Tíminn - 05.06.1975, Blaðsíða 16
fyrirgóöan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Ósamlyndið i stjórn Wilsons i hnotskurn: Þaö er von, aö hvorki gangi né reki. (A myndinni sjást m.a. Wilson, Callaghan, Castle, Healey og Jen-
kins (já) og Foot, Benn og Shore (nei).
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Bretlandi um aðild að EBE í dag:
Straumurinn liggur til okkar
— fullyrða andstæðingar aðildar
NTB/Reuter-London. Bretar
ganga að kjörborðinu I dag og
greiöa atkvæöi um, hvort þeir eigi
að vera áfram aðilar aö Efna-
hagsbandaiagi Evrópu. Baráttan
fyrir þessa afdrifariku þjóöarat-
kvæöagreiösiu náði hámarki i
gær.
Talsmaður andstæðinga
áframhaldandi aðildar að EBE
lét svo um mælt i gær, að
straumurinn lægi nú til and-
stæðinga aðildar frá fylgismönn-
um hennar. Hann kvað nýjustu
skoðanakannanir, er gerðar
hefðu verið á vegum andstæðing-
anna, sýna, að æ fleiri hefðu sið-
ustu daga snúizt gegn aðild að
EBE.
Það, sem einkum hefur komið
róti á hugi brezkra kjósenda að
undanförnu — þá einkum þeirra
borgaralegu — er sú staðreynd,
að álitlegur hópur ihaldsmanna
hefur tekið eindregna andstöðu
gegn áframhaldandi aðild.
Fremstir i þeim flokki eru Ed-
ward du Cann, leiðtogi íhalds-
flokksins i Neðri málstofunni, og
Enoch Powell, sem þekktur er
fyrir ofstæki á hægri væng stjórn-
mála. Sagt er, að þessir tveir
menn hafi snúið fjölda kjósenda,
er áður litu á andstæðinga aðildar
að EBE sem fámennan hóp
vinstrisinna.
Roy Jenkins innanrikisráð-
herra, sem styður eindregið
áframhaldandi aðild að EBE,
sagði i gær, að andstæðingarnir
hefðu gefið upp alla von um að
sigra i þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Þess i stað reyndu þeir nú með
öllum ráðum að gera muninn sem
minnstan, til að geta haldið
áfram baráttu sinni gegn aðild að
EBE.
Enn barizt
í Beirut
STB/Reuter-Beirut. Kashid
Karanii ræddi I gær viö Sulei-
man Farnjieh Libanonforseta
i finfm og hálfa klukkustund,
til að reyna að finna leiö tii
myndunar nýrrar stjórnar i
landinu. Aö viöræöunum iokn-
um lét Karami svo um ma it,
aö hann væri nú nær þvi en áö-
ur aö koma saman starfhæfri
stjórn.
A meðan héldu bardagar
áfram milli Falangista og
Palestinuskæruliða í úthverf-
um Beirut. Óeirðirnar hafa nú
staðið I 16 daga og kostað
a.m.k. llOmanns lifið -óst tð-
festar fréttir herma þó, aö > fir
400 hafi beðið bana.
Karami sagði I gær, að ráð-
stafanir hefðu verið gerðar til
að koma á friði I landinu. 1
gærmorgun reyndu öryggis-
sveitir að skakka leikinn, en
án verulegs árangurs.
Og óneitanlega hefur Jenkins
mikið til slns máls: Leiðtogar
allra stærstu flokkanna — þau
Harold Wilson forsætisráðherra,
Margaret Thatcher og Jeremy
Thorpe — hafa allir hvatt Breta
til að halda áfram þátttöku I
starfi EBE. Og skoðanakannanir,
er gerðar hafa verið á vegum
hlutlausra aðila, benda allar til
þess, að yfirgnæfandi meirihluti
brezkra kjósenda gjaldi áfram-
haldandi aðild að EBE jáyrði.
Sá hópur, sem er andvigur aðild
að EBE, er engu að siður stór.
Auk þó nokkurra íhaldsmanna er
meirihluti Verkamannaflokksins
á móti áframhaldandi aðild að
EBE. Og I fylkingarbrjósti eru
þrír ráðherrar I stjórn Wilsons:
Tony Benn iðnaðarráðherra,
Michael Foot verkalýðsráðherra
og Peter Shore viðskiptaráð-
herra. Að baki þeim stendur fjöldi
aðstoðarráðherra, svo og meiri-
hluti þingmanna Verkamanna-
flokksins og meirihluti þeirra, er
gegna trúnaðarstöðum á vegum
flokksins.
Nú er að sjá, hvort sú fylgis-
aukning, er andstæðingar aðildar
að EBE spá, kemur fram I
þjóðaratkvæðagreiðslunni I dag
— eða hvoft hún er aðeins til I
hugarheimi þeirra, t.d. til að
stappa stálinu I þá, sem berjast
gegn þvl að Bretar tengist EBE
um ófyrirsjáanlega framtlö.
Finnar kjósa
21. og 22.
september
NTB-Helsinki. Nýjar þing-
kosningar fara fram i Finn-
landi dagana 21. og 22.
september n.k. Urho Kekkon-
en forseti boöaöi til kosning-
anna I gær, um leiö og hann
féllst á lausnarbeiöni Kalevi
Sorsa forsætisráöherra.
Kekkonen fól stjórn Sorsa að
sitja áfram, unz ný stjórn yrði
skipuð. Þingið situr áfram, en
þess er vænzt, að það verði
rofið fyrir aðra helgi. Hið ný-
kjörna þing kemur svo saman
1. október n.k.
Kekkonen sagði I gær, að
hann hefði óskað þess, að
stjórnin sæti út yfirstandandi
kjörtlmabil, en umboð þing-
manna fellur niður eftir tæpt
ár. Hann bætti við, að sllkt
hefði þó verið ógerningur.
Eins og skýrt var frá I Tlman-
um I gær, hafa deilur tveggja
stærstu stjórnarflokkanna —
Jafnaðarflokksins og Mið-
flokksins — um byggðamál
verið helzta orsök stjórnarslit-
anna.
Slitnar upp úr friðar-
viðræðum um Kýpur?
Ford
þreyttur en
ánægður
— að lokinni
Evrópuför
NTB/Reuter-Washington.
Gerald Ford Bandarlkjafor-
seti sneri I gærmorgun heim
úr Evrópuför sinni. Forsetinn
var dauðþreyttur, en að sama
skapi ánægður með árangur
fararinnar, að sögn aðstoðar-
manna hans.
Fréttaskýrendur eru sam-
mála um, að Evrópuför for-
setans hafi tekizt I alla staði
vel,t.d. hafi Ford náð flestum
þeim markmiðum, er hann
stefndi að. 1 upphafi var til-
gangur hans með þessari för
einkum fjórþættur: 1 fyrsta
lagi ætlaði hann að koma á ný
af stað samningaumleitunum I
Miðjarðarhafslöndum. í öðru
lagi var hann staðráðinn I að
fullvissa evrópska leiðtoga um
áframhaldandi stuðning
Bandarlkjanna. 1 þriðja lagi
vildi hann stuðla að betra
samstarfi meðal vestrænna
rikja, m.a. með þvi að sætta
deiluaðila I Kýpurdeilunni. Og
loks var ætlun hans að stöðva
framgang kommúnista I
Portúgal.
Segja má, að Ford hafi yfir-
leitt haft árangur sem erfiði —
nema I þeirri viðleitni að sætta
aðila I Kýpurdeilunni. Þá
snerust aðrir leiðtogar At-
lantshafsbandalagsins önd-
verðir gegn þeirri hugmynd
forsetans að tengja Spán
NATO.
Sé öllu á botninn hvolft, er
óhætt að fullyrða, að banda-
rlskri utanrikisstefnu hefur
orðið álitsauki að Evrópuför
Fords forseta.
Fulltrúar beggja dei
Reuter-VIn/Ankara. Glafkos
Klerides, fulltrúi griskumæiandi
Kýpurbúa I friðarviöræöunum I
Vln, hótaöi i gær aö hætta viö
þátttöku i fyrirhuguðum samn-
ingafundi i dag. Astæðan er sú
fyrirætlun tyrkneskumælandi
eyjarskeggja að efna til þjóðarat-
kvæöagreiöslu um stjórnskipu-
lega framtiö hins nýja rikis sins á
Kýpur um næstu helgi, en sem
luaðila óónægðir
kunnugt er hefur stofnun þess
rikis ekki veriö viöurkennd.
Samningafundurinn I dag er
hugsaður sem framhald þess
fundar, er stóð I Vln dagana 28.
aprll til 3. mal s.l. Rauf Denktash,
leiðtogi tyrkneskum ælandi
Kýpurbúa, hefur lýst þvl yfir, að
fundurinn, er hefjast á I dag, sé
með öllu ónauðsynlegur og ótlma-
bær.
Denktash og Klerides á fyrsta viðræðufundinum I Vin. í miöju er
Waldheim, aöalritari S.Þ.
Straufría sængurfataefnið er nú
fyrirliggjandi í mörgum mynztrum
og litum. i
Einnig í saumuðum settum.
Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk,
sofið þægilega og lífgið upp á litina
í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband islenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
SambandshúsiÖ Rvik sími28200