Tíminn - 04.07.1975, Qupperneq 4
TÍMINN
Föstudagur 4. júli 1975.
Sovétrlkin eiga sér sérstætt
hrossasafn — meira en fimmtiu
kyn. Skozka smáhesta, lág-
vaxna gútsúlhesta úr Karpata-
fjöllum, hina traustlegp hesta
eistnesku eyjanna og risavaxna
dráttarklára, sem kenndir eru
við miðhéruð landsins. Erlendir
kaupendur hafa lengi haft á-
huga á þessari margbreytni.
Sovétrlkin hafa verið einn helzti
útflytjandi á ýmsum tegundum
hesta til Vesturlanda. Á síðustu
árum hefur einkum aukizt eftir-
spurn eftir reiðhestum. Frá 1965
hafa verið haldin alþjóðleg upp-
boð á hestum í landinu, og i ár er
efnt til fimm slikra uppboða.
Hið fyrsta þeirra fór fram i
Moskvu i marz. Þangað komu
hrossaræktarmenn og kaup-
menn frá Svlþjóö, Finnlandi,
Alþjóðlegt uppboð á hestum
í AAoskvu
Vestur-Þýskaiandi, Frakklandi,
Italiu og Hollandi. Til sölu voru
120 hestar, þriggja vetra og
eldri af trekenen- hannover- og
holsteinkyni, lettneskir og
úkraínskir reiðhestar, hestar af
búdjonni- og akhaltekinkyni og
nokkrar aðrar tegundir. Allir
voru hestarnir vel tamdir. Fyrir
uppboð gafst kaupendum tæki-
færi til að skoða þá vandlega,
sjá þá hlaupa og skeið# og leika
ýmsar listir. Mestan áhuga
sýndu menn trekenenhestum,
enda hafa þeir reynzt m jög vel á
mótum. Það var á hesti af þessu
kyni sem sovézka iþróttakonan
Elena Pétúsjkova vann verð-
laun á siðustu ólympiuleikum.
33 trekenenhestar voru boðnir
upp og 31 seldur. Hæst verð
greiddi sænskur kaupandi fyrir
Epigraf fjögurra vetra, — 2800
dollara.
Kaupendur hikuðu ekki við að
fylgja eftir skilningi sinum á
þeim möguleikum, sem hest-
arnir búa yfir. Murmi frá Finn-
landi, fór úr 2000 dollurum
(fyrsta boð) upp i 3100 til að
eignast frábæran þriggja vetra
fola af akhaltekinkyni frá
Túrkmeniu. Boðin léku á hundr
að dollurum. Þegar leiddur var
inn Kiparis, fjögurra vetra hest-
ur af búdjonnikyni, fylgdi hon-
um 3000 dollara lagmarksboð,
en það verð hækkaði fljótt.
Hamar uppboðshaldarans hófst
þrjátiu og tvisvar og féll ekki
fyrr en hesturinn var sleginn La
Torre frá ítaliu fyrir 6200 doll-
ara. 98 hestar voru seldir, til
Vestur-Þýskalands fóru 37,24 til
Finnlands, 23 til Holland, 7 til
ítaliu, 6 til Sviþjóðar og einn til
Frakklands. Siðan þetta gerðist
hafa verið haldin uppboð bæði i
Rostof og Kief. Seinni hluta júni
fer fram uppboð i borginni
Pjatigorsk og i september verð-
ur háð annað uppboð i Moskvu.
DENðíl
DÆMALÁUSI
,,Hann er ekkert latur. Hann er
bara að spara kraftana, ef hann
þarf einhvern tima á þeim að
halda.”