Tíminn - 21.06.1975, Síða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 21. júni 1975.
Jónas Guðmundsson:
BRAGI ÁSGEIRSSON
Á „LOFTINU"
Loftiö við Skóiavörðustig er að
verða einn skemmtilegasti
sýningarsalur þessarar borgar,
einskonar Hyde Park, þar sem
allt má segja á „sápukassanum.”
Grónir og hálsstifir myndlistar-
menn mýkjast i liðunum, og eitt
og annað fær aö fljóta með —
hlutir, sem þeir myndu liklega
hvergi annars staöar sýna al-
menningi.
Bragi Asgeirsson kemur þarna
á hælana á þeim Sigurjóni ólafs-
syni og Valtý Péturssyni, og hann
sýnir okkur 41 mynd, málverk,
vatnslitamyndir, teikningar og
upplimdar myndir: „collage”-
myndir, þar sem menn lima
klæði, pappir og hvaðeina á
myndflötin, en þar takamálarari
lurginn á þeim Picasso og
Braque, sem settu fram slikar
myndir þegar árið 1911, að þvi er
heimildir greina.
Æskuverkin
með á loftinu
Bragi Asgeirsson fetar i slóð
þeirra, er áður hafa sýnt á
LOFTINU. Hann notar tækifærið
til þess að hreinsa undan koddan-
um alls konar verk, sem alls ekki
væru talin „sýningarhæf” i
öðrum sýningarsölum höfuð-
borgarinnar, og áhorfandinn fær
þvi að skoða sumt nýstárlegt,
nálgast málarann meira en ella
væri kostur.
Bragi kýs að raða myndum sin-
um nokkuð eftir aldri. Þegar
komið er upp þröngan stigann, þá
blasa við æskuverk, skólaverk '
þar sem höfundur er áttaviltur og
hjálparvana i klónum á meistur-
um samtiðarinnar. Við kennum
þar ýmsa menn og konur, i þess-
um annars listilega gerðu mynd-
um. Þessar myndir i fyrstu deild
segja okkur lfka, að úrræðaleysi i
teikningu- og formskipan hrakti
Braga ekki yfir á strönd hinna
abströktu félaga. Bragi er nefni-
lega ekki skipbrotsmaður,
sem lætur úthluta sér ákveðnum
bálki á fleka, heldur könnuður,
sem leitar nýrra landa.
Áratug vantar
’60-’70.
Næsta deild sýnir okkur næsta
áfanga i þróun myndsköpunar
Braga Ásgeirssonar. Að visu
skarar milli deilda, en
viðvaningsbragurinn er að
hverfa. Tilgerðin, sem fylgir
hjálparvana stfltækni, er hverf-
andi i þessum sal. Þarna koma
upplimingar sem eru nákomnari
venjulegri málaðri mynd á striga
en siðar verður. Það vekur lika
athygli manns, að svo virðist,
sem áratugurinn 1960-1970 fái
ekki að vera þarna með. Þó er ein
mynd (no. 17, „Siðsumar”)
máluuð árið 1965, og er hún lik-
lega ein áhugaverðasta myndin á
sýningunni, þ.e.a.s. frá eldri
tima, en aðeins 3 eru frá þessum
áratug.
Innst I öndvegi, eru svo nýjustu
myndir Braga Ásgeirssonar.
Þar sýnir Bragi þær myndir,
sem eru nú tengdari nafni hans en
flest annað. Málarinn gengur
fjörur hirðir smámuni og að-
skotahluti upp af götu sinni og
limir á myndflötinn. Þessar
myndir Braga eru oft mjög
áhrifamiklar, og maður finnur
návist þeirra á sérstakan hátt,
sem ekki er endilega bundinn ná-
kvæmri skoðun.
Eins virðast þær orka sérlega
sterkt á áhorfandann, ef þær eru
margar saman. Það nýjasta er
svo að steypa þessa hluti i
1 limblokkir og virðist málverkið
þá vera farið að nálgast högg-
myndina óeðlilega mikið. Allt um
það, þessi salur er áhrifamestur,
hann er kröftugastur þeirra
þriggja, er myndirnar hanga i.
Yfirlistssýning
i hnotskurn
Bragi Asgeirsson er einn bezt
lesni myndlistarmaður okkar, og
er raunar sérfræðingur i myndlist
allt eins vel og málari. Við verð-
um þvi að treystadómgreinshans
um efnisval, en einhvern veginn
hlýtur maður að óttast meira um
svona myndir, ef þeim er ætlað að
varðveitast um aldir, en um hina
venjulegu gerð — oliu á striga.
Lökk vilja springja, svo eitthvað
sé nefnt, og plötur vilja verpast,
ef kjörhitinn fellur eða ris — en
nog um það.
Við að koma á „Loftið” til
Braga Asgeirssonar höfum við
öðlazt meiri skilning á þessum
afburðamannioglistsköpun hans.
Þessi f jöruga sýning fylgir manni
langt upp Skólavörðustiginn, út i
sólskinið og sumarið. Og hún
segir okkur svo margt, sem við
vissum ekki fyrr. Til dæmis það,
að yfirlistsýning á verkum
merkra málara þarf ekki endi-
lega að vera stór, jafnvel þótt
menn eigi jafn fjölbreyttan feril i
myndsköpun og Bragi Ásgeirs-
son.
Galleri Loftið þarf að varðveita
þetta kjörsvið sitt og vera Hyde
Park fyrir okkar beztu menn.
Jónas Guðmundsson.
• FÓLK í LISTUM
Nýskipaður sendiherra Grikklands hr. Stavros G. Roussos og nýskipaður sendiherra Irans hr. Issa
Malek afhentu nýlega forseta tslands trúnaöarbréf sin aö viðstöddum utanrikisráðherra Einari Agústs-
syni.
Síödegis þágu sendiherrarnir boð forsetahjónanna aö Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum.
Sendiherra Grikklands hefur aðsetur I London en sendiherra trans hefur aðsetur f Stokkhólmi.
AFSALSBRÉF
innfærö 12/5-16/5 '75
Hrafnhildur Haralds. selur
Ragnari Þórhallss. og Kristni
Friðþjófss. fasteignina Bræðra-
borgarst. 41.
Július Hafstein selur Vöku
Sigurjónsd. hluta i Alfheimum 70.
Ármannsfell h.f. selur Leifi Þor-
bjarnarsyni hluta i Espigerði 2.
Gunnlaugur Ingvarsson selur
Sigurþóri Hallgrimss. hluta i
Hvassaleiti 14.
Ingimar Haraldsson selur Jóni
Birni Jónss. og Borghildi
Bjarnd. hluta i Blikahólum 4.
Kristján Pétursson selur Jónasi
Sig. Jónssyni hluta i Blikah 12.
Árni Atlason selur Guðjóni
Samúelssyni hluta i Leirub 6.
Model Magasin selur Jóni Skúla
Þórissyni þluta i Tunguhálsi 5.
Árni Þórhallsson selur Margréti
Gunnarsd. hluta i Grettisgötu
42B.
Þorgerður Jónsdóttir selur ólafi
Ólafssyni hluta i Viðimel 23.
Björn Emilsson o. fl. selja Hákoni
Erni Gissurarsyni hluta i
Lönguhlið 7.
Stefán Haraldsson selur
Ingimundi Sveinssyni hluta i
Bergstaðastræti 67.
Breiðholt h.f. selur Guðmundi
Einarssyni hluta i Kriuhólum 2.
Bústaður s.f. selur Ester Lisu
Guðnadóttur hluta i Dvergab 6.
Guðmundur Þengilsson selur
Sævari Hjartarsyni og Dagbjörtu
Hjörleifsd. hluta i Krummahólum
2.
Sigriður Magnúsd. selur Einari
Guðm.syni hluta i Freyjugötu 10.
Einar Guðmundsson selur Helga
Valdimarss. hluta i Freyjugötu
10.
Agúst Ólafs. selur Jóhannesi
Ellert Eirikss. og Margréti
Kristjánsd. hluta i Mávahlið 15.
Ardis Hannibalsdóttir selur
Sigurði Gunnsteinssyni hluta i
Nökkvavogi 21.
Kristin Grimsd. og fl. selja Sigur-
jóni Gunnarss. o. fl. hluta i
Bragagötu 36.
Leifur MÍiller selur Magnúsi Fr.
Árnasyni hluta i Hraunteig 26.
Magnús Fr. Árnason selur Stefáni
Haraldssyni húseigninga Laufás-
veg 63.
Kristján N. Mikaelsson selur
Arnóri Þorgeirss. hluta i Háa-
gerði 53.
innfærð 28/4—2/5 1975:
Óskar Ólafsson selur • Margréti
Tómasdóttur hluta I Hraunbæ 96.
Siguröur Guðmundsson selur
Axel Axelssyni hluta I Hrafnnó8.
Kristinn Ó. Sveinsson selur
Hilmari Jónssyni hld Karlag 6.
Guðlaugur H. Helgason selur
Sveini Sveinssyni og Karólinu E.
Sveinsd. hluta I Furugerði 15.
Guðlaugur Guðmundsson selur
Ronald Simonarsyni hluta I Bald-
ursgötu 18.
Kristján Ólafsson selur Idu önnu
Karlsd. hluta I Keldulandi 3.
Pétur Sturluson selur Páli Sölva-
syni hluta I Gautlandi 21.
Jóna Bjarnadóttir o.fl. selja
Steingrimi Bjarnasyni hluta i
Sogavegi 158.
Hreinn Björnsson selur Guð-
mundi Haraldss. raðhúsið Vest-
urberg 83.
Aðalbjörg óladóttir selur sam-
eignarfél. Vitastigur 12 sf hús-
eignina Vitastig 12.
Kristinn Guðmundsson selur
Ólafi H. ólafssyni hl i Dalal 14.
Friðný Sigfúsd. selur Stefáni
Hilmarssyni hluta I Álftamýri 58.
Guðmundur Þengilsson selur Sig-
rúnu Haralds. og Jóni Ástvaldss.
hluta I Krummahólum 2.
Borgarsjóður Rvikur selur Val-
gerði Kristjánsd. hli I Álftam.20
Steinþór Eiriksson selur Steindóri
Steinþórssyni hluta I Reynim 24.
Erlendur Jónsson selur Oddnýju
Ingimard. hluta I Álfheimum 58.
Arngrimur Magnússon selur
Elinu Jónsdóttur hluta I Skipa-
sundi 49.
Byggingafél. Einhamar selur
Gunnari Jóhannssyni hluta i
Alftahólum 6.
Rúnar Jakobsson selur Ragnari
Péturss. og Sigriði Siguröard.
hluta i Dvergabakka 20.
Sigrún Asta Kristinsd. og Ragnar
Siencke selja Sigurbirni H. Pálss.
hluta I Miklubraut 11.
Hörður Arnason selur Marinó
Guðmundss og Kolbrúnu Ólafsd.
hluta I Vesturbergi 78.
Rafn Bjarnason selur Guðrúnu
Einarsd. hluta i Sundl‘vegi 12.
Eirikur Ólafss. og Sigurlaug
Straumland selja Sigrúnu
Straumland hluta i Langagerði
18.
Ingimar Haraldsson selur Jónu
M. Eiriksd. og Ómari ö. Magn-
úss. hluta I Blikahólum 4.