Tíminn - 05.07.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 5. júli 1975.
Vistheimili vangefinna
á Akureyri eykur
við húsakost sinn
ASK—Akureyri. Sólborg vist-
heimili vangefinna á Akureyri
héfur nú um árabil búið við mjög
þröngan húsakost. Upphaflega
var gert ráð fyrir að þar dveldu 32
einstaklingar, en i dag eru þar um
56 einstaklingar. Til að bæta úr
brýnustu þörfinni og um leið að
rýma vistheimilið að einhverju
Oddeyrargata 32, sem Sólborg
hyggst kaupa.
leyti, hafa forráðamenn þess i
huga að kaupa fasteign á Akur-
eyri sem kæmi til með að verða
heimili 6-10 einstaklinga.
Að sögn Bjarna Kristjánssonar
framkvæmdastjóra Sólborgar
hefur húseignin Oddeyrargata 32
mjög fastlega komið til greina,
enda er um mjög hentugt húsnæði
að ræða. Verð hússins ér um 10
milljónir og sagði Bjarni að Sól-
borg legði fram um helming þess
verðs.
Eins og fyrr sagði verðúr þarna
um að ræða heimili fyrir um 6-10
einstaklinga. Verður valið úr full-
orðið sjálfbjarga fólk sem dveldi
að mestum hluta á Sólborg að
deginum við vinnu og nám, en
hluti hjálpaði til við heimilisstörf
i Oddeyrargötu. Að sögn Bjarna
yrði um fámennt starfslið að
ræða, einungis tveir til þrir
starfsmenn eru nauðsynlegir við
heimili sem þetta.
Aðspurður hvort ekki gætu
orðið um að ræða einhvers konar
mótmæli frá nágrönnum, sagðist
Bjarni álita slikan hugsunarhátt
horfinn, enda væri skilningur
fólks á málefnum vangefinna
mun meiri nú en áður var.
Fyrstu dómarnir í Vl-mólunum:
Sýknaðir af öll-
SIGLFIRZK EININGAHÚS
RÍSA NÚ VÍÐA UM LAND
Húseiningar h.f i Siglufirði eru nú að framleiða 15 hús fyrir þrjú sveitarfélög, Siglufjörð, Raufarhöfn
og Vopnafjörð, og á verksmiöjan að skila þeim i ágúst til október.
Húseiningar hafa nú framleitt 9 hús, sem reist hafa verið á Siglufirði, Vopnafirði, Drangsnesi, Seyðis-
firði og Skagafirði, tvö hafa verið reist I Borgarnesi og nú er verið að reisa tvö i Garðahreppi. Myndina
tók G.E. af framkvæmdum við Siglufjarðarhúsin i Garðahreppi.
í verksmiðju Húseininga h.f. starfa um 12 manns við framleiðsluna. Vélvæðing er mjög mikil I verk-
smiðjunni.
Afkastageta verksmiðjunnar við óbreyttar aðstæður er um 60-80 hús á ári, en afkastageta vélanna er
um 250-300 hús á ári.
ÍSLENZKIR RADIOAAAATÖRAR
SENDA ÚT FRÁ HEIAAAEY
um refsikröfum
— en dæmdir til þess að greiða mólskostnað
— hefur ekki verið gert í 25 ór
HHJ—Rvik. 1 gær kvað Hrafn
Bragason borgardómari i
Reykjavik upp fyrstu dómana i
hinum svokölluðu VL-málum,
Sýningu Eyjólfs
Eyfells lýkur ó
sunnudagskvöld
Yfirlitssýningu Eyjólfs J.
Eyfells sem opin hefur verið
þessa viku að Kjarvalsstöðum,
lýkur kl. 22.00 sunnudagskvöld.
Sýningin hefur verið mjög vel
sótt og vakið verðskuldaða hrifn-
ingu.
Auk almennra gesta bauð lista-
maðurinn vistfólki á „Grund” og
„Hrafnistu” á sýninguna. For-
stjóri SVR sýndi þá vinsemd að
gera það kleift með þvi að annast
flutning gestanna.
Þá hafa séð sýninguna gestir
Reykjavikurborgar á lækna- og
búfræðingaráðstefnum, sem
haldnar hafa verið i borginni
þessa viku.
1 dag kl. 5 verður flutt á sýning-
unni stutt söngprógram á vegum
þjóðdansafélagsins.
Sýningin verður ekki fram-
lengd.
Kirkjudagur
aðKálfatjörn
A morgun er hinn árlegi kirkju-
dagur i Kálfatjarnarkirkju.
Guösþjónusta fer fram i kirkj-
unni kl. 2 e.h. Þar predikar séra
Björn Jónsson, sóknarprestur á
Akranesi, en kór Kálfatjarnar-
kirkju syngur undir stjórn Jóns
Guðnasonar organista. Kórinn
hefur starfað mjög ötullega und-
anfarið og notið leiðsagnar hins
áhugasama stjórnanda sins.
Að guðsþjónustu lokinni verður
safnazt saman i samkomuhúsinu
Glaðheimum i Vogum, en þar
selja konur úr kvenfélaginu Fjólu
veitingar til ágóða fyrir kirkju-
sjóð sinn. Formaður sóknar-
nefndar, Jón Guðbrandsson flytur
ávarp. Mun hann minnast þeirra
miklu umbóta, sem orðið hafa á
kirkjunni að Kálfatjörn, og þakka
hið mikla framlag og vinarhug,
sem safnaðarfólk og aðrir vel-
unnarar kirkjunnar hafa sýnt á
margvislegan hátt.
Kirkjudagar þessir hafa ávallt
tekizt mjög vel og verið fjölsóttir.
þ.e. þeim málum, sem aðstand-
endur undirskriftasöfnunar
þeirrar, er kennd var við
einkunnarorðdn „Yarið land”
höfðuðu gegn fjórtán mönnum
sakir meintra meiðyrða.
Úrskurður borgardóms var á þá
lund, að Úl far . Þormóðsson
blaðamaður á Þjóðviljanum og
Guðsteinn Þengilsson læknir voru
báðir sýknaðir af öllum refsi-
kröfum, bæði hvað áhrærir fébæt-
ur og fangelsisvist.
Hluti þeirra ummæla, sem
stefnt var fyrir, var hins vegar
dæmdur dauður og ómerkur. Þá
var Úlfar dæmdur til þess að
greiða 80 þús. kr. I málskostnað,
og Guðsteinn til þess að greiða 25
þús. kr. i málskostnað.
Enn eru eftir tólf sams konar
mál, en málflutningur i þeim
hefur ekki enn farið fram.
„Samkvæmt ósk utanrlkisráðu-
neytisins hefur yfirmaður
varnarliðsins á Islandi skilað
skýrslu varðandi slit sæstrengs
þess, sem liggur i sjó úti fyrir
Stokksnesi. Sæstrengur sá, sem
hér um ræðir, er hluti af búnaði
vamarliðsins á Islandi og þar
sem hér er um að ræða atriði er
varða öryggismál landsins, er
ekki unnt að fara nánar út i
einstaka þætti skýrslunnar.
Ráðuneytið hefur fullvissað sig
um að tilvist þessa sæstrengs og
gébe:Rvik. — Dagana 12. og 13.
júli n.k. munu sex islenzkir
radioamatörar senda út frá
Heimaey i Vestmannaeyjum, en
þaðan hafa engar sendingar farið
frá radioamatörum i að minnsta
kosti tuttugu og fimm ár.
Kallmerki þeirra er TF7V, en það
mun vera I fyrsta skipti, sem slikt
merki er notað af
radiodamatörum, þ.e.a.s. með
einum bókstaf fyrir aftan
tölustaf. Tilgangurinn með þess-
um sendingum er að vekja at-
hygli á Vestmannaeyjum og
minnast þess, að nú eru rúm tvö
ár liðin frá gosi. Þá fá þeir
radioamatörar, sem svara
sendingunum, send falleg kort
með litmyndum af gosinu i
Heimaey og verður kallmerkið
TF7V þrykkt á myndina.
Radioamatörar um allan heim
hafa sýnt þessu mikinn áhuga.
N.k. þriðjudag munu islenzkir
radioamatörar fara til Vest-
notkun hans samræmist að öllu
leyti tilgangi þeim, sem fólginn er
i starfsemi varnarstöðvarinnar
og öryggisvörnum landsins.”
Þannig er að orði komizt i til-
kynningu, sem utanrikis-
ráðuneytið gaf út i gær.
Timinn reyndi i gær án
árangurs að afla sér frekari
upplýsinga um þetta mál en þeir
aðilar, sem blaðið hafði tal af
kváðust ekki reiðubúnir að gefa
frekari upplýsingar að svo
stöddu.
mannaeyja með útbúnað sinn og
setja loftnet upp og annast annan
undirbúning. A laugardaginn 12.
júli hefjast svo sendingamar og
standa sleitulaust i tvo sólar-
hringa. Áhuginn er mikill, og
vonast er til, að hægt verði að
hafa samband við sem flest fjar-
læglönd og þá er átt við lönd utan
Evrópu, S-Ameriku, Japan og
Ástrallu, svo eitthvað sé nefnt, en
þeir radioamatörar, sem að þessu
standa eru DX-radioamatörar, en
það nefnast þeir, sem mest eða
eingöngu hafa radiosamband við
erlend lönd.
Sent verður á morsi (CW) og á
tali (SSB).
Þeir radioamatörar.sem að
þessari ferð standa, vilja koma á
framfæri þakklæti til þeirra, sem
þeir hafa leitað til i Eyjum, en
allir veittu þeir góðfúslega fyrir-
greiðslur — Það er von okkar, að
þetta verði góð kynning fyrir
gébé-Rvik — 1 tilefni þess að öld
er liðin frá landnámi islendinga i
Vesturheimi, hefur Póst- og
simamálastjórn gefið út frimerki
með mynd af einum kunnasta
vesturfaranum, Stephan G.
Stephanssyni ( 1853-1927 ).
Stephan var tvítugur að aldri
þegar hann fluttist til Vestur-
heims ásamt foreldrum sinum, en
hann gerðist bóndi og landnáms-
maður og bjö lengst af I Alberta-
fylki. Ekki átti hann kost á skóla-
göngu, en aflaði sér menntunar
með lestri góðra bóka.
Vegna anna við búskapinn,
gafst litið tóm til skáldskapar
nema á nóttinni og þvi nefndi
hann ljóðabækur sinar Andvökur.
Stephan var alla tið Islendingur i
hug og hjarta þótt hann byggi
fjarri ættlandinu eða eins og hann
segir i hinu þekkta kvæði sinu: Þó
þú langförull lengðir, sérhvert
Vestmannaeyjar, sagði einn
þeirra sexmenninganna, Guðjón
Einarsson.
Stórbruni
í Eyjafirði
ASK Akureyri. — Stórbruni varð
á Blómsturvöllum i Glæsibæjar-
hreppi sl. fimmtudagsmorgun,250
rúmmetra hlaða og áfast fjárhús
brunnu til kaldra kola, án þess að
við neitt yrði ráðið. 1 hlöðunni
voru um 50 hestar af heyi, óvá-
tryggt, en hlaðan og fjárhúsið var
lágt tryggt.
Lögreglan á Akureyri var fyrst
reyks vör um fimmleytið um
morguninn og kvaddi út slökkvi-
lið. Þegar inn að Blómsturvöllum
kom, voru allir i fasta svefni.
Munaði minnstu að stórslys yrði,
en aðeins 12 metrar eru á milli i-
búðarhússins og fjárhússins. Að
sögn bóndans, Kristjáns Sveins-
sonar, er talið, að kviknað hafi i
út frá rafmagni.
land undir fót, bera hugur og
hjarta samt þins heimalands mót.
Útgáfudagur frimerkisins er 1.
ágúst og er verðgildi þess 27 kr.
Stærð þess er 26x40 mm og er það
grænt og brúnt að lit. Myndin af
skáldinu á frlmerkinu er eftir
Rikharð Jónsson, en frimerkið
var prentað i Frimerkjaprent-
smiðju frönsku póstþjónustunnar.
t gær fór fram frá Fossvogskapeilunni I Reykjavfk útför Þorgiis
Guðmundssonar Iþróttakennara frá Valdastöðum að viðstöddu
miklu fjölmenni. Séra Einar Guðnason jarðsöng. Við athöfnina
lék Þorvaldur Steingrimsson á fiðlu og félagar úr Fóstbræðrum
sungu. Hins látna verður siöar minnzt I islendingaþáttum Tim-
ans. Timamynd G.E.
Kapallinn er bandarískur
— en frekari upplýsingar liggja
ekki á lausu
Nýtt frímerki í tilefni
aldar afmælis
landnáms íslendinga
í Vesturheimi