Tíminn - 17.06.1975, Síða 4

Tíminn - 17.06.1975, Síða 4
4 TÍMINN nfiSfíuiinin Þriöjudagur 17.júni 1975 Fiskiræktarbú í Frakklandi Fyrsta fiskiræktarbúið i Frakk- landi mun auka mjög afköst sín á þessu ári, en það er ekki langt frá borginni Treguier. Reiknað er með, að á búinu verði fram- leidd um 50 tonn af laxi i' ár. Bú- ið er skipulagt eftir japanskri fyrirmynd, og sömuleiðis eru fiskiræktarbú i Kanada höfð til hliðsjónar við reksturinn. Búið er á bökkum árinnar Jaudy. A siðasta ári voru framleidd tiu tonn af laxi, sem sérfræðingar sögðu að væri algjörlega óþekkjanlegur frá þeim villta laxi, sem veiddur er i laxveiði- ám i Frakklandi. A næsta ári er búizt við að framleiðslan komist upp 1100 tonn. Það er þó sannar- lega ekki mikið, borið saman við þau 10 þúsund tonn af laxi, sem Frakkar flytja inn árlega, og verða að greiða fyrir i er- lendum gjaldeyri. Laxinn, sem þarna er ræktaður, er af Kyrra- hafsstofni. Fyrstu seiðin voru flutt inn frá Bandarikjunum og ræktuð i stórum tönkum. Siðan er fiskurinn látinn vaxa upp i geysistórum netagirðingum i sjónum. Laxinn er alinn á fiski- mjöli ög vex mjög fljótt, um nær þvi pund fyrsta árið, og sfðan u.þ.b. fimm pund á ári eftir það. Þessi ræktaði lax er seldur á sambærilegu verði við þann lax, sem fluttur er inn, aðallega frá trlandi og Noregi. Fiskiræktar- stöð þessi er starfrækt af fiski- manni frá Treguier og styrkt af hinu opinbera. Hætta að senda myndirnar heim Sá háttur hefur verið hafður á i Frakklandi allt frá árinu 1966, að lögreglan tekur myndir af öllum þeim, sem teknir eru fyrir of hraðan akstur. Síðan hafa myndirnar verið póstlagðar og sendar heim til þeirra, sem brotið hafa lögin, og þeim gert skylt að greiða sektir. Nú hefur lögreglan hætt þessu, þar sem nokkuð hefur borið á þvi, að fólk hefur skilið af þessum sökum. Astæðurnar til skilnaðanna hafa verið margvislegar. 1 sumum tilfellum hafa eiginkonurnar Lækningastofa opnuð í Cannes Við þá athöfn hittist frægt fólk. Frá vinstri Geneix prófessor, næst kemur Emmanuel Vitra, sá sem lengst hefur lifaö af sjúklingum Barnards með Igrætt hjarta, hin unga frú Barnard, Begum Khan og Barnard prófessor. ekki getað fyrirgefið mönnum sinum það, að þeir skuli hafa brotið lögin á þennan hátt. 1 öðrum tilfellum hafa myndirnar boriö með sér, að eiginmennirn- ir hafa ekki verið einir i bilun- um, þegar þeir brutu umferðar- lögin, og förunautarnir hafa þá jafnvel verið kvenkyns, og það hefur eiginkonunum, sem heima sátu, ekki fallið sem bezt. Héðan I frá verður ökumönnum, sem aka of hratt, aðeins til- kynnt, að mynd af þeim i bil þeirra hafi verið tekin er þeir óku á ólöglegum hraða, og þeir geti komið og litið á myndina á lögreglustöðinni, og gengið úr skugga um, að það eru þeir, sem þarna eru á ferð, en ekki ein- hverjir aðrir. Forsetadætur í blaðamennsku Þrjár dætur fyrrverandi og nú- verandi forseta Bandarikjanna eru starfandi við blaða- mennsku. Fólk hefur spurt: — Eru þessar stúlkur svo vel rit- færar, eða þykir forráðamönn- um blaða það vel fallið að flagga með nöfnum þeirra, og jafnvel að nota sér, að þær þekkja vel til meðal ráðamanna þjóðarinnar, og eiga þar af leiðandi greiðan aðgang að ýmsum fréttum og viðtölum við þá. Venjulegar blaðakonur i Bandarikjunum eru vist ekki lausar við öfund i þeirra garð, og þykir þeim hampað meira en þær eigi skilið með tilliti til vinnuafreka þeirra. Lynda Johnson Robb (dóttir Lyndon B. Johnsons) vinnur við Ladies Home Journal og McCalls vikublaðið. Julie Nixon Eisenhower (dóttir Nixons, en gift syni Eisenhow- ers) er hjá Saturday Evening Post, og Susan Ford skrifar I timaritið Seventeen. Hér sjáum við þessar ritfæru forsetadætur: Susan, Julie og Lyndu. ■f SUSAN JULIE LYNPA Auðvitað er ég tilbúinn. Mér liöur ágætlega, en hvernig liður þér mamma? DENNI DÆMALAUSI Það er ekki mikiö eftir núna, en þetta var óttalega fallegur fugl.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.