Tíminn - 04.07.1975, Side 13

Tíminn - 04.07.1975, Side 13
Föstudagur 4. júli 1975. TÍMINN 13 jf IbIi . iIb !! mwiiií. nf si. ffli si. mí.. Stutt athugasemd frá sóknarpresti Digranes- prestakalls Hér kemur bréf frá séra Þor- bergi Kristjánssyni, sóknar- presti i Digranesprestakalli. Séra Þorbergi likar ekki alls kostar frétt, sem birtist i blað- inu fyrir skömmu, þar sem fjallað var um hin hatrömmu átök meðal Sjálfstæðismanna i Kópavogi: „I Bæjarpósti Þjóðviljans og skrifum tveggja Kópavogsblaða (Kópavogur og Ný stefna) hafa birzt næsta undarlegar ritsmið- ar um eitt og annað i Digranes- söfnuði og sóknarprest hans. Nafnlausum þvættingsskrif- um af þvi tagi, sem hérum ræð- ir, hef ég ekki hirt um að svara og mun ekki gera það hér. En þegar fréttastjórinn á blaði kirkjumálaráðherra bergmálar þann róg sem hér um ræðir, tel ég rétt að gera stutta athuga- semd. ígreiniTimanumidag (2.7.), merktri H.H.J., segir m.a. að hlutafélagið Þorri hafi reynt sitt itrasta til aö ná yfirráðum i safnaðarstjórn Digranessóknar. Er aö þessu vikið i framhaldi af frásögn um átök innan Sjálf- stæðisflokksins i Kópavogi, er staðið hafi milli þeirra Þorra- manna og Sigurðar Helgasonar lögfræðings. Um þau efni er mér alls ókunnugt, en vil upplýsa, að þvi fór viðs fjarri, að flokkspólitisk- ar ástæður af einu eða neinu tagi lægju að baki þvi, að þeir sem ganga áttu úr safnaðar- stjórn Digranessóknar á sl. hausti, urðu ekki sjálfkjömir aftur og að einn þeirra féll raun- ar Ut. Á almennum fundi Digranes- safnaðar haustið 1973 vék ég m.a. að þvi, að ég teldi illt, að söfnuðurinn skyldi ekki hafa umráð yfir neinu húsnæði innan prestakallsins, sérstaklega vegna fermingarundirbúnings og barnastarfs. Gagnrýni minni á aðgerðarleysi sóknarnefndar i þessu efni, var ekki svarað að öðru leyti en þvi, að vara- formaður lét þess getið að þeir sem vildu verða hlutgengir Kópavogsbúar yrðu að læra að búa við óbeysnar ytri aðstæður. Hins vegar gerðist það á þess- Höggdeyfar í flestar gerðir bif reiða frá Japan og Evrópulöndum ilLOSSI Skipholti 1S " um fundi, að safnaðarmaður einn Þorleifur Jónsson, ræddi þann möguleika, að stofnað yrði bræðrafélag innan safnaðarins, er m.a. gæti stuðlað að bættri starfsaðstöðu prests og safnað- Að liðlega ári liðnu, eða i nóv. 1974, var næsti safnaðarfundur Digranesprestakalls haldinn. Þar lét ég enn i ljós óánægju yfir starfsaðstöðu minni, og taldi litt á sóknarnefndaroddvita að byggja varðandi úrbætur. Þrir áttu að ganga úr sóknar- nefnd að þessu sinni, og urðu sem sagt ekki sjálfkjörnir. Þorleifur Jónsson, sem ári áður hafði rætt um stofnun safnaðar- félags, stakk upp á þrem öðrum i þeirra stað. Um 40 manns mun hafa tekið þátt ikosningunni, og dreiföust atkvæði nokkuð. Fóru leikar svo, að tveir þeirra, er út áttu að ganga, voru endurkjörn- ir meö eins eða tveggja atkvæða mun, en nýr maður kom inn I stað fráfarandi formanns, og var nokkur munur á atkvæða- tölum þeirra. Ég hygg, að ekki þurfi að segja þeim, er til þekkja i Kópa- vogi, að Þorleifur Jónsson hafi með tillögum sinum um nýja menn verið að reka erindi and- stæðinga Sigurðar Helgasonar. Allt slíkt var auðvitað utan sjónarhrings. Tillögumaður hefur lengi unnið að safnaðar- málum og veit vel, að hlutverk sóknarnefndar er að tryggja sóknarpresti viðhlitandi starfs- aöstöðu. Ég hafði ekki farið i neina launkofa með það álit mitt, að mér fyndist fráfarandi sóknar- nefndarformaður hafa staðið linlega að málum, og þvi var einfaldlega stungið upp á mönn- um, er liklegir þóttu til þess að taka jákvætt á þessum hlutum, — enda höfðu þeir raunar allir áður gengið fram fyrir skjöldu i þvi efni. Ég ætla og, að ekki reynist auövelt um þá alla, að sýna fram á tengsl þeirra við Þorra h.f., sem raunar kemur þessu máli ekki við. Hitt má vel vera, að gagnrýni min á fyrr- verandi sóknarnefndarformann hafi verið ósanngjörn, — en það er önnur saga, sem ekki verður rakin hér. Kópavogi 2.7. 1975. Þorbergur Kristjánsson.” Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. 2. júli 1975. Laus staða Staöa forstöðumanns Heilbrigöiseftirlits rikisins er laus til umsóknar. Staöan veitist frá 1. október næstkomandi. Umsækjendur skulu vera læknar, eöa dýralæknar meö sérmenntun I heilbrigöisfræöi, menn meö háskólapróf i heilbrigöisfræöi, eöa aöra háskólamenntun, er fullnægir kröfum uin sérþekkingu I heilbrigöiseftirliti aö mati ráðherra.Umsóknir sendist heiibrigöis- og trygginga- málaráöuneytinu fyrir 15. ágúst 1975. 00) ’acro&at' Lyftutengd 4ra hjóla rakstrar og snúningsvél Vinnslubreidd 2 m Hentug til rakstrar frá skurðköntum og girðingum. Nánari upplýsingar hjá sölumanni Til afgreiðslu nú þegar Globus? LÁGMÚLI 5. SlMI 81555 Bankastrættf 9 - Sími 11811 INYKOMIÐ í DÖMUDEILD: Kaki kjólar Þunnar kápur Mjó leðurbelti Silkitreflar Gallabuxur .. I Fataverzlun IÐÖMUR & HERRA asssiiK Grófriffluð flauelsföt, jakkar og buxur || Rúllukragapeysur M Leðurjakkar 1 OPIÐ TIL KL.10 I KVOLD _____ — Simar: 1-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstola ALLT r Steinsteypa, timbur, gluggar, miðstöðvarofnar, einangrunarplast. Tvöfalt einangrunargler, steypujárn, þakjárn, álklæðning, handrið. Stigar, milliveggjaplötur, þakpappi, þakpappalagnir, þéttiefni. Blikksmiðavörur, inni-og útidyrahurðir, eldhúsinnréttingar, teppi. Fataskápar, harðviðarklæðning, raftæki, Ijósabúnaður, vegg- og gólfflísar og fleiri vöruflokkar til húsbygginga. A EINUM STAÐ LEITIÐ TILBOÐA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.