Tíminn - 04.07.1975, Síða 6
6
TtMINN
Föstudagur 4. júli 1975.
Landsmótin eru þver
skurður qf starfsemi
félaganna
með
ungu
fólki
LANDSMÓT Ungmennafélags
islands nálgast nú óðum, en það
verður sem kunnugt er, haldið á
Akranesi dagana 11.-13. júli
næstkomandi. Undirbúnings-
starf er nú vel á veg komið, en
eins og að likum iætur hefur
verið unnið gifuriega mikið og
gott starf til undirbúnings
landsmótsins, — og hafa hundr-
uð manna og kvenna lagt þar
hönd á plóg. Til að kynna
lesendum iitillega Landsmót
U.M.F.t. kom umsjónarmaður
þáttarins að máii við Sigurð
Geirdal, framkvæmdarstjóra
U.M.F.Í.
Ungmennafélag tslands er
stofnað árið 1907 og var fyrsta
landsmótið haldið á vegum
félagsins tveimur árum siðar.
Síðasta landsmót U.M.F.I. var
haldið á Sauðárkróki dagana 10.
og 11. júli 1971.
Að sögn Sigurðar munu
keppendur og starfsfólk koma
til Akraness, fimmtudaginn 10.
júli, en siðan mun keppni fara
fram á föstudag, laugardag og
sunnudag.
Við inntum Sigurð eftir þvi,
hvers vegna Akranes hefði orðið
fyrir valinu sem mótsstaður, og
sagöi Sigurður, að Ungmenna-
samband Borgarfjarðar hefði
óskað eftir þvl að gerast fram-
kvæmdaraðili mótsins og hefðu
forráðamenn þess haft i huga að
halda landsmótið að Varma-
landi. „Það þótti hins vegar
fljótlega sýnt”, sagði Sigurður,
,,að ekki myndi takast að ljúka
allri mannvirkjagerð við
Varmaland á tilteknum tima,
svo ungmennasamband
Borgarfjarðar leitaði til Ung-
mennafélagsins Skipaskaga á
Akranesi og fékk það i lið með
sér til að sjá um framkvæmd
þessa landsmóts. Var og ákveð-
ið að halda landsmótið á Akra-
nesi og nota þau mannvirki sem
þar eru fyrir”.
— Þurfti að reisa á Akranesi
einhver sérstök mannvirki
vegna landsmótsins?
— Ekki beint sérstaklega.
Hins vegar hefur iþróttahús,
verið i byggingu á Akranesi i
mörg ár, — og nauðsyn bar til að
ljúka við það mannvirki. Þá má
nefna að það þurfti að byggja
upp alla aðstöðu fyrir frjálsar
iþróttir, alveg frá grunni, auk
þess sem ýmislegt varðandi
iþróttastarfsemi á Akranesi
hefur verið lagfært og endur-
bætt. Þá sér landsmótið sjálft
um að reisa sundlaug úr plasti.
Landsmót Ungmennafélags
Islands eru haldin á þriggja ára
fresti. „Það er alveg óhætt að
fullyrða það, að þessi þriggja
ára undirbúningstimi milli
landsmóta er alveg lágmarks-
timi”, sagði Sigurður”, „Þvi
þaö er alveg ótrúlega margt
sem þarf að gera til að halda
jafn fjölþætt mót sem landsmót-
in eru.”
Sigurður sagði að með réttu
hefði landsmót átt að vera 'i
fyrra, en það hefði komiö ósk
um frestun landsmótsins vegna
þjóðhátiðarhalda. Kvað hann
undirbúningsstarf hafa verið i
fullum gangi I 2 ár auk þess sem
nokkurt undirbúningsstarf hefði
veriðbúiðað inna af hendi áður.
— Hvað taka mörg ung-
mennafélög þátt i landsmótinu?
— Það er erfitt um það að
segja.þarsem U.M.F.I. er ekki
samband einstakra félaga,
heldur héraðssamband og þau
eru 17 með mismunandi mörg
félög innan sinna vébanda. Utan
héraðssambandanna eiga svo 7
félög beina aðild að U.M.F.I.
— Hvað er búizt við mörgum
þátttakendum á þetta lands-
mót?
— Ef viö skilgreinum þátttak-
endur sem keppendur, starfs-
fólk og sýningarhópa, hygg ég,
að þeir verði ekki undir 3000. — I:
áætlun ykkar, — hvað hafið þiö:
gert ráð fyrir mörgum gestunUy
— Ef við miðum bara við þrjú
þúsund þátttakendur má fast-
lega gera ráð fyrir að þeim fylgi
um 10 þús. manns, — og það er
lágmarkstala. Að Eiðum, þar
sem landsmótið var haldiö 1968
komu um 10 þús. manns, að
Laugarvatni 1965 komu 35 þús.
manns, en þá var lika einstak-
lega gott veður allan mótstim-
ann. Ef ég ætti að gizka á fjölda
gesta á þessu landsmóti á Akra-
nesi myndi ég nefna töluna 20
þús.
Geta skal þess, að samningar
hafa tekizt við forráðamenn
Akraborgar um fjölgun á ferð-
um skipsins landsmótsdagana
og verður sérstakt fargjald i
gildi þá daga, sem landsmótið
stendur yfir og er það gjald 400
kr. lægra en venjulega, þ.e. 800
kr. i stað 1200 kr.
Sigurður kvað það ótviræöan
kost að halda landsmót á þétt-
býlissvæðum, þar eð þess væri
þá kostur að nýta ýmiss konar
húsakost sem fyrir hendi væri á
stöðunum. Nefndi hann að nú
yrðu skólar, samkomuhús og
önnur mannvirki notuð i þágu
keppenda og starfsfólks lands-
mótsins. ,,Ég get ekki látið hjá
liöa að nefna þá miklu og góðu
aðstöðu sem nú verður fyrir
hendi I hinu stóra og veglega
iþróttahúsi á Akranesi, en það
hús er á stærð við Laugardals-
höllina i Reykjavik”, sagði
Sigurður.
Sérstök landsmótsnefnd var
skipuð til að hafa með höndum
undirbúning mótsins og er hún
skipuðsjömönnum, tveimur frá
U.M.F.I., tveimur frá Ung-
mennafélaginu Skipaskaga, og
þrlr frá Ungmennasambandi
Borgarfjarðar. Landsmóts-
nefndin skipaði siðan sérgreina-
stjóra, sem eru 27 og þeir mynd-
uðu siðan nefnd sem i eru u.þ.b.
270 manns, þ.e. 10 i hverri
nefnd. Á þessu sést hversu
15. landsmót
U.M.F.Í. verður
haldið á
Akranesi dagana
11.— 13. júlí n.k.
— Rætt við
Sigurð Geirdal
f ramkvæmda-
stjóra U.M.F.Í.
margt manna hefur unnið að
undirbúningi og i raun hve
landsmót U.M.F.I. er viðamik-
iö.
— Landsmóti er ætlað að vera
þverskurður af starfsemi ung-
mennafélaganna, sagði Sigurð-
ur, þótt sumir vilji halda þvi
fram að landsmótið sé einhvers
konar sýning.sem sett er upp á
þriggja ára fresti. Nú, jæja, það
má segja að landsmótin séu
sýning, einhver glansmynd,
sem sett er upp, en sú glans-
mynd er þó sönn, — hún er all-
tént spegilmynd af starfsemi
félaganna og undirbúningi
þeirra I mörg ár.
A landsmóti er keppt i öllum
helztu iþróttagreinum, sem að
einhverju marki eru stundaðar
af félögum U.M.F.Í., svo og
starfsiþróttum. Þá eru á hverju
landsmóti kynntar nokkrar
greinar iþrótta, — þær, sem
hafa vaxið verulega frá siðasta
landsmóti og upplýsti Siguröur
okkur um, að á þessu landsmóti
yrðu fimm greinar Iþrótta sem
kynntar yrðu, svonefndar kynn-
ingargreinar. Þær eru: Lyfting-
ar, blak, júdó, borðtennis og
siglingar.
Starfsiþróttir setja alltaf mik-
inn svip á landsmót. „1 fljótu
bragði á fólk kannski erfitt með
að skilja tilgang starfsiþrótt-
anna, „sagði Sigurður, „en
hann er i rauninni hvetjandi,
þ.e.a.s. til aukinnar menntunar
I þeim störfum sem starfs-
iþróttimar fjalla um. Um allan
heim eru mjög sterkir klúbbar
sem hafa eingöngu á stefnuskrá
sinni starfsiþróttir, svonefndir
4H 'klúbbar. Þetta er að vlsu
ekki eins þróað hjá okkur og
öðrum þjóðum, en tilgangurinn
er sá sami og það er ekki litill
lærdómur og menntun sem
keppendur I starfsiþróttum
þurfa að ganga i gegnum,”
sagði Sigurður.
Nefndi hann l.d. dráttarvéla-
akstur, en þeirri grein er skipt i
tvennt, annars vegar leikni öku-
mannsins á vélina, og hins veg-
ar bein þekkingarkönnun.
— Vissulega eru sumar
starfsiþróttirnar sérkennilegar
iþróttagreinar, sagði Sigurður,
einsog t.d. það aö leggja á borð,
— það sem manni finnst heima
hjá sér vera steindautt fag. En
þessi iþrótt reynir mjög á hug-
myndaflugið, þvi keppendur
verða að koma fram með hug-
myndir. Sumir eru kannski með
„afmælisdag gamla skipstjór-
ans”, aðrir með „nýstúdentum
fagnað” o.s.frv. Listin er að
leggja á borðið þannig að hug-
myndin komi berlega i ljós á
boröinu.
Sigurður sagði að starfs-
iþróttunum mætti skipta f þrjá
flokka, þær greinar sem lúta að
landbúnaði, þær greinar sem
lúta aö sjávarútvegi og þær
greinar sem lúta að land-
græðslu. Auk þessa væru svo
nokkrar greinar sem lytu að
innanhússtörfum, pönnuköku-
bakstur.leggja á borð og fleira.
Sigurður nefndi i þessu sam-
bandi að nú væri engin kyn-
skipting I starfsfþróttum.
Kvennaáriö hefði séð fyrir þvi.
— Veörið mun eðlilega ráða
miklu um það hvernig til tekst á
þessu landsmóti, sagði Sigurð-
ur. En veðrið verður aldrei svo
slæmt aö neitt mistakist i sjálfu
sér, þvi á Akranesi er hægt að
flýja með ýmsar greinar inn I
hús ef svo ber undir.
A landsmóti verða dansleikir
og kvöldvökur öll kvöldin. Þá
má og geta þriggja erlendra
sýningarflokka sem heimsækja
þetta 15. landsmót sem U.M.F.I.
heldur.
Sigurður Geirdal, fram-
kvæmdarstjóri U.M.F.l. á sið-
asta orðið i þættinum MEÐ
UNGU FÓLKI I dag:
„Já, égveit af eigin reynslu,
aö á landsmóti er eitthvað við
hæfi allra aldursflokka”.
Sennilega þarf enginn að efast
um sannleiksgildi þeirra orða.
Gsal.
með
ungu
fólki
Sigurður Geirdal, framkvæmdarstjóri U.M.F.I.