Tíminn - 20.06.1975, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.06.1975, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudagur 20.júni 1975. hiiniíliii iBBHii Í!!!l ■ M Hann vill ekkert fran framur en að veita henni öryggi og lífshamingju Þessi maBur hefur alltaf veriB nálægur, þegar Christina Onassis hefur þurft á einhverju að halda. Hann stóð fyrir. utan bandariska sjúkrahúsið i Paris og beið eftir henni, þegar hún gekk þaðan út máttfarin og döpur, en hún hafði þá einmitt verið að fá fréttirnar um, að hinn riki og máttugi faðir hennar, Aristoteles Onassis, ætti ekki langt eftir ólifað, og það væri alls ekki hægt að lækna hann af þeim sjúkdómi, sem hann þjáðist af. Maðurinn, Petros Gaulandris, tók bliðlega utan um Christinu, og lét sig engu skipta, þótt allt um kring stæðu ljósmyndarar og blaða- mennsem fylgdust vel með þvi, sem var að gerast.Þú þarft ekki að segja mér neitt um hann, sagði Petros. Og þú mátt vita það, að ég mun alltaf standa við hlið þina. Alltaf. Hvað svo sem gerist.Siðustu dagana, sem Ari Onassis lifði, vissi hann, að auður þessa heims gæti ekki bjargað honum. Þessi voldugi og fjörugi Grikki var dæmdur til að deyja.Siðustu stundirnar bað hann dóttur sina heitt og innilega: — Gifstu Petros, hann er sá eini rétti handa þér.Lofaðu mér þvi, að þú giftist honum og engum öðrum.Allir aðrir eru á höttun- um eftir peningunum þinum. Enginn veit, hvort Christina leit á þetta sem bón eða skipun.Og það veit heldur enginn, hvort Christina er i raun og veru þegar gift Goulandris. Sagt er að þau hafi þegar haldið hátið- legt brúðkaup sitt á eyju Onassis, Scorpios. Það á að hafa verið mjög einfalt og yfirlætislaust brúðkaup.Og hver er svo þessi Petros Gaulandris? Hann er þritugur og það er þegar farið að kalla hann hinn nýja „gullgrikkja”. Faðir hans dó fyrir tiu árum og Petros hefur siðan unnið kappsamlega að þvi að safna fjölskyldu sinni auði og hefur gengið það bærilega.Hann ■ stjórnar skipafél. er ræður yfir 78 skipum. Auk þess stjórnar hann fjölmörgum bönkum og hefur gengið mjög vel að mata krókinn i fasteigna- braski. Hann er tengdasonur, sem Ari hefði fallið vel við.Auk þess er hann af góðu fólki kominn. Þvi leit Ari alltaf á hann sem fyrirmyndar tengdason.Þar við bættist svo, að Ari vissi, að Petros var ást- fanginn af Christinu, og hefur alla tið sýnt henni ótrúlega mikinn áhuga, á hverju sem gengið hefur. Seu þau ekki gift nú þegar, er talið fullvist, að þau gifti sig áður en mjög langt liður.Hjá Petros getur Christina verið örugg. Hann er jafnrikur og hún sjálf, og þess vegna þarf hún ekki að óttast, að hann giftist henni „vegna peninganna” þar sem hann á sjálfurnóg á peningum, og þarf varla a meiri auð að halda. Petros gæti ekki hugsað sér neitt æðra en að verða eigin- maður Christinu. Hér eru þau saman á mynd, sem tekin var fyrir nokkru. Röntgentæki fyrir smábörn Siemens-fyrirtækið i Þýzka- landi hefur framleitt nýja gerð af Éöntgentækjum, sem er sér- staklega ætluð við röngen- myndatöku smábarna. Börnin eru lögð I eins konar vöggu, sem heldur þétt utan að þeim, en þeim liður samt ekki illa i. Með sérstökum aðferðum hefur ver- ið dregið úr geisluninni, sem barniðverður fyrir við mynda- tökuna, en oft hefur verið talað um, að hættulegt sé að röntgen- mynda mjög ung börn vegna áhrifa geislunarinnar. Er nú að- eins notaður einn tiundi þess geislamagns, sem annars hefur verið notað, er myndin er tekin. Myndavélinni og öllum öðrum tækjum er hægt að breyta og stilla innbyrðis á margvisleg- asta hátt, og myndatakan fer fram i dagsljósi, svo ekki þarf barnið að verða fyrir óþarfa ótta vegna myrkursins i mynda- stofunni. Einnig er komið fyrir leikföngum i augsýn barnsins, til þess að gera þvi lifið léttbær- ara, á meðan á mynduninni stendur. Hér má greinilega sjá, hvernig röntgenmyndatakan fer fram. ★ Nýjasta nýtt um kóngafóikið Grikkir viljaekki fá Konstantin konung afturheim, eins og fram hefur komið i þjóðaratkvæða- greiðslu.Hann býr nú i London og lætur sér leiðast. Griska kirkjan i London litur þó enn á Konstantin sem konung Grikkja, þvi biskupinn i kirkjunni biður alltaf sérstak- lega fyrir hans hátign, við allar guðsþjónustur, enda situr „hans hátign” á fremsta bekk með konu sinni önnu Mariu og það virðist eins og honum liði ögn betur, þegar hann heyrir beðið fyrir hans hátign. Margrét prinsessai Englandi og Snowdon lávarður hafa minnzt fimmtán ára brúðkaups- afmælis sins.Snowdon gerði það með þvi að fara til útlanda. Maharadjan af Baroda varð heldur en ekki illur, þegar hann hafði pantað tvo krókódila frá vöruhúsinu Harrods i London, og fékk þau svör um hæl, að þar fengjust ekki krókódilar, og hann yrði að snúa sér eitthvað annað. Stjórnin i Astraliu hefur sent Khaled konungi i Saudi Arabiu smágjöf: fjögur kapp- hlaupakameldýr. Þeir eiga ætt sina að rekja til nokkurra kameldýra, sem flutt voru inn til Astraliu einhvern tima milli 1840 og 1950 frá Afghanistan. Þetta er I fyrsta skipti, sem ég hef heyrt, að það séu djúpfrystir hér- ar á hlaupum i skóginum........... Pabbi er búinn að finna prjónana þina, mamma! DENNI DÆAAALAUSI Er sárt að láta saga sig?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.