Tíminn - 29.05.1975, Side 14
14
TÍMINN
Fimmtudagur 29. mai 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
31
Síðan hafði Rambo ef nt loforð sitt og tekið á sig stóran
krók niður með vatnsfallinu — burt f rá bruggstöð gamla
mannsins. Brátt stefndi hann í vesturátt og ætlaði sér
enn að taka lokastef nu í suður — til Mexíkó. Hann gerði
sér þess f ulla grein, að ferðin þangað yrði allt annað en
auðveld. Hann ætlaði ekki að gefa á sér höggstað eða
koma upp um sig með því að stela bíl. Þess vegna yrði
hann að ferðast fótgangandi mánuðum saman fjalla-
baksleið og lifa á landsins gæðum. Samt sem áður kom
honum ekki í hug neinn staður annar, sem nær var, þar
sem hann yrði óhultur. Þó langt væri til landamæranna
hafði hann að minnsta kosti i bili ákveðið-^-ðatak-
mark og ákveðna átt. Vegna myrkursiYi&hafði nann orð-
ið að f ara hægt yf ir. Þegar hann haf ði f arið f áeinar míl-
ur klif ráði hann upp í tréog sofnaði þar. Sólip vakti hann
og hann borðaði meira af gulrótum og kjúklingnum, sem
hann hafði geymt sér sem nesti. Nú var sólin komin hátt
á loft og geislaði hita sínum. Hann hafði nú lagt nqargar
milur að baki og fór hratt milli trjánna í átt að röngu,
breiðu skarði. Skothvellirnir voru nú hærri og röddirvúr
hátalaranum skýrari. Hann vissi, að innan skamrhs
myndi þyrlan kanna þetta skarð ásamt hinum. Hanrn
kom út úr skóginum og hljóp yf ir opið svæði, vaxið grasi
og burknum. örskammt frá sér heyrði hann skrúfudyn-
inn, svo að segja við hlið sér. Hann leitaði sér skjóls í
hræðsluf lýti. Þarna var aðeins eitt einasta furutré. Bol-
ur þess virtist sundurtættur af eldingu. Það lá þarna eitt
og yfirgefið. Þangað hljóp hann og kastaði sér undir
þéttvaxnar greinar þess. Hann starði milli furunálanna
og sá þyrluna koma í Ijós í skarðinu. Hún stækkaði óðum.
Lendingarhjólin snertu næstum efstu greinarnar í skóg-
inum.
Mannsrödd dundi úr hátalara þyrlunnar: — Þetta er
lögreglan, sem talar. Þú ert í vonlausri aðstöðu. Gefstu
upp. Tilkynning til allra, sem eru í skóginum. Verið get-
ur að hættulegur f lóttamaður sé í nánd við ykkur. Gerið
svo vel að sýna ykkur. Veifið til okkar ef þið hafið séð
ungan mann á ferð, einan síns liðs. Röddin þagnaði en
heyrðist svo aftur, hálf klaufaleg, rétteins og maðurinn
læsi upp af miða: — Þetta er lögreglan. Þú ert í vonlausri
aðstöðu. Gefstu upp. Tilkynning til allra, sem eru í skóg-
inum. Verið getur að hættulegur flóttamaður sé í nánd
við ykkur.
Svona héldu þeir áfram, hættu, en byrjuðu svo aftur.
Rambo lá grafkyrr milli greinanna. Hann vissi, að f uru-
nálarnar földu hann séð frá jörð. En hann var ekki viss
um hvort hann sæist úr lofti. Hann fylgdist með þyrl-
unni. Hún sveigði frá trjánum í átt að gras-
lendinu. Svo nærri var þyrlan, að hann sá inn um gler-
hjálminn inn í flugmannsklefann. Þar sátu tveir menn
og störðu út um opna gluggana, hvor til sinnar handar.
Flugmaðurinn var klæddur í gráan einkennisbúning eins
og menn Teasles. Hann hallaði sér fram í gluggann og
miðaði gífurlega öflugum riffli með miðunarsjónauka.
Ca-rack. Skotið bergmálaði. Hann hafði miðað á hrúgu
runna og steina í skógarjaðrinum, sem þyrlan hafði f log-
ið yfir skömmu áður.
Jesús. Teasle hlaut að vera æstur í að ná honum. Hann
hafði skipað mönnum sínum að skjóta á Ifklega felu-
staði. Þeir virtust ekki óttast það, að skjóta saklaust
fólk. Flestir myndu hlýða kallinu og sýna sig. Sjónarmið
Teasles virtist skiljanlegt. Að svo miklu leyti sem hann
varðaði var Rambo lögreglumorðingi. Hann mátti ekki
sleppa undan. Hann varð að vera mönnum víti til
varnaðar. Þá myndu menn hugsa sig um tvisvar áður en
þeir myrtu lögregluþjón. Samt sem áður varð hann að
viðurkenna að Teasle var slyngari lögreglum^ður en
svo, að hann léti skjóta hann fyrst, án þess að gefa hon-
um tækifæri til uppgjafar. Hugmyndin um að skjóta á
líklega felustaði og hátalaratilkynningarnar voru frekar
ætlaðar til að hræða hann til uppgjafar en þeir vildu
skjóta hann. Samt sem áður voru líkurnar á því að hann
yrði fyrir skoti svo miklar, að líklega skipti engu máli
hvort skotin voru ætluð til að hræða hann eða ekki.
Ca-rack. Aftur var skotið á runnaþykkni við trjájaðar-
inn. Þyrlan f laug nú yf ir graslendið. Innan skamms yrði
hún beint fyrir of an hann. Lögreglumaðurinn myndi
áreiðanlega skjóta. Rambo miðaði riff linum milli grein-
anna. Hann einbeitti sér að andliti skotmannsins, og
þyrlan f laug nær. Rambo var ákveðinn í að skjóta hann
til helvítis, ef hann kíkti í miðunarsjónaukann. Hann
vild\ekki myrða fleiri, en hann átti ekki annarra kosta
völ. Hitt var þó verra, að ef hann skyti manninn myndi
þyrluflugmaðurinn kasta sér á gólfið í f lugstjórnarklef-
anum. Pá yrði ekki hægt að miða á hann og f lugmaður-
inn myrtdi fljúga snarlega á braut og kalla á hjálp. Þá
myndu a\lir vita hvar hann væri. Þó gæti hann kannski
stöðvað rlugmanninn með því að sprengja eldsneytis-
geymi þynunnar. En hann vissi að það var heimska, að
láta sér de\ta slíkt í hug. Rambo var viss um að geta
skotið þá. Ep að sprengja þá í loft upp. Það var ekki á
Fimmtudagur
29. mai
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrlður Eyþórsdóttir
les „Kára litla I sveit” eftir
Stefán Júliusson (9). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Við sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson
talar við Axel Schiöth skip-
st jóra um veru hans á þýzk-
um skuttogurum. (Aður út-
varpað í nóv. s.l.). Poppkl.
11.00: GIsli Loftsson kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: ,,Á viga-
slóð” eftir James Hilton.
Axel Thorsteinsson les þýð-
ingu sina (8).
15.00 Miðdegistónleikar. John
Fletcher og Sinfóniuhijóm-
sveit Lundúna leika Konsert
I f-moll fyrir bassatúbu og
hljómsveit eftir Vaughan
Williams, André Previn
stjórnar / Nicolai Gedda
syngur lög úr óperum eftir
Adam, Bizet, Lortzing, Off-
enbach o.fl. Hljómsveit
. Tónlistarskólans i Paris
leikur „Elddansinn” eftir
de Falla'og „Fantasiu-
dansa” eftir Turina, Rafael
Frubeck de Burgos stjórn-
ar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Anna
Brynjúlfsdóttir stjórnar.
17.00 Tónleikar.
17.30 „Bréfið frá Peking” eftir
Pearl S. Buck. Málmfriður
Sigurðardóttir les þýðingu
sína (3).
18.00 Siðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt mál. Bjarni Ein-
arsson flytur þáttinn.
19.40 Samleikur i útvarpssal.
Guðný Guðmundsdóttir,
Guillermo Figueroa og
William Grubb leika Seren-
ötu op. 10 eftir Dohnányi.
20.05 Leikrit: Þættir úr.
„Paradisarheimt” eftir
Halldór Laxness. Áður út-
varpað 1963. Lárus Pálsson
bjó til flutnings og er leik-
stjóri. Leikendur: Helga
Valtýsdóttir, Rúrik Har-
aldsson, Haraldur Björns-
son, Valur Gislason og Lár-
us Pálsson.
21.05 Krosskórinn i Dresden
syngur þýzk þjóðlög. Rudolf
Mauersberger stjórnar.
21.45 „Móðir og barn”. Gunn-
ar Dal skáld les úr þýðingu
sinni á ljóðabók eftir Rabin-
dranath Tagore.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Tyrkjarániö” eftir Jón
Helgason. Höfundur les
(20).
22.35 Ungir pianósnillingar.
Fjórði þáttur: Murray
Perahia. Halldór Haralds-
son kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Tíminn
er
peningar
Auglýsi(f
iHmanum