Tíminn - 27.06.1975, Page 1

Tíminn - 27.06.1975, Page 1
"mr Egils- stöðum Sími 97-1179 Slöngur og tengi Heildsala Smásala TARPAULIN RISSKEMMUR 142. tbl. — Föstudagur 27. júnil975 — 59. árgangur HF HORÐUR GUNNARSSON SKÚLATUNh6 - SÍMI (91)19460 Undirmenn biðu eftir að geta skrifað undir: Yfirmenn og útgerð- armenn deildu hart — undirmenn höfðu náð 50—60% kauphækkun BH-Reykjavlk. — Sú furðulega staða kom upp i samningavið- ræðunum í gærkvöldi, að undir miðnætti var komið svo, að ekk- ert útlit varfyrir, að samkomulag yrði undirritað um óákveðinn tima. Þá höfðu undirmenn komizt að samkomulagi við útgerðar- menn, og biðu eftir að geta undir- ritað, — en að þvi er bezt varð séð, hafði eitthvert eitt atriði orðið það þungt á metunum I við- ræðum yfirmanna og útgerðar- manna, að ljóst var, að ekkert samkomulag yrði undirritað fyrr en náðzt hefði samkomulag um það. Um eðli þessa atriðis voru allir aðiiar ófáanlegir til að tjá sig um, en á ýmsum mátti skilja það, að dregizt gæti á langinn að sam- komulag næðist um það, — og ekkert yrði undirritað fyrr, jafn- vel þótt það drægist dögum saman. A miðnætti hafði sátta- fundurinn staðið látlaust i 55 klukkustundir. Rikissáttasemjari vildi ekkert segja um samkomu- lagslikur, og var engu Hkara en siðasta uppákoman hefði komið honum og sáttanefnd á óvart, þvi að um sjö-leytið var gefið matar- hlé til klukkan niu, og jafnvel gert ráð fyrir undirritun strax að matarhléi loknu. A tiunda timanum i gærkvöldi voru fulltrúar undirmanna farnir að biöa eftir að geta undirritað samkomulagið, og töldu sig hafa náð samkomulagi við útgerðar- menn, sem er eitthvað á þessa leið: Kaup undirmanna hækkar frá undirritunardegi sem hér segir: og er þá miðað við mánaðarlaun. Hásetar fá 54.000,00 kr. höfðu áöur 32.628,00 netjamenn fá 58.000,00 kr., höfðu áður kr. 36.683,00 og bátsmenn og mat- sveinar fá kr. 68.000,00 en höfðu áður kr. 42.787,00. Hér er um að ræða hækkun sem nemur 50-60%, en taka verður með i reikninginn, að kjarabætur togarasjómanna eru litlar sem engar siðastliðin tvö ár, t.d. fengu þeir hvorki lág- launabætur né prósentur eins og aörir launþegar. Þá er einnig kveðið svo á, að ef verulegar kauphækkanir verða hjá launafólki i landi, skuli laun togarasjómanna hækka um sömu prósentu. Einnig hækkar tima- kaup og aðrir kaupliðir hlutfalls- lega. Það er eftirtektarvert, að gildistimi samningsins er áætlaður frá undirritunardegi til 31. desember 1976. Svo miklar likur þóttu á sam- komulagi um kvöldmatarleytið, að þá þegar var farið að boða félagsfundi til afgreiðslu væntan- legs samkomulags. Var þá farið að boða félagsfundi i sjómanna- félögunum, meðal annars var boðað til fundar i Sjómannafélagi Reykjavikur kl. 1.30 i Lindarbæ, ákveðið var að halda félagsfund i Sjómannafélagi Eyjafjarðar i Al- þýðuhúsinu á Akureyri kl. 5 i dag og vitað var, að Sjómannafélag Hafnarfjarðar myndi halda fund siðdegis I dag — að þvi tilskildu, að samkomulag yrði undirritaö. Að þessu sinni verður sá háttur hafður á, að atkvæði i allsherjar- atkvæðagreiðslunum yrðu talin saman, þannig að sameiginlegur meirihluti réöi úrslitum. Var ráð fyrir þvi gert, að allsherjarat- kvæðagreiðsla færi fram að lokn- um félagsfundum. Jón Sigurðsson: Verulegur árangur BH-Reykjavik. — Arangurinn varð 'verulegur, en við erum lika búnir að standa lengi i þessuni samningum, sagði Jón Sigurðsson, forseti Sjó- mannasambandsins við Tim- ann á tiunda timanum i gær, þegar útlit var fyrir, aö sam- komulag yrði undirritað á hverri stundu, og undirmenn töldu sig hafa lokiö samnings- gerð sinni. — Við erum aö visu sjaldan eða aldrei alveg ánægðir, enda var þörfin fyrir kjarabætur togarasjómanna rikari en hjá öðrum stéttum. Jón Sigurösson minnti á kjarabætur annara stétta á undanförnum tvcim árum, sem togarasjómcnn hefðu far- ið á mis við, og sagði að lok- um: — Við geröum liins vegar ekki kröfu til að fá okkar hlut með vöxtum og vaxtavöxtum yfir þetta timabil — við reynd- um það svosem, en það var bara skellt skollaeyrum viö þvi. BREIÐHOLT III o OLNBOGABARN BORGARINNAR Sláttur hefst ekki almennt fyrr en um miðjan júlí SJ-Reykjavík -^Ég geri ráð fyrir þvi að sláttur hefjist almennt hálfum mánuði til þrem vikum á eftir þvi sem venja er á góðum árum, eða ekki fyrr en um miðjan jdli. Þetta er svona svipað og i isaárum. Svo fórust Halldóri Pálssyni búnaðarmálastjóra við Timann i gær. orð KAUPA SKROKKINN I SKUT- TOGARA FRÁ NOREGI BH—Reykjavik — Útgerðarfélag Dalvikinga hf. hefur undanfarið átt viðræður við Slippsstöðina hf. á Akureyri um smiði á skuttog- ara, en eins og kunnugt er, gerir útgerðarfélagið út skuttogarann Baldur, sem er norskur að upp- runa og af stærri togaragerðinni. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Timinn hefur aflað sér, eru viöræður þessar byggðar á þeim hugmyndum Slippsstöðvarinnar hf., að keyptur verði tilbúinn skipskrokkur, sem siöan verði fullunninn i Slippstöðinni. Hefur þetta mál þegar verið kynnt hlut- aðeigandi aðilum og munu niður- stöður I máli þessu væntanlega liggja fyrir innan tiðar. Rætt er um að fá skipsskrokk- inn frá skipasmiðastöð i Flekke- fjord i Noregi, og verði skrokkur- inn að likindum sömu gerðar og stærðar og togari sá, er Útgerðar- félag Dalvikinga hf. á fyrir. — Gróður hefur allur verið mjög seint á ferðinni, sagði bún- aðarmálastjóri, — vorið var óvenjukalt nema siðari hluti mai- mánaðar og þá var þurrviöra- samt. Júnimánuður var siðan óvenjukaldúr. Spretta er þvi mjög lítil og þvinær engin á yztu annnesjum á Norðurlandi. Einhver sauðgróður kom þó siðari hlutann i mai og bjargaði miklu. Sums staðar var hann þó mjög Iftill i útsveitum norðan- lands, einkum þar sem er margt fé. Fénaöur hefur tæplega haft nóg norðanlands og austan. Hefur orðið að beita honum á túnin. Að sögn Halldórs Pálssonar er ekki farið að hleypa kúm út ennþá I sumum sveitum og annars stað- ar er nýlega farið til þess. Klaki var litill I jörðu, og er hann viða farinn úr jörðu á lág- lendi. Sums staðar eru tún skemmd af kali, en hvergi á stór- um svæðum. Er það einkum, þar sem svell voru á jörðu i vetur. Sauðburðartiðin var góð i vor. Kvaðst búnaðarmálastjóri ekki vita um sérstök óhöpp i sambandi við sauðburð neins staðar á land- inu. — Þaö horfir nú þunglega um grassprettu og heyfeng, sagði Halldór Pálsson, —þó getur rætzt úr öllu ennþá og gróður tekið fljótt við sér ef bregður til betri tiöar. pilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍI | Dauðatíðni af völdum | magakrabba hæst hér ( 1 af Norðurlöndunum 7 ÁRA BÖRN Á SKRÁ HJÁ LÖGREGLUNNI 200-300 síbrotaunglingar í Reykjavík FB—Reykjavik — Samkvæmt at- hugun, sem gerð var á vegum WHO árið 1971 er dauðatiðni af völdum magakrabba hæst á Norðurlöndum meðal islenzkra karla, en hins vegar er dauðsfalla tiðni kvenna af völdum sama sjúkdöms lægst hér á landi. Á árunum 1958-1963 voru dauðatilfelli á Islandi af völdum magakrabba 55.71 hjá körlum, en 26.71 hjá konum. Þetta var hærra hlutfall heldur en i öðrum Evrópulöndum, samkvæmt at- hugun i 24 löndum árið 1960-1961. Þegar tölurnar eru bornar saman við önnur Evrópulönd i könnun I 41 landi 1964 til 1965 eru tölurnar fyrir Island 43.91 hjá körlum, og Island er þá komið i annað sæti, en Pólland er i fyrsta sæti með 44.18 ef Sovétrikin eru undanskilin en þar var tiðnin miklu meiri, eða 60.00 hjá körl- um. Varðandi dauðsföll kvenna af völdum krabba i maga eru átta Evrópulönd ofar á lista en Island, sem er með 19.44 dauðsföll. Rannsóknir frá árunum 1930 til 1973 sýna, að mikið hefur dregið úr dauðsföllum af völdum þessa sjúkdóms hjá báðum kynjum allt frá 1950 hér, rétt eins og i öðrum löndum. Gsal—Reykjavik — Krakkar eru meira og minna viðriðin afbrot á hverjum degi og ég þykist þess fullviss, aö afbrotaaldurinn lækki stöðugt, segir Matthías Guö- mundsson, rannsóknarlögreglu- maður I Reykjavik, m.a. I viðtali i þættinum MEÐ UNGU FÓLKI i Timanum i dag. Þar segir Matthias meðal annars frá þvi, að til hans hafi komið tvö mál með stuttu millibili fyrir skömmu, þar sem sökunautarnir hafi verið sjö ára börn. t báðum tilfellunum hefði verið um að ræða skemmd- arverk. í viðtalinu var Matthias spurð- ur að þvi, hvað hann teldi að si- brotaunglingar i Reykjavik væru margir, og kvað hann ekki fjarri sanni aö ætla, að þeir væru ein- hvers staðar á bilinu milli tvö til þrjú hundruð. Matthias nefnir einnig I viðtal- inu, 14 ára pilt, sem hafi framið 15 afbrot það sem af er þessu ári, mest þjófnaði en t.d. eina likams- árás. Þá kemur fram, að foreldr- ar þessa pilts eru báðir drykkju- sjúklingar, og i öll þau skipti sem Matthias hefði komið á heimilið til piltsins hefði aðkoman verið mjög slæm. Matthias Guðmundsson er yngstu* fastráðinna rannsóknar- lögreglumanna hjá sakadómi Reykjavikur og hefur hann ásamt Helga Danielssyni eingöngu feng- izviðmál, er snerta afbrot barna og unglinga. SJÁ MEÐ UNGU FÓLKI Á BLS. 6

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.