Tíminn - 19.06.1975, Blaðsíða 1
Skotið á
hljómsveit
fyrir norðan
ASK-Akureyri.Skotið var lir loft-
skambyssu á Ólaf Sigurðsson,
einn meðlima hljómsveitarinnar
Geisla, er hún var að leika fyrir
dansi á Ráðshústorgi á Akureyri
siðastliðinn þriðjudag.
Skotið var það öflugt að kúlan,
sem lenti i hægri augabrún, sat
föst i sárinu. Varð að flytja Ólaf á
sjúkrahús til að fjarlægja kúluna.
Þá var einnig skotið á hljóðfæri
hljómsveitarinnar og mun hafa
sézt nokkuð á þeim, en þrátt fyrir
þetta spilaði hljómsveitin siðar
um kvöldið. Við rannsókn kom i
ljós að 14 ára unglingur var með
byssuna undir höndum og játaði
hann verknaðinn.
Sameinuðu þjóðirnar
vilja að jarðhita-
deild hóskóla S.Þ.
verði hér ó landi
Oó-Reykjavik. Til mála hefur
komið að stofnsetja á Islandi þá
deild Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna, sem fjalla á um jarðvarma
og nýtingu hans. Er málið enn á
athugunarstigi og er t.d. ekki ljóst
hvernig fjárhagshliðinni verður
háttað, en það atriði kemur að
sjálfsögðu til með að skipta miklu
máli varðandi þátttöku íslands,
en aðstandendur skólans munu
ætlast til að íslendingar beri tals-
RAFMAGNSKAPALL UR
DJÚPI Á TOGARASLÓÐUM
HJ-Reykjavik. — Þegar við
ætluðum að fara að draga veiðar-
færin á ágætis togslóð hér fyrir
utan aðfaranótt s.l. laugardags,
fundum við að þau voru föst i ein-
hverjum fjáranum. Okkur gekk
ákaflega erfiðlega að hifa, en
þegar við loks höfðum náð vörp-
unni um borð, kom i ljós að mikill
kapall var fastur á öðrum hleran-
um. Veður var einstaklega gott og
stillt á þessum tima, en vist er að
hefði veður verið slæmt, hefðum
við misst veiðarfærin, sagði
Magni Kristjánsson, skipstjóri á
Bjarti NK 121 I viðtali við Tim-
ann, að loknum sjóprófum i Nes-
kaupstað I gær.
Fjölgar
þeim, sem
framleiða
sitt eigið
vín? 1)0
— Kapallinn var algjörlega
fastur á hleranum, sagði Magni,
og við urðum að höggva hann af
þvi að ómögulegt reyndist að
leysa hann með öðrum hætti.
Þetta reyndist einhvers konar
rafmagnskapall, þvi að þegar við
huggum hrukku af honum gneist-
ar og eldglæringar. Ekki hefur
enn farið fram rannsókn á, hvaða
fyrirbæri þarna er um að ræða, en
við tókum bút með okkur heim og
er verið að rannsaka hann.
— Kapallinn er alveg nýr og við
minntumst þess, að fjórum dög-
um áður höfðum við séð einmitt á
þessum sama stað mjög óvenju-
legt skip, með alls kyns turnum
og strompum. Við höfðum þá
samband við landhelgisgæzluna,
sem taldi að um rannsóknarskip
frá bandariska flotanum væri að
ræða. Sams konar skip hafði skip-
stjórinn á Vestmannaey sáð á
Selvogsbanka i april og reyndist
það bandariskt rannsóknarskip.
— Hverju og hverjum sem
þarna er um að kenna, er þetta
vægast sagt mjög óbægilegt, bvi
að þarna er mjög fisksæl slóð og
mikið veitt. Ef við hefðum fest
veiðarfærin i verra veðri má
öruggt teljast, að við hefðum
misst þau. Fyrir skömmu siðan
misstum við einmitt veiðarfæri
fyrir tvær milljónir króna á
öruggum togslóðum þarna i
næsta nágrenni og kunnum þá
alls enga skýringu, en óneitan-
lega setur maður það nú i sam-
band við þetta. Það er lika ein-
kennilegt, að fleiri bátar hafa fest
illa á þessum slóðum undanfarið,
þótt það hafi varla gerzt áður,
sagði Magni að lokum.
verðan kostnað af stofnun
deildarinnar og rekstri.
Hugmyndin um að setja slika
jarðvarmadeild á stofn hérlendis
varð til erlendis, en Islenzkir sér-
fræðingar njóta mikils álits á
þessu sviði. Fáar þjóðir hafa nýtt
jarðvarma I jafnrikum mæli, og
Islenzkir sérfræðingar hafa
margir starfað hjá tækniaðstoð-
inni á vegum Sameinuðu þjóð-
anna viða um heim.
Umleitanir um þetta mál hafa
borizt utanrikisráðuneytinu, og
verið sendar menntamálaráðu-
neytinu, og eru til umsagnar hjá
þeim aðilum, sem málið varða.
Einnig hefur komið til tals, að
hér á Islandi verði stofnuð og
starfrækt önnur deild á vegum
Háskóla Sameinuðu þjóðanna, en
það er sú deild er lýtur að fiski-
fræði, sjávarútvegi og fisk-
vinnslu.
Símskeytakostnað-
ur sáttasemjara
á 4. millj. kr.
Oó-Reykjavik. Tlminn sagði nýverið frá svo ógnarlöngu sim-
skeyti, að flytja varð það I bil frá simstöðinni á Isafirði til sim-
stöðvarinnar I Súðavík, þvi að sú stöð er vanbúin tækjum til að
taka á móti svo miklu simskeyti. Hér var um að ræða samkomu-
lagsuppkast það, sem verkalýðsfélaginu var sent eftir að samn-
inganefndir ASl og Vinnuveitendasambandsins voru búnar að
semja fyrir sitt leyti. En þetta var langt frá þvi að vera eina
skeytið sem sent var, þvi að sams konar slmskeyti var sent um
200 verkalýðsfélögum um allt land frá skrifstofu sáttasemjara
rikisins.
Láta mun nærri að skeytið hafi verið 3000 orð. Hjá Landsiman-
um fékk blaðið þær upplýsingar að hvert orð I símskeyti innan-
lands kosti 6 krónur, og enginn afsláttur gefinn þótt skeyti séu
löng. Hefur þvi hvert simskeyti með texta samkomulagsins kost-
að 18 þús. kr. og 200 skeyti af þessari stærðargráðu kosta þvi
samtals 3,6 millj. kr.
BEÐIÐ UAA
LÖGBANN
GEGN
FLUGI
VÆNGJA
TIL
AKRANESS
Oó-Reykjavik. Beiðni um lög-
bann á lendingum flugvéla
Vængja h.f. liggur nú fyrir hjá
sýslumanni Borgarfjarðarsýslu.
Það er hestamannafélagið Dreyri
á Akranesi, sem á völlinn, en
flugbrautin á Akranesi var
upphaflega skeiðvöllur. Vængir
hafa um árabil haldið uppi
áætlanaflugi til Akraness, og er
skeiðvöllurinn — sem var — eina
lendingarbrautin þar um slóðir.
Dreyri á völlinn, en hann mun
litið vera notaður sem
skeiovöllur.
Árni Grétar Finnsson, hæstar-
réttalögmaður, sem biður um
lögbannið I boði Dreyra, sagði i
gær, að upphaflega hafi hesta-
mannafélagið leigt Vængjum h.f.
skeiövöllinn frá miðju ári 1971 til
jafnlengdar 1972, og var
uppsagnarfrestur 12 mánuðir.
Var skeiðvallarleigunni sagt upp
á tilsettum tima og rann leigu-
timinn út 1973. Siðan var óskað
eftir viðræðum við forráðamenn
Vængja h.f. um nýja leiguskil-
mála, og að sögn Arna hafa þeir
aldrei sýnt neinn áhuga á að
semja um þetta.
Hefur alltaf staðið opið að semja,
að sögn lögmanns Dreyra, en þvi
ekki verið sinnt.
Upphaflega var leigan á
skeiðvellinum eða flugbrautinni 2
þús. kr. á mánuði, og farið var
fram á 6 þús. kr. leigu.
FRAMKVÆMDA-
STOFNUNIN
KAUPIR AF
FLUGLEIÐUM
FJ-Reykjavik. — Stjórn Fram-
kvæmdastofnunar rikisins hefur
heimilað framkvæmdaráði að
semja við Flugleiöir hf. um kaup
á húseign að Vesturgötu 2, en þar
hafa Loftleiðir verið með skrif-
stofu um árabil. Húsnæði þetta er
hugsað til notkunar sem
verzlunarhúknæöi fyrir Alafoss.
30% verðhækkun á
áfengi og tóbaki
Vodkaflaskan kostar 3.060 kr.
og vindlingapakkinn 190 krónur
BH-Reykjavik. — Útsölustaðir
Áfengisverzlunarinnar voru
lokaðir I gær, og er þeir opnuðu
að nýju I morgun var komið nýtt
verð á allar vörur á vegum
Afengis- og tóbaksverzlunar
rikisins. Samkvæmt upplýsingum
Jóns Kjartanssonar, forstjóra
ÁTVR er hér um að ræða nálægt
30% hækkun á öllu áfengi og
tóbaki.
Sem dæmi um hækkunina má
nefna, að viskfflaska, sem áður
kostaöi kr. 2600,00 kostar nú kr.
3.400,00, Geneverflaska, sem áður
kostaði kr. 2.650.00 kostar nú kr.
3.450,00 Pólskt vodka, sem áður
kostaði kr. 2350,00 kostar nú kr.
3060,00 og loks má er að geta
brennivinsins islenzka, sem
kostaði áður krl. 1670,00 en kostar
nú kr. 2170,00
Um tóbaksvörur er það að
segja, að vindlingapakkinn, sem
áöur kostaði kr. 146,00 kostar nú
kr. 190,00 reyktóbaksbréfið, sem
áður kostaði 123 krónur, kostar nú
160.00
Þá hækka eldspýtur lika I verði.
Grýtu-stokkurinn, sem áður
kostaði 5 krónur, kostar nú 7
krónur.