Tíminn - 29.06.1975, Page 16

Tíminn - 29.06.1975, Page 16
16 TÍMINN Sunnudagur 29. júni 1975. Þ.ö-Suöureyri. Sá maður, sem hvað mestan svip hefur sett á Suðureyri viö Súgandafjörð og get garðinn hvað frægastan, er tvímælalaust Sturla Jónsson hreppstjóri. Nafn hans hefur veriö tengt Suðureyri órofa 'böndum um rúmlega hálfrar aldar skeið, og er liklega óhætt að fullyrða, að flestir þeir, sem til Suðureyrar leggja leið sina, viti, hver Sturla er. Hann á að baki litrikan starfs- og æviferil og kann að segja margt frá viðburðarrikri ævi. Við Ólafur Þórðars., skólastjóri gengum þvi á hans fund og áttum við hann fræðandi og skemmtilegt spjall um liðna tima I Súgandafirði og sitthvað, sem á daga hans hefur drifið. —oOo— — Þú fæddist hér á Suðureyri, er ekki svo? — Jú, rétt er það, ég er innfædd- ur Súgfirðingur og fæddist i húsi Kristjáns Albertssonar, afa mfns, sem á þeirri tið var nokkurs konar höfuðsmaður hér á Suðureyri, rak bæði útgerð og haföi með höndum verzlunar- rekstur fyrir Asgeirsverzlun á tsafirði. í húsi þessu, sem stóö þar sem kirkjan stendur núna, bjuggu foreldrar minir, þar til þau reistu sitt eigið hús á Suður- eyri. Faöir minn var skipstjóri hér, en kom frá Meiribakka i Skála- vik, þaðan, sem faðir hans, Einar Jónsson, var ættaður. Til Suðureyrar kom hann að öllum likindum árið 1894. Hann réri héöan á sexæring- um, en átti siðan ásamt Kristjáni Albertssyni fyrsta vélbátinn sem Súgandafjarðar kom, en það var árið 1906. Til gamans má svo geta þess, að árið 1904 var fyrst sett vél i bát á Islandi, og var sá bátur frá Isa- firði. Vélbátúr föður mins og Kristjáns hélt Svanur og var fjögur tonn. — Fórst þú snemma að stunda sjóinn? — Já,ég var ekki nema 9 ára gamall, þegar ég fór fyrst á sjó með föður minum og gerðum við þá út á skak, reyndar einungis á sumrin. Við vorum fjórir til fimm á bátnum og velt- umst víða, út af Hornströndum, Hælavikurbjargi og Hornbjargi, en héldum inn á vikurnar, þegar hvessti- Minnir mig, að við höf- um verið um vikutima i hverj- um túr. Allan þann afla, sem veiddist, söltuðum við og skiluðum fullunnum i land að lokinni hverri veiðiferð. Reyndar var það svo sem ekki mikill afli, sem við söltuðum, en þá var að- staðan til þess að stunda veiðarnar allt önnur en nú er, með öllum þessum færum og krókum, sem þeir hafa. Við höfðum hins vegar ekki nema einn krók á hverju færi. Við unnum á vöktum, þannig að tveir hvildust jafnan i' einu, enda voru kojurnar i lúkarnum ekki fleiri en tvær. 1 bátnum var fjögurra hestafla Alfa-vél, og ég held ég hafi ekki verið gamall, þegar ég fór að fikta við að setja hana I gang. Það er alltaf skylda, að menn væru komnir á dekkið á glasi, sem kallað var, til þess að standa sinar vaktir, en þær voru fjórar. Fyrst var það langavakt, frá klukkan tólf á hádegi til klukkan sjö að kveldi. Þá byrjaöi hundavaktin og stóð hún til klukkan fjögur aö morgni og þótti einna leiöinlegust. Þristurinn var svo aftur á móti frá klukkan fjögur til sjö að morgni, en þá byrjaði morgun- vaktin og stóð til hádegis. Þá má eiginlega segja, að á þessu vaktafyrirkomulagi hafi verið hálfgert fornaldarform miðað við það sem nú gerist i þessum efnum. Litið var róið á vetrum, en þó voru alltaf nokkrir bátar, sem reyndu á linu. Vegna þess, hve atvinnulifiö var stopult yfir vetrartimann var hér félagslif með miklum blóma, og störfuðu bæöi iþróttafélag og stúka, sem stofnuð var um 1920. — Þú varst I skólanum hjá Friörik Hjartar? — Já, Friðrik var skólastjóri á Suöureyri frá 1907 til 1930, og var ég þvi hjá honum öll min skólaár. Hann var mikill skóla- maöur, söngkennari og organisti ágætur. Friðrik tengdist mér reyndar fjöl- skylduböndum, þvi að hann kvæntist systur minni, sem nú býr á Akranesi. Daniel læknir á Dalvik var skólafélagi minn og sessunautur öll mln skólaár, og var vinfengi mikið okkar i millum. 1 skólanum hjá Friðrik var blótbindindi, og áttum við krakkarnir að segja honum, að það væri mene hjá þeim, sem við heyrðum blóta. Mér er enn I fersku minni sá atburður er mér varð á sú mikla synd að blóta, svo að upp komst. Þannig stóð á, að Þóra systir mln bað mig að fara með kaffi upp I skóla til Friðriks, sem þar var við vinnu eftir kennslu. En á leiöinni slóst ég i leik með nokkrum æskufélögum minum, og varð mér á, einsog fyrr segir, sú mikla synd að blóta, en þau klöguðu mig óöara fyrir Friðrik, og fékk ég mene fyrir. Mér sárnaði þetta óskaplega, ogsvo var sársauki minn mikill, aö ég fór strax heim og grét mig þar I svefn. En ekki kannast ég við aö hafa mælt blótsyröi af vörum upp frá þeirri stundu. Sér Þorvarður á Stað fermdi mig og voriö eftir ferminguna boðaði hann okkur strákana út að Stað til fundar við sig. Hermdu sagnir, að hann ætlaði að kanna, hvort eitthvað sæti eftir að þeim lærdómi, sem við námum I Helgakverinu þegar við við gengum til spurninga hjá honum, en ekki kvaddi hann stúlkumar á sinn fund. Nú, við héldum út aö Stað og spjölluðum viö séra Þorvarð um Helgakveriö og margt fleira. Fengum viö þar og hinar beztu móttökur. Frá heimleiöinni er mér minnisstætt atvik, sem ég seint gleymi. Norðanstrekkingur mikill blés á móti okkur er við gengum yfir móana frá Stað og niður í fjöru. Setti þvi að okkur mikinn kuldahroll. Einn félaga minna kom þvf með þá tillögu að viö færum niður undir brúna og kveiktum okkur þar i sigarettum til þess að ylja okkur á munninum eins og hann orðaði það. Ég lét i þetta sinn tilleiðast, og við kveiktum okkur i sigarettunum, en ekki minnist ég þess að hafa fundið ylinn, sem hann talaöi um, enda hef ég aldrei kveikt mér I sigarettu siöan né notað annað tóbak, enda var það brýnt fyrir mér i æsku að neyta aldrei tóbaks og áfengis, og hef ég alla mina ævidaga af mikilli trúfestu fylgt þvi boði. Ég var fyrsti æðsti templar barnastúkunnar, sem hér var stofnuð og enn starfar, en gæzlumaður var Gunnar M. Magnúss . sem hingað kom stuttu eftir fermingu. Grunar mig, að sumir þeir, sem þá voru i stúkunni hafi brotið þau heit, sem þeir þá unnu. — Fórst þú aldrei á þinum yngri árum í atvinnuleit suður á land, eins og svo margir gerðu? — Til Reykjavikur fór ég að mig minnir 1923 og ætlaði þá að reyna að komast á togara, en það tókst ekki, enda mikið framboð af mönnum til þess konar starfa og alltaf fullt i kringum þá, sem höfðu með plássin á togurunum að gera. Ég fór þvi á skak með Helga Sigurðssyni og fleirum og vann að þvi að aka aflanum um götur borgarinnar til fisksalanna. En þetta var ekki nema lítinn hluta úr vetri. Ég fór lika á Hermóð hjá Sig- urði Hallbjarnarsyni og var i Sandgerðishöfn, er fárviðrið gerði, þegar húsið fauk heima á Suðureyri. Ofsinn i veörinu er mér ógleymanlegur, þvi svo var brimsortinn mikill, að ekki sást út fyrir borðstokkinn. Annan tima hef ég aldrei verið vetrarlangt utan Súgandafjarðar, nema þegar ég var á Núpi hjá séra Sigtryggi vini minum Guðlaugssyni, en það var 1920 til 1922, og seinni veturinn gerði hann mig reynd- ar að nokkurs konar ráðsmanni hjá sér. Milli okkar var mikil vinátta og var ég til dæmis skirnarvottur við skirn tveggja sona hans, þótt litiö hafi ég komið nálægt uppeldi þeirra að öðru leyti. — Hvenær ferö þú sjálfur að stunda útgerö? — Það var árið 1929. Þá var smiðaður nýr bátur, sem viö örnólfur Valdimarsson áttum i félagi og gerðum út, en áður hafði ég verið skipstjóri hjá honum i þrjú eða fjögur ár á Súganda. Sjómannafræðin lærði ég fjórtán eða fimmtán ára gamall, m.a. kompásinn, sem ég get sungið aftur á bak og áfram, og hef ég engan fyrirhitt sem getur leikið það eftir mér. Stóru strikin eru tuttugu og tvö, og ég læröi þau öll með þvi að koma þeim undir lag, sem passaði vel við, og hefur hann aldrei gleymzt frá þvi er ég lærði hann fyrst, enda er það ódauölegt ef maður kemur hlutunum I ljóðaform. Ég gerði mér stundum leik að þvi að söngla kompásinn framan i menn, og vita þeir þá sjaldnast, hvaöan á þá stendur veðrið. Útgerð stundaði ég frá 1929 til 1953, eða 1954, en skipstjóri var ég til ársins 1934, er ég fór i land. Þá var ég kjörinn i hreppsnefnd og tók viö oddvita- starfinu, sem ég gengdi I tuttugu og fjögur ár, allt þar til ég sagði af mér, enda þótti mér þá tími til kominn að hleypa yngri mönnum að, leyfa þeim að spreyta sig við stjórnvölinn. Hreppstjóri varð ég 1948, þegar Friðbert heitinn Guðmundsson sem þvi starfi gegndi, dó, og hreppstjóra- starfinu hef ég gegnt i 27 ár, og sjálfsagt kominn á siðasta skrefið. Nú skilst mér, að þeir ætli að fara að hækka launin við hreppstjórana, en það kemur liklega ekki til með að koma mér til góða, þvi að ég fer senn að hætta I þessu. Óbilgjarnar kaupkröfur hef ég aldrei gert á ævinni og hefur það ætið verið mér fjarri skapi, en hins vegar verður manni að lærast að halda vel á þvi sem maður hefur undir höndum, en eyöa þvi ekki I tóbak og brennivin og aðrar slikar óþurftir, sem öllum eru til skaða. — Mér er sagt, að þú hafir verið á tima einn stærsti framleiðandi harðfisks hér á landi? — Það leynistef til vill eitthvað sannleikskorn i þvi. Þegar mest var umleikis hjá mér i harðfisk- verkuninn,'var ég með tuttugu tonn af þurrkuðum fiski, og seldi megnið af þvi til mágs mins, Páls Hallbjörnssonar i Haröfisksölunni. En svo fór, að þeir hjá ísveri, sem var frystihús hér á staðn- um, neituðu mér um beitu, nema ég legði aflanum upp hjá þeim. Þá fór ég sjálfur að frysta fisk og selja. Auk þess gerði ég út rækiu og lét vinna hana. — Hvemig var hafnaraðstaða hér I plássinu, þegar þú tókst við oddvitastörfum? — Þá var enginn hafnargarð- ur á Suðureyri, þar sem hægt var að leggjast upp að til þess að taka á móti vöru eða koma frá sér vöru. Þess i stað fóru allir flutningar til og frá skipunum fram með bátum. 1938 var byrj- að á hafnargarðinum, og var af honum töluverð vörn, þvl að allir bátar lágu I legufærum i þann tiö. Ég byggði mér reyndar sjálf- ur. bryggju, áður en til byggingar hafnargarðsins kom. Staurana keypti ég norður á Ströndum og skrúfaði þá alla niður með handafli. — Hvenær var lagður vegur yfir Botnsheiðina? — Hann var fullgerður 1939, en þá tókst Ásgeiri Ásgeirssyni loks aö útvega 20 þúsund króna lán til þess að fullgera veginn. Vörubilar voru reyndar komnir hingað fyrir þann tima, en minn fyrsta bil eignaðist ég 1947. Það var jeppi, og ég held, að ég hafi yfirleitt alltaf átt jeppa siðan, enda er oft eftir illfærum og lé- legum vegum að brjótast, ætli maður milli byggðarlaga. — Þú ert fæddur hér og uppal- inn, eins og fyrr hefur komið fram. Hefur Suðureyri ekki tek- ið miklum breytingum frá þvi, er þú varst að alast upp? — — Hin eiginlega Suðureyri var, þar sem kirkjan stendur núna og um aldamótin var þar tvibýli, en á mölunum utan eyr- arinnar voru aðeins þrjú litil ibúðarhús, enda staðurinn ný- lega löggiltur verzlunarstaður. Eitt þessara húsa stendur enn, Rómaborg, og hefur mig oft undrað, hve margir bjuggu þar i jafn litlu húsi. En byggðin jókst svo jafnt og þétt. Hingað komu menn frá ön- undarfirði og Dýrafiröi til út- róöra, þvi héðan er stutt á mið- in. Þessir menn bjuggu i ver- búöarhúsum, sem reist voru fyrir aðkomumenn. Og vegna hinnar ágætu hafnaraðstöðu, sem hér er, myndaðist fljótt vis- ir að byggðakjarna. Við fyrstu götuna, sem hér var lögð, var unnið I sjálfboða- vinnu af félögum i iþróttahúsinu Stefni, enda heitir gatan Stefn- isgata. Skólagata var lögð á sama hátt. Ég hélt nákvæma skrá yfir þá, sem við þessa gatnagerð unnu, og hversu mik- ið og lengi hver og einn vann, og á ég þessa skrá enn i fórum mlnum. Kirkjubyggingin er lika gott dæmi um það, hve miklu Súg- firðingar gátu áorkað i sam- félagslegum grundvelli. Kirkj- an var vigð 1. ágúst 1938, en undirbúningur að byggingu hennar hófst 1926 með þvi að kjörin var nefnd til að annast nauösynlegan undirbúning. Fullgerð kostaði kirkjan 25.500 krónur og komum við henni upp skuldlausri. Kirkjusókn hefur jafnan verið mikil á Suðureyri og nylega settum við met i kirkjusókn hér, en þá mættu til messu 212 manns. En I gær mættu eftir þvi sem messuskýrslan segir 45, og tók ég eftir þvi, aö skólastjórann vantaði. — — Þú hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum meðal sveit- unga þinna, er ekki svo? — — Þaö má svo sem segja, að ég hafi haft nóg af embættum á minni könnu, og kannski kom- inn timi til þess að minnka eitt-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.