Tíminn - 29.06.1975, Síða 24

Tíminn - 29.06.1975, Síða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 29. júni 1975. Höfundur: DavidMorrell' Blóðugur hildarleikur 57 vitað, að hann væri ekki að fara í hring. Var hann kannski á leið í flasið á andstæðing sínum? Hann stanz- aði, f ullur ótta. Landið hallaði niður á við. Hann hlaut að vera við einhverja brekku. Ef hann færi rakleitt niður, þá væri hann á leið burt. Eða hvað? Það var erfitt að hugsa. Svört runnaflækjan þrengdi að honum og ekkert lát var á regninu. Strákdjöfull. Ég skal sleppa og drepa þig fyrir þetta. Drepa þig fyrir þetta. Hann lyfti andlitinu upp úr forinni. Hann minntist þess ekki, að hafa hreyft sig all lengi. Svo skildist honum, að hann hafði fallið í yfirlið. Hann stífnaði allur og leit i kring um sig. Andstæðingur hans hefði getað laumast upp að honum á meðan hann lá í mókinu. Hann hefði get- að skorið hann á háls — rétt eins og hann afgreiddi Mitch. Jesús minn, sagði hann upphátt. Röddin líktist mest krunku og honum brá við. Jesú, endurtók hann enn einu sinni, til að hreinsa röddina. En það var engu líkara en hún væri frosin. Svo varð hugsunin skyndilega skýrari. Nei, þetta er ekki rétt, hugsaði hann meðsér. Hann hefði ekki læðst að mér og drepið mig sofandi. Fyrst hefði hann vakið mig. Hann hef ði vil jað að ég vissi hvað var að gerast. Hvar er hann þá? Fylgist hann með mér einhvers stað- ar í námunda við mig? Kannski hefur hann fundiðslóð- ina og er nú á leiðinni? Hann hlustaði eftir hljóðum frá runnunum, en ekkert heyrðist. Hann varð að halda áfram. Bilið milli þeirra mátti ekki styttast. En þegar hann reyndi að skríða hratt áfram, þá tókst honum aðeins að mjaka sér úr stað. Hann hlaut að hafa legið lengi meðvitundarlaus. Nú var ekki lengur myrkt yfir. Svolítill grámi var á himninum. Teasle sá bróm- berjarunna svo langt sem augað eygði. Þeir voru þéttir, Ijótir og broddarnir nokkurra þumlunga langir. Hann strauk á sér bakið. Fjöldamargir broddar stóðu út úr bakinu á honum, svo hann minnti einna mest á brodd- gölt. Teasle leit á alblóðuga hönd sína og skreiddist svo aftur af stað eins og ormur. Kannski var strákurinn ein- hvers staðar nálægt. Ef til vill fylgdist hann með honum og naut þess að sjá hann þjást. Síðan rann allt saman í móðu. Skyndilega var sólin komin upp og milli greina brómberjarunnanna sá hann bláheiðan himininn. Hann hló. Af hverju ertu að hlæja? Hlæja? Ég man ekki einu sinni eftir því að hætt hafi að rigna. Nú er heiður himinn og dagsbirta. Guð hjálpi mér. Aftur hló hann og fann nú til svima. Það var skringileg tilf inning og hann hló þess vegna. Hann skreið tfu fet út úr runnaþykkninu— inn á haustlitan akur, áður en hann skildi að hann var laus úr f lækjunni. Hvílík fyndni. Hann pírði augun og reyndi að sjá hvar akurinn endaði. Hann gat það ekki. Þá reyndi hann að standa upp, en gat það ekki heldur. Allt snerist í höfðina á honum. Aftur hló Teasle. Hann gat ekki stillt sig. Skyndilega þagnaði hann. Grænliðinn hlaut að liggja hér einhvers staðar í launsátri. Hann myndi skemmta sér við að sjá mig svona sundurskorinnáðuren hannskyti mig. Helvitið. Ég skal. — Baunir með baconsúpu. Hann kastaði upp. Það var líka fyndið. Hvað hafði hann borðað, sem hann gat kastað upp? Ekkert. Einmitt. Ekki neitt. Hvað var það þá, sem lá þarna fyrir f raman hann. Hindberjakaka, hugsaði hann í gamni. Þá varð honum aftur óglatt. Hann skreiddist áfram yfir nokkrar lautir og dældir. Svo lá hann afvelta um stund. Loksins skreiddist hann aftur af stað og komst enn svolítinn spöl. Svartur pollur var á milli tveggja lauta. Alla nóttina hafði hann snúið andlitinu upp móti regninu til að drekka. En tungan var enn að kæfa hann. Hálsinn var þurr og bólginn. Hann drakk óhreint vatnið, þrýsti höfðinu niður og lapti vatnið. Minnstu munaði, að hann missti meðvitund með andlitið ákafií vatninu. Uppi í honum var samblandin forin. Nokkur fet enn. Reyndu að komast aðeins lengra. Ég slepp burt. Ég skal drepa strákhelvítið. rífa hann — Af því ég er — en hugsunin hvarf honum. Ég er — hann gat ekki munað það. Hann varð að stanza og hvíla sig. Sólin vermdi á honum bakið. Má ekki stoppa. Má ekki liða yf ir mig.... dey. Verð að halda áfram. En hann gat ekki hreyft sig. Hann gat ekki reist sig upp til að skríða áfram á höndum og hnjám. Hann reyndi að klóra sig áfram, en hann haggaðist ekki heldur þannig. Ég verð...má ekki falla í yfirlið.dey. Hann tyllti fætin- um í laut og spyrnti fastar og fastar. Þá mjakaðist hann úrstað. Hjartað barðistótt og títt. Hann spyrnti f astar og mjakaðist áfram gegn um aurinn. Hann þorði ekki að stanza. Hann vissi, að hann hafði ekki orku til að koma sér af stað á ný. Beita fótunum — ýta. Skreiðast áfram. Strákf jandinn..Þarna kom það. Nú mundi hann þetta. Hannætlaði að jafna um strákskrattann. Ég er ekki eins góður bardagamaður, hugsaði hann. Vissulega er hann betri bardagamaður en ég. En ég er — aftur hvarf honum hugsunin. Hreyfingarnar voru ósjálfráðar og vélkenndar. Hann ýtti sér áfram með fót- unum. Einu sinni enn — ýta. Enn einu sinni — ýta aftur. i:Uls II ill !.l Sunnudagur 29. júni 8.00 Morgunandakt Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir 8.15 Létt morgunlög 9.00Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Svíta fyrir kammersveit nr. 3 i A-dúr eftir Francois Couperin. Telemann-kammersveitin i Hamborg leikur. b. Kvintett i D-dúr eftir Johann Christi- an Bach. Félagar úr Ars Rediviva sveitinni i Prag leika.c. Pianósónata nr. 13 i Es-dúr op. 27 nr. 1 eftir Lud- wig van Beethoven. Solo- mon leikur. d. Serenada fyr- ir strengjasveit i C-dúr op. 48 eftir Tsjaikovski. Fil- harmóniuhljómsveitin I Leningrad leikur: Evgeni Mravinski stjórnar. 11.00 Messa i Hábæjarkirkju i Þykkvabæ Prestur: Séra Kristján Róbertsson. Organleikari: Sigurbjartur Guðjónsson (Hljóðritun frá 15. þ.m.) 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar, Tónleikar. 13.20 Ég vil vera kjaftfor GIsli J. Astþórsson rithöfundur les þátt úr bók sinni, „Hlýj- um hjartarótum”. 13.40 Harmonikulög Benny van Buren leikur. 14.00 Staldrað við á Blönduósi, — fjórði þáttur Jónas Jónas- son litast um og spjallar við fólk. 15.00 Miðdegistónleikar: 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Alltaf á sunnudögum Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.15 Barnatlmi: Ragnhildur Helgadóttir og Kristín Unn- steinsdóttir stjórna. Árni Waage talar um fugla. Hreiðrið, smásagaeftir Olaf Jóhann Sigurðsson. Landið með fjöllin hvitu, eftir Jó- hann Sigurjónsson. Fuglinn, sem vildi ekki syngja, tékk- neskt ævintýri i þýðingu As- laugar Arnadóttur. Þjóð- sögur og þjóðvisur um fugla flytjendur: Þórunn Páls- dóttir og Viðar Eggertsson. 18.00 Stundarkorn með tenór- söngvaranum Peter Schrei- er, sem syngur lög eftir Schumann. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Til umræðu: Skal stefnt að launajöfnuöi á þjóðfélag- inu? Baldur Kristjánsson stjórnar. Þátttakendur: Þröstur ólafsson hag- fræðingur og Ragnar Halldórsson forstjóri Isals. 20.00 tslenzk tónlist: Sinfóniu- hljómsveit tslands leikur I útvarpssal a. „Heimaey”, forleikur eftir Skúla Halldórsson. b. Islenzk svita fyrir strokhljómsveit eftir Hallgrim Helgason. 20.30 Hvað eru fljúgandi disk- ar? — frásagnir og skýring- ar Þorsteinn Guðjónsson flytur erindi. 20.50 Samkór Vestmannaeyja og dixielandhljómsveitin „Bangsa Dixý” syngja og leika Stjórnandi: Sigurður Rúnar Jónsson. 21.25 Þættir úr lifi Vestur-ts- lendinga Séra Kristján Róbertsson flytur erindi: tslenzk menning I Vestur- heimi. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög Heiöar Astvaldsson dans- kennari velur lögin. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Mánudagur 30. júni 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. landsmálabl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55: Séra Guðjón Guðjóns-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.