Tíminn - 31.05.1975, Blaðsíða 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR 6UNNARSS0N
'SKULAÍUNI ó SIMI al.V111 íí-ttic'
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Landvélarhf
MÁLINU
„HALDID
RÓLEGU"
Gsal-Reykjavík — A fundi leið-
toga Atiantshafsbandalagsins i
Brussel siðustu tvo daga hafa
Geir Haligrimsson forsætisráð-
herra og Einar Agústsson utan-
rikisráðherra átt viðræður viö
fjölda ieiðtoga NATO-rikja, og
hafa einkaviðræður þeirra eink-
um snúizt um landhelgismálin,
þar sem þeir skýrðu m.a. frá
þeirri ákvörðun tslendinga að
færa landhelgina út I 200 milur á
þessu ári.
I fyrradag áttu forsætisráð-
herra og utanrikisráðherra
viðræður við James Callaghan,
utanrikisráðherra Bretlands, og i
gær ræddu þeir við Helmut Sch-
midt, kanslara V-Þýzkalands, og
Genscher, utanrikisráðherra V-
Þýzkakands. Skömmu áður en
leiðtogafundinum lauk i gær, áttu
islenzku fulltrúarnir á fundinum
viöræður við Ford Bandarikjafor-
seta og Kissinger utanrikisráð-
herra. Auk þessa áttu þeir sam-
eiginlega og hvor i sinu lagi við-
ræður við fulltrúa Norðmanna,
BRETAR OG ÞJODVERJAR
ÓSKUÐU EFTIR FREKARI
VIDRÆDUM VID OKKUR
UM LANDHELGISMÁLID
Dana og Kanadamanna, auk ann-
arra fulltrúa á fundinum.
Timinn hafði i gær tal af Einari
Ágústssyni utanrikisráðherra og
Geir Hallgrfmssyni forsætisráð-
herra, skömmu eftir að leiðtoga-
fundinum lauk i Brussel i gærdag.
— Það kom þeim ekki á óvart,
að við hugðumst stækka land-
helgina út i 200 milur á þessu ári,
sagði Einar Ágústsson um við-
brögð áðurnefndra þjóðarleið-
toga. — Hins vegar tjáðu þeir sig
litið um málið, en við töldum rétt
að nota þetta tækifæri til að
greina þessum mönnum frá fyrir-
ætlunum okkar hvað landhelgis-
málin áhrærir. James Callaghan,
brezki utanrikisráðherrann, og
Helmut Schmidt kanslari óskuðu
báðir eftir frekari viðræðum milli
rikisstjórna landanna siðar,
varðandi útfærsluna.
— Við greindum þeim aðeins
frá ákvörðun okkar varðandi út-
færsluna, og hvernig við myndum
standa að henni. önnur atriði
komu ekki inn i þær umræður
sagði Geir Hallgrimsson forsætis-
ráðherra. — Út af fyrir sig var
máli okkar tekið með skilningi.
án þess að menn gæfu skuldbind-
andi yfirlýsingar i þeim efnum.
Geir Hallgrímsson kvað við-
ræður þeirra við Bandarikjafor-
seta og utanrikisráðherra Banda-
rikjanna hafa snúizt um fiskveiði-
málið, svo og varnarmálin, bæði
vamarsamstarfið milli landanna
og innan Atlantshafsbandalags-
ins.
— í viðræðum okkar við
Bandarikjamenn um fiskveiði-
málið, svo og varnarmálin, bæði
vamarsamstarfið milli landanna
og innan Atlantshafsbandalags-
ins.
— 1 viöræðum okkar við
Bandarikjamenn um fiskveiði-
málin kom fram, að þeir leggja
rika áherzlu á, að hafréttarráð-
stefnunni verði lokið sem allra
fyrst. 1 viðræðum okkar um varn-
armálin kom fram, að engin sér-
stök vandamál eru milli þjóðanna
hvað varnarsamstarfið áhrærir.
— 1 þvi sambandi væri unnið
samkvæmt þvi sem ráð væri fyrir
gert i varnarsamningnum frá s.l.
hausti.
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra er væntanlegur heim i dag,
en Geir Hallgrimsson forsætis-
ráðherra er væntanlegur heim i
nótt. \
—fj—Reykjavik. „Það má segja það, að það er fullur vilji fyrir
hendi til að ræða málið,” sagði Gunnar Thoroddsen, félagsmála-
ráðherra, i viðtali við Tlmann I gærkvöldi, þegar blaðið spurðist
fyrir um viðbrögð rikisstjórnarinnar við þvi að starfsmenn rikis-
verksmiðjanna tóku ekki til starfa I gær þrátt fyrir bráðabirgða-
lög rikisstjórnainnar I fyrradag.” Ég vona i lengstu lög að menn
hlýði lögunum og hefji vinnu á nýjan leik,” sagði ráðherrann. í
sama streng tók Halldór E. Sigurðsson, ráðherra, i viðtali við
Tímann. „Ég trúi þvi ekki að menn átti sig ekki á hlutunum og
sjái að það er ráðlegast fyrir þá að halda lögin,” sagði ráðherr-
ann. Hvorugur vildi tjá sig ákveðið um viðbrögö rikisstjórnar-
innar, en i gærkvöldi var helzt á mönnum að heyra, að málinu
„yrði haldið rólegu” um helgina meðan kannað er, hvort ein-
hverjar viðræður geta átt sér stað.
Viðskipta- [)®
róðherra um
ræðu sína
í Genf:
Tilgangurinn
var að vekja
athygli ó vanda-
mólinu en ekki
setja fram
hótanir um að
rjúfa samstarfið
GULLBRÚÐKAUP HERMANNS
JÓNASSONAR OG VIGDÍSAR
STEINGRÍMS-
DÓTTUR
I gær, 30. mai áttu gullbrúð-
kaup þau hjón, sem á þriðja
tug ára skipuðu lengst það
sæti hérlendis, er virðulegast
var og mestu þykir varða,
hvemig skipað er — Vigdis
Steingrimsdóttir og Hermann
Jónasson, fyrrverandi for-
sætisráðherra.
Hermann var forsætisráð-
herra þeirrar stjórnar, sem
fékk það hlutverk árið 1934 að
takast á við geigvænlegar af-
leiöingar kreppunnar og sneri
vörn i sókn, og hann var enn
forsætisráðherra, er þjóðin
varöað bregðast við margvis-
legum vandkvæðum, sem
fylgdu heimsstyrjöldinni og
hernáminu árið 1940. Meðal
pólitiskra afreksverka Her-
manns verður þess jafnan get-
ið, að hann kom á afurðasölu-
lögunum, sem staðizt hafa
timans tönn fram á þennan
dag, og visaði á bug kröfu
nasistastjórnarinnar þýzku
Vigdis Steingrlmsdóttir og Her-
mann Jónasson I lýðveldisveizl-
unni að Hótel Borg árið 1944.
um aðstöðu hér á landi, nokkr-
um misserum áður en heims-
styrjöldin hófst. Þótt ekki
kæmi, annað til en þetta
tvennt, má hann heita bjarg-
vættur þjóðarinnar.
Þótt hljóðara hafi verið um
konu hans, Vigdisi Stein-
grimsdóttur, hefur hún ekki
siður gegnt hlutverki sinu af
röggsemd og þreki, jafnt á
þeim árum, er mestur styr
stóð um mann hennar á
stjórnmálasviðinu og á henni
hvildi sú skylda að koma fram
við hlið' hans utan lands og
innan* sem og siðar.
Timinn sendir þeim hjónum
alúðarkveðjur, og mun fjöldi
fólks I landinu taka þar undir.
.......iiiii....
I LEIÐTOGA-
1 FUNDURINN
I TALINN HAFA
I HEPPNAZT
I AAJÖG VEL
I ------------------------------>Q
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Myndin hér fyrir ofan
sýnir skólapilta taka
áburð aftur af bíl við
Aburðarverksmiðjuna
I gærmorgun.
Timamynd G.E.