Tíminn - 02.07.1975, Qupperneq 5
Miðvikudagur 2. júll 1975.
TÍMINN
5
Rdðsnilld Gylfa
söm við sig
Sem kunnugt er hefur Gylfi
Þ. Glslason, formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins, verið
ákafur talsmaður þess að
fækka bændum I landinu og
notið óskoraðs stuðnings ann-
ars aðalmálgangs Sjálfstæðis-
flokksins I þeirri krossför
sinni, eins og frægt er.
i sunnu-
dagsleiðara
A1 þý ð u -
blaðsins
gerir for-
maður þing-
flokks
A1 þý ð u -
flokksins
enn á nýjan
leik grein fyrir hagspeki sinni
I iandbúnaðarmálum og
kemst að þeirri niðurstöðu, að
skynsamlegast væri að fella
niður allar niðurgreiðsiur
vegna landbúnaðarvara, en
þess I stað ættu neytendur að
fá niðurgreiðslurnar til ráð-
stöfunar. Að sögn Gylfa Þ.
Gislasonar fengi hver fimm
manna fjölskylda 100 þúsund
krónur af niðurgreiðslufénu til
frjálsrar ráðstöfunar, en yrði
á móti að greiða fullt verð
fyrir landbúnaðarvörur þær,
sem keyptar yrðu.
Þetta telur hagfræðiprófess-
orinn Gylfi Þ. Gislason að
muni verða mikil kjarabót
fyrir neytendur. Þeir séu þá
ekki lengur neyddir til að
kaupa landbúnaðarvörur,
heldur geti sjálfir ráðið þvi,
hvað þeir gera við niður-
greiðsluféð. „Hér er um að
ræða stórkostlegt hagsmuna-
mál launþega, jafnframt þvi,
sem slík breyting yrði grund-
völlur nýrrar stefnu I málefn-
um landbúnaðarins,” segir
hagfræðiprófessorinn.
Er það hagspeki?
Hún er meira en litið barna-
legsú hagspeki, sem þarna er
á ferðinni. í hverju er sú
kjarabót fólgin að afhenda
fimm manna fjölskyldu 100
þúsund krónur, sem hún sfðan
greiðir til baka I hærra land-
búnaðarverði? Eða heldur
Gylfi Þ. Gislason, að fólk hætti
að leggja sér landbúnaðarvör-
ur til munns og kaupi þess I
stað innflutt súkkulaðikex og
dósamat? Formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins er ekki
sá kjáni að hann viti ekki, að
þessar „kjarabætur” hans eru
aðeins talnaleikur. Tilgangur
Gylfa er eingöngu sá að gera
tilraun til að slá ryki I augu
fólks, I þvl skyni að koma
hinni raunverulegu land-
búnaðarstefnu sinni og rit-
stjóra Visis I framkvæmd.
Eða m.ö.o. að fækka bændum
og draga verulega úr ■
landbúnaðarframleiðslunni,
og þar með að stefna að aukn-
um innflutningi matvara.
Björn annarrar
skoðunar en Gylfi
Það er furðulegt, að Gylfi Þ.
Glslason skuli halda áfram að
rembast eins og rjúpan við
staurinn i ófrægingarskrifum
sinum um landbúnaðinn. Með
þeim er hann að reyna að
höfða til þéttbýlisfólksins.
Sama vakir fyrir ritstjóra VIs-
is. Arangur þeirra félaga
hefur orðið sá, að fylgið hefur
hrunið af Gylfa og kaupendum
VIsis hefur fækkað verulega.
Sannleikur-
inn er sá, að
þrátt fyrir að
niðurgreiðslu-
kerfið hafi
ýmsa galla,
tryggir það
bezt hags-
muni neyt-
e n d a o g
bænda. Þaðer athyglisvert, að
flokksbróðir Gylfa, Björn
Jónsson, forseti Alþýðusam-
bands tslands lagði mikla
áherzlu á það I kjarasamning-
unum, að rikisstjórnin greiddi
niður fyrirhugaða hækkun á
landbúnaðarvörum, sem átti
að koma til framkvæmda um
siðustu mánaðamót. Forseti
ASt er þvl allt annarrar skoð-
unar en Gylfi Þ. Glslason, sem
virðist ekki eiga eftir önnur
áhugamál en að styðja við
bakið á heildsölum.
— a.þ.
KVERNELAND
Gnýblásarar
T. KVERNELAND B.SBNNER AS
Bjóðum nú sem áður hina landsþekktu
heyblásara, sem hafa að baki tuttugu ára
sigurför i islenzkum landbúnaði.
Til afgreiðslu nú þegar
Ndnari upplýsingar hjd sölumanni
G/obusf
LAGMÚLI 5, SIMI 81555
Séra Jóni M. Guðjónssyni
afhent heiðursborgarabréfið:
,,Hann hefur unnið stór-
virki á mörgum sviðum"
— sagði forseti bæjarstjórnar Akraness
í hótíðarræðunni
GB-Akranesi. A sunnudaginn var
fyrrverandi prófasti sr. Jóni M.
Guðjónssyni, afhent við hátlðlega
athöfn I Akraneskirkju heiðurs-
borgarabréf, sem bæjarstjórn
Akraness hafði samþykkt að
veita honum á sjötugsafmæli
hans 31. mai sl. Athöfnin hófst
með því, að bæjarstjórinn
Magnús Oddsson las upp
ritningargrein, þá flutti forseti
bæjarstjórnar Danlel Ágústínus-
son, Itarlega ræðu, þar sem hann
rakti æviatriði sr. Jóns, og ræddi
um kennimannsstarf hans og
sálusorgun, sem hann hefði af
hendi leyst með sérstökum ágæt-
um.
En auk þess hefði hann unnið
stórvirki á öðrum sviðum, svo
sem I þágu slysavarna við stofnun
margra slysavarnardeilda og
margs konar störf á því sviði og
skipulagningu starfsins. Og að
siðustu ræddi hann hið marg-
þætta starf sr. Jo'ns við söfnun
muna i Byggðasafn Akraness,
uppbyggingu safnsins og starf-
rækslu, sem hafi frá upphafi
mest hvllt á hans herðum, en
byggðasafnið I Görðum er nú
orðið eitt það athyglisverðasta á
þvl sviði hér á landi, utan
höfuðborgarinnar.
Einnig minntist forseti bæjar-
stjórnar hins ekki slður mikil-
væga starfs prestkonunnar, frú
Lilju Pálsdóttur, er með svo mikl-
um myndarskap hafði staðið við
hlið manns síns I þeim rausnar-
garði að Kirkjuhvoli.
Er sr. Jón hafði veitt viðtöku
hinu glæsilega heiðursborgara-
skjali flutti hann bæjarstjórn
þakkir fyrir þennan mikla heiður,
og sóknarbörnum fyrr og slöar
fyrir ógleymanlega vinsemd I
garð þeirra hjóna og þeirra
heimilis.
Þá las sóknarpresturinn sr.,
Björn Jónsson, bréf frá biskupi
landsins herra Sigurbirni Einars-
syni, sem vegna embættisanna
gat ekki verið viðstaddur þessa
athöfn.
Milli atriða söng kirkjukór
Akraness við undirleik söng-
stjórans Hauks Guðlaugssonar,
er einnig lék einleik á orgelið og
Guðmundur Jónsson spilaði á
trompet. Hvert sæti I kirkjunni
var skipað, og var athöfn þessi að
öllu leyti hin virðulegasta svo
sem til var ætlazt.
Sumarferð Heyrnarhjdlpar
Arleg ferð félagsins Heyrnar-
hjálpar til aðstoðar heyrnardaufu
fólki verður I júlí. Farið verður
um Norður- og Austurland að
þessu sinni. Ferðin hefst á
Hammstanga miðvikudaginn 2.
júli og lýkur á Höfn I Hornafirði.
Aðrir staðir þar sem viðkoma
verður höfð, eru Blönduós,
Sauðárkrókur, Siglufjörður,
Ólafsfjörður, Dalvlk, Akureyri,
Húsavík, Vopnafjörður, Egils-
staðir, Seyðisfjörður, Neskaup-
staður, Eskifjörður, Fáskrúðs-
fjörður og Djúpivogur.
Einar Sindrason, læknir við
Heyrnarmiðstöðina I Arósum, og
starfsfólk félagsins annast þessa
þjónustu.
Leitað hefur verið til héraðs-
lækna, og hafa þeir flestir tekið að
sér að rita niður viðtalsbeiðnir.
Deild í UNIMA stofnuð á íslandi
Fyrsta
erlenda
farþega-
skipið til
Akureyrar
Dagana 21. til 28. júnl kom
áhugafólk um brúðuleikhús víðs-
vegar á landinu saman f Reyk-
holti I Borgarfirði á námskeið,
sem haldið var á vegum Banda-
lags islenskra leikfélaga. Einn
fremsti brúðuleikhúsmaður
heims, Michael Meschke frá
Marionettateatern í Stokkhólmi,
var meðal kennara á námskeið-
inu.
A námskeiðinu var stofnuð
íslandsdeild heimssambands
brúðuleikhússfólks — UNIMA
(Union Internationel de la Mario-
nette). Stofnfélagar I UNIMA á
Islandi voru 38. Michael
Meschke, sem á sæti i stjórn
heimssambandsins, var mjög
ánægður með þann áhuga og
samstöðu sem ríkti á námskeið-
inu I Reykholti, og til að sýna
; 'h
stuðning sinn við Islandsdeild
UNIMA gaf hann tuttugu þúsund
krónur til að styrkja íslending til
framhaldsnáms I leikbrúðugerð
og stjórn.
A stofnfundinum var kjörin 5
manna stjórn og er Jón B. Guð-
mundsson formaður.
UNIMA er aðili að I.T.I. (Inter-
nationel Teatre Institute), sem
aftur á aðild að UNESCO. Forseti
UNIMA er enski brúðuleikhús-
maðurinn Jan Bussel, en fram-
kvæmdastjóri er Pólverjinn
Jurkowski og er miðstöð samtak-
anna i Varsjá. UNIMA heldur
alþjóðlegt þing fjórða hvert ár og
vorið 1976 verður slikt þing haldið
I Moskvu. Þangað mun þá einnig
koma brúðuleikhúsfólk hvaðan-
æva að úr heiminum og hafa
sýningar.
ASK-Akureyri. — Fyrsta far-
þegaskipið kemur til Akureyrar I
dag. Það er Regina Maris, sem
kemur með 250 farþega. Regina
Maris er um sex þúsund tonn og
eina farþegaskip þýzka skipa-
félagsins Ludeckline. Næst-
komandi laugardag kemur far-
þegaskipið Evropa, en það er 25
þúsund tonna skip með um 800
'•farþega.
\
Þetta er fyrsta ferð Reginu
Maris til íslands i ár, en samtals
mun skipið koma hingað þrjár
ferðir I sumar. Að sögn Herlufs
Ryel, umboðsmanns skipsins á
Akureyri kemur Regina Maris
hingað frá Jan Mayen og hefur
viðdvöl I um hálfan sólarhring. Á
meðan fer hluti farþeganna til
Mývatns, en næstkomandi föstu-
dagsmorgun verður Regina
Maris væntanlega í Reykjavik.
Orðsending til General AAotors
og Scout bifreiðaeigenda
Bílaverkstæði vort verður lokað vegna
sumarleyfa dagana 14. júlí til 5. ágúst
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9.