Tíminn - 24.05.1975, Page 1

Tíminn - 24.05.1975, Page 1
TARPAULIN RISSKEMMUR HF HÖRÐVR 6UNNARSS0N SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91119460 ASI: ÁFÖLUN RÉTTLÆTA EKKI KJARA- SKERÐINGUNA Stjórnlokar Olíudælur Olíudrif ■It Ca*/—.,.. ii ' - - -■ 114. tbl. — Laugardagur 24. mai 1975—59. árgangur Landvélarhf X Erum við að slaka á gæða- kröfum á fiski sem við seljum til Bandaríkjanna? JÓN SIGURÐSSON: • • r r ,TOKUM IMAL AÐ FÆKKA UM EINN' Oó-Keykjavlk. Stefán Gunnlaugsson deildarstjóri i viöskiptaráðuneytinu, sagði i viðtali við Timann á föstudag, að hann óttaðist það, að við vær- um farnir að slaka á gæða- kröfunum á fiski, sem við selj- um á Bandarikjamarkað. Til skamms tima hefur hraðfrystur þorskur frá tslandi verið seldur viö hærra verði vestan hafs en þorskur frá öðrum löndum. — Að sögn Stefáns vofir nú sú hætta yfir,aðvið verðum undir i samkeppninni, ef við ekki höldum vöku okkar varðandi gæði fisksins en við tslendingar höfum verið stærstu þorskflaka- útflytjendur til Bandarlkjanna. Að sögn Stefáns er ástæðan kannski sú, að við hraðfrystum nú sifellt meira af togarafiski, sem ekki kemur eins ferskur á land og bátafiskurinn, þótt vel sé i'sað um borð i togurunum. HÆKKUNIN: Reyðarfjörður kemur helzt til greina með smíði olíupallanna BH-Reykjavik — Við höfum léð máls á þvi að fækka um einn há- seta á togurunum af stærri gerðinni, sagði Jón Sigurðsson, forseti Sjómannafélagsins i viðtali við blaðið i gær. — En við getum ekki léð máls á meiri fækkun. tJtgerðarmenn hafa farið fram á 6 manna fækkun, sem er of mikið. Það er alveg augljóst, að það þarf meiri mannskp á stærri togarana en þá minni, og færri er ekki hægt að hafa um borð i þeim. Þetta er allt svo viðameira þar um borð. Við inntum Jón eftir samninga- fundinum i gær. — Já, það var boðað til fundar kl. 10 með útvegsmönnum og sátta- semjara, en ég get ekki sagt, að það hafi verið talazt við. Við vor- um sendir heim klukkan hálf- ellefu, og svoeigumvið að hittast aftur kl. 5. Oó-Reykjavík. Athugun sú, sem Timinn skýrði frá fyrir nokkru, aö fram færi á þvi, hvort mögu- legt væri að smiða á Austfjörðum útbúnað til oliuvinnslu fyrir norska aðila, er enn i fullum gangi. Helzt er nú talið koma til greina að steypa borpalla og mun Reyðarfjörður vera efstur á blaði til þeirra framkvæmda. Aðdýpi þarf að vera mikið og möguleiki á þvi að draga borpallana af smiða- stað á haf út. Þessar fram- kvæmdir munu hafa gifurlegar fjárhæðir i för með sér. Það er fyrirtækið ístak, sem hefur unnið að undirbúningnum hér á landi og á að vera unnt að hefja framkvæmdir mjög fljótt eftir að frá samningum hefur ver- ið gengið. Byggja þyrfti þurrkvi, þar sem neðri hluti pallanna er byggður og siðan þarf að vera nægilega djúpt vatn, þar sem hægt verður að byggja tumana upp i fulla hæð, þar sem þeirsökkva jafnóðum og þeir eru smiðaðir. Svo þarf að vera að minnsta kosti 80 metra dýpi á haf út, opið haf. Þessar að- stæður eru ekki viða til, en Reyðarfjörður býður upp á þær. Ef þurrkvi verður byggð á Reyðarfirði verður þar ágæt stækkun á höfninni. Það fer nokkuð eftir hver þróun ollumálanna i Norðursjónum verður hvort ráðist verður i þess- ar framkvæmdir hér. Þess má geta að fullbúinn oliupallur kost- ar um 9 milljarða króna, og af þvi kosta steypumannvirkin 3 -5 milljarða króna. Rétt áöur en blaðið fór i prentun, bárust þær fregnir að fundurinn hefði staðið fram eftir kvöldi og litur út fyrir að eitthvað hafi þokast i samkomulagsátt. Nýr fundur með sáttasemjara, hefur verið boðaður i dag. KEA TEKUR VIÐ AF- GREIÐSLU RÍKIS- SKIPS Á AKUREYRI 17 ÞUSUND Á MÁNUÐI ASK-Rvik. Framkvæmdir standa nú yfir hjá KEA til að taka að sér, samkvæmt beiðni Skipaútgerðar rikisins, umboð hennar á Akureyri. Skipaaf- greiðsla Jakobs Karlssonar, sem hefur haft með höndum af- greiðsluna undanfarin ár, hætt- ir þvi frá og með 1. júni. Skipa smlðastöð KEA, sem lögð var niöur fyrr á þessu ári, verður notuð að mestu undir þessa starf- semi, og er nú unnið við að gera skemmur fyrirtækisins tilbúnar, auk þess sem viögerðir á bryggju austan stöðvarinnar standa yfir. Gert er ráð fyrir að strandferða- skipin geti lagzt þar að, þannig að stutt verður milli skips og vöru- geymslu. Undanfarin ár hefur gætt nokkurrar óánægju hjá viðskipta- mönnum Rikisskips vegna lé- legrar aðstöðu umboðsmannsins til geymslu á vörum. Torfi Hjartarson, sátta- semjari—maðurinn sem allt mæðir á þessa dagana. Maðurinn, sem situr yfir deiluaðilum og lempar deilumálin með þvi að fá einn skilning á mörgum skoðunum. Mörg eru járnin i eldinum, og mörg atriðin, sem hafa verður I huga — en kannski eru þó flest sjónarmiðin, sem taka verður tillit til, svo að allt fái sem vænlegust enda- lok um siðir. Svo allir geti staðið „ánægðir” upp frá samningaborðinu — og farið að upphugsa ný samninga- mál, sem á sinum tima verður skotið til mannsins, sem allt kemur til með að mæða á — sáttasemjara rikisins. Timamynd: Gunnar. BH-Reykjavik. — Hver yrðu launin, ef gengið yrði að þeim kröfum ASI-forystunnar, sem lagðar hafa verið fram? Eftir þeim útreikningum, sem hag- fræðingur ASI hefur gert verða þau þessi: Lægstlaunaða verkafólk á Dagsbrúnartaxta hefur nú kr. 42.400.00 i mánaðarlaun, og eru þá meðtaldar þær láglaunabæt- ur, sem fengizt hafa á liðnu ári. Þau laun myndu fara upp i rúmar 59.000.00 á mánuði. Miðað við laun eftir 6. taxta Dagsbrúnar, sem nú eru kr. 46.500,00 á mánuði, myndu þau fara upp 164.000.00 krónur, eða i báðum tilfellum myndu launin hækka um kr. 17.000,00 á mánuði. Timavinnan, miðað við 6. taxta Dagsbrúnar, myndi hækka úr kr. 260,10 i kr. 371,00 — ef gengið yrði að þeim kröfum, sem ASl hefur nú borið fram.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.