Tíminn - 21.06.1975, Blaðsíða 13
Laugardagur 21. júni 1975.
TÍMINN
13
Hvers konar iþrótta-
forustu höfum við i
borginni?
Það er ekki oft, sem fjallað er
um málefni íþróttamanna i
dálkum Landfara. Enhér á eftir
fer bréf frá reiðum föður, sem
kvartar undan vitaverðu áhuga-
leysi sumra forystumanna
iþróttamála gagnvart ungling-
um. Landfara er kunnugt um að
atvik það, sem fékk bréfritara
til að setjast niður og skrifa
Landfara, er þvi miður ekkert
einsdæmi. En hér ki:murbréfið:
,,Ég skrifa þessar iinur sem
mjög reiður faðir ungs iþrótta-
manns.
Margsinnis höfum við orðið
vitni að þvi, að kappleikir hafa
fallið niður vegna þess, að dóm-
arar eða aðrir svo kallaðir for-
ustumenn iþróttahreyfingarinn-
ar hafa ekki mætt til leiks.
Mér er kunnugt um að margir
hinna ungu iþróttamanna leggja
hart að sér til þess að geta mætt
til kappleikja eða æfinga, sem
svo hafa fallið niður vegna þess
að þeir, sem forustuna eiga að
hafa, láta sig vanta, þannig að
ekkert verður úr neinu.
Sjálfur er ég fyrrverandi
iþróttamaður og iþróttaunnandi
ennþá, og mér gremst meira en
ég fai orðum að komið það
óskaplega sinnuleysi, sem ungir
iþróttamenn eiga við að búa af
hálfu forustunnar.
Við erum að vonum stoltir um
þessar mundir af afrekum
knattspyrnumanna okkar i sið-
ustu leikjum.
En hvernig halda menn að
landslið Islendinga i knatt-
spyrnu eftir um það bil 5-10 ár
komi til með að standast Sam-
keppnina, ef svo verður haldið
áfram sem nú, að verðandi
keppendum sé aðeins sýnt tóm'
læti og litilsvirðing?
Ég skora á iþróttaforustuna
að láta ekki áhugalausa og dug-
lausa einstaklinga eyðileggja
heilbrigðan áhuga á knatt-
spyrnuiþróttinni, en á þvi eru
allar likur, ef svo heldur fram
sem nú horfir.
E.A.
Eitt verka Mattheu Jónsdóttur.
íslenzkur listamaður hlýtur
viðurkenningu erlendis
HJ-Reykjavik. Timanum hefur
borizt tilkynning frá
Beigísk-spánska menningarsam-
bandinu I Brussel, þar sem til-
kynnt er, að íslenzka iistmálaran-
um Mattheu Jónsdóttur hafi verið
veitt opinber viðurkenning fyrir
ágæti verka sinna. í tilkynning-
unni segir: „Stórkanslari
Belgisk-spánska menningarsam-
bandsins hefur með fulltingi
stjórnarnefndar og samkvæmt
regluin þess sæmt frú Mattheu
Jónsdóttur riddarakrossi offis-
cera af Merito Belgo Hispanico
frá hinum 18. júlí 1975 vegna
ágætis verka sinna”.
Matthea Jónsdóttir er þátttak-
andi I myndlistarsýningu átta fé-
laga i F.I.M., en hún stendur nú
yfir i húsi Arkitektafélags tslands
við Grensásveg, og er þar kynnt-
ur nýr sýningarsalur, sem F.I.M.
mun hafa aðstöðu i.
Þá má geta þess, að Matthea
Jónsdottir var þátttakandi i
alþjóðlegri myndlistarsýningu
sem nýlega lauk I Lyon i Frakk-
landi. Sýning þessi var haldin á
vegum listkynningarsambands-
ins „Art Contemporain Inter-
national”. Listkynningarsam-
bandið lætur — i samvinnu við
listtimarit frönsku listasafnanna
,,La Revue Moderne” I Parls —
gera sérstaka árbók meó frá-
sögnum og myndum af verkum
listafólks, sem hlotið hefur viður-
kenningu að þess tilhlutan. I ár-
bók þessari mun verka Mattheu
Jónsdóttur verða getið, en bók-
inni er dreift til listasafna og fjöl-
margra aðila i ýmsum löndum.
Poul Hansen í Norræna
húsinu
JG-RVK. Danskur listmálari,
POUL HANSEN, opnar nú um
helgina málverkasýningu i Nor-
ræna liúsinu, en þar sýnir hann
alls um 46 verk.
Poul Hansen stendur á sjötugu
og hóf ekki að mála málverk fyrr
en um fimmtugt. Hann var áður
kaupsýslumaður, að þvi er segir i
bréfi til Timans frá Norræna hús-
inu. Verk hans eru nú eftirsótt i
Danmörku.
Poul Hansen hefur haldið fjölda
sýninga, flestar i Danmörku. Enn
fremur hefur hann sýnt iSviþjóð.
Þá hefur hann einnig tekið þátt i
samsýningum danskra málara
siðan árið 1955.
Sýningin verður opin 21,—29.
júni, að báðum dögum meðtöld-
um.
Málverk eftir Poul Hansen
jumar■■
töfflur
Kr. 750.
GEFJIIN Austurstræti
DOMIIS Laugavegi 91
Auglýsingadeildin
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM