Tíminn - 22.06.1975, Page 1

Tíminn - 22.06.1975, Page 1
FELL S.F. Egils- stöðum Sími Slöngur og tengi Heildsala Smásala 139. tbl. —Þriðjudagur 22. júni 1975 — 59. árgangur FÍB með aðra bifreíða- keppni í sept. n.k. BORGARSTJÓRI: 45 MILLJÓNA AUKIN ÚTGJÖLD — glannaskapur að röð- ast í stórframkvæmdir BH-Reykjavlk.— Otgjöld borgar- innar vegna nýafstaðinna kjara- samninga nema 45 milljónum króna, sagði Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri á borgarst jórnarf undi sl. fimmtudag. Kvað borgarstjóri með tilliti til þessa, auk þess sem framkvæmdafé borgarinnar færi ryrnandi með hverjum deginum sem liði, að það væri blátt áfram glannalegt að leggja i nokkrar stórframkvæmdir á vegum borgarinnar núna. Það hefði verið >með hálfum huga, sem ákveðið hefði verið að fara af stað með Furugerðishúsið til þess að bæta úr brýnni þörf langlegu- sjúklinga og aldraðra. Slikt málefni hlyti þó að hafa forgang, og yrði borgin að vera undir það búin að taka slikar skuld- bindingar á sig umfram annað. Milljarður í flugvelli norðanlands ---------* 3 FJ-Reykjavfk. Félag islenzkra bifreiðaeigenda stefnir nú að þvi að halda aðra bifreiða- keppni i september n.k., en fyrsta keppni slik hér á landi fór fram 24. mai sl., og þótti takast ágætlega. Með þessari undirbúnings- keppni er F.Í.B. að leggja grundvöll að alþjóðlegri bif- reiðakeppni hér á landi, en til þess að af sllkri keppni geti orð- ið þarf lagabreytingar, þar sem núgildandi umferðarlög eru of þröng fyrir alþjóðakeppni af þessu tagi. Ráðgert er að akstursleiðin i keppninni i september verði allt að 500 km, en i mai-keppninni voru eknir röskir 154 km A BLS. 6—7 BIRTUM VIÐ HEILDARUR- SLITIN ÚR KEPPNINNI 24. MAÍ S.L. —6—7 FUNDUR GEIRS OG BREZKRA RÁÐHERRA: Bretar lýstu óhuga sínum á nýjum fiskveiðisamningi — forsætisróðherra ræddi það mól ekki en skýrði fró útfærslunni í 200 mílur Halldór E. Sigurðsson, samgönguróðherra: Ríkissl ■jórnin orðin þreytt á verkfallinu BH-Reykjavik. — Það er þungt i rikisstjórninni yfir þvi, að togara- deilan skuli ekki leysast, sagði Halldór E. Sigurðsson samgöngu- ráðherra, i viðtali við Timann i gærkvöldi. — Við teljum, að rikisstjórnin hafi gert sitt til þess að finna lausn á þessum vanda. Við rædd- um við útvegsmenn, áður en verkfallið kom til framkvæmda, og fíáfum þeim fyrirheit um að- stoð við útgerðina. m.a. með lengingu á lánum. Engu að siður skall verkfallið á. Við ræddum aftur við þá um miðja siðustu viku, og komum enn til móts við þá með fyrirgreiðslu við útgerð- ina, og enn er verkfallið óleyst. Halldór E. Sigurðsson kvað sáttatillögu hljóta að vera annað hvort á döfinni eða fram komna hjá samninganefndunum, og þeg- ar við fórum á stúfana til að kanna málið um kvöldmatarleyt- ið, voru miklar annir hjá sátta- semjara, og sáttanefndarmenn- irnir Guðlaugur Þorvaldsson, Ragnar Olafsson og Jón Sigurðs- son hinir ibyggnustu á svipinn, enda þótt við fengjum ekki aðrar upplýsingar en þær, að fulltrúar yfirmanna og útgerðarmenn væru á lokuðum fundi, en fulltrú- ar sjómanna sætu hjá og biðu átekta. Þá voru uppi fregnir um það, að verulega hefði þokazt i sam- komulagsátt i fyrrinótt, en þá stóðu fundir til kl. 3, — og var talið fullvist, að samkomulag hefði orðið um mannahaldið á togurunum, en ýfingar væru enn með mönnum út af kaupgjaldinu. Þegar blaðið fór i prentun um miðnætti var allt við það sama og áður — fulltrúar yfirmanna og út- gerðarmenn ræddust við, sjómenn biðu — og eitthvað lá I loftinu. FJ-Reykjavik.— Bretarnir lýstu áhuga á nýjum fiskveiðisamningi við okkur, en Geir kvaðst ekki reiðubúinn að ræða það mál neitt að þessu sinni. Það má eiginlega segja, að þetta hafi verið kurteisisheimsókn, þar sem almennt var skipzt á skoðunum um hafréttarmál og samskipti ís- lands og Breta, sagði Niels P. Sigurðsson, sendiherra i London, i viðtali við Timann i gær um viðræður þær, sem Geir Hallgrimsson, forsætirráðherra átti við Harold Wilson forsætis- ráðherra Breta, og Callagan utanríkisráðherra i London I gær. Auk framangreindra ráðherra og Nielsar tók Bishop, brezki að- stoðarfiskimólaráðherrann einnig þátt i viðræðunum. — Geir tilkynnti brezku ráðherrunum, að viö myndum færa út i 200 milur siðar á þessu ári, en það myndi ekki koma fram gagnvart Bretum fyrr en 13. nóvember, þegar núgildandi fisk- veiðisamningur rennur út, sagði Niels. Niels kvað fund þennan hafa verið ákveðinn um helgina. For- sætisráðherra átti leið um London á heimleið af fundi samstarfs- ráðherra Norðurlanda i Stokkhólmi. — Reglan er sú, að við tilkynnum brezka utanrikis- ráðuneytinu, jafnan, þegar is- lenzkir ráðherrar eru á ferð hér um, sagði Niels. Og þegar Bretar fengu vitneskju um dvöl Geirs, óskuðu þeir eftir viðræðufundi við hann um landhelgismál. Fundurinn fór fram i hádeginu i gær I embættisbústað brezka for- sætisráðherrans að Downing Street 10. Þessi júnímánuður einn sá kaldasti allt frá aldamótum HJ-Reykjavik. — Veðurguðiirn- ir hafa ekki sýnt okkur íslend- ingum sinar beztu hliðar þetta vorið fremur en mörg önnur. Að sögn Páls Bergþórssonar veður- fræðings er þessi júnfmánuðir I hópi hinna köldustu frá alda- mótum, en ber þó ekki af. — Mér sýnist, sagði Páll, að verði hiti það sem af eftir er af mánuðinum i meðallagi, muni meðalhitinn i júni i Stykkishólmi verða um 7 stig, en það er sami meðalhiti og árið 1968, árið 1952 var hann stig, 1922, 7.1 stig 1910 6,8 stig og 1907 5,9 stig, og eru þetta köldustu júnimánuðirnir frá aldamótum. —Þó hefur kuldínn i vor verið' mestur á Norðurlandi og ann- esjum norðanlands, og mér virðist allar lfkur benda til þess, að grasspretta i ár verði svipuð eða jafnvel heldur minni en undanfarin ár, þrátt fyrir að túnin stækki frá ári til árs. Hefði vel árað voru allar likur til að 4 millj. rúmmetra af töðu fengj- ust, en nú er ekki útlit fyrir að þeir veröi meira en 3,5.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.