Tíminn - 29.06.1975, Síða 7
Sunnudagur 29. júni 1975.
TÍMINN
7
FÁEIN ORÐ UM ISBIRNI
OG
BYSSUR
Guð launar fyrir hrafninn....
Um daginn var frá þvi greint I
fréttum að fiskibátur hefði siglt
fram á fsbjörn norður I miðju
Dumbshafi, þar sem hann var á
sundi langt frá hafisþökunum
norður af landinu, sem lika var
sokkið undir hafsbrúnina til
suðurs.
Þeir mættust þvi á auðum sjó,
einmana skipog Isbjörn á sundi.
Fuglar sveimuðu þreytulega I
auðnarfriði.
Skýin á himninum sigldu
rólega þennan dag og hafið and-
aði þunglega og tilbreytingar-
laust, þegar isbjörninn birtist
skyndilega á flatneskjunni.
Stefnunni er breytt samstundis
ogbyssan er tekin fram. Brot úr
andartaki mætast augu
bjarnarins og augu skyttunnar,
og svo kveður skotið við og eitt
andartak fatast fuglunum flug-
ið, og þeir flögra veinandi burt,
er þeir sáu isbjörninn stirðna
á sundinu, frjósa i ákveðnu
sundtaki. Hann reynir að kafa,
en þaö er of seint, þvi öndin er
liðin burt úr þétthærðum
kroppnum.
Vélin i skipinu stöðvast eitt
andartak um leið og hjartað i is-
birninum, svona til að sýna
samstööuna, en svo er sett i
gang aftur og nú er siglt i bog-
um. Það er potað i dýrið með
stöng, stjakað við þvi i leit að
lifsmarki, sem biður um eitt
skot enn. Siðan er snöru brugðið
um háls og það hift inn á
salningunni og þungur kroppur-
inn fellur máttlaus eins og blóö-
belgur niður á þilfarið.
Já, einhvern veginn svona sé
ég þetta fyrir mér, — og svo
heldur bæjarstjórnin fund. Þeir
ræða um, hvort þeir eigi að
kaupa björninn, sem stendur
uppi i frystihúsinu. Þá verður
hann stoppaður upp, og blim-
skakkar augum úr verksmiðju-
gleri framan i þýzka og danska
túrista, og það mun glampa á
lakkaðar, hvitar tennurnar.
Eitthvað á þessa leið voru
hugleiðingar minar, þegar ég
las um isbjarnarskotið i hafinu
um daginn.
A sýningunni, sem haldin var
á Kjarvalsstöðum I tilefni ellefu
alda byggðar, var sýnt kort yfir
landgöngur isbjarna og húna á
íslandi. ísland er (var) ts-
bjarnaland. Þeir komu i Suður-
sveit, á Gjögur og Horn, á
Strandir, hreint út um allt,
stundum margir i einu, stund-
um einn eða tveir á öld og þeir
átu sauðfé og hvað eina, sem
fyrir þeim varð. Samt voru þeir
ekki beinlinis vargar, en þeir
voru — og eru hættulegir mönn-
um. Þeir eru sjaldfengið dýr nú,
og eru friðaðir nú i Grænlandi,
með vissum fyrirvara. Þá vakn-
ar sú spurning: Eigum við aö
skjóta þessi dýr?
Norður á Ströndum slóst.
svona björn upp á fólk i sumar-
leyfi, þar voru konur og börn.
Þá varö að gripa til byssunnar.
Sama verður að gera, ef dýrin
ganga sjóblaut og svöng á land I
Grimsey, eða hvar sem þau
sjást I byggð, en ég held að við
ættum að friða þau sem mest.
Ekki með lögbanni, eða öðrum_
slikum aðgerðum, heldur eigum
við að gera þetta með hjartanu,
svipaö og þegar við fyrirgefum.
Það eru ekki margir isbirnir
eftir. Legg ég þvi til, að næst
þegar Islenzkt skip siglir fram á
isbjörn á sundi einhvers staðar
norður i hafi, þá verði ekki grip-
ið til byssunnar, heldur verði
tekið ofan og veifað I staðinn.
Guð launar fyrir hrafninn.
Jónas Guðmundsson.
W GH «1VIQ BÝÐUR ÞAÐ BEZTA SEM TIL ER Á
M aillllia MALLORCA - COSTA DEL SOL
Nú eru allar Sunnuferðir til útlanda dagflug með stærstu og
glæsilegustu Boeing þotum íslendinga.
Sunna hefur vegna mikilla viðskipta og samninga til magra ára náð
hagkvæmum kjörum við hótel á Spáni. Þess vegna eru ferðir Sunnu
til Mallorka og Costa del So/ jafnódýrar sem raun ber vitni. í tvær
óg/eymanlegar vikur búið þér á góðum hótelum eða íbúðum. Njótið
hvitdar og skemmtana í náttúrufegurð og ótakmarkaðri sól. Bað-
strendurnar eru eins og góðar og bezt verður á kosið.
Sóldýrkendur geta hvort sem þeir vi/ja tekið sundsprett í sundlaug-
um hóte/anna eða synt í sjónum ti/ að kæ/a sig.
Stutt að fara til stórborga Spánar, Frakk/ands, Ítalíu og Afríku.
Eigm skrifstofa Sunnu á Mallorka og Costa del So/, með íslensku
starfsfólki ve/tir öryggi og ómetan/ega þjónustu, skipuleggur hinar
vmsælu skemmti- og skoðunarferðir með ís/enskum fararstjórum.
Hafið samband við skrifstofu Sunnu í Lækjargötu, og fáið upplýs-
ingar um ferðirnar. Pantið far strax, því mikil aðsókn er í hinar
vinsælu sólarlandaferðir Sunnu. Og erþegar uppse/t í margar ferðir.
Sérlega hagstæð kjör fyrir fjölskyldufólk í íbúðum.
FERMSKRIFSTOMN SUNNA LIKJAREOTU 2 SIMAR 1640012070