Tíminn - 17.06.1975, Qupperneq 20
11 i - 1 > Nútíma búskapur þarfnast BAlfER haugsugu^U \j A
Þriöjudagur 17 .júnl 1975 Heildverzlun Síöumúla ^ Simar 85694 & 85295
g :--:ð i
fyriryóöan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Bretar endurnýja umdeilda
samninga við S-Afríkubúa
— þrátt fyrir harða andstöðu vinstri
innan Verkamannaflokksins
afla
NTB/Reuter-London. Bretar og
Suöur-Afrlkubúar hafa endurnýj-
aö hina svonefndu „Simonstown-
samninga” um flotasamvinnu —
þrátt fyrir haröa andstööu gegn
samningununt frá vinstri öfium
innan Verkamannaflokksins.
Samningar þessir voru gerðir
fyrir tuttugu árum. Þeir fela i sér,
að herskip beggja þjóða hafa
sameiginleg afnot af höfn og
hafnaraðstöðu I Simonstown-
flotastööinni, sem er nálægt
Höföaborg. Sömuleiðis er kveðið
á um sameiginlegar æfingar i
samningunum.
Þeir vinstri menn innan Verka-
mannaflokksins, er barizt hafa
gegn endurnýjun samninganna,
telja, að með þeim leggi Bretar
óbeint blessun sina yfir kynþátta-
stefnu Suður-Afrikustjórnar.
Karpov leiðir
Vidmar-mótið
Heimsmeistarinn hefur hlotið 8 1/2 v.
Reuter-Ljubljana. Ellefu um-
ferðum er nú lokið á Vidmar-
minningarskákmótinu, er
fram fer i borginni Ljubljana i
Júgóslaviu. Anatoly Karpov —
sovézki stórmeistarinn og
nýbakaður heimsmeistari i
skák — hefur örugga forystu á
mótinu. Hann hefur hlotiö 8
1/2 vinning, en þeir, sem skipa
annaö til þriöja sæti, hafa
fengið 7 vinninga.
í elleftu umferð gerði
Karpov jafntefli við
júgóslavneska stórmeistarann
Planinc i aðeins 19 leikjum.
Júgóslavneski stórmeistarinn
Parma var sá eini, er nældi
sér i vinning i umferðinni, en
skák þeirra Gligoric
(Júgóslaviu) og Furman
(Sovétrikjunum) fór i bið.
Aðrar skákir enduðu með
jafntefli.
Staðan i mótinu er nú þessi:
1. Karpov 8 1/2 v. 2.-3. Hort og
Ribli 7. v., 4.-5. Gligoric og
Furman6 l/2v..og biðskák, 6.-
7. Parma og Ljubojevic 6 \ ,
v., 8-9. Barle og Velimirovic 6
v., 10. Portish 5 l/2v., 11.
Mariotti 5 v., 12. Planinc 4 1/2
v., 13. Garsia 4 v., 14. Musil 3
v., 15. Osterman 2 1/2 v. og 16.
Karnar 2 v.
Tólfta umferð verður tefld i
dag.
Berlinguer, leiötogi italskra
kommúnista: Stórsigur
„Vinstri sveifla" í kosningunum á Ítalíu:
Kommúnistar bæta við sig
miklu fylgi
en kristilegir demókratar
halda velli, þrátt fyrir það
Reuter-Róm. í gær fóru fram
héraðs- og sveitarstjórnakosning-
ar á itaiiu. Kosninganna var beð-
ið mcð nokkurri eftirvæntingu,
þar eð búizt var við mikiili fylgis-
aukningu kommúnista og sósial-
ista á kostnað kristilegra demó-
krata, er verið hafa i stjórnarfor-
ystu á ttaliu s.l. þrjátiu ár.
Siðdegis i gær voru birtar
fyrstu atkvæðatölur úr nokkrum
af stærstu borgum Italiu. Þær
gáfu ótvirætt til kynna mikla
fylgisaukningu kommúnista. 1
Róm bentu fyrstu tölur t.d. til 9%
fylgisaukningar þeirra og
svipaða sögu var að segja frá öðr-
um stórborgum.
Þessi fylgisaukning kommún-
ista er óneitanlega meiri en búizt
var við fyrir fram. Aftur á móti
virðist tap kristilegra demókrata
vera nokkru minna en spáð var,
m.a.s. bættu þeir við sig fylgi á
stöku stað. Þeir flokkar, sem
einkum urðu fyrir barðinu á
„vinstri sveiflunni”, voru smá-
flokkar þeir, er standa til hægri
eða I miðju italskra stjórnmála.
1 gær var kosið til héraðs-
stjórna i fimmtán af tuttugu
héruðum á ttaliu. Og fyrstu tölur
bentu til, að kommúnistar —
sums staðar með stuðningi sósial-
ista — næðu völdum i tveim
héruðum til viðbótar þeim 3,
er þeir réðu fyrir kosningarnar.
Fjöldi ástæðna liggur til sigurs
kommúnista og sósialista. Kosn-
ingaaldur var nýlega færður nið-
Framhald á bls. 7
IM!1
Férðamiöstöðin hf.
Aðalstræti 9 Símar 11255 og 12940
Enn ríkir ótryggt ástand í Portúgal:
HERÐA HERFORINGJARNIR
TÖKIN Á SÓSÍALISTUM?
ÓDÝRAR
Spánarferðir
Bentdorm
NTB/Reuter-Lissabon. Astandið i
Portúgal er enn ótryggt, þótt svo
virðist — a.m.k. á yfirborðinu —
semherforingjarþeirerfara með
völd i landinu, ráði lögum og lof-
um. 1 gær slógu hersveitir hring
um hina rikisreknu útvarpsstöð
lar.dsins og öryggissveitir gengu
hart frami leit að fimm mönnum,
sem sagðir eru hafa stolið vopn-
um úr einni af birgðastöðvum
Portúgalshers.
Talsmaður hersins sagði, að
sleginn hefði verið hringur um út-
varpsstöðina til að koma i veg
fyrir að fimmmenningarnir legðu
hana undir sig. Sveitir úr öryggis-
lögreglunni COPCON stöðvuðu
bifreiðar á leið til og frá Lissabon
og óbreyttir borgarar aðstoðuðu
öryggislögregluna við leitina að
vopnaþjófunum.
Leiðandi herforingjar innan
Portúgalshers hafa setið á lokuð-
um fundi siðan á föstudag.
Fréttaskýrendur telja, að á
fundinum verði teknar
ákvarðanir, er eigi eftir að ger-
breyta pólitiskri þróun i landinu.
Ljóst er, að kommúnistar —
eins og bezt sést á skrifum dag-
blaða f Portúgal, sem flest eru á
bandi þeirra — óttast nú, að
frjálslyndari öfl á borð við
sósialista og fylgiflokka þeirra
nái smám saman yfirtökunum i
krafti hins mikla meirihluta á
stjórnlagaþingi landsins.
Leiötogar kommúnista hafa þvi
lagt fast að herforingjunum að
herða á ný tökin á sósialistum.
Herforingjarnir hræðast mjög
veldi sósíalista, enda eru þeir
hvergi nærri eins leiðitamir og
kommúnistar. Þess vegna búast
margir fréttaskýrendur við, að
byltingarráðið — sem skipað er
eingöngu herforingjum og fer i
reynd með æðsta vald í landinu —
fari að raðum kommúnista og
setji sósialistum stólinn fyrir
dyrnar. Þannig hefur UPI-frétta-
stofan eftir áreiðanlegum
heimildum, að bann það, er sett
var við útkomu sósialista-
málgagnsins Republica, verði
látið gilda áfram — þó e.t.v. i
breyttri mynd. Verði sú raunin,
eru úr gildi fallin þau skilyrði, er
leiðtogar sósialista settu fyrir
áframhaldandi þátttöku i
Portúgalsstjórn.
Fróðlegt verður þvi að fylgjast
með gangi portúgalskra stjórn-
mála næstu daga.
Til vinstri sjást prentarar Republica, er fyigja kommúnistum aö málum — i miðju sjást hermenn á
veröi fyrir framan aöalstöövar blaösins — og til hægri sést Soares leiötogi sóslalista mótmæla framferði
prentaranna eftir aö þeir höföu rekiö stjórnendur blaðsins frá störfum: Siödegis I gær baö fram-
kvæmdastjóri Republica um lögregluvernd, en áformaö var aö koma biaöinu út I dag. Svör öryggis-
varða voru þau, aö þeir ætluöu aö fá kommúnistum lyklana að aöalstöövum blaösins, fremur en sjá
stjórnendum þess fyrir vernd. Og fréttir herma, aö herforingjarnir hafi nú I hyggju aö banna áfram-
haldandi útgáfu þessa aðalmálgagns sósialista.