Tíminn - 04.07.1975, Síða 16

Tíminn - 04.07.1975, Síða 16
Föstudagur 4. júli 1915. J Nútíma búskapur þarfnast BJUIER haugsugu Guöbjörn Guöjónsson Heildverzlun Síöumúla Simar 85694 & 85295 ■r?- GSÐI fyrirgóðan ntai ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Wilson um stefnu sína í efnahags málum: Hvika ekki frá henni Reuter-London. Harold Wilson forsætisráöherra fuilvissaöi brezka þingmenn um þaö i gær, aö brezka stjórnin væri staöraöin aö standa á móti hærri iaunahækkuu en 10% — þrátt fyrir haröa andstööu vinstri vængs Verkamanna- flokksins. Sú fyrirætlun Wil- sonsaöknýja fram 10% launa- hækkun sem hámark — meö löggjöf, ef nauösyn krefur — fer skýlaust I bága viö loforð hans fyrir siöustu þingkosn- ingar. Margaret Thatcher, leiðtogi thaldsflokksins, spurði Wil- son, hvort hann stæði við áform sin — þrátt fyrir þrýst- ing verkalýðshreyfingarinnar. Forsætisráðherrann svaraði stutt og laggott: — Fjármála- ráðherrann hefur gert grein fyrir stefnu stjórnarinnar og ég hvika ekki frá henni. Wilson Er nýtt bráðabirgða- samkomulag Egypta og ísraelsmanna í nánd? Sendiherra ísraels í Bandaríkjunum átti tvo leynilega fundi með Kissinger utanríkisráðherra Reuter -Washington. Simcha Dinitz, sendiherra tsraels i Bandarikjunum, flaug á þriöju- dag til Jómfrúreyja, þar sem hann átti tvo leynilega fundi meö Henry Kissinger utanrikisráð- herra, sem um þessar mundir er staddur á eyjunum i leyfi. Reuter-fréttastofan segist hafa frétt þessa eftir áreiðanlegum heimildum. Fundir þeirra Dinitz og Kissingers eru sagðir benda til, að von -sé á nýju bráðabirgða- samkomulagi milli Egypta og ísraelsmanna um landamæri rikjanna á Sinai-skaga. Dinitz hitti svo i gær að máli Joseph Sisco aðstoðarutanrikis- ráðherra i bandariska utanrikis- ráðuneytinu I Washington, en átti svo að leggja af stað til ísraels i gærkvöldi til viðræðna við Yitzhak Rabin forsætisráðherra. Ekki er ljóst, hvað þeim Dinitz og Kissinger fór á milli. ísraels- stjórn hefur sem kunnugt er boð- izt til að hörfa frá hinum mikil- vægu fjaliaskörðum Giddi og Mitla — þó þannig að israelskar hersveitir verði staðsettar i nám- unda við skörðin og þau myndi sjálf hlutlaust belti milli Egypta og ísraelsmana. Þá hefur stjórnin og lýst sig reiðubúna að láta af hendi hinar umdeildu oliulindir við Abu Rudeis, svo og nokkur landsvæði á suðvestur-horni Sinai-skaga. Egyptalandsstjórn vill aftur á móti fá yfirráð yfir fjallaskörðun- um gegn loforði um aö gripa ekki til vopna i deilunum við Israels- menn. Bandarikjastjórn hefur lagt fast að Israelsstjórn að fall- ast á kröfu Egypta og er sem fyrr segir búizt við, að Israelsmenn láti undan þrýstingi Bandarikja- manna. Ford Bandaríkjaforseti í upphafi kosningabaráttu: STEFNUM OF HRATT í ÁTT TIL VELFERÐARRÍKIS Reuter-Cincinnati. Gerald Ford Bandarikjaforseti flutti I gær- kvöldi ræöu i borginni Cincinnati — ræöu, er af fréttaskýrendum er talin vera upphaf á kosningabar- áttu Fords fyrir forsetakosning- ar, er fram fara I Bandarikjunum siöla árs 1976. 1 ræðunni réðst Ford á meiri- hluta demókrata á Bandarikja- þingi og sagði, að þingmennirnir hefðu slegið upp „veizlu”, þar sem aðeins væri hirt um að eyða og fá fé að láni. Honum óx og i augum, hve hratt stefndi að vel- ferðarriki i Bandarikjunum!!! Hann sagði, að rikisstjórn ætti að hjálpa — en ekki gripa inn i lif bandariskra borgara. Sem dæmi um mismunandi stefnu sina og þingsins nefndi for- setinn dæmi, að þau þrjátiu laga- frumvörp, er hann hefði neitað að staðfesta til þessa, hefðu þýtt sex milljarða aukaútgjöld fyrir bandariska skattgreiðendur, hefðu þau orðið að lögum. Sendi- ráðs- starfs- maður skotinn til bana Reuter-Tehe.ran. transkur starfsmaður bandariska sendiráösins I Teheran höfuö- borg irans var skotinn til bana i gær. Þetta er i annað sinn, aö starfsmenn bandarisku utan- rikisþjónustunnar i tran veröa fyrir skotárás ókunnra til- ræöismanna. Starfsmaðurinn — Hassan Hosnan að nafni — sat i aftur- sæti bifreiðar, er merkt var bandariska sendiráðinu, þeg- ar henni var ekið út um hlið sendiráðsins. í sömu 'svifum ók stór bifreið i veg fyrir sendiráðsbifreiðina — út stukku tveir menn og hófu skothrið á Hosnan, er siðar lézt á sjúkrahúsi af völdum skotsára. Richard Helms, sendiherra Bandarikjanna i Iran og fyrr- um yfirmaður bandarisku leyniþjónustunnar (CIA), lýsti skotárásinni sem „hryllileg- um glæp og enn einu dæminu um siðleysi nútima hryðju- verkastarfsemi”. Þann 21. mai s.l. voru tveir flugl iðsforingjar, er gegndu störfum á vegum Bandarikja- hers i tran, skotnir til bana. Aðstæður voru þá svipaðar og nú, svo að liklegt er, að sömu aðilar hafi staðið að þvi morði og þvi, er framið var i gær. Tass ræðst á Poniatowski, innanríkisráðherra Frakklands: Flóttamannavandamálið á Kýpur er erfitt úrlausnar: Hætta á nýjum átök- um á eynni ráðamenn hafa áhyggjur af stefnu frönsku stjórnarinnar — að sögn franska blaðsins Le AAonde Reuter-Nikósiu. Hætta er nú á, að ný átök brjótist út á Kýpur milli grisku og tyrknesku mælandi eyjarskeggja. Astæöan er sú, að erfiölega hefur gengiö að ná sam- komulagi milli þjóöarbrotanna um gagnkvæm skipti á flóttafólki. I gær áttu yfirmenn i gæzluliði Sameinuðu þjóðanna á eynni fund með deiluaðilum i' þvi skyni að koma á sáttum. Áður tilkynnti innanrikisráðuneytið á Kýpur, að. þrettán lögreglumönnum hefði veriö sagt upp störfum, en for- svarsmenn tyrknesku mælandi manna höfðu sakað þá um að hafa bariö nokkra flóttamenn til óbóta, er þeir reyndu að komast yfir á yfirráðasvæði Tyrkja á norður- hluta eyjarinnar. 1 gær náðist samkomulag um flutninga þessa hóps norður á bóginn, en stuttu áður höfðu 800 grfsku mælandi menn fengið að flytjast suður á bóginn — til yfir- ráðasvæðis Kýpurstjórnar. Óhætt er að fullyrða, að flótta- mannavandamálið er ein stærsta hindrunin i vegi fyrir allsherjar- samkomuiagi um lausn Kýpur- deilunnar. A að gizka tvö hundruð þúsundir grisku mælandi manna flýðu suður undan hersveitum Tyrkja, er þær gerðu innrás á Kýpur i fyrrasumar. Og u.þ.b. fimmtlu þúsundir tyrknesku mælandi menn fluttust til norður- hluta eyjarinnar. Ennþá búa ná- lægt tiu þúsundir framandi fólks á yfirráðasvæði hvors þjóðarbrots og er það bundið átthagafjötrum. Lif flóttafólksins er viða hörmulegt, einkum á suðurhluta eyjarinnar, þarsem ibúatala hef- ur nálega tvöfaldazt. Aftur á móti vill fólkið ekki snúa til fyrri heim- kynna — a.m.k. ekki fyrr en endi hefur verið bundinn á Kýpurdeil- Reuter-Paris. Sovézka fréttastof- an Tass hefur ráöizt harölega á Michel Poniatowski, innanrikis- ráöherra Frakklands, vegna um- mæla hans um fyrirmæli, er sovézki kommúnistaflokkurinn er sagöur hafa sent systurflokkum sinum I Vestur-Evrópu. t frétt Tass er Poniatowski — sem er einn nánasti ráögjafi Giscard d'Estaing forseta — sagöur mis- heppnaöur stjórnmálamaöur, er reyni aö upphefja sjálfan sig meö andkommúniskum áróöri. Ummæli Poniatowskis birtust i hinni frönsku útgáfu dagblaðsins Republica, sem er aðalmálgagn portúgalskra sósialista. Fyrir- mæli sovézka kommúnistaflokks- ins voru i þvi fólgin, að vestur- evrópskir kommúnistar ættu — með öllum tiltækum ráðum — að ná raunverulegu tangarhaldi á sem flestum fjölmiðlum, sveitar- stjórnum, verkalýðsfélögum — og jafnvel seilast til áhrifa innan hersins. Poniatowski lýsti þvi yfir i gær, að árásir Tass væru ekki svara veröar. Aftur á móti teldist slikt sorglegt er opinber fréttastofa kæmi fram með svo grófar ásakanir i garð einstaklings. Hið óháða franska dagblað Le Monde gerir árásir Tass á Ponia- towski að umtalsefni i leiðara i gær. Blaðið kemst að þeirri athyglisverðu niðurstöðu, að með þessu sé Tass ekki eingöngu að ráðast á innanríkisráðherrann — heldur gegn stefnu frönsku stjórnarinnar: Sovézkum ráða- mönnum þyki Frakkar hafa gerzt of hliðhollir Bandarikjamönnum og öðrum bandamönnum i At- lantshafsbandalaginu að undan- fömu. Þvi er bætt við, að viðræð- ur fransk-sovézku samvinnu- nefndarinnar, er nú situr á rök- stólum i Moskvu, gangi fremur stirðlega. Af opinberri hálfu hefur þeim getgátum Le Monde hins vegar verið visað á bug —og sagt, að viðræðurnar gangi að óskum. Poniatowski (ásamt Giscard d'Estaing): Arásir Tass ekki svara veröar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.