Tíminn - 15.06.1975, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.06.1975, Blaðsíða 1
Þrjár húsmæður og margra barna mæður starfa við þungavinnuvélar hjá Aðalverktökum Hjördis: ánægft meft valtarann sinn. Gefa færustu karlmönnum ekkert eftir... BH-AS-Rvik. — ,,Það er mun betra aö vinna á þessum valtara en að sitja við einhver skrif- stofustörf eða sauma út.” Þannig komst hún Hjördis Hjör- leifsdóttir að orði, þegar við hittum hana að máli suður á Keflavikurflugvelli um daginn, þar sem hún ók um á vinnutæk- inu sfnu, 48 tonna valtara, og þótti ekkert sjálfsagðara, þvi að starfið væri alveg ágætt. Hjördis er ein af þrem konum, sem núna starfa hjá Aðalverk- tökum við akstur þungavinnu- véla og trukka, og þegar við hittum Grétu Sigurjónsdóttur, fannst henni ekkert sjálf- sagðara en aka 14 tonna trukk og vinna við hann. Hún ók nefni- lega rútu f allt fyrrasumar, og kippir sér sannarlega ekki upp við að setjast við stýrið á svona farartæki. Allar þrjár eru þær búsettar i Keflavik, og i eftirvinnu annast þær heimili sin, þvi að samtals eru þær margra barna mæður. — Æ, ég er orðin hálf leið á þessu, sagði Rannveig Guft- mundsdóttir, þegar við heilsuöum upp á hana, þar sem hún sat i 14 tonna trukknum sin- um, og þegar við spurðum um ástæðuna, stóð ekki á henni: — Nú, ég vil komast á eitthvað stærra! Og það þarf ekki að spyrja að þvi, þegar blessað kvenfólkið tekur eitthvað að sér, þá er eng- inn timi til að masa, það verður að drifa verkið áfram. Og álits hafa þær aflað sér i starfinu, ekki að búast við öðru. Rannveig: Vili komast á eitt- hvaft stærra. Brynjólfur Brynijólfsson, yfir- verkstjóri véladeildar hjá Aðal- verktökum, átti góð orð þar um : — Þær gefa ekkert eftir færustu karlmönnum, sem ég hef haft á þessu sviði, þeas. i meðferð þungavinnutækja. Gréta: Ók rútu I fyrrasumar. Samningar tókust í gærmorgun milli BSRB og ríkisins og fá opinberir starfsmenn þær 53oo kronur, sem um samdist milli ASÍ og vinnuveitenda. Þá er verkfalli mjólkurfræðinga lokið þar sem samningar rnilli þeirra og mjólkursamsalanna voru einnig undirritaðir í gærmorgun . Þá er kjaradeilu flugmanna og Blugleiða lokið, ogvoru samningar undirritaðir i gærmorgun. Samkomulag hefur ekki náðst ennþá milli Aljiýðu- sambands Norðurlands og vinnu- veitenda, en það samband hefur umbou fyrir lo fólög. -^kkert markvert er að frótta af togara- deilunni. i tilefni þess þrekvirkis, er islenzkir knattspyrnumenn unnu sigur á viftfrægri afrekaþjóft á þvi svifti, Austur-Þjóftverjum, bauft menntamálaráftherra, Vilhjálmur Hjálmarsson, til kvöldverftar I ráðherrabústaðnum sl. föstudagskvöld. Voru þar mættir þeir, sem laudsliðið skipuöu i þessum ánægjulega leik, og staddir eru hér á landi, ásamt konum sinum, og einnig stjórn Knattspyrnusam- bands íslands.Var þar góður mannfagnaður, enda menntamáiaráðherra áhugasamur um knatt- spyrnu eins og aðra menningariega skemmtan.Þessa Timamynd tók Gunnar þegar menntamála- ráðherra ávarpaði samkomugesti að kvöldverðinum loknum. Konungur þakkar Á heimleið yfir Norður Atlantshaf sendi ég forseta Islands og is- lenzku þjóðinni hlýjar þakkir fyrir stórfeng- lega gestrisni og mikla vinsemd, sem ég varð aðnjótandi i heimsókn minni til íslands. Carl Gustaf. I „Víð fáum inn fólk sem ekki ræður við menntaskólanámið" -------- 40

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.