Tíminn - 29.06.1975, Side 23
I ♦
(
'■ I ( I' I 1J .'.I III'
Sunnudagur 29. júni 1975.
** l 6* f'T
TÍMINN
23
FRAMKVÆMDIR HAFNAR
Á HNEYKSLISLÓÐINNI
Loksins eru þeir komnir stólarnir sem sífellt
er verið að spyrja um
Þeir eru smíðaðir úr 1. flokks eik með miklum
handútskurði.
Veljið um stóla með ýmiss konar óklæði eða notið
eigin útsaum
Nú eru hafnar framkvæmdir á
„hneykslislóðinni” svokölluðu
við Hagamel. Þessi lóð er á ein-
hverjum allra bezta stað i
Reykjavik og þar á að rfsa
fjölbylishús. Byggingarfélagið,
sem að húsinu stendur nefnist
„Byggung” en skilyrði fyrir
inngöngu er að menn séu
félagar í Heimdalli eða öðrum
Sjálfstæðisfélögum. í upphafi
hafði byggingarsamvinnufelagi
starfsmanna stjórnarráðsins
verið gefið vilyrði fyrir lóðinni,
en þegar Heimdallur gerði
kröfu til hennar, gerði borgar-
stjórnarmeirihlutinn sér hægt
um hönd og úthlutaði
„Byggung” lóðinni. Þessi
lóðaúthlutun er eitthvert
grófasta dæmið um valdniðslu
fhaldsins i Reykjavik.
Timamynd Gunnar.
Jón Albertsson — einn af for-
ystumönnum hestamanna á
Akranesi.
Hestaþing
Dreyra
Hestaþing hestamannafélags-
ins Dreyra á Akranesi hefst kl.
14.00 sunnudag þann 29. júni.
Keppt verður i fjórum keppnis-
greinum auk góðhestakeppni, en
dómar i góðhestakeppninni fara
fram á laugardagskvöld kl. 20.00.
Allt útlit er fyrir góða þátttöku i
kappreiðunum og er þegar vitað
um nokkra þekkta hesta. Skrán-
ing á þingið er i simum 1517 og
1373. Glæsileg verðlaun eru i boði.
Varð anda-
trúin séra Þóri
að falli?
HJ-Reykjavik. Það vakti nokkra
athygli, að við kosningu til stjórn-
ar Prestafélagsins á Prestastefn-
unni i Skálholti, náði séra Þórir
Sthefensen dómprófastur ekki
kosningu i varastjórn. Séra Þórir
hefur að undanförnu haldið uppi
vörnum fyrir spiritisma eða
andatrú, i blöðum, en presta-
stefnan samþykkti ályktun þar
sem varað er við áhrifum spiri-
tismans og mun þetta hafa orðið
til þess að séra Þórir náði ekki
kosningu.
1 stjórn Prestafélagsins voru
kjörnir ólafur Skúlason for-
maður, Halldór Gröndal ritari,
Arngrimur Jónsson gjaldkeri,
Grimur Grimsson meðstjórnandi
og i varastjórn úlfar Guðmunds-
son og Ragnar Fjalar Lárusson.
+ 25°
+ 18°
HUS
byggjendur
hugsið um stofnkostnað, rekstrarkostnað
og velliðan i rétt upphituðu húsi
h d n x i
býður allt þetta
Mjög hagkvæmt verð
Hárnákvæmt hitastilli.
ADAX ofnarnir
þurrka ekki loft.
Yfir 20 mismunandi
gerðir.
isl. leiðarvisir fylgir
-1 J - i
■ ö
1 'V .0 ■7+ \ r
Samþykktir af raffangaprófun.
Rafmagnsv. rikisins
EINAR FARESTVEIT 6, CO. HF.
fl f RGSTM) ASTR/€T I 10A
SÍAAAR: 2-15-65 — 1-69-95
G v+.r t
húsiö
Verzlid
þar sem
urvalid er
mest og
kjörin bezt
28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild
Byggingarfélag Verka-
manna, Reykjavík
Aðalfundur
félagsins verður haldinn i Tjarnarbúð,
Oddfellowhúsinu, fimmtudaginn 3. júli
1975, kl. 20,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Félagsstjórnin.
Lokað vegna sumarleyfa
Verkstæði vor og afgreiðsla verða lokuð
vegna sumarleyfa, frá 7 júli til 1. ágúst.
VOGIR H.F.
Hátúni 4a.