Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 18

Tíminn - 29.06.1975, Blaðsíða 18
18 TÍMINN d'i7:l Jrt - . j i l ítn j'l Sunnudagur 29. júni 1975. Menn og málefni Tillögur Sambands ungra framsóknarmanna um skattamál Nýkjörin stjórn SUF, ásamt fráfarandi formanni og nokkrum gesta þingsins. Fremri röö frá vinstri-: Siguröur Haraldsson, Reykjavlk, Magnús Ólafsson, Sveinsstööum, nýkjörinn formaöur, Eggert Jóhannesson, Selfossi fyrrv. formaöur, Ásmund Bertneisen, Noregi, Steingrimur Hermannsson, ritari flokksins, Halldór Asgrlmsson, aiþingismaöur, Höfn I Hornafiröi. Aftari röö f.v.: Jón Sigurösson, Kópavogi, Eirlkur Sigurösson, isafiröi, Friörik Georgsson, Keflavik, Jónas Gestsson, Hellissandi, Guöni Ágústsson, Selfossi, Sveinn Jóns- son, Reykjavik. Skattsvikin 1 gær birtist hér i blaðinu for- ustugrein úr Dagens Nyheter i Stokkhólmi. 1 greininni, sem fjallaði um skattamál, var skýrt frá þvi, að tilgreindir lögfræðing- ar hefðu nýlega gert könnun á skattsvikum i Sviþjóð og teldi sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að rikið myndi árlega fá tólf mill- jörðum sænskra króna meira i skatttekjur, ef öll kurl kæmu til grafar. Þetta nemur um 47 mill- jörðum islenzkra króna. En það er viðar pottur brotinn i þessum efnum en i Sviþjóð. Ný- lega hafa norsk skattayfirvöld gert athuganir á allmörgum framtölum með aðstoð bankanna, og i framhaldi af þvi hækkað skatta á nokkrum þúsundum framteljenda um upphæð, sem nemur samtals 410 milljónum norskra króna i eignaskatt og 68 milljónum norskra króna i tekju- skatt. Þessari könnun i Noregi er enn hvergi nærri lokið, og eiga þvi framangreindar upphæðir eftir að hækka mikið. Það hefur lengi verið opinbert leyndarmál hér á landi, að ts- lendingar eru ekki syndlausir i sambandi við skattframtöl, frem- ur en frændur þeirra á Norður- löndum eða aðrar þjóðir, þar sem persónuskattar eru innheimtir. Það þarf ekki annað en að lesá skattskrána til að sannfærast um þetta. Stóreignamenn og stór- gróðamenn greiða margir hverjir sáralitla skatta. Sama máli gegnir um ýmsa þá, sem lifa hinu mesta óhófslífi. Að öllu leyti er hér ekki um syndir framteljend- anna að ræða, heldur koma til viðbótar ýmsar undanþágur i skattalögunum, sem Ivilna stór- um hluta skattgreiðenda á kostnað annarra. Þá er innheim.ta söluskattsins kapltuli út af fyrir sig. Þar eru margvislegir möguleikar til að komast undan skatti, nema eftir- litiö sé því traustara. Alkunna er, að kaupfélög greiða á ýmsum stöðum ótrúlega mikið i söluskatt i samanburði við ýmsa keppi- nauta þeirra, sem virðast hafa slzt minni veltu. Vitnisburður skattskránna Afkoma rikissjóðs er allt annað en góö um þessar mundir og horf- ur eru á stórfelldum halla. Rætt er um að mæta þessu að ein- hverju leyti með niðurskurði á framkvæmdum, en hæpið er, að mikiö fé geti sparazt á þann hátt. Erfitt verður einnig að koma saman tekjuhallalausum fjárlög- um á næsta ári, enda þótt gætt verði itrasta sparnaðar. Þrauta lendingin til að mæta þessu getur orðið sú, að hækka ýmsar álögur, eins og nýlega hefur verið gert i sambandi við áfengi og tóbak. En skattaálögur er ekki hægt að auka endalaust, og sizt þó á þeim tima, þegar afkoma einstaklinga og at- vinnuvega þrengist vegna versn- andi viðskiptakjara. Undir þessum kringumstæðum væri það vissulega ekki óeðlilegt, þótt ný gangskör yrði gerð að þvi /að reyna að uppræta skattsvikin og afla riki og sveitarfélögum aukinna tekna á þann hátt. Jafn- framt þarf að afnema margvis- legar óeðlilegar undanþágur, sem leyfðar eru nú og valda þvi m.a., að ýmisskonar óhófseyðsla og skuldasöfnun nýtur furðulegra forréttinda. Þviaðeins að þetta sé gert koma nýjar álögur til greina, og þvi aðeins geta þeir, sem sýna heiðarleika i þessum efnum, sætt sig við þær. Fátt myndi auka veg núverandi rikisstjórnar meira en að hún gerði nýtt átak i þessum efnum. Skattskrárnar, sem senn eru væntanlegar, munu áreiðanlega sýna, að meira en litið fer aflaga i þessum efnum. Skattjöfnuður A nýloknu þingi Sambands ungra framsóknarmanna var gerö athyglisverð ályktun um skattamál. 1 upphafi hennar segir: „15. þing S.U.F. leggur áherzlu á mikla samneyzlu i þjóðfélaginu. A þann hátt einan verður komið i framkvæmd þeim félagslegu markmiðum sem stefnt er að. Mikil samneyzla krefst þess að tilsvarandi tekna sé aflað með álögum á þjóðfélagsþegnana. Það er þvi nauðsynlegt að skattjöfnuður riki i þjóðfélaginu, þ.e. að fólk, sem býr við sömu að- stæður, greiði sambærilega skatta. Allt bendir til þess að verulega vanti á að slikur skatt- jöfnuður sé fyrir hendi. Þing S.U.F. telur þvi að eitt brýnasta viðfangsefnið I þjóð- félaginu sé að vinna að endurbót- um á skattkerfinu og auknum skattjöfnuði.” Þá segirí ályktunum, að stefna beri að eftirgreindum aðgerðum i sambandi við skattamál einstak- linga: „Að komið verði á sérsköttun hjóna. — að frádráttarheimildir verði einfaldaðar og samræmdar. — að kostnaður vegna eigin húsnæðis og leiguhúsnæðis verði lagður að jöfnu við álagningu skatts. — að sérfrádrættir vegna heimilisstofnunar verði auknir. Greiðslubyrði unga fólksins, sem vinnur ósleitilega að þvi að stofna eigið heimili, er þyngst allra þjóðfélagshópa. Þessi staðreynd skapar unga fólkinu sérstöðu. Þvi ber að lögleiða aukinn frádrátt fyrir ungt fólk i þvi skyni að jafna greiðslubyrði þjóðfélagsþegn- anna. — að tekið verði upp stað- greiðslukerfi skatta. — að núverandi söluskattskerfi verði endurbætt eða virðisauka- skatti komið á i þess stað. Söluskattskerfi það, er við búum við, er meingallað, enda hefur það vaxið skipulagslaust. Mögu- leikar til skattsvika aukast með hærri söluskatti og fleiri undan- þágum. 15. þing S.U.F. telur hins vegar að frekari skattlagning á nauðþurftarvörum heimilanna og á íbúðarhúsnæði unga fólksins auki enn á ójöfnuð i þjóðfélag- inu.” Skattamál fyrirtækja Þá fjallar ályktunin um skatta- mál fyrirtækja og leggur i þvi sambandi áherzlu á eftirfarandi: „Að reglum um fyrningar og meðferð söluhagnaðar verði tafarlaust breytt. Núverandi reglur um fyrningar og meðferð söluhagnaðar mismuna mjög fyrirtækjum og einstökum at- vinnugreinum. Skattfrelsi sölu- hagnaðar veitir fyrirtækjum möguleika til að mynda nýjan fyrningarstofn með þvi að skipta um eignir á fárra ára millibili. Nauðsynlegt er að breyta fyrningarreglum og afnema skattfrelsi söluhagnaðar á fyrnanlegum eignum. — að breyta reglum um vara- sjóð fyrirtækja á þann hátt að i staö varasjóðs komi fjár- festingarsjóður sem ráðstafa skuli til fjárfestinga samkvæmt nánari reglum. Fjárfestingar- sjóður yrði meiri hvatning til að fjármagna fjárfestingar að hluta með eigin fé fyrirtækjanna ásamt þvi aö stuðla að betri hagstjórn. Nauösynlegt er að réttur fyrir- tækja til að leggja I fjárfestingar- sjóð sé mismunandi eftir aðstöðu þeirra og staðsetningu. Slikt gæti tryggt jafnari dreifingu atvinnu- tækja um landið. Þótt nauðsynlegt sé að um- breyta skattkerfinu, er ekki siður nanðsynlegt að bæta framkvæmd skattamála m.a. með auknu skatteftirliti og bættu skipulagi. Endurbæturá skattkerfinu ásamt nauðsynlegum skipulagsbreyt- ingum er því eitt mesta jafn- réttismál sem við er að glima nú. Framsóknarflokknum ber þvi að beita sér af alefli i þessum málaflokki.” Osanngjarn samanburður Heildsalablaðið Visir heldur áfram að ófrægja landbúnaðinn. Siöasta áróðursefni Visis er það, að landbúnaðurinn beri sig ekki eins vel hérlendis og i Bandarikj- unum og Danmörku. Það eru ekki nein ný vísindi, að Island sé lakara landbúnaðarland er beztu landbúnaðarlönd heimsins. Það sýnir ósanngirni heildsalanna, að þeirskuli gera slikan samanburð. Nær væri að bera okkur saman við lönd, þar sem landbúnaður er stundaður við svipuð skilyrði. Þá kæmi vissulega í ljós, að sökum framtaks og samvinnu bænda, er Islenzkur landbúnaður fullkom- lega samkeppnisfær. Heildsalarnir, sem margir hverjir eru þó viðförulir og eftir- tektarsamir, virðast ekki hafa komið auga á það, að það er kappsmál allra sjálfstæðra þjóða að búa við blómlegan landbúnað og vera ekki of háðir öðrum á sviði landbúnaðarframleiðslunn- ar. Alveg sérstaklega gildir þetta um mjólkurframleiðsluna. Bæði Norðmenn og Sviar gætu flutt inn ódýrari mjólk frá Danmörku en þeir framleiða sjálfir. Þeir keppa eigi að siður að þvi að fullnægja sjálfir þörfum sinum á þessu sviði. Þannig mætti nefna hundruð dæma. Það er furðulegt, að heildsalarnir skuli ekki hafa uppgötvað þetta á ferðum sinum erlendis. Einhverjir kunna að segja, að þetta sama gildi ekki um sauð- fjárræktina. Þeir sömu menn gæta þess ekki, að sauðfjárræktin geri meira en að fullnægja þörf- um okkar fyrir kindakjöt. Hún er jafnframt undirstaða vaxandi og blómiegs útfiutningsiðnaðar. Með þvi að leggja hana niður, eins og heildsalablaðið gerir tillögur um, væri þvi ekki aðeins verið að draga saman landbúnaðinn, heldur væri verið að kippa stoðum undan þeirri iðngrein, sem nú er einna blómlegust i landinu. Furðulegt er, að jafn glöggir menn á fjármuni og margir heildsalarnir áreiðanlega eru, skuli láta bendla sig við slik- an málflutning. Lögmál frumskógarins Stefnu sina i landbúnaðarmál- um byggir Visir a.m.k. öðrum þræði á þeirri kenningu, að meginrækt eigi að leggja við þá atvinnugrein, sem bezt ber sig hverjusinni. Þegar saltfiskverzl- un ber sig vel, eigi t.d. að salta fisk, en loka frystihúsunum. Þegar sildveiði ber sig vel, eigi að stunda sildveiðar, en hætta þorskveiðum. Nú vita flestir, að gengi atvinnugreina er mjög mis- munandi, ein gengur vel þetta árið, önnur hitt árið o.s.frv. Ef framangreint lögmál væri látið ráða, væri öll skipuleg uppbygg- ing atvinnuveganna útilokuð. Hvernig yrði t.d. verzlunin, ef heildsalarnir fylgdu þeirri reglu að flytja aðeins inn þær vörur, sem seldust bezt og mestur hagnaður væri að hverju sinni? Hún yrði þokkaleg, verzlunin i landinu, ef slikri reglu væri fylgt, eða hvað halda menn? Sem betur fer fylgja heild- salarnir ekki blint slikri gróða- stefnu. Þeirleggja oft hart að sér til að hafa vörubirgðir, sem seljast dræmt, til þess að geta fullnægt þörfum viðskiptavin- anna. Þannig verður þjóðfélagið lika að skipuleggja atvinnulifið, ef vel á að fara. Menn kvarta hér réttilega yfir ringulreið og van- stjórn, en þetta er þó ekki nema svipur hjá sjón samanborið við það, sem verða myndi, ef farið væri eftir lögmáli frumskógarins, eins og heildsalablaðið Visir predikar. Áhrif tveggja kosninga Blöð stjórnarandstöðuflokk- anna kappkosta mjög þann áróður, að framkvæmdir séu nú verulega minni á ýmsum sviðum en á siðastl. ári. Þetta er að vissu leyti rétt og stafar það einkum af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi voru efnahagshorfur sæmilegar i byrjun ársins 1974 og voru miklar framkvæmdir ákveðnar i trausti þess. Þetta gerbreyttist svo, þegar komið var fram á árið, en þá voru margar framkvæmdir komnar svo áleiðis, að ekki var hægt að hætta við þær. t öðru lagi ýtti það svo undir framkvæmdir, að bæði var kosið til bæjar- og sveitarstjórna og Alþingis á ár- inu. Öþarft er að skýra það að slíkt kosningaár hefur veruleg áhrif á það, að ráðizt er I meiri fram- kvæmdir en ella. Þetta tvennt varðorsök þess, að árið 1974 var óvenjulega mikið framkvæmda- ár. 1 raun réttri var þá ráðizt i miklu meiri framkvæmdir en þjóðin hafði efni á og vinnuaflið leyfði, og átti það ekki minnstan þátt I aukningu verðbólgunnar á árinu. Það hefði áreiðanlega orðið mat manna, að ekki væri hægteða skynsamlegt að halda áfram jafnmiklum framkvæmdum, enda þótt viðskiptakjörin hefðu haldizt sæmileg. Þjóðin héldi þá áfram að framkvæma meira en efni hennar leyfðu og ofþensla á vinnumarkaðnum myndi halda áfram að auka verðbólguna. Nokkur samdráttur hefði undir öllum kringumstæðum þótt eðli- legur. Þegar það bættist svo við, að viðskiptakjörin versnuðu um 30% á fáum mánuðum og enginn bati er sjáanlegur i náinni fram- tið, hlaut óhjákvæmilega að koma til þess, að framkvæmdir yrðu drengar verulega saman. Framkvæmdir um efni fram Þrátt fyrir þann samdrátt, sem orðið hefur mun það mál hag- lærðra manna, að enn haldi þjóðin áfram að framkvæma meifa en hún hefur efni á, miðað við það hve erfitt efnahags- ástandið er. Þessu valda ekki sízt tvær ástæður. önnur er sú, að rikisstjómin vill ekki að sam- drátturinn verði svo mikill, að þaðleiði til atvinnuleysis. Höfuð- mál rikisstjórnarinnar er það, að tryggja atvinnuöryggið. Hin er sú, að rikisstjómin vill fylgja fram byggðastefnunni, eins og framast er kostur. Ef verulegt lát yrði á henni nú, gæti það komið af stað nýjum fólksflutningum til þéttbýlisins, sem væri öllum tii óhags. Af þessum ástæðum reynir rikisst jómin nú að halda uppi eins miklum framkvæmdum og fjár- hagsgetan leyfir og sennilega öllu meir.i, en getan leyfir, sökum þess hve mjög viðskiptakjörin hafa versnað. Rikisstjómin verður þvi ekki að réttu lagi ásökuð fyrir það, að hún hafi dregið óeðlilega mikið úr framkvæmdum. Það er lika ótvi- ræður vitnisburður um þetta, að alveg fram til nýgerðra kjara- samninga var Island eitt fárra landa, þar sem hið alþjóðlega kreppuástand hafði ekki valdið atvinnuleysi, og er þó Island meira háð viðskiptakjörunum út á við, en flestar aðrar þjóðir. Vonandi breyta nýju kjara- samningarnir þessu ekki og af hálfu rikisstjórnarinnar verður áfram stefnt að þvi, að atvinnu- leysi komi ekki til sögunnar. Þar skiptir vissulega mestu máli að tryggja stöðugan rekstur at- vinnuveganna, þvi að það er undirstaða þess, að hægt verði að halda uppi nægum framkvæmd- um til að koma i veg fyrir at- vinnuleysi. Fjölgun . námsbrauta Hér í blaðinu birtust nýlega við- töl við forstöðumenn nokkurra menntaskóla, þar sem fjallað var um það, að stúdentum með lágar einkunnir hafi farið stórlega fjölgandi á síðari árum. Aðal- skýring á þessu virðist sú, að margir unglingar stunda mennta- skólanám vegna skorts á fjöl- breyttari námsbrautum. Rétt þykir að rifja hér upp hugleiðingu Kristjáns Bersa Ólafssonar, skólastjóra i Hafnarfirði. Kristján sagði m.a. „Hitt er svo annað mál að það eru aðverða fleiri og fleiri, sem leita eftir einhverri menntun eftir að grunnskóla, landsprófi eða gagnfræðaprófi lýkur. Og fram undir þetta hefur eiginlega ekki verið neinna annarra kosta völ nema annað hvort iðnmenntun eöa þá menntaskólanám. Það sem greinilega vantar eru náms- brautir, sem geta veitt fleiri nem- endum framhaldsskólamenntun, sem geti bæði komið þeim sjálf- um að gagni og þá væntanlega þjóðfélaginu. Menntun á fleiri sviðum og sem ekki endilega þyrfti að leiða til stúdentsprófs, en um leið loki engum leiðum fyrir þyi, að þeir geti ekki tekið stúdentspróf og farið I háskóla þegar fram I sækir ef verkast vill. Og það er spurning hvort stúdentspróf eigi að vera algilt inntökuskilyrði i háskóla. Hvort mismunandi háskóladeildir ættu ekki fremur að gera kröfur til ákveðinnar jafnvel breytilegrar menntunar. Svo er lika annað mál, sem á við um háskóla og önnur skólastig. Hvað á að ganga langt I þvi að gera ákveðnar kröf- ur um rétt til inngöngu I skóla? Og að hve miklu leyti á að láta þær kröfur, sem gerðar eru i skólanum sjálfum ráða hverjir komast þar áfram eða ekki? Ég er ekki viss um að árangur i há- skóla sé að öllu leyti i beinni sam- svörun við árangur á stúdentsprófi.” Vissulega bendir Kristján Bersi hér á mjög athyglisverð atriði. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.