Tíminn - 16.05.1975, Page 13

Tíminn - 16.05.1975, Page 13
Föstudagur 16. mai 1975. TÍMINN 13 90! H. Hlili,. Kaldur hefur hann verið að undanförnú. Manni verður hugsað til ákvæðaskáldanna, sem ýmsu hafa áorkað, bæði fyrr og slðar. Sumir kváðu burt hafls, aðrir Tyrkjann. Þorsteinn Erlingsson kvað burt regn og þoku I innsveitum Skagafjarðar og Jakobina Sigurðardóttir gerði veður að herskipaflota úti fyrir Vestfjörðum. Æ, getur ekki ein- hver kveðið sól og sumar I sveitir? Selfossdeilan Að svo mæltu snúum við okkur að bréfum. Verður fyrst fyrir pistill frá H. Kr. um Selfoss- deiluna. Hann segir: „Deilan og verkfallið á Selfossi er öllum I fersku minni. Ég er einn I þeim hópi — kannski fámennum hópi — sem ekki þykist þess umkominn að dæma, þvl að málavextir liggja ekki svo ljóst fyrir, enda mun hafa verið ærinn aðdragandi. Þessi deila og umtal það, sem hún vakti, hefur vakið til umhugsunar. Þær spurningar, sem ég varpa hér fram, eru alveg óháðar afstöðu til deilunnar sjálfrar. Hver á að vera réttur atvinnu- rekenda til að velja sér starfs- fólk? Eiga þeir að hafa uppsagnárrétt? Eða eiga þeir að sitja uppi með það fólk, sem til þeirra er komið, eins og gildir um embættismenn rikisins? Þeir eiga víst rétt til að halda slnu starfi, ef ekki er um beina óhæfu að ræða. Nú vilja menn að visu hverfa frá þvl lagi og ráða embættis- menn stuttan tima. Engum dettur annað i hug en starfsmenn hafi rétt til að segja upp og fara annað. Enginn mælir gegn geðþóttauppsögnum af þeirra hálfu. Geðþóttinn er stað- reynd, sem ekki verður gengið fram hjá. Engar geðþóttauppsagnir! Þetta vlgorð höfum við heyrt. Og égefa ekki, að mönnum gangi gott til. Það vill enginn, að maður sé rekinn úr starfi einungis vegna duttlunga verkstjóra eða for- stjóra. En hvernig eiga þær reglur að vera, sem um þetta eru settar? Hver á að vera réttur at- vinnurekenda til uppsagnar? Eða á hann enginn að vera?” Fjölmiðlar Sfðankemurbréf rá F. Honum farast orð á þessa leið: . „Landfari góður! Ritfrelsi og málfrelsi eru hornsteinar lýðræðisins — þau réttindi fólksins, sem einræðisherrar skerða fyrstallra. Þeir þola ekki gagnrýni og standast hana sjaldnast, en gagnrýni er styrkur lýðræðisins. Heilbrigð gagnrýni á nokkuði vök að verjast hérlendis, og ber tvennt til: Útvarpið er múlbundið vegna hlutleysis- reglunnar,' en daglböðin öll eru rekin af stjórnmálaflokkunum og túlka þröng sjónarmið þeirra. Af kjördæmaskipuninni leiðir margra flokka kerfi og sam- steypustjórnir, og þegar tveir eða þrlr stærstu flokkarnir fara með völd, ber litiðá stjórnarandstöðu, sem styðst við litið lesinn blaða- snepil. Það er þvi að mestu komið undir viðsýni ritstjóranna, hvort fleiri en ein skoðun fær yfirleitt að heyrast. Vissulega mættu þeir gera meira að þvi að leita álits hjá óskyldum aðilum um mikils- verðmálefni. Sjónvarpsþátturinn „Kastljós” er sport i rétta átt. Það er lítt uppbyggjandi, ef ekki beinlinis reytandi, að heyra við flest tækifæri sömu raddirnar I frétta-auka hljóðvarpsins, sömu andlitin á skerminum, og sömu myndirnar I dagblöðunum.” JOLBARÐAR K iara 825x20/12 Nylon 19.530 900x20/14 V1000x20/14 21.830 27.320 28.560 29.560 31.320 1000x20/16 1100x20/14 1100x20/16 Fuli ábyrgö á sólningunni SÓLNING SE Sendum póstkröfu Nýbýlavegi 4 Kópavogi Sími 4-39-88 Auglýsing um lögtök vegna fasteigna- og brunabótagjalda í Reykjavík Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald- heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m. verða lögtök látin fram fara til tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og bruna- bétagjöldum, samkvæmt 2. kafla laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga, en gjalddagi þeirra var 15. jan. og 15. mai s.l. Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tima. Borgarfógetaembættið i Reykjavik, 16. mai 1975. Mold til sölu. — Heimkeyrð. Sími 7-31-26. SAMVIRKI HÚSEIGENDUR Nú er rétti timinn til við- gerða á húsum ykkar. Tök- um að okkur alls konar við- gerðir og nýsmiði. Setjum i glugga og hurðir. Upplýsing- ar I sima 1-40-48 kl. 19-20 á kvöldin. HVER ER SINNAR NÝ BÓK FRÁ MÁLI OG MENNINGU: EDDA Þórbergs Þóröarsonar „Ég hefi hvorki haft ástæður né löngun til að vanda svo til Ijóðagerðar minnar sem þeirra er siður, er telja skáldlistina lífsköll- un sína... enda aldrei þráð sæti á skálda- bekk", sagði Þórbergur Þórðarson i inn- gangsorðum að Hvítum hröfnum 1922, en í þeirri bók er samankominn meginhlutinn af kveðskap Þórbergs. En þó að skáldlistin haf i aðeins verið aukageta í höf undarstarf i Þórbergs Þórðarsonar, þá eru kvæði hans raunar meitluð af sama málminum og önn- ur verk hans. Hvítir hrafnar 1922, líkt og Bréf til Láru 1924, voru uppreisn gegn „slepju og væmni samtíðarinnar", og brutu svo mjög í bág við það sem þá þótti rétt í skáldskap, að fæstir samverkamenn Þór- bergs í víngarði andans gátu litið þá réttu auga. Ekki er þó ólíklegt að Hvítir hrafnar verði endingarbetri en margt það sem var hærra metið um þær mundir. — Árið 1941 gaf Þórbergur Hvíta hrafna og önnur kvæði sín út á ný og nef ndi bókina Eddu Þórbergs Þórðarsonar. Þar brá hann á það nýmæli að birta með hverju kvæði athugasemdir um sögu þess og aðdraganda og skýringar ef með þurfti, og urðu víða úr þessu smáritgerðir þar sem ritlist og fyndni Þórbergs nýtur sín með á- gætum. I þessum smágreinum segir hann margt af sjálfum sér og tíma sínum sem ekki er annarsstaðar að finna. I' hinni nýju útgáfu Máls og menningar á Eddu Þórbergs er bætt við kvæðum sem síðar eru ort, og er bókin nú aukin um 50 blaðsíður. MÁL OG MENNING Laugavegi 18, Reykjavík.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.