asgarði i Grimsnesi. Að venju voru nemendur skól- ans iönir við tamningar hesta. Verðlaun Morgunblaðsins fyrir góðan árangur i tamningum, Morgunblaðsskeifuna, hreppti Jón G. Halldórsson frá Krossi i Lundarreykjadal, en Jónas Lilliendahl frá Skálmholti i Flóa var af Tamningamannafélagi Is- lands verðlaunaður fyrir bezta ásetu. Skólastjóri drap i ræðu sinni á nýsamið frumvarp til laga um búnaöarfræðslu, sem afgreitt var frá búnaðarþingi á sl. vetri, en biður nu frekari meðferðar. Rakti hann nokkuð þær breytingar, sem frumvarpið felur i sér á tilhögun hins almenna búnaðarnáms, en þar er m.a. lögð áherzla á verk- legt nám i búfræði og tengsl bún- aðarnámsins við hið almenna skólakerfi. Skólastjóri ávarpaði siðan nýbakaða búfræðinga, minnti á ábyrgð og vanda þann, er felst i starfi bóndans og óskaði þeim brautargengis. Viö skólaslitaathöfnina söng kór skólans nokkur lög, en-kórinn hefur starfað af miklum þrótti i vetur undir stjórn Ólafs Guð- mundssonar. Að siðustu flutti sóknarpresturinn, sr. ólafur Jens Sigurðsson, stutta hugvekju. Félagslif i skólanum hefur veriðmeð nokkrum blóma i vet- ur. Auk skólaskemmtana héldu nemendur Bændaskólans skemmtun i félagsheimilinu Brún i Bæjarsveit, og buðu til hennar nágrönnum sinum úr sveitinni. Þessi skemmtun var siðan endur- tekin að Lýsuhóli I Staðarsveit. Leiðbeinandi nemenda um fé- lagsmál og tómstundaiðju er Trausti Eyjólfsson kennari. Nemendur framhalds- og bú- visindadeilda Bændaskólans munu ljúka námi I júni, og eru próf i deildunum nýhafin. M i.:r $ i o; .? Fóstrur Staða fóstru við dagheimili Borgar- spitalans er laus til umsóknar nú þegar. Upplýsingar veitir forstöðukona spital- ans i sima 81200. Reykjavik, 15. mai 1975. Borgarspitalinn. s I m w/ 'M • ». • • - , l W •' ' ••-' * ’ • - ■» •/■>• •.» jt . . • « i,,« *» :'j MIKIÐ hefur verið að gera á Alþingi undanfarna daga, enda er stefnt að þvi að ljúka störfum þingsins i dag, föstu- dag, en fjölmörg mál biðu endanlegrar afgreiðslu allt fram á siðasta dag þingsins, sum viðamikil. 1 fyrrinótt stóðu þingfundir fram til kl. 1.30, og varla hafa þeir staðið skemur sl. nótt. A miövikudag lágu 19 mál fyrir sameinuðu þingi, 13 fyrir efri deild og 25 fyrir neðri deild. í gær voru tekin fyrir 17 mál i sameinuðu þingi, 10 i efri deild og 16 i neðri deild. Að vonum er hraðafgreiðsla á mörgum málum, en önnur vilja þingmenn ræða nánar. Miklar umræður hafa m.a. orðið um frumvarp um rikis- ábyrgð fyrir Flugleiðir. I gær var lögð fram skýrsla forsætisráðherra um Fram- kvæmdastofnun rikisins, og urðu talsverðar umræður um þá stofnun, en minni um skýrsluna sjálfa, þar sem þingmenn sögðust ekki hafa haft tima til að kynna sér inni- hald hennar. 1 þeim umræðum upplýsti Tómas Amason, að samanlagt ráðstöfunarfé Byggingasjóðs væri rúmlega 1.020 millj. kr. á þessu ári. 1 sameinuðu þingi var vega- áætlunin rædd, og var búizt við að þær umræður stæðu lengi, en boðað var til kvöld- funda I efri og neðri deild kl. 9 i gærkvöldi. Eins og að likum lætur, hefur verið mikill erill hjá þingmönnum, og hefur varla gefizt timi til að fá sér kaffi- sopa milli funda, en örstuttir þingflokkafundir hafa verið haldnir. BSRB-deilan fyrir Kjaradóm EFTIR fund, sem sáttasemjari hélt með samninganefnd B.S.R.B. og samninganefnd rikis- ins Idag, er ljóst, að samkomulag tekst ekki, og kjaradeilan gengur þvi lögum samkvæmt til kjara- dóms, sem á að kveða upp úr- skurð fyrir 15. júni n.k.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.