Tíminn - 05.06.1975, Side 8

Tíminn - 05.06.1975, Side 8
8 TÍMINN Fimmtudagur S. júni 1975 A s.l. sumri náöist það lang- þráöa mark aö opna Djúpveginn, þannig að nú er hægt að aka leið- ina Reykjavik — Isafjörður með þvi að fara aðeins einn fjallveg i stað sjö áður. Að sjálfsögðu gripu þeir, sem leið þessa þurftu að fara, þetta fegins hendi, og þá sér I lagi þeir, sem stunda akstur á vöruflutningabifreiðum, og hef ég heyrt sagt, að þeir séu allir sammála um, að við sæmilegar aðstæður taki feröin fram og til baka 6—8 klst. skemmri tima, þegar þessi leið er farin, i stað þess að fara gömlu leiðina vestur Barðastrandarsýslu og þaðan vestur firði, enda leiðin bæði styttri og fljótfarnari, þar sem með þessu móti er fjallvegum sleppt að mestu. Einnig er haft eftir ökumönnum þessum, að spamaður á oliu sé mikill, og kemur það sér vel, þegar litið er á ört hækkandi rekstrarkostnaö, og þá sér I lagi oliuverð. Þegar byrjað var á I alvöru að leggja þennan si'ðasta kafla Djúp- vegarins, þ.e. frá Skarði I Skötu- firöi aö Eyri i Seyðisfirði, þá töldu margir að hér væri verið að fara út I mjög dýra og jafnvel óþarfa framkvæmd, og á þaö bent, að mjög erfitt væri aö leggja veg þarna. Raunin varð þó önnur, þvi bæöi gekk þetta fljótar en menn, sem bjartsýnastir voru gerðu sér vonir um og svo einnig það, sem sennilega mun einsdæmi i sög- unni, að kostnaður við vegalagn- ingu þessa var nokkrum tugum milljóna minni en áætlað var. Þetta gerði það svo mögulegt, að hægt var að taka fé af ætluðu framlagi til Djúpvegar i vegi utan Eyrar I Seyðisfirði, og á ég þá m.a. við veg i gegn um Súðavik og veg I Skutulsfirði. 1 þessu sambandi ber þvi að þakka þeim vegagerðarmönnum , er að þessu unnu, og þá sérstak- lega stjórnanda þeirra. Greini- legt er, að hér hefur verið vel stjórnað. Ég vil og þakka þeim þingmönnum, sem að þvi stuðl- uðu, að hægt var að ná þessu marki. Strax og Djúpvegurinn komst i gagnið, fóru að koma fram um- ræður um það, hvaða leið bæri að velja suður úr Djúpinu, og tengja þannig tsafjarðardjúp aðalak- vegakerfi landsins, en um það virðast nú eitthvað skiptar skoð- anir. Ég get þvi ekki á mér setið að leggja hér orð i belg, þar sem ég tel mig talsvert kunnugan á þessum slóðum, en hér koma til tals þrjár leiðir, það er Þorska- fjarðarheiði, sem nú er farin, sið- an Kollafjarðarheiði og Stein- grimsfjarðarheiði. Kollafjarðarheiði er á milli Isafjarðar, þ.e. innsta fjarðar ísafjarðardjúps, og Kollafjarðar við Breiðafjörð. Yfir heiðina er nú vegarslóði, sem er fær jeppum og svipuðum farartækjum, og þá við .sæmilegar aðstæður. Frá Djúpi liggur vegur þessi eftir Lauga- bólsdal, sem er lágur og kjarri og grasi vaxinn. Þegar komið er fram I botn dalsins, liggur vegar- slóðinn upp mjög brattan ás, sem heitir Kambur og er á milli tveggja dala, sem ganga úr Laugabólsdal inn i Kollafjarðar- heiðina, — dalir þessir heita Húsadalur og Geitadalur. Kamburinn er mjög brattur, og til marks um það vil ég benda á, að á u.þ.b. km. kafla þarna upp ásinn hækkar landið úr u.þ.b. 60 m yfir sjó I u.þ.b. 350 m yfir sjó. Siðan fer landið þarna smá hækkandi og kemst upp I 500 m yfir sjó, þar sem vegurinn liggur nú. Siðan fer að halla niður i Fjarðarhornsdal, en það er dalur, sem gengur inn úr botni Kollafjarðar. Botn Fjarðarhornsdals er mjög brattur, og liggur vegarslóðinn þarna niður i brattri og klettóttri hlið. Möguleiki mun vera á þvi að færa vegarstæðið þarna til, til að reyna að draga eitthvað úr bratt- anum. Yrði þá farið fram hlið Húsadals, og þyrfti að grafa veg- inn þarna inn i' hliðina og sneiða hann með jöfnum halla upp á heiðina sjálfa. Hins vegar mun erfitt, og sennilega útilokað, að fá annan stað en þann, þar sem veg- urinn liggur nú niöur I Fjarðar- hornsdal, þvi að bæði sunnan og norðan við dalinn er greinilega mun verra vegarstæði. Með þessu móti yrði vegurinn bæði i Húsadal og Fjarðarhornsdal skorinn I hlið, og þvi meirihluti vegarins yfir Kollafjaröarheiði þannig stað- settur. Af þannig vegum höfum við Vestfiröingar nóg og þekkjum, að þannig gerðir vegir verða fljótt ófærir vegna snjóa og svella á vetrum og vatnselgs vor og haust. Vil ég I þessu sambandi benda á ummæli Friðberts Péturssonar, bónda i Botni I Súgandafirði, sem birtust I Timanum 12. marz s.l., en þar segir: ,,A Vestfjörðum er viða þannig, að vegir eru skornir I hallann á fjöllunum, og þetta er einmitt það fyrsta, sem fer I kaf.” Ég vil og benda á, að erfitt mun að fá efni i veg á þessari leið a.m.k. burðarlag, og þyrfti þvi að sækja það niður i dalina, og myndi slikt hafa I för með sér mikinn kostnaðarauka. Hinn eiginlegi Djúpvegur, i skilningi vegalaga, var úr botni Þorskafjarðar að Eyri i Seyðis- firði. Frá Djúpi liggur vegurinn um Langadal, sem er sléttur og oftast snjóléttur. Dalur þessi er nokkuð langur og skerst þarna suður I fjöllin. Skammt frá botni hans er farið upp á Þorska- fjarðarheiði, upp svokallaðar Heiöarbrekkur, þar er vegurinn skorinn inn i hliðina á u.þ.b. 2 km. kafla, áður en komið er upp á Þorskafjarðarheiðina, en eins og þeirvita,sem hana hafa farið, er hún frekar flöt, og liggur vegur- inn viðast eftir sléttum melholt- um. Þarna er hið ákjósanlegasta vegarstæði, og væri auðvelt að hlaða þarna upp veg i þá hæð, sem nú er venjuleg, með þeim tækjum, sem vegagerðin hefur yfir að ráða. Eitthvað þyrfti að færa veginn þarna til frá þvi sem hann er nú og velja sér snjóléttari leið, en mestur hluti vegarins yfir heiöina, sem lagður var þarna fyrir u.þ.b. 30 árum, var lagður með handverkfærum, og þá að sjálfsögðu valið það land, sem auðveldast var að ry ðja með haka og skóflu. Ég hef verið á ferð yfir Þorska- fjarðarheiði ba'ði haust og vor. þ.e. þegar snjóa er að leysa og i fyrstu snjóum, en þá sést einmitt bezt, hvar heppilegast er að hafa veg til að forðast snjóa. Á Þorska- fjarðarheiði er auðvelt að leggja veg þar sem ekki kemur mikill snjór, enda skefur þarna vel af. Mér hefur virzt, að viðast verði snjór ekki yfir þetta 1 til 1,5 m þykkur, og miða ég þá við þær stikur, sem um alllangt skeið hafa verið meðfram veginum. Að sjálfsögðu eru þarna dældir, sem hægt væri að fylla upp, eða þá að færa veginn þar til. Ekki væri og heldur hætta á að þarna skorti efni til vegagerðar, — af þvi er þarna nægjanlegt, bæði i burðar- lag og slitlag. Ég held ég megi fullyrða, að þarna þyrfti hvergi að sprengja fyrir vegi, þvi jarð- ýta myndi vinna þarna á landinu. Frá Kirkjubóli I Langadal i botn Þorskafjarðar eru um 350 km, og þar af er heiðin sjálf milli brúna um 20 km. Þannig að ef vegur væri þarna sæmilegur, tæki um 15 mlnútur að aka þessa leið, og þá miðað við löglegan öku- hraða. Þorskafjarðarheiði er þvi engan veginn lengri en aðrir f jall- vegir á Islandi. Auk þess er hún fljót ekin sökum þess, hversu flöt hún er. Það er ekki að marka, þótt mönnum hafi þótt heiðin löng, enda vegurinn yfir hana á köflum afar leiðinlegur og léleg- ur. Ég vil og benda á að landpost- arnir völdu ávallt Þorskafjarðar- heiði, eöa a.m.k. flestir, þegar þeir þyrftu að fara fjöll þessi i snjóum og misjöfnu veðri. Að sjálfsögðu hafa þeir valið auð- veldustu leiðina. Ég er þvi þeirrar skoðunar að velja beri Þorskafjarðarheiði sem aðalleið úr Djúpi og að. Steingrimsfjarðarheiði er á milli Staðardals I Steingrimsfiröi og Langadals og eöa Lágadals við Djúp. Heiði þessi er með svipuöu landslagi og Þorskafjarðarheiði, enda liggja heiðarnar saman, en vegir skiptast, þegar komið er upp á fjallið. Steingrímsfjaröar- heiöi milli brúna er milli 7 og 8 km, og er hægt að komast þessa leiö á jeppum, með þvi aö fara af veginum á Þorskaf jarðarheiði við sæmileg skilyrði, og hefur verið varið smávegis fé úr fjallvega- sjóði til lagfæringar á þessum vegi. Ég vil og benda á, aö fyrsta vélknúna farartækinu, sem ekið var þarna yfir fjöllin, var ekið yf- ir Steingrimsfjarðarheiði. Mun þaö hafa verið árið 1936, eöa eitt- hvað nálægt þvi, og þá áður en nokkur vegur var lagður á þess- um slóðum. Voru þar á ferð nokkrir ungir og hraustir ísfirð- ingar á gamla Ford. Gefur þetta nokkra hugmynd um það, hversu auövelt er að fara þessa leið. Hinsvegar lengir þetta nokkuö leiðina frá Reykjavik til ísafjarð- ar, og að auki þarf þá að fara Holtavörðuheiði, sem þarf ekki að vera skárri fjallvegur en Þorska- fjarðarheiði. Aðalkostir þess að fara þorska- fjarðarheiði eru i stuttumáliþess- ir: 1. Leiðin Isafjörður — Reykjavik um Þorskafjarðarheiði er 512 km, sem auðveldlega má stytta með þvi að fara yfir lágan háls frá Laugabóli og yfir i Langadal, og yrði þá vegalengdin ekki nema um 490 km. Leiðin Isafjörður — Reykjavik um Kollafjarðarheiði, Ódrjúgs- háls og Hjallaháls er 536. km. Ég sé ekki ástæðu til að taka þaö meö i reikinginn, að i náinni framtlðverði farið að byggja brú úr Skálanesi i Reykjanesi, þ.e. fyrir Gufufjörð, Djúpafjörð og Þorskafjörð, eða úr Skálanesi i Hallsteinsnes fyrir Gufufjörð og Djúpafjörð og siðan inn með Þorskafirði, og lit ég þá á, hversu seint gengur með vegalagnir á Vestfjörðum yfirleitt. En ef farið yrði á brú úr Skálanesi i Reykja- nes, þá yrði vegalengdin 520 km ef farið væri um Reykhóla, cn 513 km, ef farið væri inn með Þorska firöi að sunnan. Ef farið yröi á brú úr Skálanesi i Hallsteinsnes og inn með Þorskafirði, þá yrði vegalengdin 523 km. Þannig að kostnaður við framkvæmdir þessar yrði eflaust mikill, en vegarstytting óveruleg. Á þessu stigi verðum við þvi að halda okk- ur viö, að farið yrði Hálsa, eins og vegurinn er nú. Fyrir ibúa norðan Djúps kemur þetta miklu verr út, þvi ef við tök- um dæmið frá Kirkjubóli I Langa- dal I Króksfjarðarnes, þá er vegalengdin 60 km. um Þorska- fjarðarheiði en 123 km um Kolla- fjarðarheiði og Hálsa. Hér er þvi 63km munur, eða 126 km fram og til baka. Það yrði þvi til storkostlegs óhagræðis og um afturför að ræða I samgöngumálum fyrir ibúa norðan Djúps, ef Kollafjarðar- heiði yrði valin, og má byggðin þarna vart við slikri röskun. Leiðin lsafjörður- Reykjavik um Steingrímsfjarðarheiði er 559 km. sem má stytta um tæpa 20 km, eins og að framan greinir. 2. Mjög auðvelt er að leggja veg yfir Þorskafjarðarheiði sökum þess, að þar er nægjanlegt efni I veg, og svo það, að vegurinn ligg- ur yfir slétta heiði. Vegur yfir Kollafjarðarheiði yrði skorinn inh I hliö mikinn hluta leiðarinnar, efni I veginn yrði að flytja langt að, og sennilega þyrfti að sprengja þar fyrir vegi á köflum. Einnig þyrfti að brúa þarna ein- hverjar ár, en það yrðu þó senni- lega stuttar brýr. Suma kafla af vegi þeim, sem nú liggur yfir Þorskafjarðarheiði, mætti notast við i bráð og lagfæra þá siðar. Aðra kafla þyrfti að laga smávegis. Aöstaöa við vegarlagningu á Steingrlmsfjarðarheiði sýnist mér að yrði svipuð og á Þorska- fjarðarheiði. 3. Með þvi að velja Þorska- fjarðarheiði yrði hluti af þeim vegi sameiginlegur fyrir veg yfir Steingrimsfjarðarheiði, og þá mjög stutt af aöalveginum á Þorskafjarðarheiði niður I Staðardal i Steingrimsfirði. Hef ég heyrt, aö um þetta atriði hafi verið hugsað, þegár núverandi vegur á Þorskafjarðarheiði var lagður. Með þessu móti myndi Strandasýsla tengjast mun betur Isafjarðardjúpi, og þá um leið höfuðstað Vestfjarða, Isafirði, og hlýtur slikt að vera æskilegt inn- an sama kjördæmisins. Mjög andstætt er fyrir ibúa Stranda- sýslu, ef þeir þurfa að fara til ísafjaröar eða öfugt, — þá verða þeir að fara Tröllatunguheiði, niður I Geiradal og fara siðan vestur Reykhólasveit yfir Hjalla- háls, Ódrjúgsháls og Kollafjarðar heiði. Vegur yfir Þorskafjarðar heiði skapar þvi mikla möguleika á að tengja á þennan hátt Strandasýslú og Isafjarðardjúp með vegi upp úr Staðardal á veg- inn á Þorskafjarðarheiði. Hér er um að ræða byggðir innan sama kjördæmisins og æskilegt að þessar byggðir hafi meira sam- band sin á milli en verið hefur, bæði menningarlega, félagslega og atvinnulega. Mundi slikt skapa nokkra festu I byggð þarna-Aður fyrr var mikill samgangur á milli þessara byggðarlaga, sem stafaði áf þvi, áð þá voru notuð önnur samgöngutæki en nú. Ég vil benda á, aö nú fyrir skemmstu kom Pálmi bóndi á Klúku I Bjarnarfirði akandi á sinum Bronco þarna yfir fjöllin, úr Staðardal yfir Steingrimsfjarðar- heiði i Djúp. Hann ók að visu á haröfenni, en þetta sýnir þó hversu slétt er þarna uppi á fjöllunum. 4. Auðveldast verður að gera veg yfir Þorskafjarðarheiði, ef miðað er við að fá hann snjólaus- an eöa snjóléttan. í þvi' sambandi vil ég benda á, að sjálfar vest- firzku heiðarnar eru snjóléttar eða jafnvel snjólausar, sökum þess að snjó skefur af þeim. Hins vegar eru það skerðingarnar i fjallshliðarnar, sem fvllast af snjó. Vil ég I þvi sambandi benda á heiðarnar á vesturfjörðunum. Þar eru dalirnir beggja vegna og sneiðingar i fjallshlíðunum, sem eru fullar af snjó. Hrafnseyrar heiði er stutt sjálf og snjólaus, en vegurinn um hana milli byggða er einn snjóþyngsti vegur landsins. Kollafjarðarheiði er mjög svipuð henni, hún er stutt sjálf, en snjó- þungir dalir að henni beggja vegna. 5. Ekkert vafamál er, að skemmstan tima mun taka að leggja þokkalegan veg yfir Þorskafjarðarheiði, og einnig þaö, aö hver spotti, sem þar yrði lagöur, kæmist strax I gagnið, vegna þess vegar, sem fyrir er. Fullgera mætti þar veg milli byggða á tveimur árum. En vegalengdin öll Langidalur — Þorskafjarðarbotn er um 27 km, og þar af upp á heiði 20 km, eins og aö framan greinir. Sennilegt má þó telja, að svipaðan tima tæki að leggja veg yfir Stein- grimsfjarðarheiði. En vega- lengdin Langidalur—Kleppistaðir i Staðardal er 17 til 18 km, en þaöan að Hólmavik eru 18 til 20 km. Um Kollafjarðarheiði er það að segja, að þar er aðeins jeppaslóð, um það bil 26 km milli vegarins viö Laugaból I Isafirði á veginn I Kollafiröi við Breiðafjörð. Miðað viö frekar erfiða og dýra vega- lagningu og eftir a.tvikum brúar- gerð, þá tæki það vart skemmri tima en þrjú ár að leggja þann veg, sem að sjálfsögðu yrði ekk- ert notaður fyrr en honum væri lokið. Auk þess þyrfti að laga verulega veginn úr Kollafirði yfir Hálsa I Þorskafjörð, þannig að það myndi sennilega taka um fjögur ár, eða alla leiðina um sjö ár. Samantekið yrði þvl niður- staðan sú, að vegur frá Laugabóli við Isafjafðardjúp um Kolla- fjarðarheiði i Þorskafjarðarbotn er um 78 km. Vegalagning og endurbætur tækju sjö ár, þar af fyrstu 3 árin ónothæfur vegur. Vegur Langidalur—Þorska- fjaröarbotn 27 km. Fram- kvæmdatlmi 2 ár. Nota mætti strax kafla, sem lagðir yrðu. Vegur Langidalur—Hólmavik um 36 km. Framkvæmdartimi tvö til 3 ár. Þó ég taki hér eindregna af- stöðu með Þorskafjarðarheiði, þá er ég mjög fylgjandi þvi, að vegur yfir Kollafjarðarheiði yrði lagað- ur, og að þar væri þokkalegur sumarvegur fyrir flesta bila, og sama er að segja um Steingrims- fjarðarheiði, eins og ég hef getið hér að framan. Mér sýnist þvi, að hvernig sem á mál þetta er litið, þá beri að velja Þorskafjarðarheiði sem aðalleið úr Djúpi og að. Er þvi nauðsynlegt að hefja þar þegar framkvæmdir á komandi sumri, þvi það er algerlega óverjandi, hversu lengi heilt byggðarlag er búið að vera sambandslaust við aöalakvegakerfi landsins, og á ég þá við tsafjarðardjúp. Hér er þvi ekki verið að fara fram á nokkurn forgang fram ; fir aðra lands- hluta, heldur aðt 'ns farið fram á að standa þeim ^afnfætis. Þrátt fyrir mi nn snjóavetur hefur verið hægt að komast frá tsafirði inn i Dí jp flesta mánuði vetrarins, Lannig að ef upphlaöinn v ir hefði verið yfir Þorskafjarfar ;ði, hefði senni- lega verið hægi ð komast þá leið til Reykjavikur, >a engu siöur en Reykjavlk— Akui yri. Þdð er þvi von a Ira, sem áhuga ',g hagsmuna hafa >ð gæta i sam- bandi við mál þessi, að þingmenn Vestfjarða fái stuðn ng þings og fjárveitingavalds t.'l að hægt verði að ljúka þessum siðasta áfanga Djúpvegar. Reykjavik, 2. mai 1975. Jóhann Þórða. son frá Laugalandi. Útboð Húsfélagið að Lönguhlið 19-25 oskar hér með eftir tilboðum i að fullgera bilastæði undir malbik. Tilboðsgagna má vitja á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, s.f, Ármúla 4, Reykjavik, gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á sama stað eigi siðar en þriðjudaginn 10. júni 1975 kl. 11 f.h. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499 f........... .......................... ..............^ Jóhann Þórðarson: Við veljum Þorskaf jarðarheiði

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.