Tíminn - 17.06.1975, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 17.júni 1975
T7
„Sóknar-
leikur
hentar
okkur
bezt"
— segir Hörður
Hilmarsson,
fyrirliði Valsliðsins
— Þetta er að smella saman
hjá okkur, við iékum okkar bezta
leik á keppnistimabilinu, sagði
Hörður Hilmarsson, fyrirliði
Valsliðsins. — Liðið lék sóknar-
leik, sem hentar okkur bezt, og
með góðum samleik leikmanna,
náðum við að skapa okkur mörg
góð marktækifæri. Joe Gilroy
hefur byggt Valsliðið rétt upp,
hann byrjaði með þvi að byggja
upp vörnina, sem er nú orðin
mjög góð hjá okkur. En nú leggur
hann aðaláherzluna á miðjuna og
framlinuna, þannig að liðið leiki
sóknarleik, sem hentar Valsliðinu
bezt, sagði Hörður.
— Það var ánægjulegt að leika
með Valsliðinu, eins og það lék
gegn FH, allir leikmenn liðsins
börðust og lögðu sitt að mörkum
til að gera leikinn skemmtilegan.
Það er öruggt að við verðum með
I baráttunni um ísla'ndsmeistara-
titilinn. Skagamenn eru hættuleg-
ustu andstæðingar okkar, en þeir
eru ekki ósigrandi, sagði Hörður
að lokum.
Júgóslavar
meistarar
Júgóslavar tryggðu sér Evrópu-
meistaratitilinn I körfuknattleik i
Belgrad, þegar þeir unnu sigur
(90:84) yfir Sovétmönnum á
sunnudaginn.
RAM
þófkenndur, mikið um há spörk
og rangar sendingar. Eitt bezta
tækifæri hálfleiksins féll i skaut
Eggerts, en hann var of seinn á
sér að skjóta á tómt KR-markið,
varnarmaður KR kom fæti fyrir á
siðustu stundu.
1 liði Fram bar mest á lands-
liðsmönnunum þremur, Arna
Stefánssyni, Marteini Geirssyni,
og Jóni Péturssyni. Árni gerði
ekki eina einustu vitleysu allan
leikinn, Marteinn er frábær bæði i
vörnogsók.og Jón er leikmaður,
sem aldrei gefst upp. Þá má
nefna að Framarar virðast hafa
eignazt mjög góðan bakvörð þar
sem Slmon Kristjánssoner. Hann
er harður leikmaður i vörn, og
getur tekið þátt i sókninni ef svo
ber undir. í sókn Fram bar mest á
Eggert Steingrímssyni, sem var
óvenjuvirkur i þessum leik, og
sendingar hans gefa venjulega af
sér þau mörk, sem Framliðið
skorar.
Hjá KR var meðalmennskan
allsráðandi, ekki er hægt að
segja, að nokkur leikmaður hafi
skarað fram úr, nema þá helzt
Haukur Ottesen sem átti góðan
leik, og Halldór Björnsson var
góður i vörninni, en hætti til að
sparka boltanum larigt fram i
stað þess að reyna að byggja upp
sókn.
Dómari i leiknum var Ragnar
Magnússon og fórst honum það
nokkuð vel, enda hafði hann á lin-
unni með sér Baldur V. Þórðar-
son.sem varsérlega aðgætinn við
að veifa á þau brot, sem dómar-
inn sá ekki. Það er þvi miður allt
of fátitt hér á landi, að linuverðir
aðstoði dómarann við að dæma á
brot, sem honum sést yfir.
ó.o.
EYJAMENN SÝNDU SKAGA-
MÖNNUM KLÆRNAR
— þegar þeir lögðu Islandsmeistarana að velli (3:2) í Eyjum.
★ Jón Alfreðsson er tilbúinn að taka stöðu Asgeirs Sigurvinssonar í landsliðinu
Það voru glaðir Eyjamenn, sem
yfirgáfu grasvöllinn i Vest-
mannaeyjum á laugardaginn,
eftir spennandi og skemmtilegan
leik. Eyjamenn sýndu íslands-
meisturunum frá Akranesi
klærnar, og þeir gerðu út um leik-
inn með tveimur óskastörtum og
tryggðu sér sigur — 3:2. Eyja-
menn fengu strax óskabyrjun —
eftir aðeins 4 min. máttu Skaga-
menn hirða knöttinn úr netinu hjá
sér. Örn óskarsson skoraði þá
gott mark, eftir að Tómas Páls-
son og nýliðinn Sigurlás Þorleifs-
son höfðu splundrað vörn Skaga-
manna. Sigurlás var aftur á ferð-
inni i byrjun siðari hálfleiksins,
þegar hann fékk knöttinn á miðj-
unni — hann einlék frá miðju i
gegnum varnarvegg Skaga-
manna og sendi knöttinn til
Tómas Pálssonar, sem þakkaði
fyrir sig með viðstöðulausu skoti,
sem söng I netamöskvum Skaga-
marksins.
Skagamenn, sem höfðu misnot-
að tvö dauðatækifæri i fyrri hálf-
leik — Arsæll Sveinsson varði þá
glæsilega skot frá Herði Jóhanns-
syni og Jóni Gunnlaugssyni —
minnkuðu muninn (2:1) þegar
Jón Alfreðssonskallaði knöttinn i
mark Eyjamanna, eftir horn-
spyrnu. Sigurlás svaraði fyrir
Eyjamenn (3:1) stuttusiðar, þeg-
ar hann lék á Skagavörnina og
siðan fram hjá markverði og inn-
siglaði sigurEyjamanna.með þvi
að senda knöttinn i tómt markið.
Sigur Vestmannaeyja-liðsins var
I öruggri höfn og það hafði engin
áhrif á sigur Eyjamanna, þótt
Teitur Þórðarson minnkaði mun-
Benfica
tapaði
BOAVISTA frá Portó tryggði sér
sigur I bikarkeppninni I Portúgal
á laugardaginn, þegar félagið
vann sigur (2:1) yfir Portúgals-
meisturunum Benfica I Lissabon.
Boavista vann þar með bikarinn I
fyrsta skipti I sögu félagsins.
1. DEILD
Staðan er nú þessi I 1. deildar-
keppninni, eftir leiki helgarinnar:
Valur 4 2 2 0 4:0 6
Fram 4 3 0 1 4:1 6
Akranes 4 1 2 1 10:5 4
Vestm.ey 4 1 2 1 4:4 4
Vikingur 4 1 2 1 2:2 4
Keflavik 4 1 1 2 1:2 3
FH 4 1 1 2 3:11 3
KR 4 0 2 2 0:3 2
Markhæstu menn:
Markhæstu menn:
Guðmundur Þorbjörnss. Val 3
Matthias Hallgrimss. Akran. 3
Teitur Þorðarson, Akran. 2
Örn Óskarsson. Vestm. 2
2. DEILD
STAÐAN er nú þessi eftir leiki
helgarinnar I 2. deildarkeppn-
inni:
Breiðablik..... 4 4 0 0 19:0 8
Selfoss........ 4 3 10 11:2 7
Þróttur......... 43 10 10:3 7
Ármann......... 4 2 11 6:4 5
Haukar......... 4 2 0 2 7:5 4
Völsungur...... 4 0 1 3 0:9 1
Reynir Ár...... 4 0 0 4 1:12 0
Vikinguról..... 4 0 0 4 3:22 0
Markhæstu menn:
Hinrik Þórhallss., Breiðab....8
Sumarliði Guðbjartss., Self...7
Þór Hreiðarsson, Breiðab......4
Ingi Stefánsson, Ármanni......3
Þorvaldur t. Þorvss., Þrótt...3
Ólafur Jóhanness. Ilaukum.....3
inn i 3:2 —þegar 2 min. voru bún-
ar af venjulegum leiktima.
Beztu menn Eyja-liðsins voru
bræðurnir Ársæll Sveinsson og
Sveinn Sveinsson, ásamt Tómasi
Pálssyni og nýliðanum Sigurlási
Keflvikingar kórónuðu lélega
frammistöðu sina I deildarkeppn-
inni á laugardaginn, þegar þeir
töpuðu (0:1) fyrir Viking á
Laugardalsvellinum. Keflavikur-
liðið, sem var hvorki fugl né fisk-
ur i leiknum, færði Vikingsliðinu
sigurinn á silfurbakka — lands-
liðsbakvörðurinn Gisli Torfason
varð fyrir þvi óhappi snemma I
leiknum, að senda knöttinn I eigið
mark, eftir að hann hafði átt i
höggi við Stefán Halldórsson.
GIsli hugðist senda knöttinn aftur
til Þorsteins Ólafssonar mark-
varðar, en Þorsteinn var þá kom-
inn langt út i vitateig — og honum
tókst ekki að koma I veg fyrir
sjálfsmarkið, sem tryggði Vik-
ingum sigurinn I leiknum.
GUÐGEIR LEIFSSON var
maður leiksins, hann átti
snilldarleik og gerði varnar-
mönnum Keflavikur-liðsins hvað
eftir annað lifið leitt, með
sendingum sinum og einleiks-
sprettum. Guðgeir átti stangar-
Þorleifssyni, sem skoraði sitt
fyrsta deildarmark i leiknum. Af
Skagamönnum voru þeir Þröstur
Stefánsson, Matthias Hallgrims-
son, Jón Gunnlaugssonog Jón Al-
freðsson beztir. Jón Alfreðsson
hefur sýnt það i leikjum sinum i
skotog þarað auki átti hann þrjár
stórsnjallar sendingar i siðari
hálfleik, sem voru nær búnar að
færa Vikingum mörk. Guðgeir
átti sendingu á Stefán Halldórs-
son. Stefán var i dauðafæri, en
áður en Stefáni tókst að skjóta,
felldi Þorsteinn ólafsson, mark-
vörður Keflvikinga hann inn i
vftateig — greinileg vitaspyrna,
sem Guðmundur Haraldsson,
dómari, sleppti. Stuttu siðar átti
Guðgeir sendingu fyrir Kefla-
vikurmarkið, sem Stefán tók við
— skot hans hafnaði i stöng. Þá
brauzt Guðgeir i gegnum Kefla-
vikurvörnina, með Stefán
Ilalldórsson við hliðina á sér, —
aðeins einn varnarmaður Kefla-
vikur-liðsins var til varnar. Guð-
geir sendi knöttinn fram hjá hon-
um, þar sem Stefán kom á fullri
ferð — Stefán freistaðist til að
leika á Þorstein, i staðinn fyrir að
skjóta strax, og missti hann
knöttinn og langt fram hjá sér.
Nú, Vikingar áttu að fá aðra vita-
sumar, að hann á heima i lands-
liðinu og það er öruggt, að hann ér
tilbúinn að taka stöðu Asgeirs
Sigurvinssonar i landsliðinu.
Ekki er óliklegt að hann sé nú
undir smásjá landsliðsnefndar-
innar.
spyrnu — þegar Einar Gunnars-
son sló knöttinn með hendi inn i
vitateig Kefla vikurliðsins.
Dómarinn sá ekki brotið, en aftur
á móti sá annar linuvörðurinn
þetta atvik, en hann gerði ekkert i
málinu og Keflvikingar sluppu
með skrekkinn.
Keflavikurliðið, sem er aðeins
eitt orð yfir — lélegt, fékk eitt
dauðafæri i leiknum. Grétar
Framhald á bls.7
Blikarnir
unnu 4:0
Sigurganga Breiðabliks hélt
áfram á llúsavik á laugardaginn,
en þá unnu Blikarnir stórsigur
(4:0) yfir Völsungum i 2. deildar-
keppninni. Markakóngurinn Hin-
rik Þórhallsson skoraði tvö mörk,
en þeir Þór Hreiðarsson og Gisli
Sigurðsson (viti) eitt hvor.
GUÐGEIR LEIFSSON...sést hérna, er hann hafði leikið á Einar Gunnarsson, og hann er að senda
knöttinn fyrir mark Keflvikinga. < Timamynd Gunnar).
Sjdlfsmark varð Kefl-
víkingum að falli
— þegar þeir mættu Víkingum á Laugardalsvellinum.
Víkingar áttu tvö stangarskot í leiknum