Tíminn - 21.06.1975, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 21. júni 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
50
— Leyfðu mér að reyna, sagði Ward.
En Mitch ýtti honum einnig frá sér. — Allt í lagi með
mig, sagði ég. Varir hans voru rauðbólgnar. Höfuð hans
hneig niður og hann huldi andlitið með höndunum. —
Helvíti... Allt í lagi með mig.
— Auðvitað, sagði Ward. Hann greip Mitch þegar hann
seig niður á hnén.
— Ég — Jesús... tennurnar í mér...
— Ég veit það, sagði Teasle. Þeir Ward og hann lyftu
Mitch aftur upp. Singleton leit á Teasle og hristi höfuðið.
— Hvílíkt ástand. Sérðu hvað augun í honum eru sljó?
Líttu svo á sjálfan þig. Hvernig ætlar þú að lifa af nótt-
ina án skyrtu? Þú drepst úr kulda.
— Hafðu ekki áhyggjur af því. Svipastu um eftir Lest-
er og hinum mönnunum.
— En þeir eru löngu farnir.
— Ekki í þessu roki. Þeir sjá ekki það vel í þessu
skyggni að þeir geti fylgt beinni línu. Þeir eru á flakki
hér einhvers staðar. Við verðum að fara varlega ef við
rekumst á þá. Lester og ungi lögregluþjónninn eru svo
hræddir við að hitta piltinn, að þeir gætu haldið að við
værum hann. Þá skjóta þeir. Ég hef áður séð slíka hluti
gerast.
Snjóstormur í Kóreu. Varðmaður skaut mann úr eigin
liði vegna mistaka. Enginn tími til útskýringa. Teasle
hugsaði um þetta. Votviðrisnótt í Louisville. Tveir lög-
reglumenn rugluðust í ríminu og skutu hvor annan. Faðir
hans. Eitthvað þessu líkt haf ði hent föður hans. En hann
gat ekki fengið sig til að hugsa um það, né rif ja það upp.
— Komum okkur af stað, sagði hann snögglega. — Við
eigum langa leiðfyrir höndum. Okkur vex ekki styrkur-
inn.
Regnið skall á bak þeirra. Þeir studdu Mitch milli
trjánna. í fyrstu dró hann fæturna í leðjunni, svo tókst
honum að staulast áfram, en fótaburðurinn var óstöðug-
ur og göngulagið reikult.
Stríðshetja, hugsaði Teasle með sér. Bak hans var dof-
ið af köldu regninu. Pilturinn hafði sagt, að hann hefði
verið í stríðinu. En hverjum hefði dottið í hug að trúa
honum? Hvers vegna hafði hann ekki skýrt þetta nánar?
Hefði það breytt einhverju? Hefðir þú komið öðruvísi
fram við hann en alla aðra?
Nei. Það hefði ég ekki getað.
Gott og vel. Hahn veit líklega hvað hann á að gera við
þig þegar hann kemur. Hafðu þá áhyggjur af þeim lær-
dómi hans. Ef hann kemur. Kannski hef ur þú rangt fyrir
þér. Kannski kemur hann alls ekki.
Alltaf kom hann þó aftur til bæjarins, ekki satt? Hann
kemur líka núna. Fari það í helvíti. Hann kemur.
— Heyrðu mig — þú skelf.ur, sagði Singleton.
— Hugsa þú um Lester og hina mennina.
Hann gat ekki hætt að hugsa um það. Fætur þeirra
voru stíf ir af kuldanum og þeir áttu erf itt um gang. Þeir
héldu Mitch uppréttum og þrömmuðu þreytulega milli
trjánna í rigningunni. Teasle gat ekki stöðvað minning-
una um það, sem kom fyrir föður hans þennan laugar-
dag. Sex menn höfðu farið með honum á dádýraveiðar.
Faðir Teasles vildi fá hann með sér, en þrír mannanna
sögðu að hann væri of ungur. Föður hans hafði ekki líkað
hvernig þeir sögðu þetta. Þó lét hann undan. Þessi laug-
ardagur var fyrsti dagur veiðitímabilsins. Deilur hefðu
eyðilagt ánægju dagsins.
Nú rif jaðist þetta upp fyrir honum. Þeir komu sér fyr-
ir í uppþornuðum árfarvegi. I honum voru fersk dádýrs-
spor og tað. Faðir hans fór upp fyrir árfarveginn og olli
þar hávaða, sem átti að hræða dýrið niður farveginn, þar
sem mennirnir gátu séð það og skotið það. Reglan var:
Allir áttu að halda kyrru fyrir á sínum stað, svo enginn
yrði í vafa um hvar hinir væru. En einn mannanna var i
sinni fyrstu veiðiferð. Hann var þreyttur á þvi að biða
eftir dádýrinu nærri heilan dag. Þess vegna eigraði hann
af stað til að athuga hvað hann f yndi sjálf ur. Svo heyrði
hann hávaða, sá hreyf ingu í runna og skaut. Það lá við að
hann skyti höfuð föður Teasles i tvennt. Það munaði
minnstu, að ekki væri hægt að sýna ættingjunum likið.
Höfuðið var ennþá verr farið, en í fyrstu virtist. En út-
fararstjórinn notaði hárkollu á líkið. öllum kom saman
um að engu væri líkara, en hann væri enn á lífi. Orval
var með í þeirri för. Nú var hann líka fallinn fyrir bana-
skoti. Teasle studdi Mitch í storminum yfir hrygginn.
Hann óttaðist nú æ meir, að hann myndi einnig deyja
sjálf ur. Nú skimaði hann í kringum sig og athugaði hvort
Lester og þeir sem voru með honum, væru inn á milli
myrkra trjánna f ramundan. Teasle vissi að ef þeir villt-
ust og skytu í skelf ingaræði, væri engum um að kenna
nema honum sjálf um. Hvað voru menn hans, þegar á allt
var litið? Umferðarlögreglumenn á lágum árslaunum.
Lögreglumenn i litlum smábæ. Þeir voru þjálfaðir í að
hindra og koma upp um smábæjarglæpi. Alltaf vonuðu
þeir aðekkert alvarlegt gerðist. Hjálpin var alltaf nálæg
ef svo bar undir. Nú voru þeir hér, í hrikalegasta kletta-
belti Kentucky. Hjálp var hvergi nálæg. Þeir áttu í höggi
G
E
I
R
I
Þessi ókunni maóuT7
Geiri, hefur talaö '
Odysseif yfir á sitt
mál og gert'
ruglaðan.
Þaö kemur fyrir aö Dreki
þarf aö yfirgefa skóginn
og aílir veröa sorgmæddir
Laugardagur
21. júni.
7.00 Morgunútvarp Veður-
frengir kl. 7.00 8.15 og 10.10.
Morgunleikfbni H. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunst.ubarnanna kl.
8.45: Sverrir Kjartansson
lýkur lestri sögunnar
„Hamingjuleitarinnar” eft-
ir Ingólf Jónsson frá Prest-
bakka (4). Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl 10.25:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar
12.25 Fréttir og veöurfrengir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A þriðja tlmanum Páll
Heiöar Jónsson sér um þátt-
inn.
15.00 Dtitónleikar Sinfónfu-
hljómsveitar íslands i
Austurstræti. Stjórnandi:
Páll P. Pálsson. Kynnir:
Jón Múli Arnason.
15.45 1 umferöinni Árni Þór
Eymundsson stjórnar þætt-
inum. (16.00 Fréttir. 16.15
Veðurfrengir).
• 16.30 t léttum dúr Jón B.
Gunnlaugsson sér um þátt
með blönduðu efni.
17.20 Nýtt undir nálinni örn
Petersen annast dægur-
lagaþátt.
18.10 Síödegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Véðurfrengir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hálftíminn Ingólfur
Margeirsson og Lárus
Óskarsson sjá um þáttinn,
sem fjallar um afþreyingar-
rit.
20.00 Hijómpiöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 „Sálarkvöl þeirra er
samviska vor”Ingi Karl Jó-
hannesson og Gisli J. Ást-
þórsson taka saman þátt um
samtökin „Amnesty Inter-
national” og baráttu þeirra
fyrir mannréttindum og
skoðanafrelsi.
21.15 Létt tónlist frá hollenska
útvarpinu
21.45 Ljóö eftir Jón úr Vör.
Knútur R. Magnússon les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Danslög
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur
21. júni
18.00 iþróttir. Umsjónarmaö-
ur ómar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Eisku pabbi.Brezk gam-
anmynd. Bækur biskupsins.
Þýöandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
20.55 Á ferö og flugi. Guö-
mundur Jónsson, söngvari,
heimsækir Sauðárkrók og
leggur spurningar fyrir
bæjarbúa. Umsjónarmaður
Tage Ammendrup. Þáttur-
inn var kvikmyndaður i
aprilbyrjun.
21.45 Rolf Harris. Skemmti-
þáttur, þar sem ástralski
söngvarinn Rolf Harris og
fleiri flytja létt lög og
skemmtiefni ýmiss konar.
22.25 Alla leiö á toppinn.Brezk
gamanmynd frá árinu 1970.
Leikstjóri James MacTagg-
art. Aðalhlutverk Warren
Mitchell, Elaine Taylor, Pat
Heywood og Frank Thorn-
ton. Aðalpersóna myndar-
innar er miðaldra trygg-
ingasölumaður, sem búinn
er að koma sér vel fyrir I lif-
inu, en er þó ákveðinn i að
ná enn lengra, og beitir til
þess ýmsum ráðum. Kona
hans og börn styðja hann
dyggilega í þessari baráttu
en margt gengur þó öðruvisi
en ætlað er.
23.55 Dagskrárlok.