Tíminn - 26.06.1975, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 26. júni 1975.
Nútíma búskapurþarfnast
ppiifSR
hauqsuqu
Guöbjörn
Guðjónsson
sis-fodiju
SUNDAHÖFN
■<r?
G0ÐI
fyrirgóöan ntai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Eru stjórnmálaofsóknir
í aðsigi á Spáni?
ggjöf, er beinist gegn starfsemi spænskra
íúnista, er sósíalistum þyrnir í augum
drid. Sósialistar A <Tarl°suArias Navarro tor- nýju löggjöfinni yrði
... . . sætisráðherra saeðl ! bing- UPOn nllnm sfirtrnnranHs
Keuter-Madrid. Sósialistar á
Spáni hafa lýst áhyggjum sin-
um vegna þess áforms
spænsku stjórnarinnar að
setja nýja löggjöf, er sérstak-
lega sé beint gegn starfsemi
kommúnista i landinu. Óttast
sósialistar, að hin nýja löggjöf
taki I raun til allra vinstri
sinna og bæli niður alla and-
spyrnu gegn spænskum yfir-
völdum.
Carlos Arias Navarro for-
sætisráðherra sagði i þing-
ræðu i fyrradag, að stjórn sin
hefði i hyggju að setja ný lög
siðar á þessu ári, til að upp-
ræta ólöglega starfsemi
kommúnista á Spáni. Starf-
semi spænskra kommúnista-
flokksins hefur verið bönnuð
frá árinu 1939.)
Talsmaður spænska sósial-
istafl. sagöi i viðtali við
fréttamann Reuters i gær, að
nýju löggjöfinni yrði beitt
gegn öllum stjórnarandstöðu-
flokkum á Spáni. Fréttaskýr-
endur i Madrid hafa aftur á
móti bent á, að fyrirætlun
stjórnarinnar sé liklega að
bæta sambúðina við aðra
stjórnarandstæðinga en
kommúnista — en vaxandi
andstöðu virðist nú gæta með-
al Spánverja á gerðum
Francós og meðreiðarsveina
hans.
AAocambique er nú
sjálfstætt rfki
Féröamiöstöðin hf.
Aðalstræti 9 Símar 11255 og 12940
NTB/Reuter—New York/Wash-
intton — í gær unnu sérfræðingar
baki brotnu að rannsókn hins
mikla fiugsiyss á Kennedyflug-
velli við New York. 1 slysinu —
sem er annað mesta flugslys I
bandariskri flugsögu — létu 109
lifið af 123, er um borð voru.
Þota sú, er i hlut átti, er af
gerðinni Boeing 727 og er i eigu
bandariska flugfélagsins Eastern
Airlines. Hún var i aðflugi að
Kennedy-flugvelli, þegar hún
steyptist skyndilega til jarðar.
Sú skýring hefur komið fram,
að þotan hafi orðið fyrir eldingu,
en slagveður var, er slysið varð.
Sérfræðingar beina þvi athygli
sinni að þeim möguleika við
rannsókn slyssins, en aðrir mögu-
leikar eru: Mistök i flugumferð-
arstjórn eða ófullkominn lending-
arbúnaður. Búizt er við, að
skýrsla um orsakir slyssins liggi
fyrir innan hálfs mánaðar.
Þess má geta, að af þeim 109 er
létu lífið i flugslysinu, voru 17
Norðmenn og að likindum 2
Danir, að sögn NTB.
Spánarferðir
Blaðberar óskast
í Kópavog
Fímuhvammsveg og
Víðihvamm
Umboðsmaður Tímans
Sími 4-20-73
NTB/Reuter-Dar es Salaam. 1
fyrradag var gerð tilraun til að
bjarga þrem stúdentum — tveim
Bandarikjamönnum og einum
HoIIendingi — úr klóm vinstri
sinnaðra skæruliða i Zaire. Stú-
dentunum var rænt fyrir rúmum
mánuði og talið að þeir séu i haldi
i grennd við Tanganyika-vatn
Zaire megin.
Ættingjar stúdentanna fóru
á báti þvert yfir vatnið i þvi
skyni að fá þá lausa, að sögn
gegn greiðslu álitlegrar upp-
hæðar i lausnargjald. Fyrir-
ætlun þeirra varð hinsvegar
að engu, er varðbátur frá
Zaire hindraði för þeirra um
vatnið.
Frelimo tryggð öll pólitísk völd
í landinu í nýrri stjórnarskrá
NTB—Lourenco Marques —
Samara Machel sór I gær eið sem
fyrsti forseti hins nýstofnaða rikis
Enn er bar-
izt í Beirut
NTB/Reuter — Beirut. 1 gær
var skipzt á skotum i tveim af
úthverfum Beirut, höfuðborg-
ar Libanon. Hin nýju átök hafa
aukið mjög spennuna i
libönskum stjórnmálum, en
stjórnmálaástandið i landinu
var ótryggt fyrir.
öryggissveitir reyndu að
stilla til friðar, en án verulegs
árangurs, þar eð enn var bar-
izt af heift I borgarhverfunum
stðdegis I gær.
Areiðanlegar fréttir herma,
að hin nýju átök — sem eru
visast á milli falangista og
palestinuskæruliða — hafi
kostað fjögur mannslif, en
fjöldi manna hefur særzt i viö-
ureigninni.
Mosambique. Stuttu áður haföi
lokið nær fimm alda langri stjórn
Portúgala f landinu.
Mocambique var formlega lýst
sjálfstætt rfki á miðnætti i fyrri-
nótt. Um leið tók gildi stjórnar-
skrá fyrir hið nýstofnaða lýð-
veldi, þar sem æðstu völd rikisins
eru lögð i hendur forseta, rikis-
stjórnar og löggjafarþings, er
skipað skal 210 fulltrúum.
Stjórnarskráin áskilur, að
FRELIMO — þjóðfrelsishreyfing
landsins — hafi I raun og veru
æðsta pólitiskt vald í landinu.
Hreyfingunni er t.d. ætlað að
skipa hluta af fulltrúum á lög-
gjafarþinginu i samráði við for-
seta og her landsins, en hinn hlut-
inn skal kosinn i beinum, lýðræð-
islegum kosningum.
Þá er rikinu tryggður yfirráöa-
réttur yfir öllum náttúrurauðæf-
um landsins, en að öðru leyti er
eignarréttur virtur, brjóti hann
ekki i bága við hagsmuni þjóðar-
innar. önnur mannréttindi eru og
áskilin i hirini nýju stjórnarskrá
Mocambique.
Gandhi i hópi stuðningsmanna eftir að dómur hafði fallið henni i óhag.
Landsbarótta gegn
Gandhi
Hiti færist í stjórnmálaátök
NTB/Reuter—Nýju Delhi —
Fjöldi þekktra stjórnarandstæö-
inga á Indlandi hefur beitt sér
fyrir stofnun landsnefndar.
Flugslysið á Kennedy-flugvelli:
Varð þotan fyrir eldingu?
Annað mesta flugslysið í bandarískri flugsögu
Markmið nefndarinnar er að
reyna með öllum tiltækum — en
þó friðsamlegum — ráðum að
knýja fram afsögn Indiru Gandhi
forsætisráðherra.
Fyrstu aðgerðir i þessari lands-
baráttu gegn Gandhi verða svo-
nefnd „friðsöm mótmæli”, er
standa eiga i viku um allt Ind-
land. A sama tima er ætlunin, að
hópar fólks fari fótgangandi að
heimili Gandhi I Nýju Delhi til að
leggja áherzlu á kröfuna um af-
sögn.
Undirrótin fyrir þessari mót-
mælaöldu er að sjálfsögðu dómur
sá, er nýlega var kveðinn upp i
hæstarétti eins fylkjanna á Ind-
landi og svipti Gandhi embættis-
og kjörgengi vegna kosningamis-
ferlis. Hún áfrýjaöi dómnum til
hæstaréttar landsins, er kvað upp
bráðabirgðaúrskurð í máli henn-
ar I fyrradag. t úrskurðinum er
forsætisráðherrann sviptur rétti
til að taka þátt f atkvæðagreiðslu
á indverska þinginu — hins vegar
er Gandhi leyft að gegna ráð-
herraembætti, unz fullnaðardóm-
ur gengur i málinu.