Tíminn - 08.07.1975, Qupperneq 3
Þriðjudagur 8. júli 1975.
TÍMINN
3
LEIKIÐ
OÓ-Reykjavik. Allsérstæöar
menningarviðburður átti sér staö
við Barðavog I Reykjavlk s.l.
sunnudag. Þar var haldin sýning
á verkum Kristjáns Daviðssonar,
I vinnustofu hans, auk þess sem
leikin voru tónverk eftir Leif
Þórarinsson, og stjórnaði hann
flutningi þeirra. Sýningin og
hljómleikarnir voru tileinkuð
Ragnari Jónssyni I Smára, en
þeir félagar vildu sýna honum
þakklætis- og virðingarvott fyrir
framlag hans til eflingar listum á
tslandi.
Myndirnar sem Kristján sýndi
eru bæði gamlar og nýjar, sömu-
leiðis tónverk Leifs, en að
minnsta kosti eitt þeirra var
frumflutt I vinnustofunni. Félag-
ar úr Kammersveit Reykjavikur
léku, GIsli Magnússon lék á pianó
og Sigriður E. Magnúsdóttir söng.
Geta má þess, að Hákon, sonur
Leifs, kom þarna I fyrsta sinn
fram opinberlega sem hljóðfæra-
leikari, en hann nemur hornaleik
við Tónlistarskóla I Kaupmanna-
höfn.
Sem að likum lætur komust
ekki nema fáir áheyrendur og á-
horfendur fyrir i vinnustofunni,
þvi að hljómsveitin var allfjöl-
menn á stundum, og rúmfrek, en
nokkrum nánum vinum Ragnars
og listamannanna var boðið.
Mynd var máluð, meðan leikið
var, og var það hluti af tón-
verkinu. Upphaflega átti diter rot
aðannastþann hluta flutningsins,
en hann gat ekki komið þvi við,
þar sem hann er nú erlendis og
málaði þá Leifur jafnframt þvi að
stjórna.
Þeir Kristján og Leifur hafa
haft á orði að vel komi til mála að
efna til fleiri listaviðburða af
þessu tagi, og að aðrir listamenn
kynni þar verk sin og jafnvel að
fleiri listgreinar verði kynntar.
Samningarnir í
Straumsvík:
MEÐ LITUM RÖg
til heiðu rs
nari í Smóra
t leikhléi bera menn saman bækur slnar og skoöa myndir.
Leikiö meö litum. Leifur Þórarinsson málar mynd undir tónlistarflutningi og er myndageröin hluti af
flutningi verksins.
Dalvíkingar
orðnir lang-
eygir eftir
hitaveitu-
bornum
ASK-Akureyri. Enn þurfa Dalvlk-
ingar að biða eftir hitaveituborn-
um, er átti að vera þangað kom-
inn fyrir hálfum mánuði. Töfin
getur orðið allt að þrjár vikur til
viðbótar, en sem stendur er verið
að bora á Ólafsfirði.
Eins og áður var getið i blaðinu
hafa brotnað þrjár borkrónur á
Ólafsfirði, en að sögn Þóris
Sveinsbjörnssonar verkstjóra þar
var um að ræða ákaflega lélegar
borkrónur. Nú hefur hins vegar
verið skipt um og ætti verkið þvi
að geta gengið viðstöðulaust úr
þessu. Síðastliöinn föstudag var
búið að bora 740 metra af 1000
áætluðum, og var borinn þá kom-
inn niður i lagskipt basalt.
A Dalvik er ætlunin að bora
eina holu til viðbótar þeim átta
sem fyrir eru. Þar gefur aðeins
ein af holunum sæmilega mikið
vatn með dælingu eða um 28
sekúndulítra af 58 gráðu heitu
vatni. Vantar um 10 sekúndulitra
til að fullnægja eftirspurninni, en
vonir standa til að sú 275 metra
hola, sem ætlunin er að bora, geti
fullnægt þörfjnni.
Leiðrétting
t grein Páls Þorsteinssonar,
,,Lifgras”,sem birtist i Timanum
1. júli, hafa tölur breytzt I prent-
un. 1 stað orðanna ,,Á einu ári
fækkaði nautgripum á tslandi um
5170....”, eiga síðustu setningar II
kafla að vera þannig: ,,A einu ári
fækkaði nautgripum á tslandi um
51% hrossum um 76% og sauðfé
um 80%. Ekki eru full 200 ár siðan
forfeður vorir hlutu þessa bitru
lifsreynslu.”
Prósentuhækkun ekki
nægilegt fróvik frá
krónuhækkun til að
heita önnur stefna í
launamálum en stefna
Alþýðusambandsins
— segir Hermann Guðmundsson, form.
Hlífar
H.V. Reykjavik. Kjarasamn-
ingar þeir, sem gerðir hafá
verið milli tslenzka álfélagsins i
Straumsvik og starfsmanna
þess, fela I sér 16% launahækk-
un hjá öllum starfsmönnum ál-
versins, sem kemur til fram-
kvæmda nú þegar, og jafnframt
þvi 20.000 kr. launahækkun i
desembermánuði næstkomandi,
sem ennig leggst á laun allra
starfsmanna.
Ennfremur fela þessir nýju
samningar i sér hækkanir á
tryggingum starfsmanna og
breytingar á starfsaldurs-
ákvæðum, þannig að réttindi og
launahækkanir nást eftir styttri
starfstima en áður.
Frá upphafi hefur verið samið
sérstaklega við starfsmenn ál-
versins i Straumsvik, sem
tilheyra tiu mismunandi stétt-
arfélögum, en oftast nær hefur
verið byggt að mestu á ramma-
samningum ASt. Að þssu sinni
var rammasamningur ASl frá
13. júni siðastliðnum, notaður til
viðmiðunar við útreikning á
ákveðinni prósentuhækkun
launa, sem siðan var lögð á öll
laun starfsmanna álversins, i
stað þess að nota ákveðna kr.-
tölu. Hækkun þessi er nokkru
meiri en sú mesta, sem ASt
samdi um i júni, og þar við bæt-
ast einnig 20.000 krónurnar, sem
leggjast eiga við laun starfs-
manna álversins i desember.
Timinn hafði i gær samband
við nokkra af forystumönnum
Alþýðusambands tslands, en
þeir kváðust ekki hafa kynnt sér
þessa samninga nægilega vel til
þess að tjá sig um þá.
Hermann Guðmundsson, for-
maður verkalýðsfélagsins Hlif-
ar i Hafnarfirði, sem er eitt af
aðildarfélögum að samningum
þessum, taldi þó, i viðtali við
blaðið i gær, að i öllum megin-
atriðum væru samningar þessir
t samræmi við rammasamning
ASl. Taldi hann ekki að álagn-
ing ákveðinnar prósentu væri
nægilegt frávik frá álagningu
ákveðinnar krónutölu, til þess
að samningurinn gæti talizt
byggður á annarri stefnu i
launamálum en samningur ASt.
Óleyfileg skolun gjalls
Tilraun til að endurvinna úrgang í Straumsvík
H.V. Reykjavfk. Héraðslæknirinn
i Hafnarfiröi og lögreglan i
Hafnarfirði stöðvuðu á föstudag i
siðustu viku framkvæmdir á at-
hafnasvæði Islenska álfélagsins i
Straumsvik, sem voru brot á
ákvæðum i samningi þeim, sem
gerður var milli fyrirtækisins og
islenzka rikisins.
Framkvæmdir þær, sem um
var að ræða, voru skolun á gjalli,
sem fleytt er ofan á kerjunum i
álverinu, en i þvi er mikið af
hreinu áli, sem starfsmenn fyrir-
tækisins hugðust hreinsa úr, méð
þvi að skola sölt og önnur efni af
þvi I sjó. Gizkað er á að verðmæti
hreins áls i þvi gjalli, sem þegar
er til ivörslu álversins, geti verið
á milli 20 og 30 milljónir islenzkra
króna.
Til eru aðferðir, sem mikið eru
notaðar i álverum i Bandarikjun-
um og viðar, sem endurvinna
gjallið og hreinsa álið úr þvi, en
slikri aðstöðu hefur ekki verið
Framhald á bls. 18
Dmdi
inJ
i
tsiiíi
M
Vatnsdalsá
Veiði hófst i Vatnsdalsá sið-
ustu dagana i júni, og var hún
fremur treg fyrstu dagana, að
sögn Magnúsar Ólafssonar á
Sveinsstöðum. Undanfarna
daga hefur veiði þó glæðzt nokk-
uð, og Igær voru um sjötiu laxar
komnir á land. Þetta mun þó
vera heldur minna en oft-áður á
sama tima. I vor var sleppt
fimmtán þúsund sumaröldum
seiðum i þverár Vatnsdalsár
ofan laxgengra fossa. Þetta var
einnig gert i fyrrasumar, en
seiðin eru frá Laxeldisstöðinni i
Kollafirði. Áður hafði göngu-
seiðum verið sleppt i ána, en
það var hvorki gert i ár né i
fyrra.
Þá sagði Magnús, að leigu-
samningur við leigutaka i
Vatnsdalsá myndi renna út i
sumar.
Stóra-Laxá i Hreppum
Veiði i Stóru-Laxá hófst 21.
júni, og I gær voru eitt hundrað
laxar komnir á land, sem er
mun betra en á sama tima i
fyrra, en þá fengust 157 laxar úr
ánni eftir allt sumarið. Lax-
arnir, sem nú hafa fengizt, eru
mjög stórir, allir meira en tiu
pund og allt upp i 17 pund. Ekk-
ert er enn farið að bera á smá-
laxi. Á svæði I og II, sem er frá
landamerkjum Iðu að og með
Gvendardrætti og frá og með
Bergsnös að og með Sveins-
skeri, er veitt á þrjár stangir, og
hafa þar fengizt 40 laxar. A III
svæðinu, sem er frá og með Þór^
unnarauga að og með Katla-
gljúfri, hafa tuttugu laxar kom-
ið á land, og á IV svæðinu, frá og
með Bláhyl inn i Laxárgljúfur
eru 40 laxar komnir á land, en
þar er veitf á fimm stangir. Að
mestu mun nú fullbókað á veiði-
dagana I Stóru-Laxá i sumar.
Frá Stangveiðifélagi
Reykjavikur
Friörik Stefánsson sagði i
gær, að úr Eilliöaám væru nú
komnir vel á fimmta hundrað
laxar. Veiðin þar hefur verið
mjög góð það sem af er, eða allt
að 50% betri en á sama tima i
fyrra. Veiðin i Gljúfurá hefur
einnig verið mjög góð, og vissi
Friðrik af einum laxveiðimanni,
sem fékk 23 laxa á einum degi. I
gær voru um 240 laxar komnir á
land úr Grimsá en Friðrik
kvaðst vera einna óánægðastur
með veiði þar, en sagði að
Grimsá væri alltaf sein til. Nú
hafa útlendingar ána á leigu, en
Stangveiðifélagið tekur aftur
við henni i ágúst. Á timabilinu 1.
júni—1. júli komu 608 laxar úr
Norðurá, en aðrir aðilar hafa
ána á leigu i júli, og tekur
Stangveiðifélagið aftur við
henni 1. ágúst.