Tíminn - 21.06.1975, Side 16

Tíminn - 21.06.1975, Side 16
Laugardagur 21. júni 1975. Nútíma búskapur þarfnast BHUER haugsugu Guöbjörn Guójónsson fyrir góóan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Þjarmað að kirkjunnar mönnum í Chile Reuter-Genf. Alkirkjuráðið hef- ur beðið allar kirkjudeildir inn- an sinna vébanda að beita áhrif- um sinum til að veita lútersku kirkjunni i Chile stuðning, og leita til rikisstjórna landanna um ab þær beiti áhrifum sinum til að ofsóknum stjórnvalda i Chile á hendur kirkjunni linni, og að trúfrelsi verði virt i land- Chilestjórn er beðin að hætta ofsóknum sinum á hendur lúterska biskupnum Helmut Frenz, sem barðist fyrir þvi eftir að Allende var ráðinn af dögum, að 10 þúsund fylgis- menn hans fengu að flytja úr landi. „Kirkjan aðstoðar nauðgara og morðingja ii Reuter-Marandellas, Rhodesiu. Ráðherra i Rhodesiustjórn ásakaði i gær Alkirkjuráðið um að styðfa nauðgara og slátrara siðferðíega og fjárhagslega. Heilbrigðisráðherra landsins Rovan Croje sagði, að Alkirkju- ráðið s^ndi hryðjuverkamönn- um peninga og aðstoðaði þá á allan hátt, og væri sagt að að- stoðin færi til menntunar og heilsugæzlu, en sannleikurinn væri sá, að peningarnir færu til hryðjuverkasamtaka, sem notuðu þá til vopnakaupa til að myrða saklausa Afrikuibúa. Leiðtogar stríðandi afla Angola nó sam- komulagi Reuter—Nakuru, Kenya. Leið- togar hinna þriggja strfðandi frelsishreyfinga Angola, sem nú ræðast við, reyndu í gær að ná samkomulagi um að halda kosningar i landinu þegar það fær sjálfstæði. Er búizt við, að viku- löngum fundi leiðtoganna ljúki i dag, og að einhvers konar sam- komulag náist um framtiðarskip- an mála. Leiðtogarnir hafa komið sér saman um að mynda einn her úr fylkingum þeim,sem þeirráða nú yfir, og eru þeir bjartsýnir á að fundi þeirra ljúki i sátt og sam- lyndi. Fundurinn hófst s.l. mánudag og er markmiðið að stöðva hina blóðugu baráttu frelsisfylking- anna um völdin i landinu, sem, kostað hefur hundruð manna lifið og vinna saman með nýlendu- herrunum fyrrverandi, Portúgöl- um, þar til Angóla fær sjálfstæði 11. nóvember n.k. Eitt mikilsverðasta málið sem leyst hefur verið á fundinum er, að kosningar verða haldnar i landinu eftir að sjálfstæði er feng- ið. Frelsisfylkingaleiðtogarnir munu halda fleiri fundi, og verða þeir i Angola að þvi er þeir segja. Karpov öruggur með sigur NTB Ljubliana. Siðasta og 15. umferð Vidmar Skákmótsins i Ljubliana i Júgóslaviu er tefld i dag. Sérfræðingar telja Karpov öruggan um að vinna fyrsiu verðlaun, 2.000 bandarikjadaíi, en hann teflir i lokaumferöinni við Marjan Karnar, sem er neðstur i röðinni á mótinu. Niðurs*aða biðskákanna úr 12. umferð: Parma Júgóslaviu 1/2, Portisch Ungverjaland 1/2. Staðan eftir 14. umferð: Karpov, 10 1/2, Gligoric 9 1/2, Hort og Furman 9, Ribli 8 1/2, Ljoubeovic og Parma 8, Portisch 7 1/2, Velimirovic og Barle 7, Planic 6 1/2, Marionotti 6, Garcia 5, Musil 4 1/2, Osterman 3 1/2, Karnar 2 1/2. 60 milljón dollarar greiddir í lausnargjald Reuter—Buenos Aires. Auðhring- urinn Bunge & Born i Argenti'nu greiddi 60 milljón dollara lausnargjald fyrir tvo af forstjór- um fyrirtækisins, sem vinstri- sinnaðir skæruliðar rændu. beir, sem lausnargjaldið var greitt fyrir, eru bræður, Juan og Jorge Born. Var þeim rænt fyrir niu mánuðum. Bræðurnir eru báðir um fertugt. öðrum þeirra var sleppt i gær, en búizt er við að hinn verði látinn laus i dag. Bræðrunum var rænt 19. sept. s.l. af hópi vinstrisinnaðra Peron- ista, er þeir voru akandi á leið til vinnu. Þetta er hæsta lausnar- gjald sem greitt hefur verið i Argentinu. Fyrra metið var að- eins 14.2millj. dollara, en það var márxistfskum skæruliðum greitt fyrir forstjóra sem þeir rændu. Glæpamað- ur bendlað- ur við CIA myrtur Reuter—Chicago. Nokkrum klukkustundum eftir að Giancana, sem er velþekktur i undirheimum Chicagoborgar v.ar bertdlaður við samsæri CIA um að myrða Castro, var .hann skotinn sex skotum i höf- , uðið. 1 fyrradag skýrði New York Times frá þvi að Giancana hafi verið á' snærum leyniþjónustunuar á sinum tima og hafi,hann átt að eitra fyrirCastro, bróður hansRaul og Che Guevara.'Skömmu áð- ur. en Giancana var skotinn •kom hdhn fyrir rétt i Chicago tilað vitna um glæpastarfsemi i. Borginni, og hafði honum verið heitii vernd fyrir samn ingslipurð sína. • Giancana sagði dómstólnum frá að fjártmagn strfeymdi frá glæpalýð Chicagoborgar til Suður-Ameriku, þar sem féð væri,notað til að setja spilaviti á fót. Giancana hefur á undan- förnum árum oft verið i ferð- um milli Bandarikjanna og Suður-Amerikurikja. Hefur hann áður verið bendlaður við að hafa átt a£> myrða Castro, ogaðCIAhafi falið honum það verkefni. Atnin beðinn um miskunn Forsætisráð- herrar Norður- landa biðja Idi Amin að þyrma lífi Hills Reuter-Oslo-Nairobi. For- sætisráðherrar Norðurland- anna fimm sendu Idi Amin skeyti i gær og fóru fram á að forsetinn beitti áhrifum sinum til að brezki fræðimaðurinn Denis Hill verði ekki liflátinn, en hann hefur verið dæmdur til lifláts og er gefið að sök, að hafa farið óvirðulegum orðum um Ugandaforseta i óútkom- inni bók. Samkvæmt dómnum verður Hill skotinn n.k. mánu- dag. Idi Amin vill ekkert tala við tvofyrrverandi hershöfðingja, sem Elisabet II. sendi til Ug-4 anda til að tala um fyrir for- setanum, og biðja hann að náða Hill. Idi Amin segir, að eina leiðin til að dómnum verði breytt sé að Challagan utanrikisráðherra komi til landsins og ræði við sig. Rússar smíða enn fullkomn- ari kjarnorkueldflaugar Verkfalli aflýst í Bretlandi Reuter—London. Járnbrautar- starfsmenn i Bretlandi hafa hætt viö aö fara I verkfall, sem hefjast átti á mánudag, og taka tilboði um 30% launahækkun. 1 Bretlandi voru menn orðnir mjög áhyggju- fullir vegna verkfallshótunar járnbrautarstarfsmanna, og var óttazt að stöðvun járnbrautanna gæti haft slæmar afleiðingar fyrir bágborinn efnahag landsins, og þá stefnu stjórnvalda að halda verðbólgunni innan við 25% á ár- inu. Reuter—Washington. Sovétríkin hafa umráð yfir eldflaugum, sem hægt er aö skjóta heimsálfa á milli, sem eru búnar mörgum kjarnorkuoddum, sem dreifast á mörg skotmörk, upplýsti James Schlesinger, varnarmálaráð- herra Bandarikjanna á blaða- mannafundi i gær. Ráðherra hefur fyrr á þessu ári skýrt frá þvi, að Rússar hafi smiðað geysiöflugar eldflaugar til að bera kjarnorkuvopn langar leiðir, en ekki hefur áður verið upplýst, að þær geta borið marg- ar kjarnorkusprengjur hver. Ráðherrann sagði að 50 eld- flaugum, sem skjóta má heims- álfa á milli og búnar eru sex kjarnorkusprengjum hver og 10 eldflaugum með fjórum sprengj- um i trjónunni hafi verið komið fyrir i niðurgröfnum skotpöllum. Schlesinger sagði, að i þessum mánuði hafi Rússar gert tilraunir með eldflaugar á Kyrrahafi, og að þeir væru færir um að koma 7 kjarnorkusprengjum fyrir i stærstu flaugunum. Ráðherrann sagði, að þetta kæmi Bandarikja- mönnum á óvart. En siðustu tilraunir Sovétmanna sýndu, að þeir væru búnir að búa eldflaugar sinar betri miðunartækjum og þær væru beinskeyttari en áður. Hann sagði að Bandarikin mundu ekki taka þátt i kapphlaupi við Sovétrlkinum smiði slikra vopna, og ættu þeir svo fullkomnar eld- flaugar og kjarnorkuvopn, að það væri allt i lagi þótt Rússar færu eitthvað fram úr þeim á þvi sviði, en að lokum sagði hann þó, að ef brýna nauðsyn bæri til væru Bandarikjamenn fullkomlega færir um að smiða enn áhrifa- meiri vopn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.