Tíminn - 08.07.1975, Síða 1
*
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Landvélarhf
Straumsvík:
Óleyfileg
skolun
gjalls
» > o
Islendingar
gerðu jafntefli
við Skandinava
AAARGEIR
TIL
JÚGÓSLAVÍU
— á heims-
meistaramót
unglinga í skók
íslenzkur togari með tvö-
faldan poka
18,2% afla
16 togara undirmálsfiskur
gébé Rvik — Nýlega fór Ólafur
Pálsson fiskifræðingur frá Haf-
rannsóknastofnuninni á miðin
fyrir Norðurlandi. Fór hann þar
uin borð í nokkra togara og
gerði skyndiathugun á afianum,
en eins og kunnugt er, hefur
mikið verið rætt um smáfiska-
dráp á þessum slóðum. Niður-
stöður þessarar athugunar eru
fremur ógnvekjandi. Undir-
málsfiskur (undir 45 sm) reynd-
ist vera, að meðaltali frá öllum
togurunum, 18,2%. Svokallaður
smáfiskur (45—54 sm) var
32,2%, millifiskur (55—74 sm)
47% og stór fiskur, sem er stærri
en 74 sm, var aðeins 2,5% að
meðaltali af afla togaranna.
Langversta svæðið sem athug-
að var, reyndist vera Skaga-
grunn, og svo svæðið suðaustur
af Grimsey. Fleiri svæði voru
athuguð, svo sem Reykjafjarð-
aráll, Kölkugrunn, Skjálfanda-
djúp, svæðið vestur af Grimsey
og Hornbanki, svo að eitthvað sé
nefnt.
Ólafur Pálsson fiskifræðingur
kvaðst hafa farið með varðskipi
norður fyrir land og verið þar
dagana 3.-5. júli'. Sagði Ólafur,
að hann hefði farið um borð i
sextán togara, þar af þrjá
brezka. — Afli togaranna var
mjög misjafn, en langversta
svæðið reyndist vera Skaga-
grunn, sagði Ólafur. Þar fórum
við um borð i tiu islenzka tog-
ara, og reyndist fjórðungur afla
þeirra vera undirmálsfiskur og
um 29% smáfiskur, en afgang-
urinn var millifiskur.
— Þá var farið um borð i þrjá
brezka togara á Hornbanka, en
þar voru um tuttugu brezkir
togarar að veiðum. Niðurstaða
þeirrar athugunar varð sú, að
afli þessara þriggja togara var
14,9% undirmálsfiskur, 44,3%
smáfiskur og afgangurinn að
mestu millifiskur, en aðeins
2,9% af afla þeirra, var stór
fiskur, sagði Ólafur.
— Þá voru togarar á Skjálf-
andadjúpi, en þar var afli litill
og viðdvöl togaranna stutt.
Á svæðinu vestan við Grimsey
var farið um borð i tvo islenzka
togara. Við könnun á afla þeirra
kom i ljós, að annar togarinn
var með ólöglegan veiðiútbún-
að. Reyndist útbúnaðurinn á
poka tvöfaldur, þannig að fiskur
undir máli reyndist 25,6% af afl-
anum, og voru fiskarnir allt nið-
ur i 25—35sm. Þetta var tveggja
ára fiskur, árgangur ’73. Til
samanburðar er, að undirmáls-
fiskur i hinum togaranum var
aðeins 9,9%. Veiðiskilyrði tog-
aranna tveggja voru hliðstæð,
enda voru þeir á sömu slóðum,
sagði Ólafur.
Ólafur Pálsson sagði, að sam-
vinna við varðskipsmenn hefði
verið mjög góð, og að móttökur
áhafnir togaranna hefðu brugð-
izt vel við komu varðskipsins og
fiskifræðings. Þá sagðist Ólafur
vona, að fleiri slikar athuganir
færu fram, þvi þessi hefði sýnt,
að þörfin á eftirliti væri brýn.
Þá taldi Ólafur allar friðunar-
aðgerðir hálfgert fálm út i loft-
ið.
— Varla er hægt að banna is-
ienzku togurunum veiðar á
þessum svæðum, þegar þeir
brezku hafa leyfi til að veiða
þar.sagði hann. Þvi er erfitt við
mál þetta að fást og alltof litið
gert til þess að vernda uppeldis-
svæði þorsksins.
Jón Jónsson, forstöðumaður
Hafrannsóknastofnunarinnar,
staðfesti það sem Ólafur Páls-
son fiskifræðingur hafði sagt
blaðamanni Timans og sagði að
sér þættu niðurstöður könnunar
þessarar slæmar. Skýrsla fiski-
fræðingsins verður þegar send
sjávarútvegsráðuneytinu.
Strandlengjan frá
Kjalarnesi til
Straumsvíkur könnuð:
gébé Rvik — samkvæmt upplýs-
ingum frá Taflfélagi Reykjavikur
mun hinn ungi og efnilegi skák-
maður, Margeir Pétursson, taka
þátt í heimsmeistaramóti ung-
linga, sem haldið verður i Tjent-
iste i Júgósiaviu 16. ágúst til 2.
september. Aðstoðarmaður Mar-
geirs á mótinu verður Bragi
Kristjánsson.
Eins og kunnugt er, var hætt við
að hafa heimsmeistaramót ung-
linga i skák á Puerto Rico. Fide,
alþjóðaskáksambandinu barst
boð frá Júgósiövum, sem buðust
til að halda mótið i Tjentiste. Bú-
izt er við, að mótið verði mjög
sterkt, og að þarna komi saman
og leiði saman hesta sina ung-
lingameistarar frá flestum lönd-
um heims. Margeir Pétursson fer
þessa ferð á vegum Taflfélags
Reykjavikur, og er það i fyrsta
skipti, sem íslendingur tekur þátt
i heimsmeistaramóti unglinga i
skák.
Á að reisa hreinsunarstöð
eða veitq skólpi á haf út?
H.V. Reykjavik. Sameinuð
starfsnefnd hreppa og bæjarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu hefur
nú samið við Raunvisindastofnun
Háskólans, Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins og Hafrannsókna-
stofnun islands, um að fram-
kvæma fyrsta áfanga athugunar
á strandlengjum viðkomandi
sveitarfélaga, með það fyrir aug-
um, að ákvarða hvar á að safna
saman og koma fyrir frárennsli
úr holræsum á svæðinu i framtið-
inni.
Sveitarfélögin, sem að athugun
þessari standa eru: Reykjavik,
Kópavogur, H a fn ar f j örðu r,
Garðahreppur, Seltjarnarnes,
Mosfellshreppur, Bessastaða-
hreppur og Kjalarneshreppur, en
str andlengjan, sem athuguð
verður, nær ofan frá Kjalarnesi,
suður til Straumsvikur.
Niðurstöður fyrri kannana á lif-
rlki strandlengjunnar hafa meðal
annars leitt til þess, að mjög ö-
æskilegt hefur verið talið að leiða
frárennsli frá Reykjavik út i
Fossvog, en ætlun starfsnefndar-
innar er að ákveðnir þættir lifrik-
is á Skerjafjarðarsvæðinu verði
teknir til nánari athugunar og þá
sérstaklega áhrif frárennslis á
það. Niðurstöður könnunarinnar
verða svo lagðar til grundvallar,
þegar ákvörðun verður tekin um
framtiðarskipan frárennslis frá
Reykjavik og öðrum sveitafélög-
um á svæðinu. Mögulegt er talið
að nánari athugun leiði i ljós, að
óhætt muni að losa frárennsli i
Fossvog og Skerjafjörð.
Framhald á bls. 18
HEIMSÆKIR
FLATEYRI