Tíminn - 29.06.1975, Síða 10

Tíminn - 29.06.1975, Síða 10
> y »I/r| TÍMINN ^"flt íffíir triir>f»h»rr»tnir! Sunnudagur 29. júni 1975. Dr. Norman E. Shumway prófessor viö háskólasjúkrahúsiö I Aöalpersónurnar eru tvær i þessu athyglisveröa máli.Til vinstri er Blain Wixon 52 ára hjartasjúklingur, sem hjarta hins Stanford haföi yfirumsjón meö hinum umdeilda hjarta 29ára Samúels Allen (til hægri) var grætt i. Allen fékk skot i heilann og úrskuröaö Var, aö heili hans væri hættur aö flutningi. starfa. Nú er þaö ein aöalspurningin i þessu máli, hvort byssumaöurinn Andrew Lyons sé raunverulega moröingi, fyrst hjarta fórnarlambsins var meö nægu lifsmarki til aö hægt væri aö græða það i annan mann. Athyglisverð réttarhöld: HVER ER HINN RAUNVERULEGI MORÐINGI ? Læknarnir eða byssumaðurínn ? Samúel Allen er grafinn i kirkjugaröinum i Manor i Texas- fylki. En hjartað úr honum er grafið i öðrum kirkjugarði, nálægt Salt Lake City, — i brjósti hins 52ára Blaine Wixon. Læknar við Stanfordháskóla fluttu hjarta Allens yfir i Wixon , skömmu eft- ir að Allen varð fyrir skoti i slags- málum. "Þeir tveir eru aðalpersónurnar i ein<J umdeildasta morðmáli, sem nokkru sinni hefur komið fyrir bandariska dómstóla. Þvi að er t éttilega hægt að halda þvi fram, að Ancjrew Lyons, sem skaut Allen, se morðingi, fyrst Allen var með nægu lifsmarki, til að læknarnir gætu notað hjarta hans i annan mann? Komist rétturinn að þeirri niðurstöðu, að Allen hafi þá fyrst verið látinn, er hjarta hans hætti að slá, er ekki hægt að halda þvi fram, að Lyons hafi orðið honum að bana. Spurningin er þvi sú, hvort þeir læknar, sem önnuðust hjartaflutninginn, verði ekki að teljast ábyrgir. Falli dómur á þá lund, mun málið hafa úrslitaáhrif á framtið liffæraflutninga i Bandarikjunum og e.t.v. viðar, þar sem visindamenn og yfirvöld eru i óvissu hvað snertir hin raun- verulegu mörk milli lifs og dauða. Hvernig getur skjólstæðingur minn verið morðingi? — spyr verjandi Lyons, John Cruiks- hank, — fyrst hjarta fórnar- lambsins var með nægilegu lifs- marki til þess að hægt væri að flytja það i annan mann. Sam- kvæmt mlnum skilningi er maður á iifi, rneðan hann dregur andann og hjartað slær i brjósti hans. Úrskurðað var að heili Sam All- ens væri hættur að starfa og hann væri þvi látinn samkvæmt þeim dauðamörkum sem læknanefnd við Harvardháskólann ákvarðaði árið 1968. Siðustu þrir dagarnir i lifi Allens — eða fyrstu þrir dag- arnir eftir lát hans — voru við- fangsefniö fyrir dómstólunum i Alameda. A ákærendabekknum sat hinn 36 ára bilaþvottamaður Andrew Lyons — ákærður fyrir morð. Allen var blökkumaður, kokk- ur að iðn, en atvinnulaus, þegar dauða hans bar að höndum. Hann hafði flutzt tii Kaliforniu frá Tex- as, og um miðnæturbil mánudag- inn 10. september 1973, gerðist það atvik, er olli dauða hans. Hann hafði ekið tveimur systur- dætrum sinum að húsi nokkru, og i ibúð þar, áttu þau von á að hitta móður stúlknanna. Hana var þó hvergi að finna en þar var stadd ur eigandi ibúðarinnar, Andrew Lyons. Mikið rifrildi upphófst milli mannanna tveggja, og svo fór aö Lyons greip til skamm- byssu, sem hann átti. Skotið hljóp af byssunni og hitti Allen i höfuö- ið. Þegar klukkan var tuttugu minútur gengin i eitt eftir miðnætti, rannsakaði tauga- skurðlæknirinn Robert Burns ásamt öðrum sjúkrahúslæknum á Highlandsjúkrahúsinu Allen. Tuttugu og tveggja kalibera skammbyssukúla hafði gengið skáhallt inn i vinstra gagnauga hans og þrengt sér 12 sentimetra gegnum heila hans. Hann hafði enga meðvitund, en virtist þó

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.