Tíminn - 11.07.1975, Side 11
Föstudagur XI. júli 1975,
TÍMINN
11
i
Eru skotskór Valsmanna
geymdir á Hlíðarenda?
_ áttu ógrynni tækifæra í leiknum gegn Keflavík í gærkvöldi, en tókst ekki að
skora nema einu sinni, og Keflvikingar fóru heim með bæði stigin
SJALFSAGT á ekkert 1. deildar
iiöanna eins mikið úrval góöra
framlinumanna og Valsliðið. En
sá galli er á gjöf Njarðar — og það
er stór galli — að þeir eiga erfitt
með að skora mörk. Alla vega
gekk það afar illa i gærkvöldi,
þegar Valsmenn léku gegn Kefl-
vikingum á Laugardalsvellinum.
Hvað eftir annað skall hurð nærri
hælum við Keflavíkur-markið. En
aðeins sinu sinni tókst þeim að
nýta dauðafæri — þau hafa ef-
laust verið tiu talsins — en þetta
eina mark nægði skammt, þvi að
Keflvikingar, sem börðust eins og
Ijón i leiknum, skoruðu tvivegis
og i bæði skiptin var Steinar Jó-
hannsson á ferð. Sem sé, 2:1 sigur
Keflavikur.
Fyrri hálfleikur var heldur lé-
leg kvöldskemmtun. Eina mark
hálfleiksins skoraði Steinar fyrir
Keflavik á 39. minútu. Jón Ólafur
gaf knöttinn úr þröngri stöðu á
Steinar, sem var i enn þrengri
stöðu, við markteigshorn vinstra
megin. Og Steinar — fæddur
markaskorari — fann leiðina i
markiðfram hjá Siguröi Haralds-
syni.
í þessum hálfleik áttu Vals-
menn nokkur hættuleg tækifæri,
m.a. skallaði Ingi Björn af
tveggja metra færi beint i fang
Þorsteins Ólafssonar. Og Berg-
sveinn Alfonsson — sem lék sinn
250. leik — brenndi af fyrir opnu
marki.
0
Steinar Jóhannsson,
mörk Keflvikinga
skoraöi bæði
Siðari hálfleikur var mun betur
leikinn af báðum liðum. Vals-
menn gerðu margar tilraunir til
að jafna metin — Ingi Björn skall-
aði i þverslá og Bergsveinn átti
hörkuskot, sem hafnaði i varnar-
manni — en það var ekki fyrr en á
25. minútu, að Guðmundur Þor-
björnssotvjafnaðifyrir Val. Knött-
urinn hrökk til hans af Þorsteini
Ólafssvni eftir þunga pressu á
markið, og hann afgreiddi hann i
netið.
Aðeins 5 minútum siðar skor-
uðu Keflvikingar sigurmark sitt
úr vitaspyrnu. Gróf varnarmistök
Valsmanna leiddu til þess, að
Steinar fékk knöttinn á frium sjó
og einlék að marki. Eina ráð
Sigurðar i markinu var að hindra
hann ólöglega. Eysteinn
Guðmundsson dómari benti
umsvifalaust á vitapunktinn. Og
Steinar skoraði sjálfur úr vita-
spyrnunni.
Keflvikingar eiga hrós skilið
fyrir þann dugnað, semþeirsýndu
i leiknum. En vissulega er Bleik
brugðið. Keflavik er ekki sama
stórveldið og áður. Grétar
Magnússon og Karl Hermannsson
voru aðal vinnuþjarkarnir á
miðjunni og stóðu sig vel. 1
framlinunni voru Steinar og Jón
Ólafur virkastir.
Lánið lék ekki við Valsmenn i
þessum leik. Engu er likara en
skotskórnir hafi verið skildir eftir
á Hliðarenda. 1 liðinu eru nokkrir
ungirpiltar, sem eflausteiga eftir
að klæðast landsliðspeysum áður
en langt um liður, þeir láta nokk-
ur mörk fljóta með af og til,
Dómari í leiknum var Eysteinn
Guðmundsson og var röggsamur.
Landsmót UMFÍ hefst í dag:
STAÐAN
1. deildarkeppnin i knattspyrnu
er nú þessi:
Akranes .......7 4 2 1 16:7 10
Fram ....... 7 5 0 2 8:3 10
Keflavik.......8 3 2 3 7:8 8
Valur....... 8 2 3 3 9:9 7
KR ............7 2 2 3 4:5 6
Vikingur.......7223 3:5 6
FH.............7 2 2 3 6:14 6
Vestm.ey ......7 1 3 3 7:7 5
Bikar-
úrslit
AF bikarúrslitum i fyrrakvöld
kom mest á óvart sigur Hauka I
Hafnarfirði gegn Þrótti,Rvik, 3:1,
eftir framlengingu. 011 mörk
Hauka skoraði Loftur Eyjólfsson.
Haukar — Þróttir R 3:1
Reynir, A —Völsungur 3:1
Þór — KA 2:1
HVI —Bolungarvik 1:0
Þróttur N — Huginn 2:1
Leiknir —Valur, F 4:1
20-30 þúsund manns á landsmót-
inu á Akranesi?
Þaö var gott hljóð l Ingóifi
Steindórssyni, framkvæmda-
stjóra 15. iandsmóts UMFÍ, þegar
við ræddum við hann á Akranesi I
gærkvöldi, en mótið hefst I dag.
Sagði Ingólfur, að undirbúningur
hefði gengið vel og fyrstu
keppnisfólkið væri þegar mætt á
mótsstað. Alls eru skráðir kepp-
endur um 1100 talsins, en að sögn
Ingólfs, er búizt við þvl, að milli
20 og 30 þúsund manns komi tii
Akraness um helgina I sambandi
við mótið.
Ekki er óliklegt, að svo margir
sæki mótið, veröi veðurguðirnir
jafnhagstæðir og þeir voru fyrir
10 árum, þegar UMFI hélt lands-
mót sitt að Laugarvatni. Alla
vega voru starfsmennirnir I gær
bjartsýnir og báðu um, aö fólk
yröi minnt á að taka sólaroliu
með sér.
Af hálfu Akraneskaupstaöar
hefur verið gert mikið til þess aö
skapa sem bezta keppnisaðstöðu.
Framkvæmdum við nýja Iþrótta-
húsið hefur verið hraðað og
verður keppt i þvi I fyrsta skipti
um helgina, þó að byggingunni sé
ekki fulllokið. Þá hafa verið
gerðar lagfæringar á aðstööu
frjálslþróttafólks, og mun sú aö-
staða vera I góðu lagi.
Að sjálfsögóu er húsrými á
Akranesi takmarkað. Keppendur
og gestir mótsins munu búa I
tjaidborg, sem byrjað var að
reisa I gærkvöldi. Þjónustumið-
stöð verður I Gagnfræðaskóla
Akraness og þar verður einnig
mötuneyti.
Sem fyrr segir, hefst mótiö I
dag. Hefst það meö keppni I
körfuknattleik. Siðan tekur hver
greinin við af annarri, glima,
frjálsiþróttir, knattspyrna, hand-
knattleikur og skák, en um kvöld-
ið verður haldinn dansleikur.
Engin byggðastefna
í knattspyrnunni!
Valur ndði samkomulagi við Celtic um að leika fyrri leikinn í
Laugardal. — Keflvíkingar verða að faera sinn leik aftur fyrir
EINS OG fram hefur koniið i
fréttum, mun Valur leika gegn
Celtic I Evrópukeppni bikar-
hafa. Þar sem Celtic drógst á
undan, átti skozka liðið rétt á
heimaieik fyrst. En nú hafa
tekizt samningar miili Vals og
Celtic um það, að fyrri leikur
liðanna faro fram á Laugar-
dalsvellinum 17. september
Eru Valsmenn að sjálfsögðu
kampakátir með þetta sam-
komulag, þar sem það gefur
þeim aukna tekjumöguleika.
Hins vegar eru Keflvíkingar
ekki eins kátir, því að þetta
þýðir það, að þeir vcrða að
færa leik sinn gegn Dundee
Utd. i UEFA-keppninni aftur
fyrir leik Vals og Celtic, og
leika sennilega 18. eða 19.
september á Laugardalsvell-
inum. Þetta stafar af þvi, að
Reykjavikurféiögin hafa for-
gang að Laugardalsvellinum.
M.ö.o. það rlkir engih byggða-
stefna i knattspyrnumálum!
Garöar óskarsson form. Umf. Skipaskaga, Ingólfur Steindórsson
framkvæmdastjóri og Siguröur Guðmundsson formaöur landsmóts-
nefndar fyrir framan sjómannsstyttuna á Akranesi.