Tíminn - 17.06.1975, Page 14

Tíminn - 17.06.1975, Page 14
14 TÍMINN Þriðjudagur 17.júni 1975 Höfundur: David Morrell Blóðugur hildarleikur 47 aði í liðamótin. Þetta tók of langan tíma. Hann vissi, að þeir gætu ekki borið hann mikið lengur. Þeir urðu að komast upp á hrygginn. Þegar Ward rann til og hrasaði, þá munaði minnstu, að Teasle missti tak sitt á Orval. Þeir duttu kylliflatir í brekkunni. Straumurinn hreif þá með sér svolítinn spöl. Þeir börðust við að halda í Orval. Enn voru þeir með hann. Þeir reyndu að komast hærra upp í brekkuna. En þeir komust aldrei lengra með hann. Skyndilega hrópaði Singleton upp yfir sig. Svo féll hann fram hjá Orval, og skall á brjósti Teasles. Þeir runnu aftur á bak. Teasle missti tak sitt á Orval. í næstu andrá lá hann á bakinu neðst í brekkunni. Vatnið fossaði yfir hann og hann fann til sársauka er steinar rákust utan í hann. — Ég gat ekki að þessu gert, hrópaði Singleton. — Steinninn rann undan mér. — Orval. Straumurinn hefur hrifið hann. Teasle buslaði í átt að klettabrúninni. Hann strauk vatnið frá augunum með handleggnum, deplaði augun- um og reyndi að rýna gegnum regnið. Hann mátti ekki hætta sér of nærri brúninni. Straumurinn var of sterkur þar. En Guð á himnum, hann varð að stöðva Orval. Hann fór sér ögn hægar, mjakaði sér nær og strauk vatnið frá augunum. Elding leiftraði. Þá sá hann greinilega upp- Ijómaðan líkama Orvals, sem kastaðist fram af brún- inni... Svo sortnaði yf ir öllu á ný. Þá kastaði Teasle upp. Heit tár blönduðust köldu regninu á andliti hans. Hann veinaði þar til hálsinn lokaðist. — Andskotinn hirði þessa djöfuls hunda. Ég skal drepa þá fyrir að neita um aðstoðina. Singleton birtist skyndilega við hlið hans. — Sérðu Orval nokkurs staðar? Teasle fór f ram hjá honum og stefndi að hryggnum. — Ég skal drepa þá. Hann greip eftir handfestu og tosaði sig upp á við, smeygði fæti aftan við stein og m jakaði sér upp. Hann gróf og klóraði eftir handfestu á meðan hann barðist upp á móti vatnselgnum. Skyndilega var hann kominn upp á hrygginn og sökk inn í skóginn. Þar var gnýrinn ærandi. Vindurinn sveigði trén.dundi inn milli greinanna. Elding leiftraði rétt hjá þeim og laust svo niður í trjábol, sem klofnaði að endilöngu. Tré skall niður fyrir f raman Teasle, sem hoppaði yf ir það. — Foringi, hrópaði einhver. — Hér er ég, foringi. Hann sá ekki andlitið — 'aðeins mannslíkama, sem hniprapi sig saman upp við tré. — Ég er hér, foringi. Maðurinn baðaði út höndunum í miklum ákafa. Teasle æddi í átt að honum og þreif um skyrtubrjóst hans... Þetta var Mitch. — Hvað ertu að gera? Hvað er að þér? sagði Mitch. — Honum skolaði fram af, sagði Teasle. Hanr kreppti hnefann og sló Mitch í andlitið, hratt honum upp að trénu og niður í forina. — Jesús, sagði Mitch. Hann hristi höfuðið ruglaður, tvisvar sinnum.Hann stundi og hélt um blóðugan munn- inn. — Jesús... hvað er að þér? öskraði hann. — Lester hljópst á brott með hinum. Ég varð eftir í stað þess að yfirgefa þig. ELLEFTI KAFLI Teasle hlaut nú að vera kominn inn í skóginn. Rambo var þess fullviss. óveðursþunginn var mikill og veðrið haf ði geisað svo lengi, að útilokað var að Teasle og menn hans gætu hírzt lengur á opinni klettasyllunni. Regnið var svo þétt, að hann sá ekki til að skjóta þá. Þeir hlutu að hafa gripið tækifærið og farið upp hrygginn, inn á milli trjánna. Það var í lagi. Þeir myndu ekki komast langt. Hann hafði margoft lent í slíkri aðstöðu í rigningu. Hann vissi nákvæmlega hvernig bezt var að elta menn uppi við slík skilyrði. Rambo hljóp fram úr runnunum og skjóli trjánna. Hannstefndi íátttil klettarótanna, sem hann hafði kom- ið niður. Óveðrið hafði komið svo miklum ruglingi á allt, að hann gat auðveldlega flúið í hina áttina, langt inn í skóginn — ef hann vildi. Ef dæma mátti eftir stórum þéttum skýjaflákunum, þá gat hann verið kominn margra klukkustunda og mílna ferð á burt, áður en storminn lægði svo, að Teasle gæti aftur hafið eftirför. Hann gat raunar komizt svo langt undan, að Teasle gæti aldrei framar náð honum. Eftir launsátrið var jafnvel mögulegt, að Teasle hef ði misst allan áhuga á því að elta hann uppi. En það skipti ekki máli. Á þessari stundu var hann staðráðinn í því, að flýja ekki meira. Hvort sem hann var eltur eða ekki. Hann hafði legið í skjóli runn- anna og fylgzt með klettabrúninni. Þá hugleiddi hann hvernig Teasle hafði nú orðið til þess, að hann var enn eini sinni orðinn manndrápari, og það eftirlýstur morð- Á meðan teiknar llllflllllll Þriðjudagur 17. júni Þjóðhátlðardagur tslendinga 10.10 Veðurfregnir 10.30 Frá þjóðhátið I Reykja- vfk. a. Hátiðarathöfn á Austurvelli. Lúðrasveit Reykjavikur leikur ætt- jarðarlög. Már Gunnarsson formaður þjóðhátiðar- nefndar setur hátiðina For- seti íslands, dr. Kristján Eldjárn, leggur blómsveig að fótstalla Jóns Sigurðs- sonar. Geir Hallgrimsson forsætisráðherra flytur ávarp. Þá er ávarp Fjall- konunnar, kvæði eftir Stephan G. Stephansson. Karlakór Reykjavikur syngur þjóðsönginn og ætt- jarðarlög milli atriða. Páll P. Pálsson stjórnar. — Kynnir: Ólafur Ragnars- son. b. 11.15. Guðsþjónusta i Dómkirkjunni. Séra Ingvi Þórir Árnason frá prest- bakka messar. Magnús Jónsson og Dómkórinn syngja. Organleikari: Ragnar Björnsson. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.40 Harmonikulög. örvar Kristjánsson leikur. 14.00 Ashild ar m ý ra r- samþykkt 1496. Björn Þor- 16.15 Veðurfregnir. Frá þjóðhátið i Reykjavlk 1974. Dr. Gunnar Thoroddsen flytur erindi: „Aldar- minning stjórnar- skrárinnar.” Vilhjálmur Þ. Gislason fyrrum útvarps- stjóri talar fyrir minni Reykjavikur. Einsöngvara- kvartettinn syngur. Árni Óla flytur frumort kvæði. Kynnir: Guðmundur Jóns- son. 17.00 Barnatimi: Soffia Jakobsdóttir stjórnar. 17.30 Sagan: „Prakkarinn” eftir Sterling North. 18.00 Stundarkorn með Birni Ólafssyni f iðluleik ara . Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 9.35 „Dagur, ei meir”. Matthias Johannesson skáld les úr nýrri ljóðabók sinni við undirleik. Jóhann Hjálmarsson og Gunnar Stefánsson ræða um bókina.. 20.10 Frá tónleikum Kammer- sveitar Reykjavikur i hátiðarsal Menntask. við Hamrahiið 9. febrúar s.l. Oktett i F-dúr op. 166 eftir Schubert. 21.05 Hallveig Eyrarsól. Guð- mundur G. Hagalin rit- höfundur les frumsaminn söguþátt. 21.35 Hásk.kórinn syngur i út varpssal.Stjornandi: Rut L. Magnússon. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Dansiög. þ.á.m. leikur hljómsveit Guðjóns Matthiassonar i u.þ.b. hálfa klukkustund. (23.55 Fréttir istuttu máli. 01.00 Veðurfregnir.) 02.00 Dagskrárlok. Miðvikudagur 18. júni 7.00Morgunútvarp. Veður- 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „A vigaslóð” eftir James Hilton. Axel Thorsteinsson les þýðingu sina (21) 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir) 16.25 Popphorn. 17.10 Tónleikar. 17.30 Smásaga „Ljós I myrkri” cftir Sigriði Björnsdóttur frá Miklabæ. Olga Sigurðardóttir les. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.