Tíminn - 16.05.1975, Page 20
> ................. .........
Föstudagur 16. mai 1975.
-
1
þeytidreifarinn
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guöbjörn Guöjónsson
Heildvenlun Siðumúla 22
Simar 85694 & 85295
/
fyrirgóóan nmt
^ KJÓTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
EN SNÖRP
Björgun Mayaguez kostaði fórnir:
STUTT BARÁTTA-
Kambódíustjórn segir AAayaguez
hafa verið bandarískt njósnaskip
NTB/Reuter—Washington/Bang-
kok. — Bandarikjaher lét sem
kunnugt er til skarar skríða gegn
Kambódiumönnum vegna töku
bandariska kaupfarsins Mayagu-
ez. Eftir stutta, en að sama skapi
snarpa baráttu, náðu Banda-
rikjamenn farinu og áhöfn þess,
heilli á hiifi.
Eins og skýrt var frá i Tfman-
um i gær, gerðu bandariskar þot-
ur árásir á kambódisk herskip.er
lágu úti fyrir eynni Koh Tang um-
hverfis Mayaguez. Þegar skipun-
um hafði ýmist verið sökkt eða
stökkt á flótta, réðust 160 land-
gönguliðar úr úrvalssveitum
Bandarikjaflota til uppgöngu á
Koh Tang, þar sem búizt var við,
að áhöfn Mayaguez væri niður
komin.
Rétt áður höfðu skipverjar hins
vegar stigið um borð i bandariska.
tundurspillinn Wilson, en
kambódisk yfirvöld höfðu séð sér
þann kost vænstan að sleppa þeim
lausum til að forðast frekari átök.
Ahöfnin var stuttu siðar flutt um.
borð i Magaguez, er hélt för sinni
áfram til Thailands.
En landgönguliðarnir er stigu á
land á Koh Tang, mættu harðri
andspymu sveita hinna rauðu
„khmera”. Það tók langan tima
að flytja þá af eynni, þvi að þyrl-
ur, er flutningana áttu að annast,
urðu fyrir stanzlausri skothrið.
Það var fyrst er bandariskar
orrustuþotur höfðu þaggað niður i
ioftvamabyssunum, að hægt var
aö flytja landgönguliðana burtu.
Að sögn bandariska landvarna-
ráðuneytisins, lét einn þeirra lif-
ið, en fjöldi særðist.
Kambódiustjórn hefur lýst yfir,
að hún hafi ekki fyrirskipað að
færa Mayaguez til hafnar til að
storka Bandaríkjamönnum,
heldur hafi vérið um að ræða
bandariskt njósnaskip. Fulltrúi
eigenda Mayaguez hefur aftur á
móti neitað þvi, að skipið hafi
flutt annað en venjulegan farm.
Pundið
hækkar
Reuter—London. Gengi
Sterlingspunds og Bandarikja
dals hækkaði verulega á
gjaldeyrismörkuðum i Vestur-
Evrópu I gær.
Aður hafði gengi punds snar-
lækkað, svo að efnahagssér-
fræöingar voru á timabili
famir að óttast gengishrun
þess. Til þess kom þó ekki, og i
bili virðist útlitið bjartara.
Líbanonstjórn segir
af sér
Reuter-Beirut. Rashid Al-
Solh, forsætisráðherra Liba-
non, gekk siðdegis i gær á fund
forseta landsins, Suleiman
Franjieh, og afhenti honum
lausnarbeiðni Líbanonst jórn-
ar — stjórnin hafði setið hálft
ár að völdum.
Aður hafði Solh lesið orö-
sendingu þessa efnis á þingi. t
orðsendingunni er ráðizt á
falangista — sem er flokkur
örgamanna til hægri — og þeir
sakaðir um að hafa hrundið af
stað blóðsúthellingunum i
landinu I fyrra mánuði.
Róstusamt var I þingsaln-
um, er Solh las upp orðsend-
inguna. Fulltrúar falangista
vildu koma að andmælum, en
fengu ekki. Ætluðu þeir þá að
stöðva forsætisráðherrann, er
hann ætlaði út úr salnum og til
forsetahallarinnar með
lausnarbeiðnina, en hann
komst klakklaust sina leið.
Jórnbrautar-
slys í Svíþjóð
Reuter-Norrköping. Sjö börn
og einn fullorðinn biðu bana i
járnbrautarslysi I Sviþjóð I
gær — öðru járnbrautarslys-
inu, er verður þar I landi á
tæpu hálfu ári.
Slysið varð með þeim hætti,
að lest — sem kom af hliðar-
spori — rakst á aftasta vagn i
hraðlest, þar sem m.a. voru
125 skóiabörn á leið tii dýra-
garðs I næsta nágrenni Norr-
köping, sem er bær i suður-
hluta Sviþjóðar. Vagninn valt
á hliðina með fyrrgreindum
afleiðingum — niu til viðbótar
meiddust, þar af þrír lifs-
hættulega.
• Þann 31. marz s.l. varð
mikið járnbrautarslys i nánd
við bæinn Lindköping, er bif-
reið var ekið i veg fyrir hrað-
lest. Þá fórust fjórtán, en
tuttugu og sjö hlutu meiðsli.
Aðgerðir Bandaríkja-
hers mælast að vonum
misjafnlega fyrir
Kínverjar kalla þær sjórón, en talið er, að ólit
Fords forseta heima fyrir aukist til muna
Reuter—Bangkok/Peking/Wash-
ington. — Eins og gefur að skilja
hafa aðgeröir Bandarikjahers til
björgunar bandarlska kaupfarinu
Mayaguez mælzt misjafnlega
fyrir: Kínverskir ráðamenn kalla
þær sjórán, en fréttaskýrendur
búast við, að þær auki til muna
álit Bandarlkjamanna á Gerald
Ford forseta.
Li Hsien-Nien, einn af varafor-
sætisráðherrum Klna, hélt ræðu i
gær i veizlu, sem haldin var I til-
efni af töku Saigon. 1 ræðunni fór
hann hörðum orðum um árásir
bandariskra flugvéla á skip og
mannvirki á landi og kallaði að-
gerðirnar sjórán. Li sagðist þess
fullviss, að almenningsálit i
heiminum fordæmdi slíkar að-
gerðir.
Þetta eru fyrstu viðbrögð kin-
verskra ráðamanna við
atburðum þessum, og kom er-
lendum fréttaskýrendum i Pek-
ing á óvart, hve harðorður Li var I
garð Bandaríkjamanna.
Einn af sendimönnum Kam-
bódíustjórnar sagði i viðtali við
fréttamanna Reuters i Peking i
gær, að stjórnin hefði ekki fært
Mayaguez til hafnar að ástæðu-
lausu — skipið hefði siglt inn i
kambódiska landhelgi, augsýni-
lega i þeim tilgangi að njósna og
vinna skemmdarverk, enda hefði
það sérstaklega verið útbúið til
þess.
Flestir þingmenn á Banda-
rlkjaþingi eru að sögn fréttaskýr-
enda ánægðir með skjót viðbrögð
Fords forseta. Henry Jackson —
sem talinn er liklegur til að hljóta
útnefningu sem forsetaefni demó-
krata i forsetakosningunum á
næsta ári — sagði I gær: — Ég er
hæstánægður með aðgerðir hans
(þ.e. forsetans) í málinu. George
McGovern — sem var frambjóð-
andi demókrata i siðustu forseta-
kosningum — kvaðst styðja að-
gerðir forsetans, en reyna hefði
mátt til þrautar að leysa málið
eftir diplómatiskum leiðum.
Fréttaskýrendur segja, að
hinar skjótu og markvissu að-
gerðir Bandarikjahers styrki
Ford I sessi — en til þessa hafa
margir legið honum á hálsi fyrir
hik og ráðaleysi.
Thailandsstjórn Phugar nú, til
hverra ráða hún eigi að gripa
vegna þeirrar óbilgirni Banda-
rikjastjórnar að láta flugvélar og
landgönguliða frá herstöðvum i
Thailandi taka þátt i aðgerðunum
gegn Kambódiumönnum — þrátt
fyrir yfirlýsta andstöðu thai-
lenzkra ráðamanna. Sagt er, að
Kukrit Pramoj forsætisráðherra
kanni nú þær hefndaraðgerðir, er
til greina komi að beita. Aðspurð-
ur kvaðst ráðherrann I gær telja
óliklegt, að slitiö yrði stjórnmála-
sambandi við Bandarikin, en eitt-
hvað yrði tekið til bragðs, er
kæmi I veg fyrir, að slikt gæti
gerzt.
Baader-Meinhof lætur enn til sín heyra:
Hótar nú að drepa
sænskan ráðherra
NTB-Stokkhólm i. Sænska
öryggislögreglan hefur gert
viðeigandi ráðstafanir eftir að
hryðjuvcrkahópur, er kennir
sig við öfgasamtökin Baader-
Meinhof, hefur hótað ráðherra
Leijon: Henni er hótaö Hfláti
I sænsku stjórninni og fleiri
stórmennum llfláti.
Liflátshótanirnar voru sett-
ar fram i bréfi, er stimplað
var I pósthúsi i Hamborg þann
8. mai s.l. Bréfið barst sænska
dagblaðinu Expressen.
t þvi er Önnu-Grétu Leijon,
sem er ráðherra án stjórnar-
deildar I sænsku stjórninni,
hótað lifláti. Leijon undirritaði
á slnum tima tilskipun þess
efnis, að sá hermdarverka-
mannanna, er særðist hættu-
lega I árásinni á vestur-þýzka
sendiráðið i Stokkhólmi i fyrra
mánuði, yrði framseldur
vestur-þýzkum yfirvöldum.
Fjöldi öryggisvarða fylgir
Leijon nú, hvert sem hún fer.
Þá hafa lögregluyfirvöld og
gert ráðstafanir til að vernda
lif Christinu prinsessu og Tord
Magnusson, eiginmanns henn-
ar, sem um þessar mundir eru
stödd ertendis. Hryðjuverka-
hópurinn hefur nefnilega einn-
ig hótað að svipta þau lífi.
ÓDÝRAR
Spánarferðir
ÁGÚST/SEPTEMBER
Benídorm
VÍKINGAR — VÍKINGAR
Fundur um sólarferð til Benidorm
verður haldinn i Félagsheimilinu
Hæðargarð mánudaginn 19. maí
kl. 20,30. Allt áhugafólk velkomið.
— Ferðanefndin
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 Sfmar 11255 og 12940