Tíminn - 10.06.1975, Page 1

Tíminn - 10.06.1975, Page 1
TARPAULIN RISSKEMMUR HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKÚLATUNI 6 - SIMI (91)19460 FARSKIPIN VORU ÞEGAR FARIN AÐ HREYFAST ÚR HÖFN í GÆR. TÍMAAAYND GUNNAR SAMUÐARVERKFALLI VELSTJORA AFLYST, EN Skipafélögin vilja fá dómsúrskurð um lögmæti verkfallsins Félagsdómur kemur saman í dag ASÍ-deilan: Sáttatillögur í gærkvöldi? BH-Reykjavik. — Ég held það komi i ljós i kvöld eða annað kvöld, hvað þeir eru með i poka- horninu, sagði Björn Jónsson, forseti Alþýðusambandsins, við Timann i gærkvöldi um tiu-leytið, i þann mund, er fundir voru að hefjast hjá samninganefndunum. Annars er það eina, sem fram hefur komið frá atvinnurekend- um, siðan viðræður hófust, að ein- hver kauphækkun verði að koma, svo að von sé um samkomulag. En það er verið að tala um, að i kvöld komi 'eitthvað frá sátta- nefnd. 1 sama streng um tillögur frá sáttanefnd tók ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandins, en hann kvað vinnuveitendur ekki hafa verið jafn þvera og Björn vildi vera láta. Vinnuveitendur hefðu alltaf viljað ræða um verðtryggingu Iauna með ákveðnum skilyrðum, og batnandi viðskiptakjör hefðu áhrif til launahækkana. 1 gær geröist það, aö Starfs- stúlknaféiagið Sókn ákvað aö fresta boðuðu verkfalli um viku, og er við ræddum við forvigis- menn verkalýðshreyfingarinnar á sáttafundinum i gærkvöldi, kváðust þeir telja þá ráðstöfun eðlilega, þar sem starfsvettvang- ur Sóknar væri á sjúkrahúsum, elliheimilum og barnaheimilum, Oó-Reykjavík. Vélstjórafélag Is- lands aflýsti I gær samúðarverk- falli á kaupskipum vegna verk- falls vélstjóra á stóru skuttogur- unum. Var aflýsing verkfallsins tilkynnt, skömmu áður en-félags- dómur átti að kveða upp úrskurð um, hvort samúðarverkfallið væri löglegt eða ekki. óskuðu aðilar eftir frestun á dómsúr- VERKSVIPTING A FUNDI Vinnuveitendasam- bands íslands, sem haldinn var I gær, var samþykkt svohljóðandi tillaga: „Sambandsfundur Vinnuveit- endasambands Isiands, haldinn 9. júnl 1975, samþykkir heimild til verksviptingar hjá félögunum og felur sambandsstjórninni að ákveða nánar, hversu viðtæk verksviptingin skuli vera og hve- nær hún komi til framkvæmda”. Tillaga þessi var samþykkt ein- róma, en 30:211 atkvæði voru á fundinum. Atkvæðamagn fer eftir greiddum félagsgjöldum og fé- lagafjölda einstakra félagsdeilda innan Vinnuveitendasambands Islands. Tillagan hlaut um 92% alls atkvæðamagns innan sam- bandsins. skurði þar til i dag, þriðjudag, meðan athugun færi fram á þvi hvort málið yrði fellt niður. Nokkur kaupskip héldu úr höfn I gær, skömmu eftir að samúðar- verkfallið var afturkallað en enn fleiri lágu enn bundin við bryggj- ur i gærkvöldi. Hjörtur Hjartar framkvæmda- stjóri skipadeiidar SIS sagði i gærkvöldi, að málshöfðunin hefði ekki veriö dregin til baka og sagði, að skipafélögin biðu enn eftir úrskurði félagsdóms. — 1 gærkvöldu barst bréf frá Vélstjórafélaginu, þar sem til- kynnt var, að verkfallinu væri af- létt, en við höfum vefengt það, sagði Hjörtur, að löglegt sé sam- kvæmt vinnuíöggjöfinni að efna til samúðarverkfalls á þann hátt, sem gert var, og teljum fulla ástæðu til þess að úr því fáist skorið, vegna þess að það er ákáf- lega óeðlilegt, að slik atriði fáist ekki lögskýrð á eðlilegan hátt og menn viti hvað þeir megi gera og hvaö ekki. Erfitt mun vera að koma mörgum skipanna úr höfn, þar sem stuttur timi er til stefnu, en boöað hefur verið til allsherjar- verkfalls rúmum sólarhring eftir að vélstjórar afléttu sinu samúð- arverkfalli. Sópað fyrir konunginn SVONA LITUR DÆAAIÐ ÚT — SEGIR A.S.Í. Carl XVI Gustaf Svlakonungur kemur I opinbera heimsókn til Is- lands I dag. Konungur mun búa I Ráöherrabústaönum viö Tjarnar- götu, og þessi unga stúlka var aö sópa stéttina þar fyrir utan I gær. Timinn fór fram á þaö, aö ljósmyndari blaösins fengi aö taka ljós- myndir inni I Ráöherrabústaönum, en forsetaembættiö neitaöi þeirri ósk. ■-----------------► o »---------------------► o sem sizt ættu að kenna á verk- fallsaðgerðum. Siðustu fréttir Klukkan 11.45 i gærkvöldi sett- ust samningaaöilar i ASl-deilunni aö samningaboröi meö sátta- semjara. Torfi Hjartarson varö- ist allra frétta um hvaö fyrir þessum fundi lægi, er Tlminn haföi samband viö hann skömmu fyrir fundinn. Þó lá i loftinu aö hér væri um aö ræöa einhvers konar tiliögu sáttanefndarinnar, sem byggöar væru á frumkomn- um tillögum og hugmyndum samniiigsaöila. Reyndi að sigla kyrrsettu skipi frá Eskifirði Oó-Reykjavik Skipstjórinn á Is- borgu setti vélar á fulla ferð og skipið togaði óþyrmilega I vlrana, þar sem það lá bundið við bryggju á Eskifirði aðfaranótt laugar- dags. Var þá búið að kyrrsetja skipið vegna áfengissmygls og taka skipsskjöl i land. Lögreglu- menn voru nærstaddir og komu i veg fyrir að virar slitnuðu eða bryggjan yrði dregin á haf út. Eins og skýrt var frá i Timan- um á sunnudag, fundu tollveröir smygl I skipinu, sem var að koma frá Portúgal. Alls fundust 350 litr- ar af spíritus og um 30 litrar af léttu víni. Nokkuð af þessum farmi var komið i bila I eigu nokkurra skipverja og voru þeir á bryggjunni, þegar leit var gerð i þeim, Nokkurt magn fannst einn- ig I vélarrúmi skipsins. Tveir stýrimenn og einn vél- stjóri játuðu að eiga áfengið, sem reynt var að smygla. Eftir að leit- að hafði verið I Isborgu, var kyrr- setningunni aflétt, og fór skipið áleiðis til Vestmannaeyja. Voru þá enn tollverðir innanborðs. Friöjón Guðröðarson, lögreglu- stjóri i Höfn i Hornafirði, fer með dómsrannsókn málsins. EVENSEN KEMUR í DAG HJ-Reykjavik Kl. 15 siðdegis i dag er væntanlegur til landsins Jens Evensen, hafréttarmáiaráð- herra Noregs. Evensen kemur hingaö frá London, þar sem hann átti viðræður við helzta sérfræð- ing brezku rikisstjórnarinnar á sviði hafréttarmála, David Enn- als aðstoðarutanrikisráðherra. Að ósk Evensens hefur verið ákveðinn fundur meö honum og Islenzkum ráöamönnum kl. 16.30 slödegis. Einar Agústsson utan- rlkisráðherra mun sitja fundinn, en enn er ekki fullákveðið, hverjir aðrir Islenzkir ráðamenn taki þátt i honum, þvi að nú ber margt að samtlmis. A fundinum veröa rædd fiskveiöi- og hafrétt- armál.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.